Fréttablaðið - 23.11.2013, Síða 86
23. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 54
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
ÁSA BJÖRGVINSDÓTTIR
Aðallandi 1,
lést á Hjúkrunarheimilinu Sóltúni
15. nóvember. Útförin hefur farið fram í
kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sérstakar
þakkir fær starfsfólk Sóltúns fyrir hlýtt
viðmót og góða umönnun.
Björg Ásgeirsdóttir George White
Svava Oddný Ásgeirsdóttir Tryggvi Aðalbjarnarson
Ásdís Ásgeirsdóttir Valdimar Jónsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
INGIBJÖRG ÁSTVALDSDÓTTIR
Þúfubarði 11, Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum í Fossvogi
sunnudaginn 17. nóvember. Jarðsungið
verður frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn 25. nóvember
kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á S.Í.B.S.
Björg Hjörleifsdóttir Sumarliði Már Kjartansson
Sigurður Ben Guðmundsson Margrét Ósk S. Guðjónsdóttir
Guðmundur R. Guðmundsson Sigríður R. Sigurðardóttir
ömmubörn og langömmubörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma, langamma og systir,
ÓLÖF STEINA FRIÐRIKSDÓTTIR
Tvååker, Svíþjóð,
andaðist á sjúkrahúsinu í Varberg
hinn 19. nóvember.
Sigurður Tryggvason
Þorsteinn Sigurðarson
Ragnar Sigurðsson
Erna Sigurðardóttir
Hrefna Sigurðardóttir
Fríða Friðriksdóttir
Örn Friðriksson
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir minn, sonur, bróðir,
frændi, afi og vinur,
PÉTUR FRIÐRIK ARTHÚRSSON
(MÁNI HRAFN)
Langholtsvegi 128,
lést sunnudaginn 10. nóvember.
Útförin fer fram frá Fossvogskapellu
mánudaginn 25. nóvember kl. 15.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Anna Dís
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
VALGEIR JÓN EMILSSON
bókagerðarmaður,
Háaleitisbraut 41, Reykjavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut
aðfaranótt 21. nóvember.
Unnur Kristinsdóttir
Aðalheiður Valgeirsdóttir Erlendur Hjaltason
Sigríður Valgeirsdóttir Einar Olavi Mäntylä
Emil Hannes Valgeirsson Arna Björk Stefánsdóttir
barnabörn og barnabarnabarn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma, dóttir, systir og mágkona,
LINDA KONRÁÐSDÓTTIR
Seljabraut 82, Reykjavík,
sem lést á líknardeild Landspítalans í
Kópavogi miðvikudaginn 13. nóvember, verður jarðsungin frá
Háteigskirkju þriðjudaginn 26. nóvember kl. 13.00. Blóm og
kransar vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vildu minnast
hennar er bent á Krabbameinsfélag Íslands.
Magnús Valdimarsson
Sara Barðdal Þórisdóttir Hákon Víðir Haraldsson
Alexander Úlfur Hákonarson
Konráð Adolphsson Edda Gunnarsdóttir
Hilmar Konráðsson Sigrún Bjarnadóttir
Bergur Konráðsson Inga Lóa Bjarnadóttir
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og
útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður,
afa og langafa,
SVEINS BENEDIKTS
GUÐMUNDSSONAR
frá Þverdal í Aðalvík,
Boðaþingi 24.
Sérstaklega viljum við þakka félögum Karlakórs Reykjavíkur sem
og öllu tónlistarfólkinu sem heiðraði minningu hans.
Bergþóra Skarphéðinsdóttir
Sjöfn Sóley Sveinsdóttir Rögnvaldur R. Andrésson
Gerður Sveinsdóttir Ólafur Sigurðsson
Smári Sveinsson Guðmunda Óskarsdóttir
Kristín Linda Sveinsdóttir Skjöldur Vatnar Árnason
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
BJARGHILDUR STEFÁNSDÓTTIR
Hlíðarhúsum 3-5,
andaðist mánudaginn 18. nóvember
síðastliðinn á Landakotsspítala. Þeim sem vilja minnast hennar
er bent á Blindravinafélagið. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju
fimmtudaginn 28. nóvember næstkomandi kl. 13.00.
Gylfi Jónsson Þórunn Ásgeirsdóttir
Birgir Jónsson Dagrún Þórðardóttir
Kári Jónsson
ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur hlýhug og samúð við andlát og útför
eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa
og langafa,
KRISTGEIRS KRISTINSSONAR
frá Felli, Arnarstapa, Snæfellsnesi
Bólstaðarhlíð 41, Reykjavík.
Björg Jónsdóttir
Jón Kristgeirsson
Guðjón Kristinn Kristgeirsson Elín Þ. Egilsdóttir
Sigurgeir B. Kristgeirsson Andrea E. Atladóttir
Jónína Kristgeirsdóttir Sigurður J. Bergsson
barnabörn og barnabarnabörn.
MYNDLIST Í ár eru liðin 30 ár frá stofn-
un gallerísins Grjót og verður af því
tilefni opnuð sýning með verkum
flestra þeirra listamanna sem stóðu
að opnun þess. Alls voru sjö lista-
menn sem stofnuðu galleríið, sem
stóð á sínum tíma á Skólavörðustíg
4a, en auk þeirra komu margir fleiri
að rekstrinum.
Sýningin verður í Listhúsi Ófeigs
Björnssonar gullsmiðs, að Skólavörðu-
stíg 5. Hún verður opnuð klukkan fjög-
ur í dag og mun standa til áramóta.
Ófeigur var einn af stofnendum
gallerísins ásamt þeim Hjördísi
Gissurardóttur, Jónínu Guðnadóttur,
Magnúsi Tómassyni, Malínu Örlygs-
dóttur, Ragnheiði Jónsdóttur og Erni
Þorsteinssyni.
„Í allt urðum við fjórtán sem rákum
þetta,“ segir Ófeigur, en Grjót var
starfrækt í sex ár, frá 1983 til 1989.
Hann segir galleríið alla tíð hafa
fengið mjög jákvæð viðbrögð þeirra
sem það heimsóttu.
„Við vorum með margar mjög
áhugaverðar sýningar, bæði á okkar
verkum og annarra,“ segir Ófeigur.
Listamennirnir sem stóðu að sýning-
um komu úr ýmsum áttum og á nýju
sýningunni má sjá málaralist, vefn-
að, höggmyndir og skartgripi. Alls
eru þrettán manns sem munu sýna
verk sín um helgina en Ófeigur segir
mjög misjafnt hversu mörgum verk-
um hver listamaður teflir fram.
„Ég er til dæmis bara með eitt stórt
verk en annar með fimmtán, þannig
að það er allur gangur á því.“ - bá
30 ára afmælissýning
Stofnendur gallerís Grjót standa fyrir sýningu í Listhúsi Ófeigs Björnssonar.
Alúðarþakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð, hlýju og vinarhug við andlát
og útför elskulegs eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður og afa,
KRISTJÁNS BENJAMÍNSSONAR
Holtsgötu 12, Reykjavík.
Hulda Guðmundsdóttir
Kristín Berglind Kristjánsdóttir Páll Kristján Svansson
Broddi Kristjánsson Helga Þóra Þórarinsdóttir
og afastrákar.
Í dag eru liðin tuttugu ár frá því að rapparinn Snoop Dogg,
eða Snoop Doggy Dogg eins og hann kallaðist þá, gaf út sína
fyrstu plötu. Sú bar titilinn Doggystyle og sló heldur betur
rækilega í gegn. Snoop, sem hafði þegar vakið nokkra athygli
fyrir rímur sínar á plötunni The Chronic með Dr. Dre, varð
heimsfrægur í kjölfar frumburðarins. Textar hans þóttu með
eindæmum góðir og hinn einkennandi hljóðheimur plötunnar
blés ferskum vindum um rappheim Bandaríkjanna. Ekki voru
þó allir á eitt sáttir með hinn tuttugu og tveggja ára Snoop.
Margir gagnrýndu rapparann fyrir að tala niðrandi um konur
og ásökuðu hann um að hvetja til fíkniefnanotkunar í textum
sínum. Það aftraði þó ekki vinsældum Doggystyle, sem fór
beint á topp bandaríska vinsældalistans og sló sölumet sem
stóðu í mörg ár á eftir. Meðal þekktustu laga á plötunni má
nefna What‘s My Name, Gin and Juice og Ain‘t no Fun.
ÞETTA GERÐIST: 23. NÓVEMBER 1993
Doggystyle kemur út
DOGGYSTYLE
Frumburður
Snoop Dogg er
tvítugur í dag.
30 ÁRA AFMÆLI Ófeigur Björnsson heldur upp á 30 ára afmæli gallerísins Grjót.