Fréttablaðið - 22.11.2013, Qupperneq 26
FRÉTTABLAÐIÐ Fólk og hönnun. Útgáfuteiti. Tíska. Hera Björk Þórhallsdóttir. Petit.is og PopUp verzlun. Piparkökur. Helgarmaturinn og Spjörunum úr.
2 • LÍFIÐ 22. NÓVEMBER 2013
HVERJIR
HVAR?
Umsjón blaðsins
Marín Manda Magnúsdóttir
marinmanda@frettabladid.is
Umsjón Lífsins á visir.is
Ellý Ármanns
elly@365.is
Útgáfufélag
365 miðlar ehf.
Forsíðumynd
Stefán Karlsson
Auglýsingar
Atli Bergmann
atlib@365.is
Hönnun
Silja Ástþórsdóttir
siljaa@frettabladid.is
Lífið
Skaftahlíð 24,
105 Reykjavík,
sími 512 5000
www.visir.is/lifid
Förðun Rakel Ásgeirsdóttir hjá MAC
Hár Emilía hjá Emóra Árbæ
Stílisti Marín Manda
Lífi ð
Hamingja, fólk og
annað frábært
É
g er búinn að kaupa mér
ný jakkaföt. Það var
númer eitt, tvö og þrjú,“
segir Hjalti Karlsson
hlæjandi þegar hann er
spurður út í verðlaunféð sem
hann hlaut á dögunum þegar
hann tók við Torsten og Wanja
Söderberg-hönnunarverðlaunun-
um við hátíðlega athöfn í Gauta-
borg. Verðlaunin eru veitt fram-
úrskarandi hönnuði frá Norð-
urlöndunum ár hvert, en Hjalti
hlaut nítján milljónir í verð-
launafé. „Það er of snemmt að
segja hvað þetta þýðir fyrir
mig en þetta er rosalegur heið-
ur og ég er nánast orðlaus,“ segir
Hjalti, sem var staddur á Íslandi
í stuttri heimsókn þegar blaða-
maður náði tali af honum.
Hjalti Karlsson er grafískur
hönnuður sem hefur búið í New
York í Bandaríkjunum undan-
farin tuttugu ár og rekur hönn-
unarfyrirtækið KarlssonWilker
ásamt Jan Wilker, meðeiganda
sínum. Í kjölfar verðlaunaaf-
hendingarinnar settu þeir fé-
lagar upp sýninguna This is how
I do it á Röhsska-safninu í Gauta-
borg. „Við erum búnir að vinna
að þessari sýningu í rúmlega
þrjá mánuði en þetta er risastór
salur. Ég ákvað að skipta saln-
um í tvennt og búa til tímalínu
af minni vinnu síðastliðin tutt-
ugu ár öðrum megin en á hinum
helmingi sýningarinnar eru sjö
stórar myndir sem hafa allar
með Svíþjóð að gera.“
Verkefnin hafa verið marg-
vísleg í gegnum árin og hefur
hönnunarteymið KarlssonWil-
ker meðal annars starfað fyrir
Puma, MTV í USA og Time
Magazine.
„Við hönnuðum eitt sinn tólf
blaðsíður fyrir Time Magazine
og ákváðum að troða lítilli mynd
af okkur á forsíðuna sem við
héldum að þeir myndu gera at-
hugasemd við, en þeir gerðu það
ekki,“ útskýrir Hjalti. Aðspurð-
ur um tengslin til Íslands segist
hann koma reglulega til landsins
og hefur meðal ann-
ars verið að vinna
með hljómsveit-
inni Gus Gus á
Íslandi.
HJALTI ÞETTA ER ROSALEGUR HEIÐUR
Hjalti Karlsson hlaut hin eftirsóttu sænsku Torsten og Wanja Söderberg-hönnunarverðlaun og opnaði sýningu á
Röhsska-safninu í Gautaborg í kjölfarið.
Sissa Ólafsdóttir, ljósmyndari og
skólastýra Ljósmyndaskólans, er í
sínu draumastarfi. Sem barn var
hún þó harðákveðin í að verða
nunna en fór aðra leið og lærði
þroskaþjálfann. Nokkrum árum
síðar fann hún sterka þörf til að
skapa og ákvað þá loks að slá til
og læra ljósmyndun.
Hver voru þín fyrstu skref
í ljósmyndun? Ég byrjaði að
vinna fyrir Ingólfskaffi, módelsamtök
og tímarit. Þá hélt ég að mig lang-
aði til að verða tískuljósmyndari.
Fljótlega byrjaði ég þó að mynda
það sem mér fannst áhugaverðast
á þeim tíma, þ.e.a.s taka barna-,
fjölskyldu- og brúðarmyndir. Ég féll
kylliflöt fyrir verkum ljósmyndarans
Sally Mann þegar ég var í námi.
Það voru einhverjir töfrar í myndun-
um hennar sem ég vildi ná fram í
mínum myndum, á minn hátt.
Hvað er skemmtilegast við
starfið? Það er svo margbreyti-
legt, engir tveir dagar eru eins og
það eru margar mismunandi leiðir
til að taka góða ljósmynd. Eins hef
ég í gegnum starfið kynnst mörg-
um af mínum bestu vinum og feng-
ið að upplifa yndislegar stund-
ir. Ljósmyndun er líka alltaf að
breytast, sem er spennandi. Þegar
ég byrjaði í ljósmyndun var allt
myndað á filmu. Þegar stafrænar
myndavélar komu til sögunnar opn-
aðist nýr heimur sem gerði manni
skyndilega kleift að gera svo miklu
meira við ljósmyndina.
Hvað gerir þú í frítíma
þínum? Ljósmyndun er ekki bara
vinnan mín heldur líka mitt helsta
áhugamál. Þegar ég er í fríi hugsa
ég um ljósmyndun og leita að inn-
blæstri. Ég ferðast, fer mikið á sýn-
ingar, horfi á bíómyndir og vinn
að eigin verkefnum. Ég var ein-
mitt að byrja á nýju verkefni þar
sem ég vinn með nýtt, spennandi
þema og þá fer allur minn frítími í
að vinna að því.
Einhver góð ráð fyrir þá
sem hafa áhuga á ljós-
myndun? Besta ráð mitt til
þeirra sem eru að stíga sín fyrstu
skref er að mynda og mynda og
mynda. Einnig að læra á mynda-
vélina þannig að þú vitir hvað
hún getur gert fyrir þig. Skoða
svo myndirnar gagnrýnum augum
og sjá hvað þú getur gert betur.
Ég trúi því einnig að þú verð-
ir miklu betri ljósmyndari ef þú
myndar það sem þú hefur áhuga
á. Ekki reyna að vera eins og allir
aðrir, það er til fullt af góðum ljós-
myndurum, en fáir sem eru ein-
stakir.
Vefsíða: sissa.is
STARFSHEITIÐ Ljósmyndari
Hjalti Karlsson
er ánægður með
verðlaunin.
Mannmargt var á veitingastaðnum Snaps á laug-
ardagskvöldið. Högni í Hjaltalín skeggræddi
við vin sinn á meðan fjölmiðlamaðurinn Eiríkur
Jónsson snæddi kvöldverð einn við barinn. Þá
borðaði Björn Zoëga, fyrrverandi forstjóri Land-
spítalans, kvöldmat í góðra vina hópi. Sama
kvöld var leikritið Refurinn frumsýnt í Borgarleikhús-
inu og þar vantaði ekki stjörnurnar. Hjónin Bryn-
dís Schram og Jón Baldvin Hannibalsson létu sjá
sig ásamt Vilborgu Halldórsdóttur, eiginkonu Helga
Björns leikhúsmógúls, Viðari Eggertssyni og fjöl-
miðlaparinu Sigríðri Dögg og Valdimari Birgissyni.