Fréttablaðið - 23.11.2013, Blaðsíða 84
23. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 52TÍMAMÓT
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@365.is.
TÓNLIST Næstu tónleikar í tónleikasyrpunni 15:15 verða
hátíðartónleikar tileinkaðir enska tónskáldinu Benjamin
Britten en hann hefði orðið 100 ára í gær. Þeir verða haldnir
á sunnudag í Norræna húsinu.
15:15 er röð tónleika sem, líkt og nafnið vísar í, hefjast
ávallt á slaginu kortér yfir þrjú. Tónleikar þessir hafa verið
haldnir reglulega síðan árið 2002. Að baki þeim stendur
úrvals hópur sjálfstæðra tónlistarmanna og söngvara. Einn
þeirra er óbóleikarinn Eydís Franzdóttir en hún lofar mjög
skemmtilegum tónleikum á sunnudag.
„Britten er í rauninni frægasta og besta tónskáld Breta
á 20. öld,“ segir Eydís. Hún vekur einnig athygli á þeirri
skemmtilegu staðreynd að fæðingardagur Brittens, 22.
nóvember, er líka dagur heilagrar Sesselju, verndargyðju
tónlistarmanna í kaþólskri trú. Tónleikarnir á sunnudag
hefjast einmitt á kórverkinu Sálmi til heilagrar Sesselju
sem Britten samdi við ljóð ensk-bandaríska skáldsins W.H.
Auden.
Tónlistarmenn úr ýmsum áttum munu flytja verk Brittens
en meðal þeirra er sönghópurinn Hljómeyki, strengjasveitin
Dísir og tenórsöngvarinn Eyjólfur Eyjólfsson. „Það er mjög
skemmtilegt að fá alla þessa hópa saman,“ segir Eydís. Hún
segir tónlistina gera talverðar kröfur til flytjenda.
Ásamt tveimur kórverkum eru einnig á dagskrá útsetningar
Brittens á enskum miðaldakvæðum og kvartett fyrir óbó og
strengi sem hann samdi aðeins nítján ára gamall, svo eitt-
hvað sé nefnt. - bá
Fagna 100 ára afmæli
tónskáldsins Britten
Tónleikasyrpan 15:15 heldur hátíðartónleika í Norræna húsinu á sunnudag.
MERKISATBURÐIR 23. NÓVEMBER 1700 - Giovanni Francesco Albani varð Klemens 11. páfi.
1838 - Vígður var nýr kirkjugarður í Reykjavík, Hólavallagarður
við Suðurgötu.
1916 - Karlakór KFUM var stofnaður. Síðar var nafni hans breytt
í Karlakórinn Fóstbræður.
1939 - Suðaustur af Íslandi var háð fyrsta sjóorrusta í heims-
styrjöldinni síðari, er þýsku herskipin Gneisenau og Scharnhorst
sökktu breska skipinu HMS Rawalpindi. Þar fórust um 270 menn
en 23 var bjargað.
1947 - Tyrone Power kvikmyndaleikari kom við á Íslandi og vakti
heimsóknin mikla athygli.
1990 - Örn og Örlygur gáfu út Íslensku alfræðiorðabókina með
37 þúsund uppflettiorðum.
2010 - Norður-kóreski herinn gerði stórskotaárás á suður-kór-
esku eyjuna Yeonpyeong.
Okkar ástkæri
BJÖRN GUNNLAUGSSON
hjúkrunar- og dvalarheimilinu Höfða,
Akranesi,
lést á heimili sínu hinn 16. nóvember.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey.
Þökkum samúð og stuðning.
Magnús Björnsson Margrét Vífilsdóttir
Hulda Kristín, Björn, Arnþór Björn, Guðrún Dúfa og
Heiðrún Ósk
Þökkum samúð og hlýhug
við andlát og útför
EMILS HJARTARSONAR
húsgagnasmíðameistara.
Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins
látna.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hrafnistu í
Hafnarfirði fyrir góða umönnun og hlýlegt viðmót.
Sigríður Emilsdóttir Ragnar Harðarson
Erla Emilsdóttir
Guðrún Emilsdóttir Gunnar Bjarnason
Bryndís Emilsdóttir Hjalti Ástbjartsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Frændi okkar og vinur,
PÉTUR R. KRISTJÁNSSON
bóndi,
Litluvöllum, Bárðardal,
lést föstudaginn 15. nóvember
á sjúkrahúsinu á Akureyri. Útför hans fer fram frá
Lundarbrekkukirkju miðvikudaginn 27. nóvember kl. 14.00.
Aðstandendur.
90 ára afmæli
Bragi Hlíðberg
fv. deildarstjóri og harmonikkuleikari
verður 90 ára hinn
26. nóvember nk.
Af því tilefni vill Bragi bjóða
vinum og vandamönnum að
fagna með sér þessum tíma-
mótum á sunnudag, 24. nóv.,
milli kl. 15 og 18 í FÍH-salnum
við Rauðagerði í Reykjavík.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og
vinarhug vegna fráfalls ástkærrar móður,
tengdamóður, ömmu, langömmu og
langalangömmu,
ÞÓREYJAR GÍSLADÓTTUR
Dalbraut 14, Reykjavík.
Jón Bjarni E. Stefánsson
Elís E. Stefánsson Sigríður Albertsdóttir
Jóna Gísley E. Stefánsdóttir Geirmundur Geirmundsson
og fjölskyldur.
VirðingReynsla & Þjónusta
Allan sólarhringinn
571 8222 · 82o 3939 svafar · 82o 3938 hermann
www.kvedja.is
Hjartans þakkir til allra þeirra fjölmörgu sem
sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við
andlát og útför elskulegs eiginmanns míns,
föður, bróður, mágs og frænda,
BENEDIKTS G. LEÓSSONAR
Mýrarvegi 111,
áður Lögbergsgötu 5, Akureyri.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk lyflæknisdeildar Sjúkrahúss
Akureyrar fyrir frábæra umönnun og einstaka hlýju.
Fyrir hönd stórfjölskyldunnar,
Ásta Alfreðsdóttir
Jóh. Pétur Benediktsson
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
ERLENDUR SIGGEIRSSON
Stangarholti 30,
lést á Landakoti mánudaginn 18. nóvember.
Útför hans mun fara fram föstudaginn 29.
nóvember kl. 13.00 í Hafnarfjarðarkirkju.
Kristrún Erlendsdóttir Sigurður S. Jóhannsson
Þröstur Erlendsson Hrönn Jónsdóttir
Ingibjörg Erlendsdóttir
Svala Erlendsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum einlægan hlýhug og stuðning við
andlát og útför ástkærrar móður okkar,
tengdamóður og ömmu,
ÁGÚSTU GUÐFINNU MARÍU
ÁGÚSTSDÓTTUR
sem lést að Droplaugarstöðum 12. október sl.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Droplaugarstaða fyrir
frábæra umönnun sem einkenndist af virðingu og kærleika.
Guð geymi ykkur öll.
Svava Jóhannesdóttir
Alda Lára Jóhannesdóttir Halldór Klemenzson
Jóhanna María, Þórunn Ágústa, Ella og Anna Lillý
Okkar ástkæra eiginkona, móðir,
tengdamóðir og amma,
LILJA MINNÝ ÞORLÁKSDÓTTIR
lést í faðmi fjölskyldunnar á sjúkrahúsinu á
Akureyri þriðjudaginn 19. nóvember. Útför
hennar verður gerð frá Ólafsfjarðarkirkju
föstudaginn 29. nóvember klukkan 14.00. Blóm og kransar
vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vilja minnast hennar er bent
á Slysavarnafélag kvenna á Ólafsfirði eða önnur líknarfélög.
Gunnólfur Árnason
Kristín Anna Gunnólfsdóttir Kristján H. Jóhannsson
Árni Gunnólfsson
Sigurbjörg Gunnólfsdóttir Sigurbjörn R. Antonsson
Heiðbjört Gunnólfsdóttir Lúðvík Ásgeirsson
Heiðar Gunnólfsson Júlía Gunnlaugsdóttir Poulsen
NORRÆNA HÚSIÐ 15:15 tónlaiekasyrpan fer fram í Norræna húsinu.
Britten er í raun-
inni frægasta og besta
tónskáld Breta á 20. öld
Eydís Franzdóttir
óbóleikari