Fréttablaðið - 23.11.2013, Page 4
23. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 4
LEIÐRÉTT
Í frétt blaðsins í gær var rangt farið með
hlutfallslegan fjölda ljósmæðra hér á
landi. Hið rétta er að ljósmæður eru
175 á hverja 100.000 íbúa hér á landi.
Eiður
Smári
hefur sennilega
leikið sinn
síðasta lands-
leik fyrir Ísland.
Á sautján ára
landsliðsferli
hefur hann
spilað 78 leiki
og skorað í
þeim 24 mörk.
STJÓRNMÁL Alþýðusamband
Íslands, Félag atvinnurekenda,
Samtök atvinnulífsins og Við-
skiptaráð Íslands hafa undirritað
samning við Alþjóðamálastofnun
Háskóla Íslands.
Stofnunin á að sjá um umsjón
úttektar á aðildarviðræðum við
Evrópusambandið, þróun ESB
og valkostum í efnahagsmálum.
„Hlutlæg og greinargóð“ úttekt
er sögð lykilforsenda þess að
meta hvaða kostir séu til þess
fallnir að tryggja samkeppnis-
hæfni atvinnulífsins til lengri
tíma og skapa sem best lífskjör.
- skó
Gera úttekt um viðræður:
Kanna þróun
ESB og valkosti
GYLFI ARNBJÖRNSSON Auk ASÍ
standa FA, SA og Viðskiptaráð Íslands
að úttektinni.
200.000 manns
nýta sér þjónustu hvalaskoð-
unarfyrirtækja á þessu ári.
120.000
fara í hvalaskoðun frá Reykjavík.
Yfir 6.000
sendingar bárust frá AliEx-
press til Íslands í október.
Verðmæti pantana héðan
jókst um
928%
milli ára á þriðja ársfjórð-
ungi.
14,7%
íslenskra barna eru tekin
með keisaraskurði, en
það er mun lægra hlutfall
en víðast hvar. Allt að
helmingur barna í Mexíkó
og Tyrklandi er tekinn með
keisaraskurði.
HÚSNÆÐISMÁL Hluti leigjenda íbúðanna,
sem Reykjavíkurborg hyggst reisa í sam-
starfi við Félagsbústaði, verður dreg-
inn út í leigulottói. Samkvæmt tillögu
Reykjavíkurborgar er gert ráð fyrir að
leiguverð á íbúðum í blönduðum íbúða-
húsum verði lægra en gerist á almenn-
um markaði, sem muni leiða til þess að
eftirspurn verður meiri en framboð.
Verður það að hluta til leyst með þeim
umsóknar potti sem dregið verður úr.
Verði tillaga borgarinnar að veru-
leika munu nýju íbúðirnar standa þrenns
konar umsækjendum til boða. Fjórðung-
ur leigjenda verða einstaklingar, sem
eiga rétt á sérstökum húsaleigubótum
samkvæmt viðmiðum velferðarsviðs
Reykjavíkurborgar og munu áfram eiga
sama rétt á félagslegu húsnæði. Sá hópur
fer því ekki í umsóknarpottinn.
Fjórðungur leigjenda verða einstak-
lingar sem eiga rétt á almennum húsa-
leigubótum. Þeir leigjendur verða þeir
einu sem fara í umsóknarpott Félagsbú-
staða.
Þeir munu gangast undir mat hjá vel-
ferðarsviði og þurfa að uppfylla þau fjár-
hagslegu skilyrði sem skilgreind eru
hjá Velferðarráðuneytinu um tekju- og
eignamörk vegna lánveitinga til leigu-
íbúða. Þau skilyrði eru mun víðari en
miðað er við í úthlutun sérstakra húsa-
leigubóta.
Í tillögunni segir að samkvæmt grein-
ingu velferðarsviðs uppfylli yfir 90 pró-
sent sem fá almennar húsaleigubætur
skilyrðið, eða um 3.000 manns.
Samþykktar umsóknir myndu fara í
umsóknarpott Félagsbústaða og utan-
aðkomandi aðili fenginn til að sjá um
útdráttinn. Hver umsókn færi í pott um
íbúðir í samræmi við stærð og staðsetn-
ingu íbúðar sem sótt er um.
Gert er ráð fyrir að hinn helmingur
íbúðanna í hverju húsi verði leigður út
til félagasamtaka. Útfærsla á leigusamn-
ingi við þann hluta leigjenda liggur ekki
fyrir, en í tillögunni segir að æskilegast
væri að leigusamningar giltu í fimm ár.
Félagasamtökin myndu endurleigja
íbúðirnar til sinna félagsmanna, en ekki
væri gert ráð fyrir að þessi hópur upp-
fyllti að öðru leyti skilyrði Velferðar-
sviðs varðandi mat á eignum eða tekjum,
eða hann fari í umsóknarpottinn.
eva@frettabladid.is
Leigulottó Reykjavíkurborgar
Reykjavíkurborg leggur til að fjórðungur leigjenda Félagsbústaða fari í umsóknarpott. Óháður aðili sjái um
útdráttinn. Um 3.000 manns, sem ekki eiga rétt á sérstökum húsaleigubótum, ættu möguleika á að taka þátt.
„Við viljum auðvitað
láta kanna mögu-
leika á að auðvelda
ungum fjölskyldum
að hefja búskap og
greiða fyrir stofnun
leigufélags ef það
er skynsamlegt. En
slíkur rekstur er
mikil áhætta. Það þarf að fara vel yfir
umsögn fjármálaskrifstofu sem mælir
gegn því að borgin gerist kjölfestufjár-
festir í húsaleigufélagi og hefur mælt
gegn því. Það er ekki gott að leggja í slíka
vegferð ef hún lendir síðar á skattgreið-
endum.“
Júlíus Vífill
borgarfulltrúi
Áhættan mikil
„Okkur líst bara
vel á það sem
borgin er að gera
í þessum málum.
Það þarf að
auka fjölbreytni
á leigumarkaði.
Það er alþekkt á
Norðurlöndunum
að sveitarfélög úthluti sjálfstæðum
aðilum lóðum á hagstæðum kjörum
til að auka fjölbreytni á húsnæðis-
markaði og auka sjálfstæði íbúa.
Sveitarfélögin fá þá gjarnan rétt til
að úthluta íbúðum til skjólstæðinga
sinna.“
Gylfi Örn Bjarnhéðinsson
framkvæmdastjóri Búseta
Eykur fjölbreytni
„Mér finnst þetta
bara mjög for-
vitnilegt. Þetta
getur verið mjög
gott við hliðina
á félagslegu
húsnæði, og gott
að borgin leggi
þessu lið með
eiginfjármagni og gatnagerðar-
gjöldum til að lækka tilkostnað.
Forsendur leigugreiðslna verða þá
vonandi aðrar og lægri leiga. Við
munum skipa fulltrúa í samráðs-
nefnd til að ræða frekar þessar
tillögur.
Gylfi Arnbjörnsson
forseti ASÍ
ASÍ tekur þátt
„Við höfum verið í
samstarfi við Reykja-
vík um hugmyndir
um uppbyggingu
á leiguíbúðum í
Reykjavík og gerum
ráð fyrir því að vera
með. Í sjálfu sér er
ekki búið að ræða
þetta ítarlega, en þetta er skoðunarinnar
virði. Við munum að sjálfsögðu skoða
þetta með borginni ef þeir vilja vinna
þetta svona. Í stuttu máli er mjög jákvætt
að skoða slíkar útfærslur, alveg eins og
eitthvað annað.“
Böðvar Jónsson
framkvæmdastjóri Byggingafélags
námsmanna
Skoðunar virði
Leiga íbúða í blönduðum íbúðahúsum
Velferðarsvið
Reykjavíkurborgar
Félagasamtök,
samstarfsaðilar
Sérstakar
húsaleigubætur
Hefðbundið
umsóknarferli
Staðfesting
á efnahag
Útdráttur
Úthlutað sam-
kvæmt valreglum
félagasamtaka
Almennar
húsaleigubætur
Umsókn
félagsfólks
Um fjórðungur íbúða
í blönduðum íbúðar-
húsum verður leigður til
einstaklinga sem fá sér-
stakar húsaleigubætur.
Um fjórðungur verður
leigður til þeirra sem
ekki eiga rétt á sér-
stökum húsaleigubótum.
Um helmingur íbúða
í hverju húsi verður
leigður út til félaga-
samtaka.
Leið 1 Leið 2 Leið 3
Félagsbústaðir
Veðurspá
Mánudagur
5-15 m/s hvassast V-til.
FALLEGT VEÐUR víða á landinu í dag. Léttskýjað og fremur hægur vindur. Þykknar
upp SV- og V-til í kvöld. Vaxandi sunnanátt vestanlands á morgun með úrkomu en
þurrt A-til. Hlýnar í veðri.
0°
5
m/s
1°
3
m/s
0°
2
m/s
3°
7
m/s
Á morgun
8-13 m/s V-til, annars hægari
Gildistími korta er um hádegi
6°
4°
4°
3°
2°
Alicante
Basel
Berlín
17°
6°
7°
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
7°
7°
4°
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
7°
7°
23°
London
Mallorca
New York
7°
12°
11°
Orlando
Ósló
París
27°
0°
7°
San Francisco
Stokkhólmur
15°
2°
-2°
5
m/s
2°
4
m/s
-3°
4
m/s
-1°
6
m/s
-2°
3
m/s
-3°
6
m/s
-7°
3
m/s
4°
2°
3°
-1°
-2°
Snjólaug Ólafsdóttir
veðurfréttamaður
SJÁVARÚTVEGUR
Nýjar reglur um lúðuveiðar
Útgerð og áhöfn skipta nú með sér 20
prósentum af aflaverðmæti lúðuafla
sem veiðist sem meðafli. Allt söluand-
virði lúðu hefur runnið til rannsókna.
Með breytingunni á að hvetja sjómenn
og útgerðir til að koma með lúðuna að
landi. Sé hún lífvænleg skal henni þó
sleppt.
Heilsu
meira
en 200 milljón manna
er talin stafa veruleg
hætta af eiturefna-
úrgangi í nágrenni við
heimili þeirra.
Fyrir jólin eru um 700
bókatitlar til sölu. Fimm stærstu
útgefendurnir eiga 44% af þeim
bókum. Bókaútgáfa veltir 4,6
milljörðum króna á þessu ári.
16.11.2013 ➜ 22.11.2013
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn
Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigrún Kristinsdóttir sigrunp@365.is, Sigurjón Viðar Friðriksson sigurjon@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir
elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Steinunn Sandra Guðmundsdóttir ssg@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
www.lifstykkjabudin.is laugavegi 82. sími 551-4473
val af ”Glæsilegt úr
á góðu verði.” heimagöllum