Fréttablaðið - 28.11.2013, Page 34
FÓLK|| FÓ K | TÍSKA4
Philip Treacy hefur hannað hatta fyrir Alexander McQueen, Karl Lagerfeld og Chanel, Valentino,
Ralph Lauren og Donnu Karan svo ein-
hverjir séu nefndir. Hann hefur hlotið
meðal annars bresku hönnunarverð-
launin og verið heiðraður af Karli Breta-
prins og Kamillu konu hans.
Vinsældir Treacy eru þó ekki síst
hjá fræga fólkinu. Hann hefur hannað
hatta jafnt fyrir kóngafólk, kvikmynda-
stjörnur og listamenn. Treacy hannaði
hatta fyrir 36 konur sem voru gestir í
konunglegu brúðkaupi Vilhjálms prins
og Katrínar, hertogaynju af Cambridge.
Þar á meðal stóðu blaðamenn á öndinni
vegna höfuðfats sem hann hannaði fyrir
prinsessu Beatrice og birtust myndir
af henni um allan heim. Treacy hefur
hannað fyrir flestar konur í bresku kon-
ungsfjölskyldunni.
Þá hefur hann gert hatta fyrir frægar
bíómyndir, þar á meðal Harry Potter.
Einnig gerði hann frægan hatt sem
Sarah Jessica Parker var með við frum-
sýningu bíómyndarinnar Sex and the
City. Þá hefur hann gert höfuðföt fyrir
Lady Gaga.
Philip Treacy fæddist á Írlandi í maí
1967. Hann flutti til Dyflinnar árið 1985
til að læra fatahönnun og hattagerð.
KONUNGUR HATTA
VINSÆLL Philip Treacy er einn vinsælasti hattahönnuður veraldar. Konur
sem bera hatta hans komast oftar en ekki á síður dagblaða og tímarita.
BEÐMÁL Sarah Jessica
Parker kemur á frum-
sýningu kvikmyndarinn-
ar Sex and the City með
hatt frá Philip Treacy.
Í LONDON Paris Hilton
heimsækir vöruhúsið
Selfridges í Oxford Street
með hatt frá Treacy.
FÍNAR Systurnar Santa Palmer-
Tomkinson rithöfundur og Tara
Palmer-Tomkinson sjónvarps-
kynnir mættu með hatta frá
Treacy í hið konunglega brúðkaup.
KONUNGLEG Katrín, hertoga-
ynja af Cambridge, kemur hér til
Windsor-kastala með hatt sem
Treacy hannaði.
VEKUR ATHYGLI Beatrice prinsessa er mikill aðdáandi Treacys og
ber oft hatta frá honum. Þessi sandliti hattur, sem hún bar við konung-
legt brúðkaup Vilhjálms frænda síns og Katrínar hertogaynju, vakti
mikla athygli. Með henni er systir hennar, Eugenie.
SNJALL HÖNNUÐUR
Írski hattahönnuðurinn
Philip Treacy ásamt
fyrirsætunni Klaudiu
Molenda.
Ragnheiður Ösp Sigurðardóttir vöruhönnuður hef-
ur hannað púða til styrktar stúlkum í Moyamba-at-
hvarfinu í Síerra Leóne fyrir Rauða krossinn. Púð-
arnir eru úr efnum sem stúlkur í athvarfinu hafa
handlitað og rennur allur ágóði af sölu púðanna
óskiptur til kaupa á saumavélum sem stúlkurnar
fá að gjöf.
Í Moyamba-skólanum fer fram endurhæfing
fyrir ungmenni sem upplifðu miklar hörmungar
í borgarastyrjöldinni þar í landi annaðhvort sem
hermenn eða sem kynlífsþrælar. Í skólanum læra
þau að lesa og skrifa og fá þjálfun í iðngreinum
svo sem smíði og saumum. Að námi lokni fá þau
í gjöf verkfæri eða saumavél sem hjálpar þeim að
koma undir sig fótunum í lífinu.
Ragnheiður Ösp notar vöfflusaum í útfærslu
púðanna og var saumavinnan unnin í sjálfboða-
vinnu af sjálfboðaliðum Rauða krossins í Kópa-
vogi. Aðeins voru unnir 18 púðar og stendur
Kópavogsdeild Rauða krossins fyrir sölu á púð-
unum fram að jólum. Útsölustaðir eru Hrím, Epal
og Mýrin.
UMEMI STYÐUR STÚLKUR
Ragnheiður Ösp Sigurðardóttir og Rauði krossinn hafa tekið höndum
saman til styrktar stúlkum í Síerra Leóne.
ÍSLENSK HÖNNUN
TIL GÓÐGERÐA
Ragnheiður Ösp vöru-
hönnuður hannaði púða
fyrir Rauða krossinn til
styrktar stúlkum í Síerra
Leóne.
Á FACEBOOK-SÍÐU
RAUÐA KROSSINS Í
KÓPAVOGI STENDUR NÚ
YFIR UPPBOÐ Á ÞREMUR
PÚÐUM.
Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - sími: 557 9510 - www.patti.is
Opið virka daga kl. 10-18
laugard. 11-16
Landsins mesta úrval
af sófum og sófasettum
Sófinn þinn útfærður eftir þínum óskum
Mosel
GJAFIR FYRI
R
ALLA