Fréttablaðið - 23.11.2013, Síða 80
23. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN KRAKKAR | 48
Bragi Halldórsson
71
Getur þú
hjálpað
Konráði og
Róberti að
leysa þessa
sudoku gátu?
„Jæja, Róbert minn,“ sagði Kata ákveðin. „Þú heldur því alltaf fram að þú sért
svo góður í að leysa sudoku gátur, núna skalt þú leysa þessa.“ Róbert klóraði sér í
hausnum og horfði skelfdur á gátuna. „Eh, ég hef kannski ekki verið að segja alveg
satt, ég er ekkert voða góður í að leysa þær,“ sagði hann skömmustulegur. „Núna er
ég búin að æfa mig og æfa og er orðin bara nokkuð lunkinn í að leysa sudoku svo ég
vil leyfa ykkur að reyna við þessa,“ sagði Kata. Konráð horfði á gátuna. „Allt í lagi,“
sagði hann. „Ég mun að minnsta kosti reyna.“ En Róbert sagði ekkert.
Stjáni blái var um árabil í dag-
blöðum ein vinsælasta teikni-
myndahetja heims. Hann átti
vinkonu sem hét Stína stöng og
bjó hann yfir ofurkröftum því
hann borðaði svo mikið spínat.
Stjáni blái á líka stóra pípu sem
þjónar margvíslegum tilgangi,
stundum er hún kíkir eða
flauta og stundum sýgur hann
spínatið í gegnum hana eins
og rör. Höfundur Stjána bláa
hét Elzie Segar og hófu mynda-
sögurnar göngu sína árið 1930
í Bandaríkjunum. Árið 1958
tók Bud Sagendorf við keflinu
og hélt áfram að glæða Stjána
bláa lífi í dagblöðum. Hann
var einu sinni spurður að því af
hverju Stjáni blái æti allt þetta
spínat. Hann sagði það hafa
verið gert til að afsaka yfirnátt-
úrulega krafta hans. En getur
maður í alvörunni orðið sterk-
ari af því að borða spínat eins
og Stjáni blái? Jú, í sumar sönn-
uðu vísindamenn í Svíþjóð,
að efnið nítrat, sem finnst í
miklum mæli í spínati, hjálpi til
við að byggja upp vöðva. Það
er því ekkert að því að bæta
smá spínati á diskinn sinn– ef
maður vill verða stór og sterkur
eins og Stjáni blái.
Fær ofurkrafta úr spínati
Hvert er þitt hlutverk í Vasa-
ljósi? Ég er með innslag sem
heitir „Á kollinn hjá Kristínu
Ísafold“. Ég tek viðtöl við þekkt
fólk sem ég hitti á Laugaveg-
inum.
Hvernig undirbýrðu þig fyrir
þáttinn? Ég æfi spurningarn-
ar mjög vel þannig að ég þurfi
ekki að lesa þær af blaði og sé
ekki alltaf að hika. Svo hef ég
æft mig á pabba.
Hvern hlakkaðir þú mest til að
tala við? Ég hlakkaði mest til
að tala við Stúf og Pál Óskar.
Ef þú mættir velja hvern sem
er til að taka viðtal við, hver
yrði fyrir valinu? Ég sjálf.
Í hvaða skóla og í hvaða bekk
ertu? Ég er í 3. bekk í Barna-
skóla Hjallastefnunnar í Reykja-
vík.
Hvað er skemmtilegast og
leiðinlegast að læra í skólan-
um? Mér finnst skemmtilegast
að læra stærðfræði. Mér finnst
ekkert leiðinlegt því þetta er
svo skemmtilegur skóli.
Hver er uppáhaldsmaturinn
þinn? Sushi.
Hvaða bók finnst þér skemmti-
legust? Ég hef ekki lesið svo
margar bækur, en ætli „Ljónið,
nornin og skápurinn“ verði ekki
fyrir valinu.
Langar þig að verða sjónvarps-
kona þegar þú verður stór? Ég
skipti svo oft um skoðun og þarf
að gera svo margt þegar ég verð
stór. Mig langar til dæmis að
verða leik- og söngkona, læknir,
dýralæknir og hjúkka, ballerína,
fimleikastjarna og sjónvarps-
kona og fullt annað.
Æfi r viðtölin á pabba
Kristín Ísafold Traustadóttir, átta ára, er einn af sjö umsjónarmönnum sjónvarp-
sþáttarins Vasaljóss sem hefur göngu sína á RÚV í dag. Hún var spenntust fyrir
að tala við Stúf og Pál Óskar og uppáhaldsmaturinn hennar er sushi.
ÞÁTTASTJÓRNANDI Kristín Ísafold myndi taka viðtal við sjálfa sig ef hún fengi að velja hvaða viðmælanda sem er.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Hvað sagði draugurinn við hinn
drauginn?
Þú ert alveg ofboðslega gegnsær!
Pabbi! kallar Anna.
Já, elskan mín.
Verða kálfarnir á mér að nautum
þegar ég verð stór?
Einu sinni var kona sem setti
nærfötin sín í kínverskt þvotta-
hús. Þegar hún fékk fötin til baka
voru ennþá blettir í nærbuxun-
um.
Þá sendi hún miða með fötunum:
Nota meiri sápu í fötin.
Þá fékk hún miða til baka: Nota
meiri pappír!
Brandarar
GULLFALLEG OG
BRÁÐSKEMMTILEG SAGA!
Geisladiskur
með upplest
ri á
sögunni fylg
ir