Fréttablaðið - 23.11.2013, Blaðsíða 110
23. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 78
ÍSLAND HEIÐURSGESTUR
Ísland er heiðursgestur á menn-
ingarhátíðinni Festival les Boréales í
Caen. Þar verður meðal annars haldin
sólarhrings krimmahátíð, með við-
tölum við krimmahöfunda, áritunum
og sýningum bíómynda.
Óttar M. Norðfjörð, sem
gaf nýverið út bókina
Blóð hraustra manna,
verður þarna ásamt
Yrsu Sigurðardóttur
og Viktori Arnari
Ingólfssyni. Sænski
glæpasagnahöf-
undurinn Henning
Mankell verður
þarna líka en þau
munu öll árita
saman í bókabúð.
HEIMSKLASSAÁST
Ástin blómstrar hjá knattspyrnu-
manninum Rúrik Gíslasyni og lög-
fræðinemanum Birgittu Líf Björns-
dóttur. Rúrik er mjög knár á vellinum
og hefur gert það gott með F.C.
Copenhagen í Danmörku og íslenska
landsliðinu. Birgitta Líf er dóttir
Björns Leifssonar og
Hafdísar Jónsdóttur,
sem oftast eru
kennd við líkams-
ræktarstöðina World
Class, og hefur meðal
annars kennt dans í
World Class og verið
flugfreyja hjá
Icelandair.
1 matsk. safieða 1 hylki.
F æ s t í a p ó t e k u m , h e i l s u b ú ð u m , F j a r ð a r k a u p o g K r ó n u n n i .
Jafnvægi og vellíðan
lifestream™
nature’s richest superfoods
Möngu-
sagan öll
Sagan um Möngu með svartan vanga,
Ásdísi skáldkonu frá Rugludal, systurnar
í Baslhaga og aðrar hvunndagshetjur fyrri
alda eftir Ómar Ragnarsson.
Aukin og endur-bætt
„Þetta er fimmtíu ára sýningar-
afmæli hinnar frægu þáttaseríu
Dr. Who,“ segir Gunnella Þor-
geirsdóttir þjóðfræðingur, einn
af mörgum aðdáendum þáttanna
á Íslandi, en Bíó Paradís held-
ur sýningarafmælið hátíðlegt í
kvöld klukkan 22.30. Sýningin er
jafnframt fyrsta þrívíddarsýn-
ing kvikmyndahússins. Milljónir
aðdáenda Doctor Who munu njóta
50 ára afmælisþáttar Doctor Who
víða um heiminn meðal annars í
Þýskalandi, Noregi, Rússlandi,
Ástralíu, Kazakhstan, Bandaríkj-
unum, Kanada, Svíþjóð, á Spáni,
Bretlandi og Írlandi, en þátturinn
er sýndur sama kvöld á yfir 1.000
stöðum í heiminum. Uppselt var
á sýninguna á Íslandi á einungis
tveimur tímum.
„Við köllum okkur Whovians
og er um afar fjölmennan hóp að
ræða. Meðal frægra Whovians
eru Bob Dylan og Douglas
Adams,“ segir Gunnella jafn-
framt.
„Þáttaröðin hefur lifað síðan
1963 og í rauninni merkilegt hvað
hún hefur ílengst. Hún hefur þó
tekið einhverjar pásur en var end-
urglædd 2006 og flestir af nýja
skólanum eru að aðhyllast nýju
seríurnar frekar en gömlu. Ég hef
heyrt að stór hluti af æskuminn-
ingum Breta sé að fela sig bak-
við sófann þegar þættirnir voru
í gangi,“ segir hún.
Þættirnir hafa notið stöðugt
vaxandi fylgis síðan 2006.
„Áhangendum sem kalla sig
Whovians hefur farið fjölgandi
um allan heim og þeir eru á öllum
aldri, þar að auki á Íslandi – sem
er sérstakt að því leytinu til að
þættirnar hafa aldrei verið sýndir
hér á landi – fólk hefur séð þetta
í útlöndum eða á netinu og fund-
ið samkennd með doktornum,“
útskýrir Gunnella.
„Planið er að sanka saman
Whovians á Íslandi, fá sem flesta
í búningum, og horfa á þáttinn
saman,“ útskýrir Gunnella. „Það
er búið að sýna glefsur úr þætt-
inum nú þegar en það hvílir mikil
leynd yfir efni hans og hvernig
það kemur til að fleiri en einn
verði á sama stað á sömu stundu.
Doktorinn er þeirri gáfu gæddur
að hann endurholdgast reglulega
– og nýr leikari fenginn til þess
að leika doktorinn. Í nýjasta þætt-
inum verða allavega þrír doktorar
sem birtast,“ útskýrir hún.
Sökum eftirspurnar verða
aukasýningar á þættinum dag-
lega fram til mánaðamóta. Einn-
ig hefur sérstakt kassmerki verið
búið til fyrir sýninguna sem er
#SaveTheDay.
olof@frettabladid.is
Whovians keyptu upp
miða á tveimur tímum
Fimmtíu ára sýningarafmæli Dr. Who er í Bíó Paradís í kvöld. Aðdáendur eru
hvattir til að mæta í búningum á fyrstu þrívíddarsýningu kvikmyndahússins.
MIKIL LEYND YFIR ÞÆTTINUM Gunnella Þorgeirsdóttir þjóðfræðingur er mikill
aðdáandi Dr. Who-þáttanna og hyggst mæta í búningi í Bíó Paradís í kvöld. Hún
segir mikla leynd hvíla yfir efni þáttarins. AÐSEND MYND/ELENA ÞORBJÖRG BJARNADÓTTIR
„Hún segir
kannski að hún
laðist ekki að
mér en hún
hringir á hverri
nóttu, dauða-
drukkin klukkan
þrjú.“
GRÍNAST STÓRLEIK-
ARINN GEORGE
CLOONEY UM
VINSKAP SINN OG
LEIKKONUNNAR
SÖNDRU BULLOCK.
LOGI Í FYRSTA ÞÆTTI
FRIÐRIKS
Nú styttist í að nýr þáttur Friðriks
Dórs fari í loftið. Fyrstu tveir þætt-
irnir voru teknir upp síðastliðið
fimmtudagskvöld á skemmtistaðnum
Rúbín í Öskjuhlíð. Þar sem Friðrik er
að stíga sín fyrstu skref í sjónvarpi
þótti honum við hæfi að
fá Loga Bergmann sem
einn af sínum fyrstu
gestum. Logi ætti að
geta ausið úr visku-
brunni sínum til hins
unga Friðriks enda
fagnaði hann því
sjálfur í gær að
hafa stýrt 100
þáttum af Loga
í beinni.
„Ég ætla að vinda ofan af goðsögninni
Kjarval,“ segir Ólafur Gíslason list-
fræðingur, en hann og Klara Steph-
ensen hjá Arion banka ræða við gesti
um verk Kjarvals í tengslum við sýn-
inguna Mynd af heild II: Kjarval bank-
anna í dag kl. 15 á Kjarvalsstöðum.
„Ég ætla að bregða nýju ljósi á Kjar-
val. Ég tel það til að mynda vera mis-
skilning að Kjarval hafi verið boðberi
þjóðlegra gilda,“ útskýrir Ólafur og
segir Kjarval hafa verið fullkomlega
í tengslum við nútímalega strauma
í myndlist í hans samtíma sem allir
voru gegn þjóðlegum gildum. „Eftir
marxisma hugsaði enginn um þjóð-
leg gildi sem einhver gildi í myndlist.
Þessu er búið að klína upp á Kjarval
og eyðileggja þannig fyrir hans verki.
Það hefur hreinlega valdið misskiln-
ingi um framlag hans til íslenskr-
ar myndlistar og menningar,“ bætir
Ólafur við.
Á sýningunni gefst í fyrsta sinn
tækifæri til að sjá öll verk Kjarvals í
eigu íslensku bankanna á einum stað.
Ásamt Ólafi kemur Klara Steph-
ensen til með að svara spurning-
um gesta. „Ég verð þarna að tala
um verkin, ef fólk hefur spurning-
ar í sambandi við safneignina eða
um bankana,“ segir Klara. „Þetta er
heljarinnar safn. Arion banki á til að
mynda 17 verk eftir Kjarval sem eru
á sýningunni,“ segir Klara jafnframt.
- ósk
Vinda ofan af goðsögninni Kjarval
Ólafur Gíslason listfræðingur segir búið að klína upp á Kjarval þjóðlegum gildum.
Á MISSKILNINGI BYGGT
Ólafur segir framlag Kjarvals
til íslenskrar myndlistar og
menningar misskilið. MYND/ÚR