Fréttablaðið - 22.11.2013, Page 74
22. nóvember 2013 FÖSTUDAGUR| SPORT | 38
Þær telja virkilega
þessar tvær lélegu
undankeppnir sem við
áttum þarna að undan.
Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ
OLÍS D. KARLA
AKUREYRI - ÍR 32-30 (16-17)
Markahæstir (skot): Valþór Guðrúnarson 6/2
(10/2), Andri Snær Stefánsson 5 (5), Kristján
Orri Jóhannsson 5 (8), Bjarni Fritzson 5/2 (9/3),
Þrándur Gíslason 4 (4) - Guðni Már Kristinsson
8 (10), Arnar Birkir Hálfdánsson 7 (14), Sturla
Ásgeirsson 5 (8/2).
Varin skot: Jovan Kukobat 14/1 (39/2, 36%) -
Arnór Freyr Stefánsson 7 (26/2, 27%), Kristófer
Fannar Guðmundsson 5/1 (18/3, 28%).
HK - FRAM 22-19 (10-8)
Markahæstir (skot): Atli Karl Bachmann 8
(9), Leó Snær Pétursson 6/1 (11/2), Andri Þór
Helgason 4 (5) - Garðar B. Sigurjónsson 8/3
(12/4), Stefán Baldvin Stefánsson 3 (3), Ragnar
Kjartansson 3 (5).
Varin skot: Helgi Hlynsson 13 (31/4, 42%) -
Stephen Nielsen 11/1 (31/2, 35%).
VALUR - FH 23-25 (10-14)
Markahæstir (skot): Geir Guðmundsson 5
(16), Alexander Örn Júlíusson 4 (6), Sveinn Aron
Sveinsson 4/1 (7/1), Orri Freyr Gíslason 3 (4) -
Magnús Óli Magnússon 6 (12), Ísak Rafnsson 3
(3), Sigurður Ágústsson 3 (5), Einar Rafn Eiðsson
3 (6/1), Ásbjörn Friðriksson 3 (7/1), Andri Berg
Haraldsson 3 (8).
Varin skot: Hlynur Morthens 17/2 (33/2, 52%) -
Daníel Freyr Andrésson 20 (43/1, 47%).
DOMINOS D. KARLA
STJARNAN - ÍR 89-61 (44-30)
Stigahæstir: Dagur Kár Jónsson 22, Matthew
Hairston 18/16 frák./3 varin Justin Shouse
17/10 stoðs. Marvin Valdimarsson 16/12 frák.
- Sveinbjörn Claessen 11/6 frák., Matthías Orri
Sigurðarson 11/7 frák./5 stoðs., Calvin Henry 11/8
frák./5 varin, Hjalti Friðriksson 10.
SNÆFELL - VALUR 107-91 (59-43)
Stigahæstir: Vance Cooksey 38/6 frák./7 stoðs.,
Jón Ólafur Jónsson 22/5 frák., Sigurður Á.
Þorvaldsson 20/7 frák., Pálmi Freyr Sigurgeirsson
9/6 stoðsendingar - Chris Woods 40/9 frák., Rúnar
Ingi Erlingsson 17/5 stoðs., Gunnlaugur H. Elsuson
15/5 frák. Birgir Björn Pétursson 9/10 frák.
KÖRFUBOLTI Pálína Gunnlaugsdóttir, besti leikmaður úrvalsdeildar kvenna
undanfarin tvö tímabil, veit ekki enn hversu alvarleg hnémeiðslin eru sem
hún varð fyrir í leik á móti Ásvöllum á miðvikudagskvöldið. „Það er ekkert
komið í ljós og ég er bara að bíða eftir því að Jonni ( Jón Halldór Eðvaldsson,
þjálfari Grindavíkur) geti troðið mér inn í segulómskoðun,“ sagði Pálína
við Fréttablaðið í gær. „Læknunum á sjúkrahúsinu fannst ólíklegt að þetta
væri krossbandið. Þeir töldu frekar að þetta væri liðþófinn og að ég hafi teygt
á liðbandinu. Það getur verið átta dagar eða átta vikur frá aðgerð,“ sagði
Pálína. Hún upplifði mikinn sársauka á gólfinu í Schenkerhöllinni.
„Ég fékk þvílík sterk verkjalyf á spítalanaum því þeir sprautuðu morfíni í mig,
bæði magann og í hendina. Sjokkið er kannski ekki alveg komið en ég verð
bara að vera bjartsýn og jákvæð þangað til að eitthvað kemur út úr þessu,“
sagði Pálína. „Ég get stigið aðeins í löppina en ég get ekki lyft henni upp til
hægri eða vinstri því þá kemur þvílíkur sársauki. Ég fær líka mjög mikinn verk
ef hann er að dingla eitthvað. Ég er bara eins og gömul kona,“ segir Pálína
sem ætlar samt að vona það besta þangað til allt kemur í ljós. - óój
Pálína Ég er bara eins og gömul kona
FANN MIKIÐ TIL Pálína fær hér stuðn-
ing frá liðsfélaga sínum Marínu Rós
Karlsdóttur. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Steinþór Freyr Þorsteinsson verður fjórði íslenski leikmaðurinn hjá
Viking FK en Stavanger Aftenblad sagði frá því í gær að íslenski
miðjumaðurinn sé á leið til nágrannaliðs Sandnes Ulf. Í frétt
Stavanger Aftenblad kemur fram að Steinþór Freyr verði
í dag kynntur sem nýr leikmaður Viking FK á Viking
Stadion. Viking er og verður áfram mikið Íslendingalið.
Indriði Sigurðsson er fyrirliði Viking FK, Jón Daði
Böðvarsson var að klára sitt fyrsta tímabil með liðinu
og Björn Daníel Sverrisson gekk til liðs við liðið eftir
tímabilið með FH.Steinþór Freyr er 28 ára gamall,
hefur leikið með Sandnes Ulf undanfarin þrjú tímabil
og var með 5 mörk og 7 stoðsendingar í 28 leikjum
í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Sandnes Ulf var
nýliði í deildinni og hélt sæti sínu.
Viking FK endaði í fimmta sæti.
Steinþór fj órði Íslendingur Viking FK
SPORT
Styrkleikaflokkar fyrir EM 2016
FYRSTI FLOKKUR: Spánn, Þýskaland, Holland, Ítalía, England, Portúgal, Grikkland,
Rússland og Bosnía.
ANNAR FLOKKUR: Króatía, Úkraína, Svíþjóð, Danmörk, Sviss, Belgía, Tékkland,
Ungverjaland og Írland.
ÞRIÐJI FLOKKUR: Serbía, Tyrkland, Slóvenía, Ísrael, Noregur, Slóvakía, Rúmenía,
Austurríki og Svartfjallaland.
FJÓRÐI FLOKKUR: Armenía, Pólland, Skotland, Finnland, Lettland, Wales, Búlgaría,
Eistland og Hvíta-Rússland.
FIMMTI FLOKKUR: Ísland, Norður-Írland, Albanía Litháen, Moldóvía, Makedónía,
Aserbaídsjan, Georgía og Kýpur.
SJÖTTI FLOKKUR: Lúxemborg, Kasakstan, Liechtenstein, Færeyjar, Malta, Andorra,
San Marínó og Gíbraltar.
F Ó T B O L T I Í s l e n s k a
knattspyrnulandsliðið var aðeins
hársbreidd frá því að vera ein af
þrettán Evrópuþjóðum á HM í
Brasilíu næsta sumar en þegar
dregið verður í undankeppni EM
2016 í febrúar á næsta ári þá
verða 36 þjóðir fyrir ofan Ísland
á styrkleika.
Undankeppni HM 2014 gildir
aðeins 40 prósent þegar UEFA
raðar upp í styrkleikaflokka
sína fyrir dráttinn í febrúar sem
þýðir að þjóðir eins og Slóvenía,
Noregur, Skotland, Finnland,
Wales, Eistland og Hvíta-Rússland
verða öll fyrir ofan Ísland.
Geir er í nefndinni
Fyrirkomulagið hefur ekki verið
endanlega staðfest en líklegt
fyrirkomulag er að tvö efstu liðin
í níu riðlum komast beint á EM
ásamt því liði sem er með bestan
árangur í þriðja sætinu. Hin
átta liðin sem enda í þriðja sæti
riðlanna fara síðan í umspil um
fjögur laus sæti. Öll liðin í þriðja
sæti eiga enn möguleika en liðið
með bestan árangurinn fer beint
á EM.
„Ég er í nefndinni sem var
að fara yfir reglugerðina sem
hefur ekki verið staðfest af fram-
kvæmdastjórninni en það gerist
væntanlega á næsta fundi henn-
ar. Ég veit því allt um þessa breyt-
ingar sem eru að verða á lands-
liðshléunum og það sem kallað er
„Week of football“. Landsleikjun-
um er dreift niður á dagana,“ segir
Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ
og það er von á róttækum breyt-
ingum á leikdögum í undankeppn-
unum.
„Hingað til hafa þjóðirnar í
sama riðli hist tveimur vikum eða
mánuði síðar þar sem menn hafa
síðan farið að þræta um það hve-
nær við spilum heima á móti þess-
um og svo framvegis. Núna er það
úr sögunni því hér eftir mun tölva
raða þessu niður svipað og gert er
í Meistaradeildinni,“ segir Geir en
„dauðir“ dagar í landsleikjahléum
heyra nú sögunni til. Nú verða
leikir spilaðir frá fimmtudegi til
Árin með Ólafi áhrifamikil
Íslenska karlalandsliðið verður þrátt fyrir frábæra undankeppni HM 2014 aðeins í fi mmta styrkleikafl okki
þegar dregið verður í riðla í undankeppni EM 2016 í febrúar. UEFA fer ekki eft ir styrkleikalista FIFA.
TELUR ALLTOF LÍTIÐ Gylfi Þór Sigurðsson og Eiður Smári Guðjohnsen eftir tapið í
Króatíu. Besti árangur Íslands frá upphafi kemur íslenska liðinu ekki upp úr fimmta
styrkleikaflokki þegar dregið verður í riðla í EM 2016. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
þriðjudags.
Geir fékk þær upplýsingar í
gær frá sínum manni hjá UEFA að
íslenska landsliðið verður í fimmta
styrkleikaflokki þegar dregið
verður í níu riðla í undankeppni
EM í Frakklandi 2016.
Tvær daprar undankeppnir
„Það eru þrjár keppnir sem gilda,
þessi og svo forkeppni og loka-
keppni síðustu EM og svo for-
keppni og lokakeppni síðustu HM.
Við erum með tvær daprar und-
ankeppnir á undan þessari. Það
lítur því út fyrir að við verðum
enn í potti fimm þó að við verðum
efstir þar. Þeir hafa þetta hjá sér
í sínum kerfum og þótt að það sé
ekki búið að staðfesta listann þá
lítur út fyrir að við séum í potti
fimm,“ segir Geir.
Íslenska landsliðið var í sjötta
styrkleikaflokki þegar dregið
var í undankeppni HM 2014 og í
fimmta flokki þegar dregið var í
undankeppni EM 2012.
Íslenska landsliðið vann aðeins
2 af 16 leikjum sínum undir
stjórn Ólafs Jóhannessonar í
undankeppni Hm 2010 og EM 2012
og árangur í þeim gildir 60 prósent
þegar UEFA-stuðlarnir eru settir
saman.
„Þetta er grátlegt. Þessi undan-
keppni mun hjálpa okkur mikið
næst en minna núna. Við þurf-
um að fá aðra góða undankeppni
til að vinna okkur upp í þessu
kerfi. Þær telja virkilega þessar
tvær lélegu undankeppnir sem
við áttum þarna að undan. Málið
fyrir okkur var að fara upp í fjórða
styrkleikaflokk en ekki upp í þann
þriðja. Í þessi kerfi gat þessi góði
árangur í þessari undankeppni
gefið okkur meira,“ segir Geir og
það er öruggt að þessi staðreynd
kemur örugglega mörgum íslensk-
um knattspyrnuáhugamönnum á
óvart.
Þurfa að vera heppnir
Nú þarf íslenska landsliðið að hafa
lukkuna með sér í liði líkt og í
síðasta drætti en fjórar „sterkari“
þjóðir verða með okkur í riðli í
undankeppni EM 2016.
„Nú snýst þetta augljóslega um
að hafa heppnina með okkur þegar
dregið verið í febrúar,“ sagði Geir
að lokum. ooj@frettabladid.is
Svona setur UEFA
saman stuðulinn:
HM 2010: 1 sigur, 1 jafntefli í 8
leikjum (Gildir 20 prósent)
EM 2012: 1 sigur, 1 jafntefli í 8
leikjum (40 prósent)
Hm 2014: 5 sigrar, 2 jafntefli í 12
leikjum (40 prósent)
Í öll betri eldhús
Blandari • Töfrasproti • Handþeytari • Safapressa
F
A
S
TU
S
_E
_3
8.
11
.1
3
Verið velkomin í verslun okkar að Síðumúla 16. Opið mán - fös 8.30 - 17.00
Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • Sími 580 3900 • www.fastus.is
Veit á vandaða lausn
Turmix eru hágæðavörur frá Sviss fyrir þá sem gera
miklar kröfur í eldhúsi. Tækin eru ekki aðeins vönduð
og sterk heldur er einnig mikið lagt upp úr glæsilegri
hönnun og vönduðu útliti. Tæki fyrir þá alkröfuhörðustu.
Fást m.a. í Búsáhöld, Kringlunni.