Fréttablaðið - 22.11.2013, Page 45

Fréttablaðið - 22.11.2013, Page 45
KYNNING − AUGLÝSING Bandalag háskólamanna22. NÓVEMBER 2013 FÖSTUDAGUR 13 Sinfóníuhljómsveit Íslands var stofnuð vorið 1950 og hefur um árabil verið í fremstu röð sinfóníuhljómsveita á Norðurlöndum. Hljómsveitin hefur fengið afbragðs dóma, jafnt fyrir hljóðritanir sínar og tónleika heima og erlendis. Hljómsveitar- meðlimir eiga allir að baki langt framhaldsnám, að sögn Margrétar Þorsteinsdóttur, formanns starfs- mannafélagsins og fiðluleikara í hljómsveitinni, og Rúnars Óskars- sonar, klarínettuleikara og fyrrver- andi formanns samninganefndar hennar. „Hér er um hámenntað fólk að ræða sem auk formlegrar menntunar sinnar hefur stund- að hljóðfæraleik frá blautu barns- beini. Það ákveður enginn eftir stúdentspróf að drífa sig í tónlist- arháskóla,“ segir Margét. Á Íslandi eru fjölmargir aðrir vel menntaðir tónlistarmenn sem starfa í ólíkum geirum. „Tón- listarskólar landsins vinna mjög mikið og gott uppeldisstarf sem gefur af sér gróskumikið tónlist- arlíf og marga tónlistarunnendur. Hver tónlistarmaðurinn á fætur öðrum kemur fram á sjónarsvið- ið og hljómsveitir. Hvaðan heldur fólk til dæmis að hljómsveit eins og Of Monsters and Men sé sprott- in? Auðvitað úr tónlistarskólum landsins.“ Eitt af því sem gerir lönd byggileg er menning þeirra og snar þáttur hennar er tónlist. Ísland er þar engin undantekning. Krefjandi og skemmtilegt starf Launataxtar ríkisins byggja að miklu leyti á menntun en þrátt fyrir það hafa laun hljómsveitar- meðlima ekki hækkað í samræmi við laun annarra menntamanna undanfarin ár. Rúnar segir hljóð- færaleikara alltaf hafa stað- ið í basli við að fá menntun sína metna þannig að þeir fái sam- bærileg laun og aðrir sérfræðing- ar ríkisins með framhaldsmennt- un. „Okkur finnst eins og marg- ir haldi að þetta sé ekki alvöru menntun og finnum fyrir miklu skilningsleysi á því hvað þarf til að sinna þessu starfi. Þeir sem hefja störf hér eru atvinnumenn frá fyrsta degi og skila fullum af- köstum strax. Um hverja stöðu í SÍ er keppt, störfin eru auglýst á Evr- ópska efnahagssvæðinu. Í hæfn- isprófi er leikið á bak við tjald svo fyllsta jafnræðis sé gætt.“ Að sögn þeirra ríkir lítill skiln- ingur hjá samninganefnd ríkis- ins þegar kemur að kjaraviðræð- um. „Það er vægt til orða tekið að segja að lítill skilningur ríki þar á bæ. Kjarasamningar SÍ eru öðru- vísi en annarra starfsstétta að því leyti að við erum með samning þar sem allt er innifalið í grunn- launum. Á meðan aðrar stéttir fá greiddar álagsgreiðslur fyrir störf utan dagvinnutíma hefur verið erfitt fyrir okkur að sækja þær greiðslur.“ Þannig eru heildar- laun hljóðfæraleikara að þeirra sögn þau sömu og grunnlaun, ólíkt f lestum starfsstéttum. „Auk þess æfum við okkur heima á ólíklegustu tímum, á kvöldin og um helgar, og er það líka innifalið í grunnlaunum okkar. Við stimpl- um okkur nefnilega ekki inn og út eins og margar aðrar starfsstétt- ir. Þetta er meðal þess sem við höfum reynt að koma samninga- nefndinni í skilning um, þetta er mjög sérhæft starf og ólíkt f lest- um öðrum störfum. En þegar best tekst til og hljómsveitin nær góðu f lugi fyrir fullu húsi áheyrenda, þá er fátt skemmtilegra.“ Stöðug sókn Vorið 2011 varð Harpa heimili Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Að- sókn á tónleika hennar hefur tvö- faldast frá því sem var starfsár- ið 2008-2009 sem skýrist að hluta til með f lutningi sveitarinnar í Hörpu en ekki síður öflugu kynn- ingarátaki sem ráðist var í á þess- um tíma. Meðalaldur tónleika- gesta hefur lækkað töluvert og má því búast við áframhaldandi fjölg- un tónleikagesta næstu misseri. Á síðasta starfsári komu tæplega 70.000 gestir á yfir sjötíu tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Fyrir utan æfingar og tón- leika er starfsemi Sinfóníunn- ar mjög fjölbreytt. „Við höldum úti mjög viðamiklu fræðslustarfi sem stendur á gömlum merg þar sem áhersla er lögð á gæði og fjöl- breytta miðlun. „Í vetur verð- ur boðið upp á hinar vinsælu og skemmtilegu Barnastund- ir sem ætlaðar eru yngstu hlust- endunum og opnar æfingar fyrir framhaldsskóla- og tónlistar- nema. Hljómsveitin heimsækir skóla og umönnunarstofnanir og eldri borgurum er boðið í heim- sókn. Maxímús verður fastagest- ur í Barnastundum vetrarins og kemur reglulega fram á tónleikum Litla tónsprotans, sem er áskrift- arröð sérstaklega ætluð barnafjöl- skyldum.“ Tónlistarmenn fram- tíðarinnar spila með Ungsveit SÍ auk þess sem ungir einleikarar keppa árlega um að koma fram á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar- innar. „Svo má ekki gleyma þátt- töku okkar í hinum ýmsu popp- tónleikum undanfarin ár þar sem við höfum spilað með mörg- um af þekktustu og vinsælustu popptónlistarmönnum landsins. Í næstu viku mun hljómsveitin til að mynda að spila á þrennum tónleikum með hljómsveitinni Skálmöld. Þetta er sem sagt hluti af því sem er í verkahring okkar, hljómsveitar allra landsmanna.“ Hljómsveit allra landsmanna Sinfóníuhljómsveit Íslands (SÍ) er eitt af flaggskipum íslenskrar menningar. Verkefni hljómsveitarinnar eru margvísleg, jafnt á sviði Hörpu og úti í þjóðfélaginu. Hljómsveitin heldur tónleika úti á landi, í skólum og á sjúkrastofnunum. Tónleikagestum hefur fjölgað frá ári til árs og öflugt fræðslustarf fer fram á vegum sveitarinnar. M Y N D /A RI M A G G M Y N D /A RI M A G G Að sögn Margrétar Þorsteinsdóttur, formanns starfsmannafélags Sinfóníuhljómsveitar Íslands, og Rúnars Óskarssonar, fyrrverandi for- manns samninganefndar hennar, ríkir lítill skilningur hjá samninganefnd ríkisins þegar kemur að kjaraviðræðum. MYND/GVA 1

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.