Fréttablaðið - 23.11.2013, Síða 59
Leitað er að einstaklingi með brennandi áhuga á
atvinnugrein í örum vexti og löngun til að takast á við
sérfræðiverkefni af ýmsu tagi á sviði ferðamála, með
áherslu á úrvinnslu og nýtingu talnagagna, gæðamál
og sjálfbæra langtímaþróun ferðaþjónustu.
Menntunar- og hæfniskröfur:
B.S. próf í ferðamálafræði eða sambærileg
menntun
Góð íslensku- og enskukunnátta
Góð tölvuþekking, bæði til öflunar og
úrvinnslu upplýsinga
Góðir samskiptahæfileikar, framtakssemi,
sjálfstæði í vinnubrögðum
Löngun til að takast á við síbreytileg verkefni
Reynsla af störfum innan ferðaþjónustugreina
er kostur
Umsóknarfrestur:
Umsóknarfrestur er til og með 9. desember 2013.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og
starfsferil skulu berast skrifstofu Ferðamálastofu
í Reykjavík, Geirsgötu 9, 101 Reykjavík eða á
netfangið upplysingar@ferdamalastofa.is og vera
merktar starfinu.
Ekki er um sérstök umsóknareyðublöð að ræða
en öllum umsóknum verður svarað.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sólrún Anna
Jónsdóttir rekstrarstjóri, solrun@ferdamalastofa.is
og þær er einnig að finna á vef stofnunarinnar
http://www.ferdamalastofa.is/is/
um-ferdamalastofu/laus-storf
Ferðamálastofa leitar eftir sérfræðingi til starfa frá 15. janúar 2014 á starfsstöð sinni
í Reykjavík. Um er að ræða 100% starf til tveggja ára með möguleika á framlengingu.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum opinberra starfsmanna.
Geirsgata 9 | 101 Reykjavík | Sími 535 5500 | Fax 535 5501
Strandgata 29 | 600 Akureyri | Sími 535-5510 | Fax 535 5501
SÉRFRÆÐINGUR - FERÐAMÁLASTOFA
P
O
R
T
h
ön
n
u
n
ICELANDIC
TOURIST
STOFA
BOARD
v
Rannsóknarsjóður Hrafnistu
auglýsir eftir umsóknum um styrk
Úr skipulagsskrá Rannsóknarsjóðsins:
“Eitt af meginmarkmiðum sjóðsins er að stuðla að
nýjungum og þróun í málefnum aldraðra. Sjóðurinn
er opinn öllum þeim sem að stunda rannsóknir,
formlegt nám eða hvað annað sem mun efla þennan
málaflokk hér á landi.”
Umsóknarfrestur er til 15. desember 2013 og skulu
umsóknir sendar á netfangið
rannsoknarsjodur@hrafnista.is.
Umsókn skal fylgja:
a) stutt lýsing á verkefninu
b) tíma- og kostnaðaráætlun
c) aðrir styrkir sem sótt er um fyrir sama verkefni
Sú kvöð fylgir styrkveitingu að niðurstöður
verkefnisins séu kynntar á Hrafnistu í ræðu og riti
auk þess að rannsóknarsjóðurinn áskilur sér rétt
til að krefjast endurgreiðslu innan 3 ára
ef hætt hefur verið við verkefnið.
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu
Hrafnistu, www.hrafnista.is eða hjá gæða- og
fræðslustjóra Hrafnistu, Unni G. Guðmundsdóttur
í síma 585 3000.
Stjórn Rannsóknarsjóðs Hrafnistu
Mjólkursögusafn á Selfossi
rekstur
Sveitarfélagið Árborg í samstarfi við MS skoðar þann
möguleika að opnað verði Mjólkursögusafn á Selfossi vorið
2014. Sveitarfélagið Árborg áformar að leggja safninu til
húsnæði á neðri hæð Eyravegar 3. MS leggur til sýningar-
muni, auk þess að láta hanna og setja upp sýningu
safnsins. MS og sveitarfélagið munu koma að kynningu
safnsins í upphafi. Einnig ráðgerir sveitarfélagið að flytja
upplýsingamiðstöð ferðamanna, sem nú er staðsett á
bókasafninu á Selfossi, í sama húsnæði og safnið. Í rekstri
upplýsingamiðstöðvar ferðmanna felast m.a. samskipti við
ferðamenn, upplýsingagjöf til þeirra og aðstoð við bókanir.
Gert er ráð fyrir að sérstök stjórn skipuð fulltrúum MS og
Árborgar standi að baki safninu.
Sveitarfélagið vill kanna grundvöll þess að fela sjálf-
stæðum rekstraraðila rekstur og umsjón safnsins og
upplýsingamiðstöðvarinnar og auglýsir því eftir aðilum
sem hefðu áhuga á að taka að sér framangreindan rekstur.
Leitað er eftir metnaðarfullum og drífandi rekstraraðila með
brennandi áhuga fyrir því að bjóða uppá afburðaþjónustu
og skapa einstakt umhverfi og upplifun fyrir viðskiptavini.
Viðkomandi aðili þyrfti að vera reiðubúinn að koma að
undirbúningsferli frá og með n.k. áramótum.
Áhugasamir hafi samband við Sveitarfélagið Árborg, eigi
síðar en sunnudaginn 8. desember n.k., með tölvupósti á
netfangið mjolk@arborg.is þar sem gerð er grein fyrir sýn
umsækjanda á verkefnið og því hvernig hann uppfyllir
þau skilyrði sem að framan greinir. Einnig skal tiltaka
tungumálakunnáttu, færni í mannlegum samskiptum og
reynslu umsækjanda af rekstri og kynningarmálum.
Nánari upplýsingar veitir Bragi Bjarnason í síma 480 1900.
Sveitarfélagið áskilur sér rétt til að ganga til samninga við
hvaða umsækjanda sem er eða hafna þeim öllum.
Sveitarfélagið Árborg
sími: 511 1144