Fréttablaðið - 22.11.2013, Page 50
FRÉTTABLAÐIÐ Hera Björk Þórhallsdóttir. Petit.is og PopUp verzlun. Piparkökur. Helgarmaturinn og Spjörunum úr.
10 • LÍFIÐ 22. NÓVEMBER 2013
„Við tvö værum snilldarpar á sviði. Það munaði engu að ég fengi að syngja með
Elton John í Chile, eina vandamálið var bara að hann vildi vera einn á sviðinu.“
læra Complete Vocal Technique-
söngtæknina. „Ég lærði þetta árið
2004 og þetta er svona „non-bull-
shit“-tækni. Ábyrgðin er svolítið
sett á mann sjálfan og maður fær
frábær verkefni í hendurnar. Þú
færð verkfærakistu og í henni eru
öll tæki og tól sem þú þarft og svo
byrjar þú bara að leika þér. Þetta
snýst um að prófa, spenna bogann
og fara út fyrir þægindarammann.
Þá kynnist maður röddinni sinni
betur. Fyrir mig var þetta eins og
að fara í Disney World á frímiða og
vera þarna í þrjú ár að leika mér,“
segir hún hlæjandi.
Þú komst fram í Íslandi í dag
fyrir stuttu þar sem þú talaðir
mjög opinskátt um þyngdar-
tap þitt og megrunarkúra. Hvað
varð til þess að þú breyttir um
lífsstíl? „Ég fékk bara tækifæri
upp í hendurnar sem ég gat ekki
hafnað. Eftir keppnina úti í Chile
kynntist ég konu frá Púertó Ríkó
sem fékk mig til að syngja á ráð-
stefnu í Barcelona. Þar hitti ég
fólk sem hún var að vinna með en
það starfaði með NU Skin sem ég
þekkti áður. Fyrir tækið er búið
að þróa einstaka þyngdarstjór-
nunarvöru sem þau vildu endilega
fá mig til að prófa og voru bara
mjög hreinskilin; þú ert svona frá-
bær og feit, þarft þú ekki að prófa
þetta? Ég er búin að prófa alla
heimsins kúra í gegnum tíðina og
með mjög misjöfnum árangri. Ég
ákvað að treysta þessu fólki, taka
niður varnirnar og ég léttist um
12 kíló á 90 dögum.
Mér leið svo vel, varð orku-
meiri og er að kafna úr gleði yfir
þessu. Nú hreyfi ég mig reglu-
lega og ég borða miklu hollari mat.
Græðgispúkinn bara hvarf úr lífi
mínu á fyrstu vikunum og ég hef
ekki fundið hann ennþá. Ég fór úr
flokki sem heitir alvarleg offita
yfir í flokk sem heitir bara of-
fita og ég varð hamingjusamasta
kona í heimi þegar ég fór niður
fyrir þessi mörk. Alvarlegri of-
fitu fylgja margir áunnir sjúkdóm-
ar sem ég var bara heppin að vera
ekki komin með. Þetta er stórkost-
legur munur fyrir mig í mínu dag-
lega lífi. Ég var vön að kaupa inn
bæði hollt og óhollt og át allt þetta
óholla en hitt endaði að mestu í
ruslinu.“
Hefurðu eitthvað verið á lágkol-
vetnafæðinu? „Nei, þetta eru öfgar
fyrir mér. Ég prófaði þetta eins og
allir hinir en er þó sammála LKL-
fræðingum um að maður eigi að
borða próteinríkari fæðu. Ég er
bara að byggja upp vöðva í dag og
lifa heilsusamlegar.“
Svo tekurðu þátt í verki í Þjóð-
leikhúsinu, hvaða verk er það?
„Ég er að æfa þar fyrir sýningu
sem verður frumsýnd annan í
jólum. Verkið heitir Þingkonurn-
ar og fjallar um konur sem ákveða
að taka völdin af körlunum en þetta
er mjög gamalt verk. Þetta er sýn
Aristófanesar á konur sem voru al-
gjörlega réttlausar, nánast eins
og þrælar. Þetta er sem sagt grísk
tragíkómedía.
Það er langt síðan ég hef verið í
leikhúsi og ég er ráðin í sýninguna
sem söngkona. Benni Erlings leik-
stýrir og þetta er frábær hópur
sem ég vinn með.“
Er desembermánuður þá full-
bókaður hjá þér? „Það er ansi
mikið að gera. Ég er með tónleika
8. desember í Grafarvogskirkju,
fer til Færeyja með Frostrósum
um mánaðamótin að syngja og svo
er ég með tónleika 15. desember
með grúppu sem ég söng með hér
áður fyrr. Þann 21. og 22. verð ég
svo á tónleikum með Frostrósum.“
Hvað verður um verslunina
þína á Laugaveginum, Púkó og
Smart, þegar þú flytur? „Ég er
alveg til í að ræða það ef einhver
vill kaupa hana. Við erum bara
að viðra það en ég get fullviss-
að fólk um það að ég ætla ekki að
loka henni. Fólk virðist vera voða-
lega hrætt um það. Ég er bara opin
fyrir öllu en það getur vel verið að
ég fjarstýri henni bara. Þessi búð
er búin að vinna sér sess á Lauga-
veginum og styrkir þennan part
hans.“
Ef þú mættir velja að syngja
með hverjum sem er, hver væri
það? „Draumurinn er að syngja
með George Michael. Ég hef alltaf
dýrkað manninn og ég vissi allt-
af að hann væri samkynhneigður.
Það bara hlaut að vera því hann
var svo djúpur, vansæll en samt
svo hamingjusamur. Mér fannst
ég lesa hann. Hann fer beint í
hjartað á mér, bæði lögin hans og
textarnir. Við tvö værum snilld-
arpar á sviði. Það munaði engu að
ég fengi að syngja með Elton John
í Chile, eina vandamálið var bara
að hann vildi vera einn á sviðinu.“
Mamma, þú átt
eftir að sjá eftir
þessu alltaf ef þú
flytur ekki núna.
Ég hugsaði bara,
ef krakkarassgat-
ið sér þetta svona
skýrt þá hlýtur
þetta bara alveg
að vera málið.
AÐFERÐIN BÚÐU TIL FALLEG
OG PERSÓNULEG ILMKERTI
– Og heimilið fær jólailm
Nú eru flestir farnir að hugsa
til jólanna og leita að falleg-
um leiðum til að skreyta heimili
sín og klæða þau í jólabúning.
Að búa til ilmkerti er skemmti-
legt föndur, sáraeinfalt og það
tekur enga stund að búa til fal-
lega jólaskreytingu úr venju-
legu kerti, sem gefur einnig frá
sér jólalegan ilm.
Þú þarft
Kubbakerti
Gúmmíteygju
Kanilstangir
Snærisspotta
Örbylgjuofn
1. Settu gúmmíteygjuna utan
um kertið og raðaðu kanil-
stöngunum undir teygjuna
lóðrétt, hlið við hlið. Ef
þú ert með langar stangir,
klipptu þær þá til með skær-
um svo að þær passi við
lengd kertisins.
2. Þegar kanilstangir umkringja
kertið bittu þá snærisspotta
þétt um kertið nokkra hringi
og taktu gúmmíteygjuna af.
3. Ef kertið er gjöf er mikil-
vægt að kanilstangirnar séu
vel fastar við kertið og þá
þarftu að setja það með
kanilstöngunum og band-
inu (alls ekki gúmmíteygj-
unni) inn í örbylgjuofn í
hálfa mínutu. Passaðu þig
að taka það varlega út með
viskustykki því að stangirnar
verða heitar.
4. Með viskustykki vöfðu um
það, þrýstu kanilstöngunum
þétt að kertinu til að festa
það við vaxið áður en það
harðnar aftur.
5. Lagaðu til snærisspottann
og búðu til slaufu eða bættu
við meira skrauti. Til dæmis
greni, laufum eða þurrkuðum
ávöxtum.
6. Kertið er tilbúið, kveiktu á
því og finndu kanililminn
dreifast um rýmið.