Fréttablaðið - 23.11.2013, Side 92
23. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 60
BÆKUR ★★★★★
Tímakistan
Andri Snær Magnason
MÁL OG MENNING
Ný bók eftir Andra Snæ Magna-
son er alltaf stórtíðindi og aðdá-
endur hans hafa þurft
að bíða alltof lengi eftir
bók frá honum. Það er
þó huggun harmi gegn
að Tímakistan reynist
fyllilega biðarinnar
virði, bráðskemmti-
legt ævintýri sem
ólgar af hugmynda-
auðgi og hrífur les-
andann með sér inn í
óþekktan heim sem
er í senn heillandi
og ógnvekjandi.
R a m m i sög-
unnar er í náinni
framtíð þegar
fólk hefur gef-
ist upp á kreppu,
rigningu, febrú-
ar og mánudög-
um og keypt sér
svarta kassa
sem eru þeirri náttúru gædd-
ir að á meðan fólk er ofan í þeim
stendur tíminn í stað. Á meðan fólk
húkir í sínum kössum og bíður af
sér leiðindin hrörnar heimurinn
auðvitað og allt er komið í óefni
þegar nokkur börn sleppa úr prís-
undinni, hitta sögukonuna Svölu og
takast á hendur undir hennar leið-
sögn að koma heiminum á réttan
kjöl. Meginhluti sögunnar er hins
vegar ævintýri sem Svala segir
börnunum af löngu liðnum heimi
þar sem hofmóðugur konungur
tók sér fyrir hendur að sigrast á
tímanum og eignaðist fyrstu tíma-
kistuna sem er fyrirmynd svörtu
kassanna. Í kistunni geymdi hann
dóttur sína, hina fögru Hrafn-
tinnu, því hann getur ekki hugsað
sér að tíminn vinni á fegurð henn-
ar, eða að hún þurfi að upplifa leið-
inlega daga. Það reynist auðvitað
ekki góð hugmynd að
kippa stúlk-
unni út úr
tímanum,
ekkert frek-
ar en það er
góð hugmynd
hjá fólkinu
í sa mt í ma
sögunnar að
hanga í köss-
unum svörtu
og bíða eftir að
einhver annar
bjargi málunum.
Andri Snær er
óhemjuskemmti-
legur sögumað-
ur og ævintýrið
iðar af eftirminni-
legum myndum,
nýstárlegum og
gamalkunnum
þemum, sterkum
persónum og spennandi atburða-
rás. Helsti gallinn er sá hvað sam-
tíminn/framtíðin virðist dauf-
leg og óspennandi í samanburði
við ævintýraheim fortíðarinnar,
en það er hluti af boðskap sög-
unnar að það er einmitt undir
okkur komið að gera samtímann
skemmtilegan og heiminn byggi-
legri. Að við þurfum að finna
ævintýrið í lífinu og lifa í því í
stað þess að gleyma okkur í von-
leysi og fyrirhyggjuleysi.
Þrátt fyrir hin skýru skila-
boð um að aðgerða sé þörf ekki
seinna en núna er óralangt frá
því að nokkur predikunartónn
fyrirfinnist í Tímakistunni, til
þess er Andri Snær alltof góður
rithöfundur. Hér ræður lögmál
ævintýrisins lögum og lofum og
lesendur á öllum aldri geta auð-
veldlega gleymt stað og stund við
lesturinn.
Friðrika Benónýsdóttir
NIÐURSTAÐA: Leiftrandi skemmti-
legt ævintýri á tveimur tímaplönum
með skýrum skilaboðum sem þó
verða aldrei að predikun.
Ekki gera ekki neitt
„Við erum búin að æfa grimmt,“
segir Jóhanna V. Þórhallsdóttir
sem ásamt þeim Björk Jónsdóttur
og Signýju Sæmundsdóttur skipa
sönghópinn 3Klassískar. Þær
ætla að skemmta tónleikagestum
í Iðnó síðdegis í dag ásamt 3Prúð-
búnum, þeim Bjarna Jónatanssyni
píanóleikara, Gunnari Hrafns-
syni bassaleikara og Einari Vali
Scheving trommuleikara. Megas
verður samt sá prúðbúnasti að
sögn Jóhönnu, sérlegur gestur
kvöldsins og skrautfjöður. „Það
er gaman að vera með Megasi
að syngja lögin hans. Við höfum
verið að safna að okkur útsetn-
ingum á þeim fyrir þrjár raddir.
Bjarni Jónatansson hefur útsett
fyrir okkur og líka Aðalheiður
Þorsteinsdóttir. Svo syngjum
við líka hvert í sínu lagi,“ lýsir
Jóhanna. Hún lofar líka lögum
eftir snillinginn Gunnar Þórðar-
son, lögum sem allir þekkja eins
og Þitt fyrsta bros, Reykjavíkur-
tjörn og Ég elska alla.
Þetta eru tónleikar án hlés
Jóhann segir 3Klassískar hafa
flutt hluta af þessu prógrammi
á Kaffi Flóru og í bragganum á
Hólmavík. En nú hafi verið bætt
inn í og breytt. - gun
Syngja Megasarlög
með honum sjálfum
Lög eft ir Megas og Gunna Þórðar verða fl utt í Iðnó
í dag af sönghópnum 3Klassískar við undirleik
3Prúðbúinna. Megas tekur svo lagið líka.
3KLASSÍSKAR OG HEIÐURSGESTURINN Signý, Megas, Björk og Jóhanna.
Í STUÐI Andri Snær er í feikna formi í
Tímakistunni og hrífur lesandann með
sér inn í ævintýraheim. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
MENNING
Gjafabréf Heimsferða er tilvalin gjöf fyrir alla þá
sem langar að ferðast!
Gjafabréf
á góða ferð!
Gefðu hlýju og upplifun um jólin
Skógarhlíð 1 8 • Sími 595 1000
www.heimsferdir.is
Athugið að einungis er hægt að nota eitt gjafabréf á
mann í bókun og að gjafabréfið gildir einungis
á nýjar bókanir.
Kauptu fyrir 5.000 kr. en fáðu 7.000 kr. gjafabréf.
Kauptu fyrir 10.000 kr. en fáðu 15.000 kr. gjafabréf.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
6
0
2
79
ÁLANDSEYJADAGSKRÁ
Í NORRÆNA HÚSINU
Félagarnir Matti Kallio og Egilll
Ólafsson koma saman til að
flytja lög úr eigin smiðju og
finnsk og íslensk þjóðlög.
Tónlistin fangar stemningu
vetrarkyrrðar þegar náttúran
sefur og mennirnir skrafa lágt
í myrkrinu um mikilvægi
vináttunnar og ljóssins.
HAF, JÖRÐ OG HIMINN
MIÐVIKUDAGUR 27. NÓVEMBER
Kl. 12:00-13:30
„The Aland Islands, a Demilitarized Zone in a New Era
of Security Policy“
Fyrirlestur Camillu Gunell, landstjóra Álandseyja.
Alyson JK Bailes, aðjúnkt við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands,
tekur einnig til máls.
Irma Ertman, sendiherra Finnlands á Íslandi, kynnir og flytur
aðfararorð.
Í samstarfi við Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands.
Kl. 20:00
Opnun sýningar Mari Anniina Mathlin: „Innsetning, ljósverk og
ferðabækur“, í anddyri Norræna hússins en þar má sjá afrakstur
dvalar hennar á listamannasetrinu á Skagaströnd. Irma Ertman
sendiherra Finnlands á Íslandi opnar sýninguna. Léttar veitingar
og bragðprufur frá Álandseyjum verða í boði.
Kl. 20:30
„Haf, jörð og himinn“ – valin ljóð frá Álandseyjum í þýðingu Þórs
Stefánssonar í flutningi Sögu Sigurðardóttur og Sveins Gunnarssonar.
Tónlist frá Finnlandi, Álandseyjum og öðrum Norðurlöndum leikin af
Agli Ólafssyni og Matti Kallio.
Sýningin „The Aland Islands Solution: a precedent for successful
international disputes settlement“ í fyrirlestrarsal Norræna hússins
25. – 29.nóvember.