Fréttablaðið - 22.11.2013, Blaðsíða 56
Lífi ð
FRÉTTABLAÐIÐ Helgarmaturinn og Spjörunum úr.
HELGAR MATURINN GÓMSÆT GRAFIN GÆS
Hvern faðmaðir þú
síðast?
Margréti Blöndal útvarps-
konu.
En kysstir?
Kærastann minn.
Hver kom þér síðast
á óvart og hvernig?
Það er ekki hægt að koma
mér á óvart. Ég er sá sem
sé um að koma öðrum á
óvart.
Hvaða galla í eigin
fari ertu búin að um-
bera allt of lengi?
Pottþétt þann hvimleiða
galla að naga neglurnar.
Óþolandi.
Ertu hörundsár?
Já, alveg pottþétt.
Dansarðu þegar eng-
inn sér til?
Ég er eiginlega að fatta
það núna að ég dansa
þegar ég er að fagna ein-
hverju, þó ég sé bara einn
með sjálfum mér.
Hvenær gerðirðu
þig síðast að fífli og
hvernig?
Ég er svo ótrúlega hepp-
inn að hafa aldrei gert mig
að fífli. Djók. Ég samt man
ekki eftir neinu!
Hringirðu stundum í
vælubílinn?
Já, en bara þegar allt
annað klikkar.
Tekurðu strætó?
Ekki á Íslandi en í útlönd-
um, já.
Hvað eyðirðu miklum
tíma á Facebook á
dag?
Örugglega 1-2 klst.
Ferðu hjá þér þegar
þú hittir fræga eða
heilsarðu þeim?
Nei, það er alger óþarfi
að fara hjá sér. Ég heilsa
þeim sem ég þekki. Það
eru samt margir sem heilsa
mér á förnum vegi og biðj-
ast síðan afsökunar á því.
Það er mjög fyndið. Fólk
sem þekkir mig ekki neitt
en hefur séð mig í sjón-
varpinu.
Lumarðu á einhverju
sem fáir vinir þínir
vita um þig?
Nei, og af hverju í veröld-
inni ætti ég að vera að
segja frá því hér?
Hvað ætlarðu alls ekki
að gera um helgina?
Ég slaka alls ekki á. Þetta
verður annasöm helgi.
Maður verður að fylgja
plötunni eftir eins og maður
getur.
Friðrik Ómar
ALDUR: 32
STARF: Tónlistarmaður og fl.
...SPJÖ
RU
N
U
M
Ú
R
Harpa Hlín Þórðardóttir er
sölustjóri Lax-á.
Hún er þriggja barna móðir
sem hefur unun af því að vera
úti í náttúrunni og fara á veið-
ar. Hún er hér með uppskrift
að reyktri gæs. Uppskriftina sá
hún í Gestgjafanum fyrir mörg-
um árum og hefur aðeins stíl-
fært hana. Harpa Hlín segist
oft bera réttinn fram á bakka
ásamt reyktum og gröfnum
laxi og baquette brauði.
1 bringa (2 lummur), 1½ bolli gróft salt, 1
msk. sykur, 1 msk. rósapipar, 1 msk. græn
piparkorn, 1 msk. rósmarín, 1 msk. timian,
1 msk. basilika, 1 msk. estragon, 1 msk.
sinnepsfræ, 1 msk. dillfræ
Blanda saman sykri og salti, dreifið yfir
bringuna og látið bíða við stofuhita í 4
stundir. Skolið svo saltblönduna vel af og
þerrið. Veltið svo bringunum upp úr krydd-
blöndunni þannig að bringurnar hyljist
alveg og látið bíða í kæli í 1-3 sólarhringa.
Hlutföllin í kryddblöndunni eru breytileg, t.d
nota ég oft minna af fræjunum og meira af
hinu. Ég bý alltaf til helling og geymi í frysti
en mér þykja bringurnar ekki síðri þegar
þær hafa verið frosnar.
Sósa:
2 msk. gott majones, 2 msk.
sýrður rjómi, 1 msk. sætt sinn-
ep, 1 tsk. gott hunang, Svart-
ur pipar
Meðlæti:
Sem meðlæti nota ég
klettasalat, ber/ávöxt,
sinnepsósu og berja-
sultu. T.d. Klettasalat,
jarðarber, parmesan-
ost, furuhnetur, góða
ólífuolíu, gott balsamik.