Fréttablaðið - 23.11.2013, Qupperneq 45
Mér hefur lengi fundist vanta fallega hönnunarvöru á skaplegu verði í íslenskar gjafavöruversl-
anir,“ segir Örn Svavarsson, kaupmaður í
Minju á Skólavörðustíg.
Örn er víðförull og hefur ferðast og
búið víða um heim. „Við setjum gjarn-
an samasemmerki á milli hönnunarvöru
og himinhás verðs, en á ferðum mínum í
Evrópu og Bandaríkjunum hef ég oft og
iðulega rekist á fallega hönnunarvöru
sem einnig hefur mikið notagildi og er á
skaplegu verði.“
Minja er heillandi heimur íslenskrar og
erlendrar hönnunar og á verði við allra
hæfi.
„Okkur hefur tekist að finna gott úrval
af fallegum nytjahlutum héðan og þaðan
úr heiminum og stundum hafa tilviljanir
og kunningsskapur leitt okkur í sambönd
við framleiðendur sem við höfum mikið
dálæti á, eins og í tilfelli nútímalistasafns
New York-borgar, MoMA, en tengdason-
ur frænda besta vinar míns í New York
stjórnar þar heildsölunni,“ segir Örn.
Minja stendur á frábærum stað við
Skólavörðustíg og sjón er sögu ríkari
þegar inn er komið.
„Fyrir hátíðarnar er andrúmsloftið jóla-
legt á Skólavörðustíg og notalegt að koma
inn úr kuldanum í Minju og finna jafn-
vel jólagjafir handa öllum á einum stað,“
segir Örn, innan um úrval af skemmtilegri
hönnun fyrir alla aldurshópa.
„Til dæmis um vinsælar jólagjafir má
nefna kirsuberjakjarnapúða sem hitaðir
eru í örbylgju og settir á aumar axlir eða
önnur eymsl og losa um vöðvabólgu.
Þetta er gjöf sem sýnir umhyggju. Úrvalið
er mikið af litlum smámunum sem gleðja
og kæta, enda sér maður gesti Minju
brosa þegar þeir koma í búðina,“ segir
Örn.
Hvert sem litið er má sjá eigulega muni
sem eiga sameiginlegt að vera skemmti-
legir og einstakir.
„Areaware hefur marga hönnuði á
sínum snærum, eins og Ross Menuez sem
gerir dýrapúðana vinsælu og hannaði
meðal annars kjól á söngkonuna Björk.
Þá tókum við nýlega inn klukkur og aðra
tæknilega hluti frá frönsku fyrirtæki sem
sérhæfir sig í gamaldags stíl og hefur
unnið til margra verðlauna fyrir gripi sem
meðal annars Pompidou-safnið í París
notar sem viðmið um hönnun frá ákveðn-
um tímabilum,“ útskýrir Örn.
Íslensk hönnun er líka áberandi í Minju
með fallegum vörum frá Siggu Heimis,
Hlín Reykdal, Heklu, Hári úr hala og
fleirum á einstaklega góðu verði.
GJAFIR SEM GLEÐJA
MINJA KYNNIR Viltu gefa kirsuberjapúða sem sýnir umhyggju í jólagjöf eða
snuddu með hækka og lækka-takka? Hönnun með notagildi fæst í Minju.
MINJA Það er ævintýri
að skoða fallega muni í
gluggum Minju á Skóla-
vörðustíg.
MYND/GVA
FRIÐUÐ OG FALLEG HÚS
Sigríður Björk Jónsdóttir byggingalistfræðingur
annast leiðsögu í göngu um miðbæ Hafnarfjarðar á
sunnudaginn klukkan 15. Í göngunni, sem hefst við
Hafnarborg, verða friðuð hús skoðuð.
MINJA
Skólavörðustíg 12.
Skoðið vefverslun
Minju á
www.minja.is
hollur kostur á 5 mín.
Plokkfiskur
Ármúla 18 Húsi Máls og menningar
s. 511 3388 s. 511 3399