Fréttablaðið - 23.11.2013, Side 94
23. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 62
TÓNLIST ★★★★★
Sinfóníuhljómsveit
Íslands í Hörpu
Einleikari: Li Chuan-Yun
Stjórnandi: Lan Shui
FIMMTUDAGINN 21. NÓVEMBER
Eitt vinsælasta sjónvarpsefnið
þegar ég var lítill var þáttaröðin
um Onedin skipafélagið. Þættirn-
ir byrjuðu alltaf á fögrum kafla
úr balletinum Spartakusi eftir
armenska tónskáldið Aram Katsj-
atúrían. Tónlist hans er ekki oft
leikin hér á landi í seinni tíð. Því
virtist það vera kærkomin tilbreyt-
ing að fiðlukonsertinn hans skyldi
vera fluttur á tónleikum Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands á fimmtudags-
kvöldið.
Einleikari var hinn kínverski Li
Chuan-Yun. Í tónleikaskránni mátti
lesa hina venjulegu lofræðu um
einleikarann, að hann hafi unnið
til verðlauna hér og þar, lært hjá
hinum og þessum, o.s.frv. Ég veit
ekki afhverju það skiptir svona
miklu máli að fá upplýsingar um
það hjá hverjum einleikarinn sótti
tíma. Væntanlega til að selja fleiri
miða. Kennarinn er samt enginn
gæðastimpill. Aðalatriðið er auð-
vitað hvort nemandinn hafi eitt-
hvað að segja með list sinni NÚNA.
Ekki varð ég var við það á tón-
leikunum. Tónlist Katsjatúríans
er þó í sjálfu sér ekkert leiðinleg.
Hún skartar „austrænum“ laglín-
um sem eru munúðarfullar og safa-
ríkar. Tónmálið í heildina er frem-
ur klassískt. Allt er býsna augljóst.
Fátt sem er fyrst og fremst gefið í
skyn og áheyrandanum látið eftir
að fylla í eyðurnar.
Túlkun einleikarans verður því
að vera hófstillt. Hún má ekki vera
þannig að skáldskapnum sé troðið
ofan í tónleikagesti. Það er best að
leyfa tónlistinni bara að njóta sín,
láta hana flæða áreynslulaust. Þá
leið fór fiðlusnillingurinn David
Oistrakh, sem frumflutti konsert-
inn á sínum tíma. Það er himinn
og haf á milli hans og þess sem gat
að heyra á tónleikunum á fimmtu-
dagskvöldið.
Chuan-Yun spilaði eins og hann
þyldi ekki tónlistina. Líkt og hann
væri að gera grín að henni. Jú,
vissulega var tæknin afburðagóð,
allt skýrt og feilnótulaust, flott-
heitin á hverju strái. En laglín-
urnar voru mótaðar af furðulegu
smekkleysi. Chuan-Yun renndi sér
of mikið á milli tónanna. Hann var
greinilega að reyna að búa til eitt-
hvað ógurlega framandi úr þeim.
Eins og þess þyrfti! Þetta virkaði
ekki. Þvert á móti varð tónlistin að
óskapnaði sem manni varð ómótt
af.
Sem betur fer var annað á tón-
leikunum mun skemmtilegra. Frón
eftir Áskel Másson kom prýðilega
út. Þetta er tíu ára gamalt verk
sem hér hljómaði í nýrri útgáfu.
Dulúðin ræður oft ríkjum í tóna-
heimi Áskels og Frón var engin
undantekning. Þar mátti heyra
nokkur gömul íslensk stef sem
voru skreytt með heillandi lit-
brigðum. Útkoman var ákaflega
falleg. Hún var full af einhverju
sem ekki er hægt að koma orðum
að.
Tónsmíðarnar eftir hlé voru líka
magnaðar. The Rhyme of Taigu
eftir Zhou Long var einstaklega
kröftug hugleiðing um trommu-
leikinn í japanskri Sjintó trú. Þar
voru slagverksleikararnir Steef
van Oosterhout, Pétur Grétarsson,
Frank Aarnink og Eggert Pálsson
í stóru hlutverki og fóru beinlínis
á kostum.
Svíta úr ballettinum Harmleik
Salóme eftir Florent Schmitt var
jafnframt glæsileg. Stjórnandinn
Lan Shui stýrði hljómsveitinni af
festu en einnig miklu ímyndun-
arafli. Tónlistin varð ljóslifandi,
spennandi og eftir því grípandi.
Það var áhrifarík upplifun.
Jónas Sen
NIÐURSTAÐA: Leiðinlegur einleikari
en frábær hljómsveitarstjóri.
Smekklaus fiðluleikur
„Við erum að styrkja geðgjör-
gæslusvið Landspítalans og ég
lofa að þetta verða yndislegir tón-
leikar. Bara eins og ferð til himna-
ríkis,“ segir Sigríður Ingvarsdótt-
ir, formaður Caritasar Ísland – sem
heldur árlega tónleika á morgun,
sunnudag. Umgjörðin er hátíðleg,
sjálf kaþólska kirkjan á Landakots-
túni og á efnisskrá verða meðal ann-
ars verk eftir Bach, Elgar, Handel,
Mozart, Atla Heimi Sveinsson, Sig-
valda Kaldalóns og Þorkel Sigur-
björnsson.
Einsöngvarar á tónleikunum eru
þau Kristján Jóhannsson og Elsa
Waage sem bæði hafa fagrar raddir
og yndislega framkomu og syngja
sitt í hvoru lagi og saman að sögn
Sigríðar. Ekki spillir Hamrahlíðar-
kórinn stemningunni, hann kemur
fram undir stjórn Þorgerðar Ing-
ólfsdóttur. Svava Bernharðsdótt-
ir víóluleikari og Antonia Hevesi,
sem leikur á orgel, leggja líka sitt
af mörkum að ógleymdri Guð-
nýju Guðmundsdóttur sem hefur
um árabil verið einn fremsti fiðlu-
leikari þjóðarinnar og kemur fram
með sveit af afburðanemendum.
„Þetta unga fólk á örugglega eftir
að vinna í alþjóðlegum keppnum og
gegna mikilvægum stöðum, bæði
hér heima og erlendis í framtíðinni,“
spáir Sigríður sem tekur fram að
allir listamennirnir gefi vinnu sína
til aðstoðar þeim veikustu á geð-
deild Landspítalans.
Sigríður segir margt fólk mæta
reglulega á Caritasar tónleika, bæði
til að njóta fagurra lista og leggja
góðu málefni lið. „Fyrir marga
marka tónleikarnir upphafið að
aðventunni,“ segir hún. Hátíðleik-
inn verður í fyrirrúmi þar sem flutt
verður tónlist allt frá endurreisnar-
tímanum til dagsins í dag.
gun@frettabladid.is
Yndislegir eins og
ferð til himnaríkis
Kristján Jóhannsson, Elsa Waage og úrvals hljóðfæraleikarar fl ytja skærar perlur
tónbókmenntanna í Kristskirkju á morgun á styrktartónleikum Caritasar.
Rúnar Kristinn Rúnarsson flytur söngleikjatónlist
á tónleikum í Kaldalóni í Hörpu á morgun klukkan
16. Tónleikarnir eru aðrir í tónleikaröðinni „Eflum
ungar raddir“ sem eru einu sinni í mánuði.
Rúnar Kristinn er við nám í söngleikjadeild í
hinum virta listaskóla Guildford School of Acting
í Bretlandi og einn af fáum Íslendingum sem nú
eru að sérhæfa sig í söngleikjatónlist. Hann mun á
tónleikunum flytja ýmsa þekkta smelli úr söng-
leikjum.
Rúnar er frá Vestmannaeyjum og nam þar klass-
ískan söng við Tónlistarskólann. Hann hefur
einnig notið leiðsagnar Kristjönu Stefánsdóttur
söngkonu þar til hann fór utan í inntökupróf við
Guildford, þar sem hann er nú á öðru ári.
Eflum ungar raddir í Hörpunni:
Söngleikjatónlist í Kaldalóni
EINLEIKARINN Li Chuan-Yun.
FORMAÐUR CARITAS-SAMTAKANNA „Ég hvet sem flesta til að koma inn í þennan töfraheim,“ segir Sigríður Ingvarsdóttir um
tónleikana á morgun. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
www.tjarnarbio.isMiðasalan er opin frá kl. 15:00-18:00 þri-fösmidasala@tjarnarbio.is / 527-2100 / midi.is