Fréttablaðið - 28.11.2013, Page 2
28. nóvember 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 2
Gauti, skilar netið flestum
aðdáendum?
„Já, út með netið, þeir fiska sem
róa.“
Rapparinn Gauti Þeyr Másson, betur þekktur
sem Emmsjé Gauti, þakkar internetinu
velgengni sína en lög hans hafa notið mikilla
vinsælda á Youtube.
REYKJAVÍK Fylgi Samfylkingar-
innar í Reykjavík eykst um sex
prósentustig og er 21 prósent
samkvæmt Þjóðarpúlsi Gallup.
Töluverðar breytingar hafa
orðið á fylgi í Reykjavík frá
síðustu könnun. Fylgi Bjartrar
framtíðar mælist 34 prósent sem
er þremur prósentustigum minna
en fylgi Besta flokksins var í
kosningunum árið 2010.
Sjálfstæðisflokkurinn er með
29 prósent fylgi sem er lækkun
um tvö prósentustig. Vinstri
grænir eru með 9 prósenta fylgi
og Framsóknarflokkurinn mælist
með rúm 3 prósent. Rúmlega
fjögur prósent svarenda myndu
kjósa aðra flokka. - skó
Björt framtíð fær mest fylgi:
Heldur fylgi
Besta flokksins
ÍTALÍA Ítalska þingið rak í gær Sil-
vio Berlusconi, fyrrverandi for-
sætisráðherra landsins, af þingi
og svipti hann þar með þinghelgi.
Það þýðir að hann þarf að afplána
dóm vegna skattsvika og kyn-
ferðislegs samneytis við ólögráða
stúlkur.
Hann sagði daginn vera sorg-
legan fyrir lýðræði en flokkur
hans yrði áfram hluti af stjórn-
málum á Ítalíu. Fyrir nokkrum
vikum óhlýðnuðust þingmenn og
ráðherra flokksins skipunum frá
honum um að láta af stuðningi við
samsteypustjórn landsins. Þá var
ljóst að áhrif hans á stjórnmál í
Ítalíu væru orðin lítil.
- skó
Berlusconi rekinn af þingi:
Sorgardagur,
segir Berlusconi
ATVINNA Atvinnuleysi í október
var fimm prósent samkvæmt
Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu
Íslands. Að jafnaði voru 183.000
manns á vinnumarkaði og þar
af 177.000 starfandi og 9.300 án
atvinnu. Samanborið við október
á síðasta ári hefur atvinnuleysi
aukist um 0,6 prósentustig.
Atvinnuþátttaka hefur aukist á
milli ára um 2,6 prósentustig og
er nú 81,5 prósent. Hlutfall starf-
andi jókst um 2,1 prósentustig á
milli ára og var 77,5 prósent. - skó
Atvinnuleysi eykst milli ára:
Fimm prósent í
októbermánuði
SPURNING DAGSINS
NÁTTÚRA Þess verður freistað að
hrekja síldartorfuna út úr Kol-
grafafirði með djúpsprengjum.
Sprengjusveit Landhelgisgæsl-
unnar mun annast aðgerðina, en
aðferðin er þekkt frá síldveiðum
fyrri tíma.
Almannavarnadeild ríkislög-
reglustjóra tók í gær yfir sam-
hæfingu aðgerða vegna síldar-
innar í Kolgrafafirði. Eftir fund
ráðuneyta og lykilstofnana í sam-
hæfingarstöð almannavarna var
ákveðið að ráðast í fælingarað-
gerðir með djúpsprengjum í firð-
inum. Aðgerðirnar voru jafnframt
kynntar á fundi með heimamönn-
um í Kolgrafafirði síðdegis í gær.
Nokkrar vonir eru bundnar við
að aðgerðin geti gert gæfumuninn,
en smölun á síld með djúpsprengj-
um var notuð með góðum árangri
við síldveiðar fyrr á árum þó þessi
aðferð sé víðast hvar bönnuð í dag.
Hafa ber þó hugfast að aðgerð sem
þessi, að reka tugi þúsunda tonna
af síld út úr firði, hefur aldrei
verið reynd áður.
Bjarni Sigurbjörnsson, bóndi
á Eiði í Kolgrafafirði, segir það
hafa komið flatt upp á heimilis-
fólk þegar fjöldi manns frá Land-
helgisgæslu og lögreglu renndi í
hlað í gær. Hugmyndin um smöl-
un síldarinnar með sprengingum
hafi ekki verið nefnd fyrr.
„Við vorum fullvissuð um að
við yrðum lítið vör við aðgerð-
ina, en ég hafði áhyggjur af því
að þeir rækju síldina hérna upp í
vatnið við bæinn eða upp í fjöru.
Þeir munu koma fyrir sprengju
til að koma í veg fyrir það,“ segir
Bjarni. Hann segist vongóður um
árangur en óttast mjög að það
verði skammgóður vermir; síldin
muni koma strax aftur inn í fjörð-
inn enda virðist hún hafa fundið
kjöraðstæður til vetrardvalar í
firðinum.
„Ég er enn þeirrar skoðunar að
það verði að loka firðinum, og það
sé það eina sem virkar til lengd-
ar. En þetta er vel tilraunarinnar
virði,“ segir Bjarni.
Fylgst verður grannt með
árangri aðgerðanna, magni síldar
og súrefnisstöðu fjarðarins í því
skyni að geta gripið til aðgerða á
ný með skömmum fyrirvara þegar
og ef þurfa þykir. Hafrannsókna-
stofnun verður við mælingar; bæði
á magni síldar og hvort spreng-
ingarnar beri tilætlaðan árang-
ur. Ekki hefur verð hætt við fyrri
áætlun um að reyna að reka síld-
ina burt með hljóðum frá háhyrn-
ingum, heldur bíður hún sem hluti
af vopnabúrinu í Kolgrafafirði ef
þörf krefur. svavar@frettabladid.is
Síldartorfan sprengd
út úr Kolgrafafirði
Gömul aðferð við síldarsmölun með sprengiefni verður reynd í Kolgrafafirði.
Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar annast aðgerðina. Bjarni Sigurbjörns-
son, bóndi á Eiði, telur ennþá einu lausnina til lengdar að loka firðinum.
SPRENGJUSVEIT VIÐ STÖRF Sérfræðingar Landhelgisgæslunnar munu annast
sprengjulögnina í Kolgrafafirði og nýta báta af varðskipinu Þór við þá vinnu.
MYND/LANDHELGISGÆSLAN
Varðskipið Þór lagði af stað áleiðis til Kolgrafafjarðar í gær vegna aðgerð-
anna og munu bátar á vegum Landhelgisgæslunnar koma smásprengj-
unum fyrir í firðinum á morgun.
Vegna aðgerðanna verður Kolgrafafjörður lokaður á morgun fyrir
bátaumferð og veiði og vegurinn innan fjarðar verður sömuleiðis lokaður
almennri umferð. Eftir sem áður verður opið fyrir umferð um brúna sjálfa,
en ekki verður heimilt að stöðva ökutæki á brúnni.
Varðskipið Þór stjórnstöð í Kolgrafafirði
HEILBRIGÐISMÁL Forstjóri Land-
spítalans segir að ekki muni ganga
að innheimta legugjöld miðað við
þær áætlanir sem koma fram í
fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2014,
þar sem flestir sjúklingar spítal-
ans falla utan gjaldtökunnar. Þá
hafi vanskil einstaklinga vegna
þjónustugjalda spítalans aukist.
Óinnheimtar viðskiptakröfur
Landspítalans vegna einstaklinga
hafa hækkað umtalsvert síðastlið-
in ár. Í svari heilbrigðisráðherra
við fyrirspurn Árna Þórs Sig-
urðssonar um innheimtu gjalda
fyrir þjónustu heilbrigðisstofn-
ana, kemur fram að óinnheimtar
viðskiptakröfur Landspítalans á
einstaklinga fyrir árið 2011 voru
samtals 47,2 milljónir króna, en í
júní 2013 voru þær 102 milljónir
króna.
Heilbrigðisráðherra hefur
gefið það út að aldraðir, öryrkj-
ar og börn muni ekki greiða fullt
legugjald. Páll Matthíasson, for-
stjóri Landspítalans, segir að ef
miðað sé við að legugjöldin verði
tólf hundruð krónur fyrir hverja
nótt gangi dæmið ekki upp, þar
sem aldraðir eru um helmingur
sjúklinga spítalans og hátt hlut-
fall eru öryrkjar og börn. „Þá eru
fáir eftir sem geta greitt gjöldin,“
bendir Páll á. - eb
Vanskil vegna þjónustugjalda aukast og flestir sjúklingar falla utan gjaldtöku:
Legugjöldin ganga ekki upp
LEGUGJÖLD Aðeins lítill hluti sjúklinga
sem leggjast þurfa inn á Landspítalann
mun greiða fullt legugjald, segir Páll
Matthíasson, forstjóri spítalans.
SLYSSTAÐUR SKOÐAÐUR Starfsmaður skoðar sig um eftir að slys varð á Itaquerao-
leikvanginum í Sao Paulo. MYND/EPA
BRASILÍA Tveir menn létust þegar byggingarkrani féll á þak Itaquerao-
leikvangsins í Brasilíu í gær.
Verið er að byggja leikvanginn fyrir heimsmeistarakeppnina í fót-
bolta sem haldin verður í Brasilíu í sumar og verður upphafsleikur
keppninnar spilaður á vellinum.
Þetta er þriðja banaslysið sem verður við uppbyggingu leikvanga
fyrir HM. - skó
Banaslys við byggingu fótboltaleikvangs fyrir HM í Brasilíu:
Byggingarkrani féll á leikvang
ALÞINGI Þingflokkur Bjartrar
framtíðar hefur lagt fram frum-
varp þess efnis að mannanafna-
nefnd verði lögð niður og að heim-
ilt verði að taka upp ættarnöfn.
Í greinargerð frumvarps-
ins segir að nöfn varði fyrst og
fremst einkahagi fólks og per-
sónurétt þess, en síður hagsmuni
alls almennings. Þá hafi núgild-
andi lög um mannanöfn sætt
gagnrýni, sér í lagi úrskurðir
mannanafnanefndar.
Ekki er langt síðan borgarstjóri
Reykjavíkinga, Jón Gnarr, kvart-
aði undan mannanafnanefnd á
fésbókarsíðu sinni.
Þar útskýrði hann að sam-
kvæmt opinberri skráningu væri
nafn hans Jón Gunnar Kristins-
son, því hann mætti ekki taka upp
ættarnafnið Gnarr. Hann benti
jafnframt á að mannanafnanefnd
hefði á tíunda áratugnum neyðst
til að breyta reglum um nöfn inn-
flytjenda, þar sem þær reyndust
vera mannréttindabrot.
- eb
Þingflokkur Bjartrar framtíðar leggur til breytingar á lögum um mannanöfn:
Mannanafnanefnd verði aflögð
MANNANÖFN Jón Gnarr og Óttarr
Proppé leggjast gegn tilvist manna-
nafnanefndar. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
milljónir króna
voru óinn-
heimtar viðskiptakröfur
Landspítalans á einstaklinga
í júní 2013.
102