Fréttablaðið - 23.11.2013, Page 26
23. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 26
Ég er tíu árum eldri en Edda
Heiðrún en hafði aldrei áhyggjur
af henni í uppvextinum. Hún var
farin að elda tíu ára og hafði strax
áhuga á öllu. Allt í einu var hún
búin að sækja um í Leiklistarskól-
anum. Það voru engar vangaveltur
um það.
Edda er vinmörg og góður gest-
gjafi, örlát og ósérhlífin og nú fær
hún það margfalt til baka. Á tíma-
bili sá vinahópurinn til þess að hún
væri aldrei ein, heldur væri ein-
hver hjá henni allan sólarhringinn
sem veitti henni liðsemd eftir þörf-
um. Hópurinn gengur undir nafn-
inu Heiðrúnardropar og í honum
eru hetjur sem við í fjölskyldunni
stöndum í mikilli þakkarskuld við.
Þetta vinanet varð til eftir að hún
flutti á Vatnsstíginn, og það er lík-
lega komið á fjórða ár síðan. Áður
en hún flutti þangað voru aðstæður
í húsinu hennar ekki nógu góðar.
Þegar fæturnir gáfu sig var erfitt
fyrir hana að komast í vaskahús-
ið og víðar. Ég hef auðvitað reynt
að leggja mitt af mörkum eftir að
hún varð hjálpar þurfi og mamma
líka, einkum til að byrja með, hún
er orðin níræð núna. Jóhanna dótt-
ir mín var í Heiðrúnardropum og
hefur aðstoðað hana og öll mín
börn og tengdabörn. Ein tengda-
dóttir mín sér um hárið á henni til
dæmis. Ég á líka tengdason sem er
sálfræðingur og það hefur verið
gott að hafa hann í fjölskyldunni.
Öll frændsystkini okkar hafa verið
dugleg og hjálpsöm og svo eigum
við fjölskyldu að sem við ólumst
upp með á Akranesi. Systur úr
þeirri fjölskyldu eru nú eins og
sólargeislar í lífi okkar. Jólabakst-
urinn hjá annarri þeirra er fastur
punktur, þá dönsum við kringum
jólatré. Það var hefð á Akranesi og
við höldum henni.
Inga segir Notendastýrða pers-
ónulega aðstoð (NPA), sem lög-
bundin var á síðasta ári, hafa leyst
Heiðrúnardropana af hólmi við
umönnun systur sinnar. „Ein son-
ardóttir mín sem var áhugasöm
í vinanetinu fær núna laun fyrir
að sinna frænku sinni. Það leiddi
af sér að stúlkur úr listageir-
anum hafa komið inn í þá vinnu.
Þá eru áhugamálin gagnkvæm.
Þær hafa líka góð félagsleg áhrif
á Unni Birnu, dóttur Eddu Heið-
rúnar. Svo eru þær að hjálpa Eddu
Heiðrúnu að gera nýja heimasíðu
og þær hafa líka gott af að fara í
gegnum eldamennsku með henni,
því hún er afbragðs kokkur. Þann-
ig að þetta er lærdómsríkt fyrir
alla. Svo erum við með stúlkur í
aðhlynningu líka sem eru í sjúkra-
liðanámi eða hjúkrun.“
Sjálf kveðst Inga vera aðstoðar-
mær Eddu systur sinnar með ýmis
mál. Halda utan um launagreiðslur
í sambandi við NPA-vinnuna og
fleira.
„Arnmundur bróðir okkar fékk
þennan sama sjúkdóm og Edda
Heiðrún og var með hann í tíu ár.
En þá voru ekki komin þau tæki
sem nú eru til staðar og það var
minna hægt að gera. En fólk sem
fær þessa veiki bilar ekkert í koll-
inum. Það heldur sínum löngunum
fram í rauðan dauðann og hefur
þvílíka elju og andlegt þrek að
maður botnar ekkert í því.
Hún er vel gerð, hún Edda Heið-
rún, og frjó í hugsun. Mjög aktív
og ákveðin í öllum verkefnum. Það
klikkar varla nokkur einasti hlut-
ur hjá henni.“
ÞETTA SEGIR INGA SYSTIR
Edda er vinmörg og
góður gestgjafi, örlát og
ósérhlífin og nú fær hún
það margfalt til baka,“
Inga J. Backman.
söngkona og söngkennari
1983 HART Í BAK Með Leikfélagi
Reykjavíkur í Iðnó. „Hreinn tónn utan
af landi,“ segir Edda Heiðrún.
1987 DJÖFLAEYJAN Með Leikfélagi Reykja-
víkur í Iðnó. „Dollý, drottning undirheimanna,“
segir Edda Heiðrún.
1996
VILLIÖNDIN
Steinunn Ólína og Edda
Heiðrún. „Gína með dóttur
sinni sem leysti allar heims-
ins gátur með brjóstvitinu,“
segir Edda Heiðrún.
2002 KRYDDLEGIN HJÖRTU
Í Borgarleikhúsinu. „Þarna fékk ég að
leika svarta litinn í málverkinu, það var
mjög gaman,“ segir Edda Heiðrún.
1986 EINS OG SKEPNAN DEYR
Edda Heiðrún og Þröstur Leó eftir frumsýninguna.
„Takið eftir tískunni,“ segir Edda Heiðrún.
1985 LITLA HRYLLINGSBÚÐIN
Með Hinu leikhúsinu. Gísli Rúnar og
Edda Heiðrún.
irt
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
s
ér
ré
tt
t
il
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
. a
ð
v
er
ð
g
et
ur
b
t
re
ys
t
án
f
á
yr
irv
ar
a.
frá 25.900 kr.*
Flugsæti aðra leiðina
Alicante
*Flugsæti aðra leið með sköttum. Netverð á mann.
Heimsferðir bjóða upp á beint flug til Alicante á næsta ári.
Betra verð, góðir flugtímar og þjónusta á íslensku alla leið – fyrir þig!
Nú er tækifæri til að bregðast skjótt við
og næla sér í fyrstu sætin á lægsta verð
á www.heimsferdir.is
Skráðu þig í netklúbb Heimsferða og fáðu öll tilboð send.
Skógarhlíð 1 8 • Sími 595 1000
www.heimsferdir.is
inu
FR
ÉT
TA
BL
AÐ
IÐ
/S
TE
FÁ
N
➜ Edda Heiðrún útskrifaðist úr Leiklistarskóla Íslands
1982. Fyrsta prófraun hennar á sviði atvinnuleikhúss var
í Iðnó árið eftir, í Hart í bak eftir Jökul Jakobsson. Þar fór
hún með hlutverk Árdísar, ungrar stúlku að austan sem
kemur til bæjarins að leita að pabba sínum. Síðan tók eitt
hlutverkið við af öðru, bæði í stóru atvinnuleikhúsunum og
með smærri leikhópum, eins og Frú Emilíu og Hinu leikhús-
inu. Hjá Frú Emilíu lék hún lafði Macbeth í Macbeth eftir
Shakespeare, Vörju í Kirsuberjagarðinum eftir Tsjekhov og
aðalhlutverkið í óperunni Rhodymenia Palmata eftir Halldór
Kiljan og Hjálmar H. Ragnarsson og með Hinu leikhúsinu
sló hún í gegn sem Audrey í Litlu hryllingsbúðinni þar sem
söngrödd hennar fékk virkilega að njóta sín. Hryllingsbúðin
var sýnd yfir hundrað sinnum í Gamla bíói og þegar því
ævintýri sleppti hjá Eddu tók við titilhlutverkið í Rauðhóla-
Ransí. Í því sýndi hún meðal annars snilli sína í fjölbragða-
glímu (wrestling) sem hún tileinkaði sér á æfingatímabilinu.
NOKKRIR PUNKTAR UM FERIL EDDU HEIÐRÚNAR
➜ Edda Heiðrún hefur leikið jafn ólík hlutverk og
ameríska daðurdrós í Gæjum og píum og Rauðs-
mýrarmaddömuna í Sjálfstæðu fólki. Hún hefur
túlkað Gínu í Villiöndinni, Goldu í Fiðlaranum á þakinu,
Cosette í Vesalingunum og syngjandi klæðskiptinginn
Mímí í Evu Lúnu svo aðeins örfá verkefni séu nefnd.
➜ Svo drepið sé niður í leikdóma um Villiöndina í
Þjóðeikhúsinu 1997 segir Soffía Auður Birgisdóttir í
Morgunblaðinu: „Edda Heiðrún Backman leikur Gínu
eiginkonu Hjálmars Eklands af reisn og fagmennsku,“
og Jón Viðar Jónsson sem þá var gagnrýnandi í Dags-
ljósi Sjónvarpsins tekur í sama streng: „Edda Heiðrún
hefur í raun og veru alla kosti sem prýða einn leikara.
Hún hefur feikilega örugga tækni sem hún kann að
beita af smekkvísi, tilfinningalegt næmi og innsæi eru í
góðu lagi, svo er hún greind.“
➜ Edda Heiðrún þótti sýna afburða leik sem Donna í Kvetch sem
Vesturport var með árið 2002. Á sama tíma var hún að leika í Krydd-
legnum hjörtum og Honk! í Borgarleikhúsinu og bráðhressa forstjórafrú
í Með fullri reisn í Þjóðleikhúsinu, einnig í stuttmyndinni Blind Date
eftir Huldar Frey og kvikmyndinni Kaldaljósi, auk þess sem hún skrapp
til Færeyja í leikför með Hægan, Elektra eftir Hrafnhildi Hagalín.
➜ Barnamenningin hefur alltaf verið Eddu hugstæð. Hún gaf út
plöturnar Barnaborg 1990 og Barnajól 1991. Einnig plötuna Fagur
fiskur í sjó 2001 með helstu söngperlum Atla Heimis Sveinssonar úr
íslenskum leikverkum.
➜ Fyrsta leikstjórnarverkefni Eddu Heiðrúnar var Svik eftir Harold
Pinter sem Leikfélag Akureyrar sýndi. Í kjölfarið komu Mýrarljós, Átta
konur, Salka Valka og fleiri. Afrekalistinn er ótæmandi. Hver man til
dæmis ekki eftir Eddu Heiðrúnu í gervi Ingibjargar Sólrúnar, sem var
hápunktur áramótaskaupsins 2002? Þetta er ótrúleg kona.