Fréttablaðið - 23.11.2013, Síða 2
23. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 2
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir sagði í
yfirlýsingu á þriðjudag að hún tæki ekki fjórða
sætið sem sem hún hlaut í
prófkjöri Sjálfstæðisflokks-
ins fyrir næstu borgar-
stjórnarkosninga.
➜ Eiður Smári Guðjohnsen átti sviðið í vikunni. Eftir tapleik
íslenska knattspyrnulandsliðsins við Króata kom Eiður Smári í viðtal
við RÚV og lýsti því yfir með tárvot aug að þetta hefði líklega verið
hans síðasti landsleikur. Stuttu síðar sagði hann við Fréttablaðið að
það ætti að halda upp á þann árangur sem hefði náðst.
Vigdís Hauksdóttir alþingismaður
rifjaði upp gamla takta og sýndi blóma-
skreytingar í Blómavali í vikunni. Vigdís
vann Íslandsmeistaratitil í blómaskreyt-
ingum árið 2002.
Hera Björk Þórhallsdóttir er að flytja til
Síle þar sem hún sigraði í sönglagakeppni í
byrjun árs. Síðan hafa henni boðist nokkur
verkefni í Suður-Ameríku en það er dýrt
að fljúga hinum megin á hnöttinn og Hera
hefur því neitað þessum tilboðum.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætis-
ráðherra sagði að honum sýndist að menn
væru að gíra sig upp í það að vera á móti
tillögum um skuldaleiðréttingar. Tilefnið
var að aðalhagfræðingur bankans sagði
lánshæfiseinkunn ríkisins fara í ruslflokk
yrði bankanum gert að fjármagna skulda-
leiðréttingarsjóð.
BÍÐA EFTIR FYRSTA „LÆKINU“
20
Stjórnendur þáttarins Orðbragð á RÚV segjast
hafa kynnst nýjum hliðum á íslenskri tungu og
hvort öðru.
TILGERÐ OG
TÖFFARASKAPUR 30
Fréttablaðið leitar álits á bestu og verstu
bókatitlum ársins.
OFBELDISFYLLSTA ÍÞRÓTT Í
HEIMI 32
UFC fagnaði 20 ára afmæli síðustu helgi. Í
upphafi UFC var allt leyfi legt og gróft ofb eldið
vakti hörð viðbrögð. Með árunum hefur íþróttin
þróast og nú eiga Íslendingar sinn fulltrúa í
búrinu.
HEIMSBYGGÐIN MINNIST JFK 34
Í gær voru fi mmtíu ár liðin frá því að John
Fitzgerald Kennedy, forseti Bandaríkjanna,
var skotinn til bana í borginni Dallas í Texas.
Fréttamiðlar um allan heim minnast hans af því
tilefni, en Kennedy var dýrkaður og dáður um
víða veröld.
ÆFIR VIÐTÖLIN Á PABBA 48
Kristín Ísafold Traustadóttir, átta ára, er einn af sjö umsjónarmönnum
sjónvarpsþáttarins Vasaljóss sem hefur göngu sína á RÚV í dag.
VILJA AÐ HÚN SPILI
FYRIR BRASILÍU
Landsliðsmarkvörðurinn
Guðbjörg Gunnarsdóttir verður
í fyrirliðahlutverki í norska
bikarúrslitaleiknum í dag þegar
lið hennar, Avaldsnes, mætir
norsku meisturunum í Stabæk á
Ullevaal-leikvanginum í Ósló.
LEIGULOTTÓ HJÁ BORGINNI 4
Lagt er til að fj órðungur leigjenda Félags-
bústaða fari í umsóknarpott. Um 3.000
manns ættu möguleika á að taka þátt.
GARÐEIGENDUR SVEKKTIR 6
Reglur borgarinnar um að tré slúti ekki út
fyrir lóðamörk og valdi vandræðum eru
þyrnir í augum sumra garðeigenda.
GÆTI UNNIÐ Á HUN-
GURSNEYÐ 8
Íslenskur vísindamaður telur sig hafa
uppgötvað aðferð til þess að búa til áburð
með einfaldari hætti en áður hefur þekkst.
SAMFLOT Í KJARAVIÐRÆÐUM 8
Verkalýðshreyfi ngin hyggst ganga sameinuð til kjara viðræðna
við atvinnurekendur. Semja á til tólf mánaða.
FYRIRSÉÐUR ÁGREININGUR 16
Árekstur forsætisráðherra og Seðlabankans koma
þeim sem til þekkja ekki í opna skjöldu, segir Þorsteinn
Pálsson.
GENGUR EKKI UPP 18
Landsvirkjun á að láta af áformum um nýja Norðlingaöldu-
veitu, segir Tryggvi Felixson auðlindahagfræðingur.
HÖFTIN LAMA 18
Því miður er þjóðin að laga sig að óeðlilegu ástandi gjaldeyrishaft a,
skrifar Svana Helen Björnsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins.
FRÉTTIR 2➜12
SKOÐUN 16➜18
HELGIN 20➜50
SPORT 72
MENNING 60➜78
FIMM Í FRÉTTUM GOÐSÖGN OG BLÓMASKREYTINGAR
VERSLUN Umræða hefur skap-
ast um að kjúklingaframleiðend-
ur flytji inn frosið kjúklingakjöt
og selji sem íslenska vöru. For-
svarsmenn hafa neitað því en þó
er erlent kjöt notað í unnar mat-
vörur og selt án þess að tilgreint
sé á umbúðum að um innflutt kjöt
sé að ræða.
Þetta staðfestir Ragnar Hjör-
leifsson, sölu- og markaðsstjóri
Reykjagarðs. „Það sem er unnið
höfum við ekki merkt með upp-
runalandi,“ segir Ragnar.
Hann tekur fram að á öllum
þeirra vörum sé rekjanleikanúm-
er sem segi til um uppruna. Þá var
nú í kjölfar umræðunnar bætt við
merkingum á ferskar vörur sem
sýna að þær séu íslenskar.
Reykjagarður flytur inn 150 til
200 tonn af alifuglakjöti árlega og
er stærsti hlutinn kjúklingur. Inn-
flutta kjötið er notað í unnar mat-
vörur.
„Þar fyrir utan erum við að selja
beint til neytenda, þá er ég að tala
um mötuneyti og veitingahús,“
segir Ragnar.
Þannig að fólk sem fer á veit-
ingahús, getur átt von á að fá
erlent kjúklingakjöt?
„Við getum ekki svarað fyrir
það, en við erum ekki einir að
flytja inn kjúkling,“ segir Ragnar.
Aðspurður segir hann ekki verð-
mun á vörum með innlendu og
erlendu kjöti.
Þannig að neytandinn hefur í
raun og veru ekki notið góðs af
því að þið séuð að flytja inn erlent
kjöt?
„Nei, erlent kjúklingakjöt er
með háum tolli svo verðmunurinn
er í sjálfu sér ekki svo mikill.“
- hþ
Reykjagarður staðfestir að innflutt kjúklingakjöt hafi verið selt hér ómerkt:
Á sama verði og innlenda kjötið
NÁTTÚRA Heimamenn við norðan-
vert Snæfellsnes tjalda nú öllu til
eftir að fréttist að síld er gengin í
miklu magni inn í Kolgrafafjörð.
Sigurður Ingi Jóhannsson sjávar-
útvegsráðherra heimilaði í gær
frjálsa veiði smábáta innan brúar-
innar yfir fjörðinn til að reyna að
vinna gegn síldardauða sem mjög
er óttast að endurtaki sig.
„Á vissan hátt voru menn ekki
tilbúnir að horfast í augu við þetta.
Það er bara þannig,“ segir Sigur-
borg Kr. Hannesdóttir, forseti bæj-
arstjórnar í Grundarfirði, spurð út
í þær fréttir að sjómenn hafi orðið
varir við mikla síld inni á firðinum
síðla dags í gær.
Sigurborg sagði í viðtali við
Fréttablaðið fyrir skömmu að
lokun fjarðarins væri að öllum lík-
indum eina lausnin sem útilokaði
síldardauða, og því ætti að skoða
hana alvarlega. Hún vill samt ekk-
ert fullyrða um að of seint hafi
verið brugðist við nú og ráðherra
hafi sjálfur fullvissað hana um
að heimamenn hefðu allan hans
stuðning.
„Eitt af því sem við erum farin
á fullt með er að kanna hvernig
hægt sé að landa síld innan brúar,
í ljósi þess að þar er búið að gefa
veiðarnar frjálsar. Það er tækni-
mál sem þarf að leysa,“ segir
Sigurborg.
Sigurður Ingi sagði í viðtali við
Vísi í gær að með veiðunum væri
ætlunin að bjarga verðmætum, en
ekki væri loku fyrir það skotið að
bátarnir myndu fæla síldina aftur
út fyrir brúna. Hann sagði einn-
ig að dræpist síld í stórum stíl þá
hefði hann undirstungið innan-
ríkisráðuneytið um að rjúfa veg-
inn til að koma á eðlilegri hringrás
sjávar í firðinum.
Það var Pálmi Stefánsson, skip-
stjóri á Kidda RE, sem er átta
tonna trilla, sem fór inn fyrir brú
á bát sínum fyrr í gær og varð var
við stórar síldartorfur.
Spurð um líkur á frekari síldar-
dauða minnir Sigurborg á að lík-
urnar séu jafnvel meiri nú en í
fyrra þar sem súrefnismagnið í
firðinum er skert vegna rotnunar
á þeirri síld sem þar drapst í fyrri
tvö skiptin. Því séu fréttirnar
mikið áhyggjuefni, og heimamenn
voni hið besta en búi sig undir það
versta.
Verið er að undirbúa fund sam-
eiginlega með fulltrúum frá Stykk-
ishólmi, smábátasjómönnum,
björgunarsveitum, bændum á Eiði
við Kolgrafafjörð og hafnarstjóra
á Grundarfirði til að undirbúa að
framkvæmdin á síldveiðum innan
brúar verði farsæl.
svavar@frettabladid.is
Kolgrafafjörður enn
orðinn fullur af síld
Sigurður Ingi Jóhannsson heimilaði snarlega að smábátar mættu veiða síld innan
brúar á Kolgrafafirði í gær. Tilefnið voru fréttir af þykkum lóðningum af síld.
Heimamenn settu allt af stað í gær og undirbúa síldarlöndun innan brúar.
ÍSLENSKIR KJÚKLINGAR Sölu- og
markaðsstjóri Reykjagarðs segir lítinn
verðmun þegar varan er komin í versl-
anir. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
Á vissan
hátt voru
menn ekki
tilbúnir að
horfast í augu
við þetta.
Sigurborg Kr. Hannesdóttir,
forseti bæjarstjórnar í Grundarfirði
KOLGRAFAFJÖRÐUR Rúmlega 50 þúsund tonn af síld drápust í Kolgrafafirði í
tveimur aðskildum atburðum, í desember 2012 og febrúar síðastliðnum.
MYND/TÓMAS FREYR
MIÐARNIR SELDUST UPP 78
Aðdáendur Dr. Who ólmir í miða á afmælis-
sýninguna.
VEKUR ATHYGLI ERLENDIS 65
Tónlistarmaðurinn ungi, Steinar Baldursson, fór í
viðtal á hollenskri útvarpsstöð.
JÓLAKAFFI HRINGSINS 66
Hrefna Sætran deilir uppskrift með lesendum
Fréttablaðsins.