Fréttablaðið - 23.11.2013, Qupperneq 6
23. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 6
REYKJAVÍK Reykjavíkurborg sendi í
vikunni ítrekun til 1.400 garðeigenda
með hvatningu um að huga að gróðri
sem vex út fyrir lóðarmörk. Verði
ekki brugðist við muni borgin klippa
trén á kostnað lóðarhafa. Það getur
kostað allt að 30 þúsund krónum.
„Það er mjög
brýnt að fólk verði
við þessum tilmæl-
um. Þetta er fyrst
og fremst gert
vegna þess að gróð-
urinn er til vand-
ræða fyrir gangandi
og hjólandi veg-
farendur og tækin
sem við notum til að sópa og ryðja
snjó á gangstéttum og stígum,“ segir
Bjarni Brynjólfsson, upplýsingastjóri
Reykjavíkurborgar. „Ef fólk getur
ekki gert þetta sjálft þá er því í lófa
lagið að ráða fagmenn til verksins.“
Óánægja hefur ríkt meðal sumra
garðeigenda sem segja að erfitt hafi
reynst að ná sambandi við starfsmenn
borgarinnar.
„Ég hvet fólk til að hafa samband
við starfsmenn umhverfis- og skipu-
lagssviðs ef fólk vill fá nánari upplýs-
ingar,“ segir Bjarni sem kveður slíkar
áskoranir til garðeigenda árvissar en
nú sé málinu í fyrsta sinn fylgt svona
vel eftir. erlabjorg@frettabladid.is
DANMÖRK Þrítugur Dani var í
gær dæmdur í 20 daga skilorðs-
bundið fangelsi fyrir að hafa
kastað tómat í Helle Thorning-
Schmidt forsætisráðherra á úti-
fundi í Randers í maí.
Maðurinn bar því við að hann
hefði alls ekki ætlað að hitta ráð-
herrann heldur hefði hann miðað
á fólk sem staðið hefði fyrir aftan
Thorning og gert sig líklegt til að
leysa niður um sig og sýna á sér
afturendann.
Viðkomandi var skikkaður til
að gangast undir ráðgjöf vegna
áfengis- og kannabisneyslu. - þj
Veittist að forsætisráðherra:
Skilorð fyrir
tómatakastið
BANDARÍKIN 350 manns hefur verið
sagt upp störfum á söludeild sér-
tækra vörumerkja (e. Specialty
Brands) hjá Actavis í Bandaríkj-
unum.
PiercePharma segir aðgerðirn-
ar til komnar eftir að sameining
Actavis og Warner Chilcott gekk í
gegn 1. október. Þá hafi hafist end-
urmat á því hversu marga þyrfti
í söludeild. Það hafi skilað sér í
slæmum fregnum fyrir um 30 pró-
sent starfsliðsins. Af 1.100 manns
sem störfuðu við sölu vestra halda
750 vinnunni. - óká
Uppsagnir eftir sameiningu:
350 manns
missa vinnuna
HELLE THORNING-SCHMIDT Fékk í sig
tómat í Randers.
DÓMSMÁL „Ef þið standið ekki
upp eruð þið handtekin, var það
fyrsta sem lögreglan sagði við
okkur,“ sagði vitni í máli lög-
reglumannsins sem er ákærður
fyrir líkamsárás og brot í opin-
beru starfi þegar hann handtók
konu í miðborg Reykjavíkur síð-
astliðið sumar. Konan hlaut mar
og áverka við handtökuna.
Aðalmeðferð í máli lögreglu-
mannsins hófst í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær og er tekist
á um hvort handtakan hafi verið
óeðlilega harkaleg.
„Lögreglan sýndi enga þolin-
mæði og ég fann strax að þetta
yrði vesen, það lá einhvern veg-
inn í loftinu,“ sagði vitnið sem
ásamt tveimur öðrum sátu með
konunni á miðri götu en hlýddu
fyrirmælum lögreglunnar strax.
Sú sem var handtekin sat eftir.
Tvær ungar konur sem áttu
leið hjá þegar handtakan átti
sér stað báru einnig vitni. Þær
segja konuna hafa verið greini-
lega öfurölvi og í engu ástandi til
að streitast á móti.
Samt sem áður hafi konunni
verið hent til og sá ákærði hafi
sett hnéð á vinstra gagnauga
hennar eftir að hafa hent henni
inn í lögreglubílinn. „Hún var
alveg dofin í hreyfingum, eins
og dúkka sem var fleygt til og
frá,“ sagði önnur konan.
Lögreglufulltrúi og kennar-
ar hjá Lögregluskólanum gáfu
einnig skýrslu. Sagðist lög-
reglufulltrúi aldrei hafa séð fal-
lega valdbeitingu og kennari við
skólann sagði að það mætti vera
meiri og formlegri þjálfun hjá
lögreglumönnum. - ebg
Vitni segja handtöku óeðlilega og lögreglan hafi enga þolinmæði sýnt:
Konan var alveg dofin og var
fleygt til og frá eins og dúkku
Á VETTVANGI Myndband náðist af
handtökunni sem fór víða á veraldar-
vefnum.
„Reynitréð var sérlega formfagurt og meira en 40 ára
gamalt. Nú hefur það misst formið og er svolítið van-
skapað fyrir bragðið,“ segir Ragnheiður Linnet sem
þurfti að sneiða af trénu því ljósastaur stendur nálægt.
„Það orkar tvímælis að láta taka af svona fagur-
sköpuðu tré á meðan það ætti að vernda þau. Það
þarf að vanda betur til og taka tillit til aldurs gróðurs.
Það er ekki eins og tréð skyggi á vel upplýsta götuna.“
➜ Synd að láta taka af
fagursköpuðu tré
„Gullregnið okkar er 2,5 metrar á hæð og slútir yfir
lóðina en það er ekki fyrir neinum, snjóruðningsvél
kemst hæglega undir það,“ segir Elín G. Ragnarsdóttir
sem klippti eins og hún gat af trénu en hefur fengið
ítrekun frá borginni.
„Það eina sem ég get gert er þá að skemma tréð
eða ég skil ekki hvað þeir vilja að ég geri. Það er svo
fallegt og mikið prýði í hverfinu.“
➜ Gullregnið er fallegasta tréð
í götunni
FÉLAGSMÁL 96 prósent barna í
4.-10. bekk sögðust eiga farsíma
eða snjallsíma og ríflega helm-
ingur sagðist eiga snjallsíma. Að
meðaltali eru börn 8-9 ára þegar
þau eignast sinn fyrsta síma.
Þetta kom fram í könnun sem
Samfélag, fjölskylda og tækni lét
gera fyrr á árinu.
Rúm þrjú prósent barna sögð-
ust hafa sent skilaboð í gegnum
farsíma sem var andstyggilegt í
garð annars einstaklings. Rúm
fimm prósent sögðust hafa orðið
fyrir einelti í gegnum síma. - skó
Meirihluti með snjallsíma:
Nær öll börn
með farsíma
BRETLAND Svo virðist sem parið í Lond-
on, sem hélt þremur konum í þrældómi
á heimili sínu í þrjátíu ár, hafi eink-
um beitt andlegu ofbeldi, hótunum og
heilaþvotti, til að halda þrælum sínum
í skefjum.
Lögreglan segist vera að reyna að
átta sig á því hvaða „ósýnilegu hand-
járnum“ hafi verið beitt. Að vísu séu
merki um að líkamlegum barsmíðum
hafi verið beitt, en út á við hafi íbúar
hússins líklega virst vera ósköp venju-
leg fjölskylda.
„Þetta þýðir að áratugum saman hafi
fólkið, sem þessi rannsókn beinist að,
og fórnarlömbin einnig, líklega komist
í snertingu við opinbera þjónustu, þar
á meðal lögregluna,“ sagði Steve Road-
house, talsmaður lögreglunnar í Lond-
on, við bresku fréttastofuna PA.
Lögreglan hefur verið gagnrýnd
fyrir að hafa látið sökudólgana lausa
gegn tryggingu, en fórnarlömbin hafa
notið aðhlynningar sérfræðinga á
öruggum stað í London.
Hin grunuðu eru bæði 67 ára, en
konurnar þrjár eru 30, 57 og 69 ára.
Sú yngsta virðist hafa verið í haldi
hjónanna frá fæðingu, 57 ára konan er
frá Írlandi en sú elsta frá Malasíu. - gb
Lögreglan í London reynir að átta sig á því hvernig þrælahaldararnir fóru að:
Beittu hótunum og heilaþvotti
ANEETA PEEM Stofnandi
góðgerðasamtakanna Free-
dom Charity, sem urðu til
þess að ein kvennanna
hafði samband.
FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
Vansköpun fegurstu trjánna
Reykvíkingar eiga að klippa gróður sem vex út fyrir lóðarmörk. Nær að vernda gróður en að skemma gömul
og fagursköpuð tré segja garðeigendur. Upplýsingastjóri borgarinnar bendir fólki á að fá fagmenn í verkið.
RAGNHEIÐUR LINNET Ásamt reynitrénu eftir klippingu. PRÝÐI Gullregn í blóma yfir sumartímann.
BJARNI
BRYNJÓLFSSON