Fréttablaðið - 22.11.2013, Page 28

Fréttablaðið - 22.11.2013, Page 28
FRÉTTABLAÐIÐ Útgáfuteiti . Tíska. Hera Björk Þórhallsdóttir. Petit.is og PopUp verzlun. Piparkökur. Helgarmaturinn og Spjörunum úr. 4 • LÍFIÐ 22. NÓVEMBER 2013 Margmenni mætti til veislu þegar Yesmine Olsson hélt út- gáfuhóf á dögunum. Hófið var haldið í Björtu lofti í Hörpu í tilefni af útgáfu matreiðslubókarinnar Í tilefni dags- ins. Veislan heppnaðist einstaklega vel en boðið var upp á glæsilegar veitingar úr bókinni. Margir þekktir einstak- lingar mættu á svæðið og einnig kom sendiherra Svíþjóð- ar, Bosse Hedberg. Hjónakornin Ágústa Johnson og Guð- laugur Þór Þórðarson kíktu við. Erpur Eyvindarson, Þór- unn Högna, ritstjóri Home Magazine, Hafdís Jónsdóttir, og Selma Björnsdóttir mættu hress í hófið. FÓLK ÚTGÁFUTEITI Í TILEFNI DAGSINS Ágústa Johnson og Guðlaugur Þór Þórðarson. Arna Þóra Káradóttir, Ólafía Kvaran og Hildur Björk Guðmundsdótt- ir ásamt Yesmine. Elín Magnúsdóttir, Brandur Gunnarsson, Arnar Laufdal Ólafsson, Þórunn Högna. Erpur Eyvindarson tilbúinn að bragða á veitingum. Dýrindis kræsingar voru í boðinu. Hafdís Jónsdóttir, Gassi og Björn Leifsson. Gluggað í nýju bókina, Í tilefni dagsins. María Fjóla Pétursdóttir, Ragnheiður Melsteð og Björg Fenger. Friðrik Ómar og Selma. Yesmine ásamt eiginmanni sínum, Adda Fannari. Sendiherra Svíþjóð- ar, Bosse Hedberg, og eigin- kona hans Christina ásamt Yesmine. F yrsta blómalínan varð til í kringum ömmu mína Maríu, sem var svo mikil blómakona og í framhaldi af því varð til blúndublómalínan Auður, sem ber sama nafn og móðir mín,“ segir Ragnhildur Sif Reynis- dóttir, sem sýndi hönnun sína á sýningunni Handverk og hönnun fyrir skömmu. Þetta var í fyrsta sinn sem hún tók þátt í sýningunni en hún segist hafa fengið ótrúlegan meðbyr. Það er langt síðan Ragnhildur Sif byrjaði að starfa við skart- gripahönnun en gull- og silfur- smíði hefur verið í fjölskyld- unni í margar kynslóðir. „Það hefur þó alltaf blundað í mér að byrja með mitt eigið og því ákvað ég að flytja út til Bretlands og læra skartgripa- hönnun.“ Ragnhildur Sif lauk mastersgráðu í faginu og hann- ar undir nafninu Sif skartgrip- ir. „Ég smíða allt sjálf en fljót- lega þarf ég að fá hjálp við vinnuferlið því það er rosalega mikið föndur í kringum þetta.“ Sif skartgripir fást meðal annars í versluninni Kraum, Ernu Skipholti 3, Rhodium í Kringlunni og Hilton Reykja- vík Nordica. Vefsíðan er skart- gripir.is. BLÓMALÍNAN TENGIST ÆSKUMINNINGUM Ragnhildur Sif Reynisdóttir hannar blómaskartgripina Sif skartgripir. Skartgripa- línan teng- ist blómum og blúnd- um. Öflug vörn gegn sveppasýkingum „Ég mæli með Bio Kult Candéa fyrir skjólstæðinga mína. Síðustu ár hef ég lagt mikla áherslu á að vera í jafnvægi, með góða orku og einbeitningu í lífi og starfi. Ég hef lagt áherslu á að taka inn góða gerla til að viðhalda jafnvægi og orku og hef prófað þá allra bestu hér á markaðinum hverju sinni,“ segir Sigríður Jónsdóttir, ADHD markþjálfi og fíkniráðgjafi. „Mér finnst Bio Kult Candéa vera skjótvirkasta varan sem ég hef prófað. Ég mæli með henni fyrir skjólstæðinga mína sem gjarnan eru að glíma við ójafnvægi í lífi sínu.“ Candéa

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.