Fréttablaðið - 23.11.2013, Blaðsíða 35
LAUGARDAGUR 23. nóvember 2013 | HELGIN | 35
Kennedy var dýrkaður og dáður um víða veröld, meðal annars hér á
landi, og helgina eftir morðið skrifuðu rúmlega 2.500 Íslendingar í
minningarbók um forsetann í bandaríska sendiráðinu við Laufásveg.
„Samúðaróskir þessar eru okkur til mikillar huggunar í sárum harmi,“
sagði James K. Penfield, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi.
Þá var haldin minningarathöfn um Kennedy í Dómkirkjunni hinn 26.
nóvember, þar sem handhafar forsetavalds, ríkisstjórn Íslands, þingmenn
og aðrir embættismenn voru viðstaddir. Mikill mannfjöldi fylgdist með
athöfninni utan við Dómkirkjuna en hátölurum hafði verið komið fyrir á
veggjum hennar. Þá var henni einnig útvarpað í Ríkisútvarpinu.
„Hann barðist fyrir jafnrétti og sáttum milli þjóða. Þetta er hræðileg
fregn,“ sagði Ásgeir Ásgeirsson, forseti Íslands, í samtali við Morgunblað-
ið. „Ég hef engin skilyrði til að dæma hvað valdið hefur þessum ósköpum,
en segja mætti mér að Kennedy hafi goldið síns umburðarlyndis við
litaða menn í Bandaríkjunum,“ sagði Emil Jónsson utanríkisráðherra. „Ég
hef alltaf dáð Kennedy Bandaríkjaforseta því hann hefur ávallt verið tals-
maður mannréttinda og mannasættir á alþjóðlegum vettvangi.“
KENNEDYS MINNST Á ÍSLANDI
Kári Jónasson blaðamaður starfaði
á Tímanum þegar fregnir bárust af
skotárásinni.
„Þetta var ’63, fréttaárið mikla.
Fyrst Surtsey og svo Kennedy,“ segir
Kári í samtali við Fréttablaðið. „Ég
var úti að sinna einhverju, nýbyrj-
aður sem fastur blaðamaður, og
kom svo inn á ritstjórn og þá var
allt í uppnámi. Menn hentu öllum
verkefnum frá sér.“
Kári var sendur upp á loft þar sem
hann þýddi fréttaskeyti frá Noregi.
„Mitt hlutverk var að skrifa viðbrögð
forsætisráðherra Norðurlandanna
við morðinu. Það sem er eftirminni-
legast er að Indriði G. Þorsteinsson,
sem var ritstjóri þá, hringdi og fékk
samband við Salinger, blaðafulltrúa
Hvíta hússins.“
Kennedy var myrtur á föstudegi
og blaðið kom út á laugardegi. Kári
rifjar upp leturstærðina í fyrir-
sögninni, en hún var stigin í botn.
„Það var 72 punkta letur, stærsta
letrið sem Tíminn var með, enda var
þetta alveg svakalegt mál.“ Í blaðinu
var sagt frá viðbrögðum embættis-
fólks um allan heim og skrifaðar
voru nýjar forystugreinar. Rándýrar
símamyndir voru síðan fengnar að
utan og segir Kári að Tíminn hafi
náð að gera málinu góð skil.
Kári telur að Íslendingum
hafi þótt dauði Kennedys sér-
staklega hörmulegur vegna þess að
Lyndon B. Johnson varaforseti hafði
heimsótt Ísland nokkrum mánuðum
áður. „Það var mikið um að vera
og hann vakti mikla athygli niðri
við Stjórnarráð þar sem hann hélt
ræðu. Þarna stóð hann með stóra
kúrekahattinn sinn og nefið, og
fólk gat komið að honum og fengið
undirskriftir. Þess vegna held ég að
þetta hafi snert Íslendinga meira.
Svo má ekki gleyma því að Jackie
vakti kannski eins mikla athygli og
Kennedy sjálfur. Allir höfðu samúð
með ekkjunni og öllum börnunum.“
MORGUNVERÐARFUNDUR SVÞ – SAMTAKA VERSLUNAR OG ÞJÓNUSTU
Fimmtudaginn 28. nóvember kl. 8.30-10.00 á Grand Hóteli Reykjavík
HIÐ OPINBERA EÐA
EINKAAÐILAR?
08.00 Húsið opnað, skráning og morgunverður
08.30 Fundur settur
Litið um öxl.
Sólmundur Hólm, útvarpsmaður og eftirherma
Fjölbreytni í heilbrigðisþjónustu eykur gæði og hagkvæmni.
Ásdís Halla Bragadóttir, stjórnarformaður Sinnum og EVU
Valið og valdið.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Hjallastefnunnar
Hvar geta þjónustufyrirtæki leyst hið opinbera af hólmi?
Margrét Sanders, framkvæmdastjóri hjá Deloitte
„Ríkið, það er ég“ – útvistun hins opinbera á verkefnum.
Lárus M. K. Ólafsson, lögfræðingur SVÞ
Fundarstjóri: Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Já
Á Íslandi var einu sinni öll bifreiðaskoðun, ljósvaka-
fjölmiðlun, póst- og síma þjónusta, háskólamenntun og
heilbrigðisþjónusta á hendi hins opinbera.
Hvernig er staðan nú og hvar liggja tækifærin?
Skráning á svth@svth.is eða í síma 511 3000.
Dagskrá
Sólmundur Hólm
Áslaug Hulda Jónsdóttir
Lárus M. K. Ólafsson
Ásdís Halla Bragadóttir
Margrét Sanders
Sigríður Margrét Oddsdóttir
STÆRSTA LETRIÐ – fyrirsögnin var í
72 punkta letri, því stærsta sem Tíminn
notaði
MENN HENTU ÖLLUM
VERKEFNUM FRÁ SÉR
„Nei, nei, nei. Guð
minn góður. Þeir ætla að
drepa okkur öll,“
John Connolly
ríkisstjóri Texas