Fréttablaðið - 23.11.2013, Side 74

Fréttablaðið - 23.11.2013, Side 74
23. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 42 ara. Sú hjálp var fúslega veitt og meðan þeir ríktu báðir, Khosrá og Mauricíus, var einkar friðsamlegt millum stórveld- anna. Raunar kvaðst Khosrá líta á Býsans- keisara sem föður sinn, hvorki meira né minna. Nú, þegar Phocas hafði látið drepa Mauricíus reiddist Khosrá föðurmissinum, nema hann hafi bara litið á þennan atburð sem kærkomið tækifæri til að græða svo- lítið á kostnað Býsansmanna, altént hóf hann stríð gegn Býsansríki. „Ætli þú verðir nokkru skárri?“ Nú, undir öllum venjulegum kringum- stæðum hefði það ekki þýtt neitt sér- stakt, jú, slatti af óbreyttum alþýðustrák- um hefði týnt lífi, annað stórveldið hefði farið rænandi og ruplandi um landamæra- héruð hins, en svo hefði að endingu verið saminn friður, ógnarjafnvægið komist á aftur og stórveldin haldið áfram að horf- ast í augu. En í þetta sinn fór allt úrskeið- is hjá Býsansmönnum. Það var ekki logið upp á Phocas: á nokkrum árum fóru Býs- ansmenn mjög halloka fyrir Persum, á Balkanskaga hrundu varnir gegn „villi- mönnum“ eins og Slövum og Avörum. Það var allt í volli og innanlands líka. Árið 610 ruddist armenskættaður herforingi Býsansmanna til Konstantínópel og hrakti keisarann frá, enda allt upp í loft í ríkinu, Heraklíus hét hann þessi herforingi og var hálffertugur eða þar um bil, það hafði ekki farið miklum sögum af honum áður, en nú lét hann draga hinn fallna Phocas fyrir sig, og öskraði á hann: „Svo það er svona sem þú hefur stjórnað ríkinu, ræfillinn þinn?!“ „Ætli þú verðir nokkuð skárri?“ hvæsti Phocas, og þá reiddist Heraklíus svo mjög að hann réðist að fyrirrennara sínum og drap hann eigin hendi. Og eru fá dæmi um það í sögunni að einn keisari komist til valda með því að bana sjálfur þeim sem fyrir var, yfirleitt létu valdaræningjar aðra sjá um slíkt fyrir sig. En Heraklíus vílaði sem sagt ekki fyrir sér að sjá um það sjálfur. Fyrstu ár Heraklíusar í embætti keis- ara virtust hins vegar ekki benda til þess að hann hefði sérstakt bein í nefinu. Her- sveitir hans stóðust sveitum Khosrás Persakóngs engan veginn snúning, það bætti ekki úr skák þegar Gyðingar í ríki Heraklíusar gerðu uppreisn gegn honum og hjálpuðu Persum að leggja undir sig fyrst Sýrland og svo Palestínu, Persar tóku Jerúsalem árið 614 og fluttu þaðan burt hinn allra helgasta grip sem Býsansmenn áttu eða töldu sig eiga – sem sé krossinn sem Jesú hafði verið negldur á. Þá var nefnilega hafin sú mikla dýrkun á „helgum dómum“ sem síðar varð alræmd í kristin- dómnum og endaði til dæmis með því að fjölmargar kristnar þjóðir lýstu því hróð- ugar yfir að þær ættu í sínum fórum for- húð Krists – og svo kom fólk hvaðanæva að góna á örlítinn morkinn húðflipa – og báðu jafnvel bænir til þessa fyrirbæris. Með því að hrifsa burt „krossinn sanna“ var Býsansríkinu greitt ægilegt sálrænt högg, enda var fólk þar með trú sína bein- línis á heilanum. En ekki dugði áfallið að sinni til þess að Heraklíus tæki á sig rögg, hann virtist alveg heillum horfinn, á Balk- anskaga fóru Býsansmenn líka hrakfarir, og Egiftaland féll í hendur Persa um 618, allt var að hruni komið, persneskur her var kominn nærri því að borgarmúrum Konstantínópel, og ætli Phocas hafi ekki hlegið í gröf sinni? Heraklíus virtist nú jafnvel enn meiri ræfill en hann, og hugs- aði um fátt annað en systurdóttur sína kornunga, sem hann hafði gengið að eiga, kristilegum borgarbúum til hryllings, sem kunnu ekki að meta slík sifjaspell, en Her- aklíus kærði sig kolláttan og fór að hlaða niður með Martínu frænku sinni þeirri halarófu af vansköpuðum börnum. Allt breyttist Ríkið, sem aðeins tuttugu árum áður virt- ist traustlegra en nokkru sinni fyrr, var um 620 komið að fótum fram, Heraklíus íhugaði að yfirgefa höfuðborgina og leggja á flótta, Khosrá beið bara eftir fullnaðar- sigri. En þá … þá var eins og Heraklíus yrði skyndilega nýr maður og allt breyttist í einu vetfangi. Það eru dramatískar svipt- ingar eins og þær sem nú fóru í hönd sem valda því að piltkornið sem fyrr á árum taldi Býsanssögu lítt merkilega situr nú á efri árum og les allt um þetta áfergju- lega, gapandi yfir örlögunum. Og þótt það standi nú ekki til að hafa framhaldsgrein- ar í Flækjusögum, þá verður svo að vera í þetta sinn. Fylgist með eftir viku þegar Heraklíus rís upp úr sinni dýpstu niður- lægingu, þegar Khosrá II er drepinn sam- kvæmt skipunum úr óvæntri átt, og þegar bæði stórveldin eru gersigruð af nýju og fram að þessu forsmáðu afli … STÓRVELDIN Í MIÐAUSTURLÖNDUM 600 EFTIR KRIST FLÆKJUSAGA Illugi Jökulsson uppgötvaði ekki fyrr en fyrir tiltölulega skömmu hvað saga Býsans- ríkisins er ógnarlega dramatísk og örlagaþrungin. Og þar ber hæst söguna um Heraklíus keis- ara, einhverja harmræn- ustu hetju Rómar- sögunnar. Það er ekki gott að segja hvernig maður velur sér þau tímabil í sögunni sem maður gerir svo að sínum sérstöku áhugamálum. Ég lenti snemma í Rómaveldi hinu forna og undi þar síðan lengi, en ég man ekki fyrir mitt litla líf hvers vegna. Jú, ég var bara táningsstrákur þá og segir ekki klisjan að táningsstrákar hafi áhuga á orrustum og hasar, ég hef gengið glaður inn í þá klisju og ekki vantaði svo sem hasarinn í sögu Rómaveldis, né orrust- urnar, drottinn minn dýri, þetta voru ein- tómar orrustur! Og öngvir „bændur sem flugust á“ – ónei, heldur glæstir herfor- ingjar sem sitjandi á stríðsfákum stefndu tugþúsundum þrautþjálfaðra hermanna sinna til bardaga, gráir fyrir járnum, heróp rekin upp, blikar á gljáfægð sverð, hvinur í hárbeittum örvum í loftinu, mann- hafið æðir fram, barist til síðasta manns – svoleiðis eitthvað. Í þá daga leiddi ég ekki svo mjög hugann að því hvaða andskotans rétt herforingjarnir höfðu til að hætta lífi dáta sinna, oftast af heldur fáfengilegum hégómlegum ástæðum, valdagræðgi, pen- ingagræðgi, heiðursgræðgi … sem sagt aðallega græðgi. En táningsstrákurinn taldi einhvern veginn sjálfsagt að heyja allar þessar orrustur og taldi það heldur ljóð á ráði herforingjanna ef þeir hikuðu við að halda skemmtilegan slag. Svo þroskast maður eitthvað og hættir að telja allt þetta blóðbað eðlilegan hlut, en eftir stendur að saga Rómar er samt sem áður svo sneisafull af dramatík og merki- legum viðburðum á alla kanta, að ég fæ enn ekki hamið mig ef ég rekst í bókabúð á girnilega bók um Rómarsögu, þá verð ég ÞEGAR ÓGNAR- JAFNVÆGIÐ RASKAÐIST Svo kom fólk hvaðanæva að góna á örlítinn morkinn húðflipa– og báðu jafnvel bænir til þessa fyrir- bæris. að skoða hana. En þangað til fyrir ekkert mjög mörgum árum, þá lét ég alltaf staðar numið við ártalið 476, þegar stráklingur- inn Rómúlus Ágústúlus var hrakinn úr embætti keisara í Ravenna og vestari hluti Rómaveldis var þar með endanlega fall- inn í hendur „villimanna“ – þótt raunar sé sú saga miklu miklu flóknari en það. En í austri lifði áfram svokallað Rómaveldi, austurrómverska ríkið, oftast kallað Býs- ans af sagnfræðingum nútímans – höfuð- borgin Konstantínópel eða Mikligarður í munni norrænna manna seinna meir. Og sú saga vakti aldrei neinn áhuga hjá mér, hún var eins og eftirþanki við hina raun- verulegu sögu Rómaveldis, Býsansríkið lítið annað en blindgata þar sem púðraðar pempíur fóru um í gullskikkjum og þref- uðu um innantóma guðfræði til að drepast ekki alveg úr leiðindum – örlögin, drama- tíkin, hinn mikli sláttur sögunnar víðs fjarri. Eða þetta hélt ég. Gráðugir keisarar og kóngar Hin síðari ár hef ég svo skipt um skoð- un. Ef einhvers staðar er dramatík í sögu Rómaveldis, þá er það í sögu Býsansveld- isins. Og hvergi er sú dramatík dýpri en í hinni mögnuðu sögu um Heraklíus. Keisar- ann sem virtist ætla að tapa öllu ríki sínu en tókst með ofurmannlegu átaki að vinna það aftur. Bara til að tapa því svo öðru sinni. Í byrjun 7. aldar virtist Býsansríkið standa föstum fótum. Það réði stórum svæðum á Ítalíu, mestallri Norður-Afr- íku, Egiftalandi, Sýrlandi og Palestínu, Litlu-Asíu (seinna Tyrklandi) og mestum hluta Balkanskaga. Nokkurn veginn yfir landamæri Sýrlands og Íraks nú á dögum horfðist Býsansríkið í augu við annað fornt og glæsilegt stórveldi, Persíu sem réðu hinir svonefndu Sassanídar. Í 400 ár höfðu landamærin legið nokkurn veginn þarna, stundum ríkti friður áratugum saman, en stundum fór einhver gráðugur Býsans- keisari eða Persakóngur í stríð og þá var barist, stundum líka í áratugi, en yfirleitt gerðist fátt í raun og veru, ríkin voru svo jafnsterk og tóku ekki óþarfa áhættu, þetta jafnvægi virtist geta ríkt í mörg hundr- uð ár enn, og svei mér þá, kannski væri það jafnvel enn við lýði, og Persaveldi og Býsansríkið stæðu ennþá hvort andspæn- is öðru í Miðausturlöndum, ef ekki hefði nokkuð óvænt gerst. Reiddist föðurmissinum Árið 602 var Býsanskeisara steypt af stóli. Það gerðist nú alltaf öðru hvoru. Þessi hét Mauricíus og var dugmikill herforingi en alltof strangur við dáta sína á Balkan- skaga, svo þeir gerðu uppreisn, drápu keisarann og settu einn úr sínum röðum í stað hans. Sá hét Phocas og var óhæfur til flestra verka. Í Ktesifón, höfuðborg Persaveldis, lyfti stórkonungurinn Khosrá II brúnum við þessar fregnir. Hann hafði þurft að berjast til valda í ríki sínu áratug fyrr, og leit- aði þá hjálpar hjá Mauricíusi Býsanskeis- Konstantínópel Ktesifon Antíokkía íaArmen Arabía Miðjarðarhaf Svartahaf Kaspíhaf dEgiftalan Damaskus Alexandría Jerúsalem Mekka Býsans Persaveldi BARDAGI MILLI HERAKLÍUSAR OG KHOSRÁS, FRESKA EFTIR PIERO DELLA FRANCESCA, Í KAPELLU HEILAGS FRANS FRÁ ASSISSÍ Í AREZZO Í TOSKANA.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.