Fréttablaðið - 22.11.2013, Page 48
KYNNING − AUGLÝSINGStéttarfélög FÖSTUDAGUR 22. NÓVEMBER 20134
Verkstjórasambandið er samband þrettán verk-
og stjórnendafélaga sem starfa víðsvegar um
landið. Félagsmenn eru stjórnendur í víðasta
skilningi þess orðs. Starfandi stjórnendur eru
um 2.200 en skráðir félagar eru nær 2.700.
Kristján Örn Jónsson, framkvæmdastjóri
Verkstjórasambandsins, segir stuðning við
félagsmenn meginhlutverk sambandsins.
„Það var haft að leiðarljósi strax við stofnun
og var félagsmönnum ávallt rétt hjálparhönd
ef þurfa þótti, fyrst úr sérstökum sjóði en svo
með beinum framlögum. Árið 1973 var samið
við vinnuveitendur um greiðslur í Sjúkrasjóð
verkstjóra og við það breyttist aðstaða til stuðn-
ings félaganna. Sem dæmi þá greiðir sjóður-
inn 80% meðallauna síðustu tólf mánaða í allt
að tólf mánuði í veikindum. Æfingar hjá kíró-
praktor eða sjúkraþjálfun eru greidd að fullu á
móti TR í 25 skipti, en 60% af þeim skiptum sem
viðkomandi þarf á að halda umfram það, á tólf
mánaða tímabili. Eftir það tekur við nýtt tíma-
bil með sama rétti.“
Ekkert þak á greiðslum
Meðal styrkja sem félagsmönnum standa til
boða eru styrkir vegna kaupa á gleraugum,
heyrnartækjum, leiser-augnaðgerðar, tækni-
frjóvgunar og fæðingarstyrkur svo fátt eitt sé
nefnt. Ekkert þak er á greiðslum. Hægt er að
fá styrk fyrir fleiri atriðum í sama mánuði.
Áhersla er lögð á forvarnir eins og krabba-
meins- og hjartaskoðun og þá á Sjúkrasjóð-
urinn íbúð fyrir félagsmenn utan af landi sem
verða að sækja sér lækningu í Reykjavík.
„Það nýjasta hjá okkur er Ítarleg heilsufars-
skoðun sem greidd er að fullu,“ segir Kristján.
„Enn sem komið er eru þessar skoðanir að-
eins framkvæmdar í Reykjavík og á Akureyri
en allar upplýsingar um heilsufarsskoðanir má
nálgast á heimasíðunni okkar vssi.is.“
Nýir félagar með fullan rétt
„Nýir félagsmenn koma inn til okkar með þann
rétt sem þeir hafa áunnið sér í sjúkrasjóði fyrra
félags. Þeir félagsmenn sem láta af störfum fyrir
aldurs sakir og hafa greitt til okkar samfellt í að
minnsta kosti tíu ár fyrir starfslok halda rétti í
sjúkrasjóði út ævina.“
Menntunarsjóður SA og VSSÍ
Menntun verkstjóra hefur lengi verið baráttu-
mál samtakanna. Árið 2008 var samið við SA
um greiðslu í Menntunarsjóð SA og VSSÍ til
að stuðla að menntun í stjórnun. Stjórnunar-
nám var af skornum skammti og því var einn-
ig ákveðið að setja saman metnaðarfullt nám í
samstarfi við SA fyrir fyrir þann hóp, sem nú er
á lokasprettinum.
„Nám sem í boði hefur verið fyrir stjórnend-
ur er Verkstjórnarfræðslan sem Nýsköpunar-
miðstöð Íslands hefur haldið, Dale Carnegie
hefur í samstarfi við okkur haldið sérsniðin
námskeið fyrir stjórnendur og endurmenntun-
ardeildir háskólanna,“ útskýrir Kristján. „Áður
en samningar tókust við SA höfðu aðrir samn-
ingsaðilar hafið greiðslur í menntunarsjóð
VSSÍ og úr þeim sjóði er greitt vegna alls ann-
ars náms en þess sem snýr beint að stjórnun, til
dæmis fagtengt nám, tölvunám og tungumál.
Báðir sjóðirnir greiða allt að 80% af námskostn-
aði en þó ekki meira en 110 þúsund í hverju ein-
stöku námi. Vegna dýrara náms eru greiddar
allt að 330 þúsund krónur. Fyrirtækin hafa
sama rétt og félagsmenn til að sækja um styrk
til menntunar og þess má geta að styrkir til fyr-
irtækis skerða ekki rétt félagsmanna til styrkja
úr sjóðunum. Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á
styrk vegna tómstundanáms. Sjúkrasjóðurinn
og svo menntunarsjóðirnir eru þeir tveir hlutir
sem ég er hvað ánægðastur með í starfi samtak-
anna. Eins er ég ánægður með hvað fyrirtæk-
in nýta sér menntunarsjóðina vel og vil ítreka
það við félagsmenn að menntun verður ekki frá
ykkur tekin.“
Öflugir styrkir til félagsmanna
Verkstjórasamband Íslands var stofnað 10. apríl 1938 sem einstaklingsfélag en breyttist fljótlega í deildarfélag með stofnun
verkstjórafélaganna. Samtökin áttu 75 ára afmæli í vor sem haldið var upp á með opnu húsi. Frá stofnun hefur sambandið séð um
samninga og velferðarmál fyrir verkstjórnendur. Félögin eiga og reka orlofshús sem eru 23 talsins.
Kristján Örn
Jónsson,
framkvæmda-
stjóri við enda
borðsins, ásamt
Skúla Sigurðssyni,
Helgu Jakobs-
dóttur, Jóhönnu
Margréti Guðjóns-
dóttur, Jóhanni
Baldurssyni, Reyni
Kristjánssyni og
Rósant Aðal-
steinssyni þar
sem unnið er að
samningum.
MYND/VALLI
X-Factor
fimmtudaga
og
föstudaga
FYLGIR
áskrift
að Stöð 2
Stöð er ný sjónvarpsstöð
Aðeins 2.990 kr. á mánuði
Krakkastöðin
fylgir með
=Skjár 1 4.990 kr. á mánuði
+ + =Stöð 2.990 kr. á mánuði
Gerðu verðsamanburð
Tryggðu
þér áskrift
á stod3.is