Fréttablaðið - 22.11.2013, Page 66
„Ég komst að því fyrir nokkr-
um árum að íslenska þýðingin
frá 1944 er greinilega ekki þýdd
úr frummálinu og er þar að auki
endursögð og bætt við köflum í
hana sem ekki eru í frumútgáf-
unni,“ segir Friðrik Rafnsson,
þýðandi Ferðarinnar að miðju
jarðar eftir Jules Verne, um
ástæðu þess að hann réðst í að
þýða bókina. „Það var reyndar
algengt á þeim tíma að þýðingar
væru ekki teknar eins alvarlega
og nú er gert, en mér fannst samt
ástæða til að þessi bók væri til í
íslenskri þýðingu sem væri trú
frumtextanum.“
Friðrik viðurkennir að hann
hafi lengi haft dálitla fordóma
gagnvart verkum Vernes, en hann
hafi komist að því þegar hann
lagðist í lestur þeirra að mun
meira væri spunnið í textann en
hann hafi haldið. „Ég fór að glíma
við að þýða hann og fannst það
svo skemmtilegt að ég ákvað að
klára það.“
Talar þessi bók ekki beint inn í
þá fantasíubylgju sem nú tröllríð-
ur bókaútgáfunni? „Jú, Verne er
stundum kallaður fyrsti vísinda-
skáldsöguhöfundurinn og í mínum
huga er þetta sígilt ævintýri fyrir
fólk á öllum aldri. Vissulega talar
sagan inn í samtímann en hún
hefur gert það á ýmsum tímum.
Það eru 150 ár síðan hún kom út
og hún virðist hafa talað til ansi
margra allan þann tíma. Hefur
til dæmis verið þýdd tíu sinnum á
ensku og hefur öðlast þetta sígildi
sem góð listaverk hafa.“
Nú hafa verið gerðar tvær
kvikmyndir eftir sögunni, halda
þær sig við söguþráð Vernes?
„Nei, eins og gengur og gerist í
kvikmyndaaðlögun skáldverka þá
bregða þær töluvert út af honum.
Það er einmitt skemmtilegt að
bera saman kvikmyndarnar og
frumtextann og ég hafði mjög
gaman af því að sjá þær kunnandi
bókina nánast utan að.“
Friðrik hefur lagst í rannsóknir
á viðtökum bókarinnar og segist
hafa komist að ýmsu merkilegu.
„Það er til dæmis athyglisvert að
Frakkar setja Verne algjörlega á
stall með Flaubert, Hugo, Balzac
og öðrum höfuðskáldum sínum en
Bretar og Bandaríkjamenn líta
frekar á hann sem barnabóka- og
ævintýrahöfund. Það er dálítið
merkilegt að sjá þennan menn-
ingarmun og það væri gaman ef
við hér gætum farið að flokka
Verne sem höfund fyrir alla ald-
urshópa, enda hugsar hann bækur
sínar sem fræðandi skemmtilest-
ur fyrir alla.“
Ætlarðu að halda áfram að þýða
verk Vernes? „Það fer nú töluvert
eftir því hvernig viðtökur þessarar
bókar verða en það væri vissulega
gaman að gera það ef vel gengur.“
fridrikab@frettablatdid.is
Hefur talað inn í
samtímann í 150 ár
Ferðin að miðju jarðar eft ir Jules Verne er betur þekkt á Íslandi sem Leyndardóm-
ar Snæfellsjökuls, en sú útgáfa brá í ýmsu út af frumtextanum. Friðrik Rafnsson
hefur þýtt bókina upp á nýtt og segir hana tala beint inn í okkar samtíma.
BÆKUR ★★★★★
Ár drekans
Össur Skarphéðinsson
SÖGUR ÚTGÁFA
Þegar Össur Skarphéðinsson
var hvað duglegastur að blogga
á sínum tíma vöktu greinar hans
oftar en ekki mikla athygli. Þetta
voru hárbeittir og listilega skrif-
aði pistlar sem tekið var eftir í
þjóðfélagsumræðunni. Bók Öss-
urar „Ár drekans“ er því mikill
happafengur fyrir þá sem hafa
áhuga á stjórnmálum og íslensk-
um samtíma. Bókin er í eins konar
dagbókarstíl og spannar allt árið
2012. Átök innan ríkisstjórnarinn-
ar, ESB-málið, forsetakosningarn-
ar, landsdómsmálið, hrossakaup
í pólitíkinni og innanflokksátök
í Samfylkingunni. Sjálfur kýs
Össur að kalla þetta afbrigði af
pólitískri einsögu og viðurkenn-
ir að um einhliða frásögn sé að
ræða.
Það sem vekur fljótt athygli les-
enda er hversu opinskár Össur er
í lýsingum þegar kemur að við-
kvæmum pólitískum málum. Sum
þeirra eru enn í deiglunni. Trún-
aðarsamtöl milli manna eru opin-
beruð og það er auðvelt að ætla að
sumir sem koma við sögu í bók-
inni séu ekki sáttir við þessa ber-
sögli. Fyrir vikið verður bókin
dýrmætari fyrir lesendur sem
upplifa meiri hreinskilni og þá til-
finningu að hér sé ekki verið að
breiða yfir óþægilega hluti.
Össur kann svo sannarlega að
halda á penna og sumar frásagn-
ir í bókinni eru kostulegar og
drepfyndnar þrátt fyrir að fjalla
um háalvarlega
atburði. Lífsgleð-
in skín í gegn og
finna má fyrir
mikilli vænt-
umþykju þegar
hann talar um
dóttur sína.
Landsdóms-
málið liggur
greinilega
þungt á Öss-
uri og sjálfur
hefur hann
sagt í fjöl-
miðlum að
það m á l
hafi verið
honum
afar erf-
itt. Sumir
hafa vilj-
að túlka
þessa
bók sem
tilraun hans
t i l að rét ta
Sjálfstæðisflokkn-
um sáttarhönd. Einn
fyrrverandi ráðherra
Vinstri grænna lýsti því svo í
útvarpsviðtali að Össur væri með
þessari bók að hefja ákveðið sam-
tal við sjálfstæðismenn og þetta
væri bara einn leikur í pólitískri
skák.
Dagbókarformið er vel til þess
fallið að gefa lesendum þá upp-
lifun að þeir séu að gægjast inn
í hið sanna líf þess sem skrifar.
Það er því kannski engin tilviljun
að Össur skuli velja þetta form.
Bókin öðlast þannig trúverðug-
leika í huga lesenda en á móti
brýtur þetta form upp flæði frá-
sagnar og hægir á henni.
Síðasta kjörtímabil
fer vafalaust í
sögubæk-
urnar
sem eitt
það átaka-
mesta í
íslenskri
stjórnmála-
sögu. Bar-
á t t a n v i ð
hrunið, átök
ríkisstjórnar
við forseta sem
tvisvar vísaði
Icesave til þjóð-
arinnar og lands-
dómsmálið standa
upp úr en fleira má
nefna. Stjórnmála-
menn öðrum fremur
eru uppteknir af því
hvernig Sagan muni á
endanum dæma þá. Að
vissu leyti verður að lesa
bók Össurar með þetta í
huga því þegar upp er stað-
ið felur dagbókin ekki endi-
lega í sér sannleikann um þann
sem skrifar heldur frekar hvernig
hann vill að aðrir sjái sig og túlki.
Höskuldur Kári Schram
NIÐURSTAÐA: Listilega skrifuð bók
um átakatíma í íslenskri pólitík. Opin-
ská og á köflum drepfyndin.
Safarík frásögn af átakatímum
ÞÝÐANDINN „Verne er stundum kallaður fyrsti vísindaskáldsöguhöfundurinn og í
mínum huga er þetta sígilt ævintýri,“ segir Friðrik. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
MENNING 22. nóvember 2013 FÖSTUDAGUR