Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.11.2013, Qupperneq 36

Fréttablaðið - 28.11.2013, Qupperneq 36
FÓLK|| FÓ K | TÍSKA6 BESTU OG VERSTU TÍSKA Bandaríska tónlistarverðlaunahátíðin var haldin í L.A. nýverið. Stjörn- urnar voru fagurlega klæddar þótt sumum virtist takast betur til en öðrum að mati tískuspekúlanta. Hér eru þær best og verst klæddu samkvæmt Eonline. ILLA VALIÐ Emma Roberts þótti hafa valið illa í þessum kjól frá Lanvin sem minnti helst á ruslapoka. NORDICPHOTOS/GETTY RUGLANDI MYNSTUR Söngkonan Ciara klæddist kjól með afar truflandi mynstri sem þótti ekki heillandi. VERST KLÆDDUBEST KLÆDDU GLÆSILEG Í HVÍTU Nicole Richie þótti heillandi í hvítum kjól frá Emilio Pucci. „Það verður klárlega sú að vera með rakað í hliðunum og með hár ofan á kollinum til að greiða,“ segir Eyjólfur Páll Víðisson, hárgreiðslu- maður hjá Rakarastofunni Basic í Laugum, þegar hann er spurður út í jólaklippinguna fyrir herra í ár. „Þessi klipping er vinsælust núna hjá alveg frá 14 ára strákum og upp í 35 ára. Eftir það eru herr- arnir meira komnir í rakað í hliðum og með mjög stutt hár ofan á og þá ekki endilega til að greiða til hliðar eða slíkt. Svo heldur sér alltaf þessi klassíska, klippt stutt í hliðum og hnakka og aðeins hár ofan á sem er þá greitt til hliðar eða liggur niður.“ Ungi viðskiptavinurinn í stólnum var einmitt að fá klassíska herra- klippingu hjá Eyjólfi en hann sagði yngstu strákana líka alveg eins vilja fá rakað í hliðunum. Til þes að greiða lubbann mælir Eyjólfur með að nota góðar hárvörur og vera óhræddur við að nota hárblásarann. „Ég mæli ekki með því að setja vörurnar í blautt hárið og þá má alveg blása það aðeins til að þurrka það. Hárið á þó ekki að vera alveg þurrt þegar efnið fer í, til að geta mótað það sem best.“ En láta herrarnir lita á sér hárið? „Herrarnir er mikið til hættir að lita á sér hárið, það hefur minnkað mikið frá því bara fyrir tveimur árum. En það er auðvitað alltaf einn og einn sem kemur í lit og jafnvel strípur,“ segir Eyjólfur sem opnaði nýlega Rakarastofuna í Laugum ásamt Guð- björgu Lindu Vilhjálmsdóttur. „Við erum nýbyrjuð með stofuna hér og bara spennandi að sjá hvernig þetta gengur. Það þarf ekki að panta tíma heldur kíkir fólk bara við og skellir sér í stólinn. Við erum líka með afar hagstætt verð,“ segir Eyjólfur. JÓLAKLIPPING HERRA Eyjólfur Páll Víðisson, hárgreiðslumaður hjá Rakarastofunni Basic í Laug- umm segir rakað í hliðum vera jólaklippingu herranna í ár. VINSÆLT Eyjólfur Páll Víðisson hjá Basic var spurður út í jólaklippingu herra. MYND/DANÍEL ● TÍSKA Ekki eru allir sáttir við hina risastóru tösku sem tískuhúsið Louis Vuitton hefur látið reisa á Rauða torginu í Moskvu. Þar verður opnuð sýningin L‘Âme du Voyage 2. desember og mun hún standa til 19. janúar. Á sýningunni verða sýndar myndir af 25 frægum per- sónum á ferðalagi með töskur frá Louis Vuitton. Kommúnistaflokkurinn hefur gagnrýnt hinn risastóra kassa og telur ekki heppilegt að hafa hann svo nálægt Kreml og forsetabústaðnum. SÝNING Í TÖSKU Franska tískuhúsið Louis Vuitton hefur reist risatösku á Rauða torginu í Moskvu fyrir sýningu sína. Opið Mánudag-Föstudag Frá klukkan 10:00 - 18:00 og laugardaga: 10 - 14 Hugsaðu vel um fæturna. Hágæða skófatnaður í hálfa öld. ´ KARDASHIAN- SYSTIR Kendall Jenner, yngri systir Kardashian- systra, þótti glæsileg. Hún er fyrirsæta og landaði nýlega stórum samningi. VERÐLAUNAHAFI Taylor Swift vakti verð- skuldaða athygli í þessum gyllta kjól frá Julien MacDonald. Hún hreppti sjálf fjölda verðlauna á hátíðinni. Í TÆTARANUM Fyrirsætan Heidi Klum þykir taka sig vel út í flestu en í þetta sinn var tískulöggan ekki sátt við valið. KOM Á ÓVART Miley Cyrus hefur undanfarið hneyksl- að fólk með fram- komu og klæðaburði. Að þessu sinni var hún afar glæsileg í hvítri dragt frá Versace.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.