Fréttablaðið - 22.11.2013, Blaðsíða 32
miður þurft að segja nei við því. En
að sama skapi hefur verið að gerj-
ast í mér einhver geðveiki, einhver
útþrá því ég verð að kanna hvað er
þarna úti.“
Flytur til Chile með fjölskylduna
Nú eruð þið fjölskyldan að flytj-
ast búferlum til Chile í byrjun
næsta árs, ekki satt? „Jú, við
tókum þessa ákvörðun með börn-
unum okkar, að flytja og sjá hvað
bara gerist. Ég held að þetta sé
alveg rétt ákvörðun. Það er allt
sem að beinir okkur í þá áttina. Ég
er komin með ákveðið verkefni í
tengslum við keppnina úti. Það er
að myndast skemmtilegt tengsla-
net við alls konar fólk sem vill vera
í sambandi. Við ætlum bara að fara
á staðinn og taka þetta á tilfinn-
ingunni sem stríðir gegn öllu sem
okkur er kennt. Fólk er alltaf að
segja: Já, stökktu út í djúpu laugina
en vertu með kút, súrefnisgrímu
og öll öryggisatriði á hreinu,“ segir
hún skellihlæjandi.
„Við mæðgurnar fórum í bíltúr
í vor og tókum aðeins púlsinn á
væntanlegum flutningum því
þegar maður er 15 ára er mikil
breyting að flytja á framandi slóð-
ir en hún sagði við mig: Mamma,
þú átt alltaf eftir að sjá eftir því
ef þú flytur ekki núna. Ég hugsaði
bara, ef krakkarassgatið sér þetta
svona skýrt þá hlýtur þetta bara
alveg að vera málið.“
Hvað með spænskuna, ertu
með hana alveg á hreinu? „No
comprende … ég mun alveg bjarga
mér. Ég er korter í að vera altal-
andi. Ég bara finn það, ég held ég
hafi verið sígauni í kringum Barce-
lona í fyrra lífi. Ég er með hana í
blóðinu og hefur fundist alla ævi
að ég eigi að tala spænsku. Ég verð
alltaf svo hissa þegar ég heyri
spænsku; bíddu, ég á að skilja
þetta og ég á að getað talað þetta?
Hvað er eiginlega að þessu í kerf-
inu hjá mér? Þess vegna held ég að
ég verði bara mjög fljót. Þeir voru
voðalega skotnir í mér þegar ég
var að koma með einhverja svona
frasa og þá náði ég alltaf að hljóma
bara eins og innfædd.“
Finnst gott að vera ég
Þú ert svo óhrædd og virkar mjög
tilbúin í slaginn. Hvaðan kemur
þetta öryggi í fasi þínu? „Ég hlýt
að geta þakkað uppeldinu það, því
ég hef aldrei verið barin niður og
mér hefur verið kennt að trúa því
að ég geti gert allt sem ég vil. Þetta
kom held ég samt allt þegar ég fór
að hvíla í sjálfri mér og sú vinna
fór ekki í gang fyrr en seint. Ég
hef alltaf verið örugg og það myndi
fólk segja sem er búið að þekkja
mig lengi en það var alltaf pínu
frontur. Bæði var þetta pínu vörn
eða bara að sannfæra sjálfa mig
um að ég gæti allt. Í dag hvíli ég
bara í sjálfri mér og finnst gott að
vera ég. Ég hef bara trú á því sem
ég er að gera.“
Nú ert þú að fara gefa út jóla-
plötuna Ilmur af jólum 2. Er þetta
mjög hátíðleg plata? „Platan er
ágætis framhald af plötunni sem
ég gerði fyrir þrettán árum og hét
Ilmur af jólum 1. Þetta er svona
sjálfstætt framhald. Þetta er svo-
lítið eins og að fæða barn, sem
er alveg ótrúlegt. Þessa plötu er
ég búin að ganga með í magan-
um í næstum tíu ár. Svo var kom-
inn tími núna. Ég er bæði þrett-
án árum eldri og lífsreyndari svo
þessi plata er þroskaðri og dí-
namískari og dramatískari, hátíð-
FRÉTTABLAÐIÐ Hera Björk Þórhallsdóttir. Petit.is og PopUp verzlun. Piparkökur. Helgarmaturinn og Spjörunum úr.
8 • LÍFIÐ 22. NÓVEMBER 2013
T
ónlistin er ættarfylgja
en hún segist hafa hang-
ið í pilsfaldinum á móður
sinni þegar hún var yngri
og hlustað á söng henn-
ar með mikilli aðdáun. Það kom
því aldrei neitt annað til greina
en að verða söngkona, þrátt fyrir
að hún berðist gegn því. „Þetta
er það sem ég kann og á að vera
að gera. Ég fór að læra viðskipta-
fræði í Háskólanum og reyndi
lengi að berjast gegn listinni en
mér var ætlað þetta og þegar ég
sættist við sjálfa mig fór ég að
blómstra.“
Er sönglistin meðfædd eða
þurftir þú að hafa fyrir henni á
yngri árum? „Ég hef alltaf haft
röddina en ég þurfti að hafa fyrir
því að standa með sjálfri mér
og elska mína rödd. Viðurkenna
hvað ég hafði að vinna með. Ég
er bara ég. Maður er alltaf í ein-
hverjum óréttlátum samanburði
og ég var eflaust orðin 35 ára
þegar ég loksins sætti mig við
mig. Ég streittist lengi á móti
því að verða söngkona. Mér líður
langbest uppi á sviði. Þar er ég
örugg og þetta er það sem ég
kann og það sem ég á að gera.“
Hvernig er tilfinningin þegar
þú ert á sviði? „Hún er bara
dásamleg. Þegar ég er vel undir-
búin að vinna vinnuna mína með
fólki sem ég treysti þá er þetta
bara frábært. En ef maður er
ekki undirbúinn þá er þetta auð-
vitað jafn ömurlegt og mann
langar til að hverfa. Ef athygl-
in er á þér og þú ert ekki undir-
búin þá sprettur upp þessi ótti
við að mistakast. Heimsbyggð-
in hræðist meira að standa upp
og tala, hvað þá syngja, heldur en
að deyja.“
Ég á eftir að toppa mig
Nú vannst þú söngvakeppnina
Viña Del Mar Festival í Suður-
Ameríku í febrúar með laginu Be-
cause You Can. Myndir þú segja
að það sé toppurinn á ferli þínum
hingað til? „Já, að vissu leyti, að
ná svona árangri á markaði sem
þekkti mig ekki og fá þessa við-
urkenningu frá heimshluta sem
hefur aldrei heyrt á mig minnst.
Það var æðislegt. Þá hugsar
maður, veistu, já, ég er alveg búin
að vera dugleg undanfarin ár. Ég
er að gera eitthvað rétt. Hins vegar
á ég svo æðislegar minningar frá
Eurovision í Ósló að ég held að það
hafi verið toppurinn á þeim tíma.
Sú keppni gerði það að verkum að
ég fór til Viña Del Mar og er búin
að ferðast og syngja úti um allan
heim. Ég held þó að ég eigi eftir
að toppa mig og fá tækifæri til að
gera eitthvað magnað.“
Hvernig fékkstu tækifæri til að
taka þátt í þessari keppni í Chile?
„Skipuleggjendur keppninnar voru
í rauninni bara að leita að söngkon-
um. Þá langaði greinilega í dívur
í rauðum kjólum og þá var bara
gúglað og ég kom upp. Þeir hlusta
og heillast og bjóða mér. Þannig að
þetta kom algjörlega upp í hend-
urnar á mér og þegar við Valli, um-
boðsmaðurinn minn, fengum tölvu-
póst frá þeim þá vorum við bæði
alveg: Chile? Hvar er það eigin-
lega?“ segir hún hlæjandi.
Hvað hefur síðan gerst í kjöl-
far keppninnar? „Ég hef verið að
ferðast örlítið hér innan Evrópu og
aðeins í Bandaríkjunum að syngja
og fékk nokkur tilboð frá Suður-
Ameríku sem ég þurfti að afþakka
því ég var svo langt í burtu, Ég
hefði þurft að borga flugið sjálf og
það er býsna dýrt svo ég hef því
HERA BJÖRK
DRAUMURINN
AÐ SYNGJA
MEÐ GEORGE
MICHAEL
Hera Björk Þórhallsdóttir hefur mikla rödd. Hún lenti
í öðru sæti í dönsku Eurovision-keppninni með lagið
Someday árið 2009. Ári seinna tók hún þátt í Eurovision-
keppninni fyrir Íslands hönd með lagið Je Ne Sais Quoi
við góðar undirtektir og í byrjun árs sigraði hún í söng-
lagakeppninni Viña Del Mar í Chile. Lífi ð ræddi við Heru
Björk um nýja jóladiskinn, fl utninginn til Chile og draum-
inn um að syngja með George Michael.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
IÐA-bókakaffi Vesturgata 2a 101 Rvk.
opið til 22 alla daga.