Fréttablaðið - 23.11.2013, Page 74
23. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 42
ara. Sú hjálp var fúslega veitt og meðan
þeir ríktu báðir, Khosrá og Mauricíus,
var einkar friðsamlegt millum stórveld-
anna. Raunar kvaðst Khosrá líta á Býsans-
keisara sem föður sinn, hvorki meira né
minna. Nú, þegar Phocas hafði látið drepa
Mauricíus reiddist Khosrá föðurmissinum,
nema hann hafi bara litið á þennan atburð
sem kærkomið tækifæri til að græða svo-
lítið á kostnað Býsansmanna, altént hóf
hann stríð gegn Býsansríki.
„Ætli þú verðir nokkru skárri?“
Nú, undir öllum venjulegum kringum-
stæðum hefði það ekki þýtt neitt sér-
stakt, jú, slatti af óbreyttum alþýðustrák-
um hefði týnt lífi, annað stórveldið hefði
farið rænandi og ruplandi um landamæra-
héruð hins, en svo hefði að endingu verið
saminn friður, ógnarjafnvægið komist á
aftur og stórveldin haldið áfram að horf-
ast í augu. En í þetta sinn fór allt úrskeið-
is hjá Býsansmönnum. Það var ekki logið
upp á Phocas: á nokkrum árum fóru Býs-
ansmenn mjög halloka fyrir Persum, á
Balkanskaga hrundu varnir gegn „villi-
mönnum“ eins og Slövum og Avörum. Það
var allt í volli og innanlands líka. Árið
610 ruddist armenskættaður herforingi
Býsansmanna til Konstantínópel og hrakti
keisarann frá, enda allt upp í loft í ríkinu,
Heraklíus hét hann þessi herforingi og var
hálffertugur eða þar um bil, það hafði ekki
farið miklum sögum af honum áður, en nú
lét hann draga hinn fallna Phocas fyrir
sig, og öskraði á hann:
„Svo það er svona sem þú hefur stjórnað
ríkinu, ræfillinn þinn?!“
„Ætli þú verðir nokkuð skárri?“ hvæsti
Phocas, og þá reiddist Heraklíus svo mjög
að hann réðist að fyrirrennara sínum og
drap hann eigin hendi. Og eru fá dæmi um
það í sögunni að einn keisari komist til
valda með því að bana sjálfur þeim sem
fyrir var, yfirleitt létu valdaræningjar
aðra sjá um slíkt fyrir sig. En Heraklíus
vílaði sem sagt ekki fyrir sér að sjá um
það sjálfur.
Fyrstu ár Heraklíusar í embætti keis-
ara virtust hins vegar ekki benda til þess
að hann hefði sérstakt bein í nefinu. Her-
sveitir hans stóðust sveitum Khosrás
Persakóngs engan veginn snúning, það
bætti ekki úr skák þegar Gyðingar í ríki
Heraklíusar gerðu uppreisn gegn honum
og hjálpuðu Persum að leggja undir sig
fyrst Sýrland og svo Palestínu, Persar tóku
Jerúsalem árið 614 og fluttu þaðan burt
hinn allra helgasta grip sem Býsansmenn
áttu eða töldu sig eiga – sem sé krossinn
sem Jesú hafði verið negldur á. Þá var
nefnilega hafin sú mikla dýrkun á „helgum
dómum“ sem síðar varð alræmd í kristin-
dómnum og endaði til dæmis með því að
fjölmargar kristnar þjóðir lýstu því hróð-
ugar yfir að þær ættu í sínum fórum for-
húð Krists – og svo kom fólk hvaðanæva að
góna á örlítinn morkinn húðflipa – og báðu
jafnvel bænir til þessa fyrirbæris.
Með því að hrifsa burt „krossinn sanna“
var Býsansríkinu greitt ægilegt sálrænt
högg, enda var fólk þar með trú sína bein-
línis á heilanum. En ekki dugði áfallið að
sinni til þess að Heraklíus tæki á sig rögg,
hann virtist alveg heillum horfinn, á Balk-
anskaga fóru Býsansmenn líka hrakfarir,
og Egiftaland féll í hendur Persa um 618,
allt var að hruni komið, persneskur her
var kominn nærri því að borgarmúrum
Konstantínópel, og ætli Phocas hafi ekki
hlegið í gröf sinni? Heraklíus virtist nú
jafnvel enn meiri ræfill en hann, og hugs-
aði um fátt annað en systurdóttur sína
kornunga, sem hann hafði gengið að eiga,
kristilegum borgarbúum til hryllings, sem
kunnu ekki að meta slík sifjaspell, en Her-
aklíus kærði sig kolláttan og fór að hlaða
niður með Martínu frænku sinni þeirri
halarófu af vansköpuðum börnum.
Allt breyttist
Ríkið, sem aðeins tuttugu árum áður virt-
ist traustlegra en nokkru sinni fyrr, var
um 620 komið að fótum fram, Heraklíus
íhugaði að yfirgefa höfuðborgina og leggja
á flótta, Khosrá beið bara eftir fullnaðar-
sigri. En þá … þá var eins og Heraklíus
yrði skyndilega nýr maður og allt breyttist
í einu vetfangi. Það eru dramatískar svipt-
ingar eins og þær sem nú fóru í hönd sem
valda því að piltkornið sem fyrr á árum
taldi Býsanssögu lítt merkilega situr nú
á efri árum og les allt um þetta áfergju-
lega, gapandi yfir örlögunum. Og þótt það
standi nú ekki til að hafa framhaldsgrein-
ar í Flækjusögum, þá verður svo að vera
í þetta sinn. Fylgist með eftir viku þegar
Heraklíus rís upp úr sinni dýpstu niður-
lægingu, þegar Khosrá II er drepinn sam-
kvæmt skipunum úr óvæntri átt, og þegar
bæði stórveldin eru gersigruð af nýju og
fram að þessu forsmáðu afli …
STÓRVELDIN Í MIÐAUSTURLÖNDUM 600 EFTIR KRIST
FLÆKJUSAGA
Illugi Jökulsson
uppgötvaði ekki fyrr en
fyrir tiltölulega skömmu
hvað saga Býsans-
ríkisins er ógnarlega
dramatísk og
örlagaþrungin.
Og þar ber hæst
söguna um
Heraklíus keis-
ara, einhverja
harmræn-
ustu hetju
Rómar-
sögunnar.
Það er ekki gott að segja hvernig maður velur sér þau tímabil í sögunni sem maður gerir svo að sínum sérstöku áhugamálum. Ég lenti snemma í Rómaveldi hinu forna og undi þar síðan lengi, en
ég man ekki fyrir mitt litla líf hvers vegna.
Jú, ég var bara táningsstrákur þá og segir
ekki klisjan að táningsstrákar hafi áhuga
á orrustum og hasar, ég hef gengið glaður
inn í þá klisju og ekki vantaði svo sem
hasarinn í sögu Rómaveldis, né orrust-
urnar, drottinn minn dýri, þetta voru ein-
tómar orrustur! Og öngvir „bændur sem
flugust á“ – ónei, heldur glæstir herfor-
ingjar sem sitjandi á stríðsfákum stefndu
tugþúsundum þrautþjálfaðra hermanna
sinna til bardaga, gráir fyrir járnum,
heróp rekin upp, blikar á gljáfægð sverð,
hvinur í hárbeittum örvum í loftinu, mann-
hafið æðir fram, barist til síðasta manns –
svoleiðis eitthvað. Í þá daga leiddi ég ekki
svo mjög hugann að því hvaða andskotans
rétt herforingjarnir höfðu til að hætta lífi
dáta sinna, oftast af heldur fáfengilegum
hégómlegum ástæðum, valdagræðgi, pen-
ingagræðgi, heiðursgræðgi … sem sagt
aðallega græðgi. En táningsstrákurinn
taldi einhvern veginn sjálfsagt að heyja
allar þessar orrustur og taldi það heldur
ljóð á ráði herforingjanna ef þeir hikuðu
við að halda skemmtilegan slag.
Svo þroskast maður eitthvað og hættir
að telja allt þetta blóðbað eðlilegan hlut, en
eftir stendur að saga Rómar er samt sem
áður svo sneisafull af dramatík og merki-
legum viðburðum á alla kanta, að ég fæ
enn ekki hamið mig ef ég rekst í bókabúð
á girnilega bók um Rómarsögu, þá verð ég
ÞEGAR ÓGNAR-
JAFNVÆGIÐ
RASKAÐIST
Svo
kom fólk
hvaðanæva
að góna á
örlítinn
morkinn
húðflipa– og
báðu jafnvel
bænir til
þessa fyrir-
bæris.
að skoða hana. En þangað til fyrir ekkert
mjög mörgum árum, þá lét ég alltaf staðar
numið við ártalið 476, þegar stráklingur-
inn Rómúlus Ágústúlus var hrakinn úr
embætti keisara í Ravenna og vestari hluti
Rómaveldis var þar með endanlega fall-
inn í hendur „villimanna“ – þótt raunar sé
sú saga miklu miklu flóknari en það. En
í austri lifði áfram svokallað Rómaveldi,
austurrómverska ríkið, oftast kallað Býs-
ans af sagnfræðingum nútímans – höfuð-
borgin Konstantínópel eða Mikligarður í
munni norrænna manna seinna meir. Og
sú saga vakti aldrei neinn áhuga hjá mér,
hún var eins og eftirþanki við hina raun-
verulegu sögu Rómaveldis, Býsansríkið
lítið annað en blindgata þar sem púðraðar
pempíur fóru um í gullskikkjum og þref-
uðu um innantóma guðfræði til að drepast
ekki alveg úr leiðindum – örlögin, drama-
tíkin, hinn mikli sláttur sögunnar víðs
fjarri. Eða þetta hélt ég.
Gráðugir keisarar og kóngar
Hin síðari ár hef ég svo skipt um skoð-
un. Ef einhvers staðar er dramatík í sögu
Rómaveldis, þá er það í sögu Býsansveld-
isins. Og hvergi er sú dramatík dýpri en í
hinni mögnuðu sögu um Heraklíus. Keisar-
ann sem virtist ætla að tapa öllu ríki sínu
en tókst með ofurmannlegu átaki að vinna
það aftur.
Bara til að tapa því svo öðru sinni.
Í byrjun 7. aldar virtist Býsansríkið
standa föstum fótum. Það réði stórum
svæðum á Ítalíu, mestallri Norður-Afr-
íku, Egiftalandi, Sýrlandi og Palestínu,
Litlu-Asíu (seinna Tyrklandi) og mestum
hluta Balkanskaga. Nokkurn veginn yfir
landamæri Sýrlands og Íraks nú á dögum
horfðist Býsansríkið í augu við annað fornt
og glæsilegt stórveldi, Persíu sem réðu
hinir svonefndu Sassanídar. Í 400 ár höfðu
landamærin legið nokkurn veginn þarna,
stundum ríkti friður áratugum saman, en
stundum fór einhver gráðugur Býsans-
keisari eða Persakóngur í stríð og þá var
barist, stundum líka í áratugi, en yfirleitt
gerðist fátt í raun og veru, ríkin voru svo
jafnsterk og tóku ekki óþarfa áhættu, þetta
jafnvægi virtist geta ríkt í mörg hundr-
uð ár enn, og svei mér þá, kannski væri
það jafnvel enn við lýði, og Persaveldi og
Býsansríkið stæðu ennþá hvort andspæn-
is öðru í Miðausturlöndum, ef ekki hefði
nokkuð óvænt gerst.
Reiddist föðurmissinum
Árið 602 var Býsanskeisara steypt af stóli.
Það gerðist nú alltaf öðru hvoru. Þessi hét
Mauricíus og var dugmikill herforingi
en alltof strangur við dáta sína á Balkan-
skaga, svo þeir gerðu uppreisn, drápu
keisarann og settu einn úr sínum röðum í
stað hans. Sá hét Phocas og var óhæfur til
flestra verka.
Í Ktesifón, höfuðborg Persaveldis, lyfti
stórkonungurinn Khosrá II brúnum við
þessar fregnir. Hann hafði þurft að berjast
til valda í ríki sínu áratug fyrr, og leit-
aði þá hjálpar hjá Mauricíusi Býsanskeis-
Konstantínópel
Ktesifon
Antíokkía
íaArmen
Arabía
Miðjarðarhaf
Svartahaf
Kaspíhaf
dEgiftalan
Damaskus
Alexandría
Jerúsalem
Mekka
Býsans
Persaveldi
BARDAGI MILLI HERAKLÍUSAR OG KHOSRÁS, FRESKA EFTIR PIERO DELLA
FRANCESCA, Í KAPELLU HEILAGS FRANS FRÁ ASSISSÍ Í AREZZO Í TOSKANA.