Fréttablaðið - 22.11.2013, Síða 78
22. nóvember 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 42
Tökulið þáttanna Game of Thrones hefur heim-
sótt Ísland í tvígang og tekið upp atriði fyrir
aðra og þriðju seríu. Fjölmargir Íslendingar
hafa unnið við gerð þáttanna og virðist íslenskt
handbragð eiga vel upp á pallborðið hjá erlendu
framleiðendunum.
Listakonan Sylvía Dögg Halldórsdóttir land-
aði vinnu í búningadeild sjónvarpsþáttanna og
verður í tökum í Belfast á Írlandi þar til rétt
fyrir jól.
Nú hefur önnur íslensk stúlka, Stefanía Tinna
Miljevic, fengið vinnu í förðunardeild þáttanna
samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Hún vann
við fjórðu seríu Game of Thrones í Króatíu og
vinnur alla fimmtu seríuna með teyminu næsta
sumar.
Þá fékk kraftajötunninn Hafþór Júlíus
Björnsson stórt hlutverk í fjórðu seríu þáttanna.
Leikur hann Gregor Clegane, sem gengur gjarn-
an undir nafninu The Mountain, eða Fjallið.
Fjórða serían verður frumsýnd vestan hafs á
næsta ári. liljakatrin@frettabladid.is
Eft irsóttar í Game of Thrones
Tvær íslenskar stúlkur hafa landað vinnu við gerð sjónvarpsþáttanna vinsælu.
FRÁBÆRT TÆKIFÆRI Sylvía Dögg fékk
vinnu í búningadeild Game of Thrones.
„Upprunalega ætluðum við bara að gera
átta þætti. Síðan vatt þetta upp á sig og
allt í einu eru þeir að verða hundrað,“
segir Logi um framleiðsluteymi Stöðvar
2 og Sagafilm sem stendur að þættinum
Logi í beinni. Hundraðasti þátturinn fer í
loftið í kvöld í þráðbeinni.
„Jón Gnarr, Hera Björk og Barði í
Bang Gang eru gestir mínir í kvöld.
Kaleo treður upp og svo ætlum við að
sýna nokkur vel valin brot úr þessum
hundrað þáttum.
Mér finnst ofboðslega gaman að Loga
í beinni því ég fæ bara að spyrja spurn-
inga sem mig langar til að fá svarið
við. Enda held ég að ég eigi heimsmet í
heimskulegum spurningum,“ segir Logi
léttur í bragði – eins og hann er yfirleitt.
„Maður verður að vera léttur. Það er það
eina sem skiptir máli.“ liljakatrin@frettabladid.is
Heimsmet í heimskulegum spurningum
Logi fagnar hundraðasta þættinum af Loga í beinni.
ALLTAF LÉTTUR
Logi tekur lífinu ekki
of alvarlega.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Hljómsveitin The Tension frá Sel-
fossi er töluvert frábrugðin öðrum
sveitum vegna þess að hana skipa
eingöngu fimm fimmtán ára stelp-
ur. Þær eru Rannveig Óladóttir
trommuleikari, Álfrún Björt Agn-
arsdóttir gítarleikari, Sesselja Sól-
veig Birgisdóttir þverflautuleikari,
Þorgerður Helgadóttir píanóleik-
ari og Inga Kristrún Hjartardótt-
ir söngkona. „Við erum ekki með
bassaleikara því við fundum ekki
stelpubassaleikara og við viljum
ekki fá strák í hljómsveitina,“ segir
trommuleikarinn Rannveig Óladótt-
ir og auglýsir hér með eftir stelpu-
bassaleikara. Það má því segja að
bjart sé yfir tónlistarlífi bæjarins.
The Tension vann á dögunum
undankeppni Samfés í félagsmið-
stöðinni Zelsíuz á Selfossi. „Við
vorum frekar stressaðar og bjugg-
um okkur undir það versta,“ segir
Rannveig létt í lundu. Þær sigruðu
með flutning sinn á laginu Radio-
active með hljómsveitinni Imagine
Dragons. „Þetta er ein af uppáhalds-
hljómsveitunum okkar.“
Stúlkurnar hafa allar lagt stund
á tónlistarnám nema Inga Kristrún.
Þær spila svokallað indírokk og líta
helst upp til hljómsveita á borð við
Radiohead, Gorillaz og Arctic Mon-
keys. „Við erum eiginlega alveg and-
stæðan við The Charlies og Spice
Girls,“ bætir Rannveig við.
Eftir sigurinn í undankeppni
Samfés fengu stúlkurnar boð um að
spila á stórum tónleikum sem fram
fóru í íþróttahúsinu Iðu á Selfossi
þar sem ein af þeirra helstu fyrir-
myndum, Eyþór Ingi, kom fram
ásamt Atómskáldunum. „Við erum
miklir aðdáendur Eyþórs Inga og
þetta var ótrúlega gaman.“
„Við erum ekki búnar að semja
mikið sjálfar en stefnum á að gera
það á næstunni,“ segir Rannveig
aðspurð um lögin en þær æfa einu
sinni í viku í Pakkhúsinu á Selfossi,
ásamt því að hertaka bílskúr Rann-
veigar þess á milli.
Fram undan hjá þeim er söngva-
keppni við aðrar félagsmiðstöðvar
á Suðurlandi og ef þær vinna þá
keppni komast þær á lokakeppni
Samfés og keppa þá við félagsmið-
stöðvar hvaðanæva af landinu. „Við
vonum það besta og við hlökkum
mikið til,“ bætir Rannveig við.
gunnarleo@frettabladid.is
Viljum enga stráka í
hljómsveitina okkar
Stúlknasveitin The Tension frá Selfossi er andstæðan við The Charlies og spilar
rokk. Þær leita að stelpubassaleikara enda vilja þær alls enga stráka í hljómsveitina.
STELPUR
ROKKA
Hljómsveitin
The Tension
frá Selfossi
ætlar sér
langt.
EFTIR TÓNLEIKANA Stelpurnar komu fram á sömu tónleikum og Eyþór Ingi.
➜ Fjölmargir Íslendingar hafa unnið við
gerð þáttanna og virðist íslenskt handbragð
eiga vel upp á pallborðið hjá erlendu fram-
leiðendunum.
„Ég ætla að fara norður og sjá
lokasýningu systur minnar en hún
er að útskrifast af listabraut úr
VMA. Svo ætla ég að slappa af í
faðmi fjölskyldunnar fyrst það er
helgarfrí frá leikhúsinu.“
Unnur Birna Bassadóttir tónlistarkona.
HELGIN
MYND/EINKASAFN
GERSEMI
Jón Yngvi Jóhannsson / F réttablaðið
Runólfur Ágústsson / Pressan.is
„… stíllin
n er
mjög fág
aður, mik
il
konfekta
skja að le
sa,
maður ný
tur þess a
ð
lesa á hve
rri
einustu b
laðsíðu.“
Soffía Au
ður Birgi
sdóttir
Kiljan
„Hér er mikið grátið og
það er mikill harmur
sem fylgir þessu hér á
Micro Bar,“ segir Steinn
Stefánsson, starfmaður
á Micro Bar, en tréhesti
sem er í eigu staðarins
var stolið um liðna helgi.
Hestinn hannaði Hug-
leikur Dagsson. „Hestur-
inn er svona einn metri
á hæð og einn og hálfur
metri að lengd og það er
mikil eftirsjá að honum.“
Hesturinn hefur fengið
mikla athygli og hafa
gestir staðarins verið ákaflega hrifnir af honum.
Aðstandendur Micro Bar gera nú hvað þeir geta til að komast yfir
hestinn á ný. „Það eru fundarlaun fyrir þann sem finnur hestinn og
kemur með hann til okkar,“ segir Steinn. Hann segir að skili söku-
dólgurinn hestinum strax verði engir eftirmálar. „Ef hann verður
ekki fundinn eftir viku þá kærum við þetta, því við erum með öryggis-
myndavélar á staðnum sem tala sínu máli.“
Erfitt verður að fylla skarð hestsins en ef allt fer á versta veg verð-
ur varahestur kynntur til sögunnar. - glp
Hestinum hnuplað
Hestinum vinsæla var stolið af Micro bar fyrir skömmu.
HESTUR HORFINN Hestinum, sem var eitt af ein-
kennismerkjum Micro Bar, hefur verið stolið.