Fréttablaðið - 28.11.2013, Blaðsíða 29

Fréttablaðið - 28.11.2013, Blaðsíða 29
FIMMTUDAGUR 28. nóvember 2013 | SKOÐUN | 29 Íslendingar eru neyslufrekasta þjóð heims. Það þýðir að engin önnur þjóð notar meira af auðlindum jarð- ar til að viðhalda lífsstíl sínum. Ef allir jarðarbúar myndu haga lífi sínu á sama hátt og meðal Íslend- ingurinn, þyrftum við sex jarðir til að anna eftirspurninni. En við eigum ekki sex jarðir – við eigum aðeins eina. Sú staðreynd er eina óbreytanlega stærðin í reiknings- dæmi tilvistar okkar. Við Íslendingar tilheyrum ásamt öðrum íbúum Vesturlanda þeim tuttugu prósentum jarðarbúa sem nýta tæplega 90 prósent gæða jarð- ar. Á sama tíma njóta önnur 20 pró- sent jarðarbúa, þau sem fátækust eru, einungis tæplega tveggja pró- senta þeirra gæða sem jörðin hefur upp á að bjóða. Á meðan við Íslend- ingar eyðum auðlindum jarðar á sexföldum endurnýjunarhraða nátt- úrunnar göngum við ekki aðeins á mannréttindi annarra jarðarbúa heldur gröfum við undan framtíð okkar eigin barna. Loftslagsbreyt- ingar eru bein afleiðing ofneyslu mannsins á auðlindum jarðar og það getur enginn stöðvað þann víta- hring nema við. Vísindaleg samstaða ríkir um þá spá að án alvarlegrar íhlutunar muni sífellt stærri hluti mannkyns þurfa að takast á við ofsafengnar náttúruhamfarir og skort – ekki síst skort á drykkjarvatni því miðað við framreiknaða bráðnun jökla mun ferskvatnsuppspretta 40% mann- kyns hverfa á næstu áratugum. Hvað getum við gert? Við getum öll innt af hendi verulegt framlag með því að endurskoða lífsstíls- val okkar og neysluvenjur, sem og afstöðu okkar til athafna sem skaða eða breyta náttúrunni varan- lega. Hlýnun jarðar verður þó ekki stöðvuð nema með sterku samstilltu átaki þjóða. Blekking Einhverjir hafa bent á þá þversögn að til að stemma stigu við lofts- lagsbreytingum þurfi stjórnmála- menn að taka óvinsælar ákvarðan- ir sem skerði lífsgæði okkar og þar af leiðandi muni þeir stjórnmála- menn aldrei verða kjörnir. Þessi þversögn er blekking því hún skilgreinir lífsgæði út frá neyslu. Það vita það allir sem eru eldri en tvævetur að lífshamingj- an finnst ekki í neysluvörum. Póli- tískar ákvarðanir sem leggja höft á ofneyslu og útblástur gróður- húsalofttegunda eru ákvarðan- ir sem stuðla að hreinna and- rúmslofti, tryggara aðgengi að drykkjarvatni, stöðugri veðurskil- yrðum, færri náttúruhamförum og almennt betri lífsskilyrðum allra jarðarbúa. Þeir sem ekki kjósa að horfa heildrænt á hlutina halda að þetta þýði afturhvarf til fortíðar, stöðnun lífshátta og andúð á tækni- framförum. Nema síður sé. Tækni- framförum ber að fagna. Þær hafa skilað okkur aukinni hagkvæmni í nýtingu auðlinda auk annarra aug- ljósra kosta sem óþarfi er að til- taka hér. Það sem vill hins vegar oft fylgja tækniframförum sem skila aukinni hagkvæmni í nýt- ingu auðlinda eru hin svoköll- uðu frákastsáhrif. Þau fela í sér að umhverfislegi ávinningurinn sem fæst við aukna hagkvæmni er notaður í aðra neyslu og eyðir því jafnfljótt ávinningnum. Þann- ig má ljóst vera að það sem til þarf er langt frá því að vera and- staða gegn tækni og vísindum. Það sem til þarf er hugarfarsbreyting þeirra sem njóta góðs af tækni- framförum. Hugarfarsbreyting okkar allra. Hún felst meðal ann- ars í því að finna út úr því hvern- ig tækniframfarir geta stuðlað að aukinni velferð allra í stað vaxtar sumra. Og þar er velferð jarðar- innar ekki undanskilin. Dvergvaxnar fórnir Baráttan gegn loftslagsbreyt- ingum er því handan stjórnmála- skoðana og flokkspólitíkur – við eigum öll sameiginlegan viljann til að lifa af og búa börnum okkar góða framtíð. Stjórnmálamenn allra flokka þurfa að taka einarða afstöðu með mannfólkinu og þar með náttúrunni því tíminn til að bregðast við er núna. Löngu áður en sjálfbærni varð tískuorð höfðu frumbyggjar Norður-Ameríku til- einkað sér hugarfar sem fólst í að hugsa um afleiðingar allra gjörða sinna á lífsskilyrði sjöundu kyn- slóðarinnar sem erfa skyldi jörð- ina. Slíkur hugsanagangur er til eftirbreytni. Það getur hins vegar verið erfitt fyrir nútímamanninn sem vill allt í dag – og helst mikið af því – að setja sig í spor komandi kynslóða og velta fyrir sér hverj- ar afleiðingarnar af neysluvenjum hans munu verða. Ef slík hugsun er erfið þá er ljóst að hegðunar- breytingin verður enn erfiðari. Ef menn hins vegar staldra aðeins við og velta fyrir sér hvað efnishyggj- an hefur fært þeim samanborið við hinar ýmsu einföldu hamingju- stundir sem við öll þekkjum og kosta ekki neitt ætti öllum að vera ljóst að að þær breytingar sem þurfa að eiga sér stað eru dverg- vaxnar fórnir miðað við þann ávinning sem er í húfi. Heimildir um vistspor Íslend- inga: http://skemman.is/stream/ get/1946/5384/16167/1/Vist- spor_%C3%8Dslands.pdf Beislum neysluna LOFTSLAG Sóley Kaldal áhættu- og öryggis- verkfræðingur og doktorsnemi í umhverfi sverkfræði Steinar Kaldal meistaranemi í umhverfi sstjórnun og stefnumótun ➜ Við getum öll innt af hendi verulegt framlag með því að endurskoða lífsstíls- val okkar og neysluvenjur, sem og afstöðu okkar til athafna sem skaða eða breyta náttúrunni varanlega. Hlýnun jarðar verður þó ekki stöðvuð nema með sterku, samstilltu átaki þjóða.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.