Fréttablaðið - 28.11.2013, Síða 48
28. nóvember 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 36
Á laugardaginn verður opnuð sýn-
ing á verkum Tuma Magnússon-
ar og Michaels Mørk í listasafni
ASÍ. Sýningin nefnist Á staðnum,
en báðir listamennirnir ganga oft
út frá eigindum staðarins í verk-
um sínum. Þannig er það að hluta
til að þessu sinni. Michael Mørk
sýnir verk sem liggja á milli þess
að vera annars vegar málverk og
húsgögn og hins vegar málverk og
ljósmynd. Verkin eru geómetrískt
uppbyggð og leitast við að endur-
spegla rýmið og gera það að virk-
um hluta verkanna. Tumi Magn-
ússon sýnir ljósmyndaverk sem
fást við afar hversdagsleg fyrir-
bæri. Þau eru unnin og sett upp
á rökréttan en óhefðbundinn hátt.
Hann sýnir einnig vídeóverk sem
tengjast ljósmyndunum en nálg-
ast viðfangsefnið frá öðru sjón-
arhorni. Sýningin verður opnuð
klukkan 15. - sb
Endurspegla rýmið
Listaverk á mörkum þess að vera húsgögn.
„Við stofnuðum Bókabeituna árið
2011,“ segir Marta Hlín Magna-
dóttir sem ásamt Birgittu Elínu
Hassell er eigandi, höfundur og
starfsmaður á plani hjá útgáf-
unni. „Málið var að eftir að við
skrifuðum fyrstu tvær Rökkur-
hæðabækurnar ákváðum við að
gefa þær út sjálfar til að fá að
ráða öllu um það hvernig þær
litu út. Í fyrra gáfum svo út tvær
í viðbót og þá bættist Kamilla
vindmylla við auk þess sem við
þýddum eina bók og gáfum út.“
Á þessu ári var ætlunin að tvö-
falda útgáfuna og gefa út átta
titla en það vatt upp á sig og eru
útgefnir titlar tólf á þessari ver-
tíð. „Við fórum upphaflega út í
þetta vegna þess að okkur fannst
vanta meiri breidd í barna- og
unglingabókaútgáfuna,“ segir
Marta. „Svo bara vatt þetta upp
á sig og nú erum við búnar að
skipta Bókabeitunni í tvennt, eða
eiginlega þrennt: Bókaútgáfan
Björt gefur út bækur fyrir ung-
menni frá 14 ára og upp úr, svo-
kallaðar „Young Adult“-bækur.
Töfraland er með bækur sem
höfða til yngsta aldurshópsins,
0-6 ára, og Bókabeitan er svo
skrifuð fyrir þeim bókum sem
falla þarna á milli.“
Útgáfan er alfarið helguð barna-
og unglingabókum og Marta segir
það meðal annars helgast af því að
þær Birgitta séu báðar kennara-
menntaðar og hafi einlægan áhuga
á því að auka lestur barna og ung-
linga. Liður í því er að nú fylgir
ókeypis rafbók með öllum bókum
eftir íslenska höfunda sem Bóka-
beitan gefur út. „Inni í hverri bók
er miði með leiðbeiningum um
hvernig farið er inn á bokabeitan.
is og síðan fylgir kóði sem sleg-
inn er inn til að sækja rafbókina
frítt. Það er lítið um rafbækur
fyrir þennan aldurshóp og okkur
langar til að kynna þetta form
fyrir krökkunum, aðallega ung-
lingunum sem eru alltaf með sím-
ana í höndunum. Þeir geta þá lesið
í strætó og hvar sem er án þess
að þurfa að taka prentuðu bókina
með sér hvert sem þeir fara.“
Hvernig hefur þessi nýbreytni
mælst fyrir? „Bara mjög vel.
Fólk er byrjað að hala bækurn-
ar niður á síðunni hjá okkur og
þetta spyrst vel út. Flestir lesa
mest af því sem þeir lesa á raf-
rænu formi, það er bara veru-
leikinn í dag og maður verður að
laga sig að því. Okkar markmið er
fyrst og fremst að fá krakkana til
að lesa með því að gefa út spenn-
andi og skemmtilegar bækur, við
erum ekkert að reyna að kenna
þeim neitt.“ fridrikab@frettabladid.is
Fannst vanta meiri
breidd í barnabækur
Bókabeitan er vaxandi útgáfufyrirtæki sem helgar sig alfarið barna- og ung-
lingabókum. Umfangið hefur vaxið ár frá ári, í ár eru útgefnir titlar tólf og sú
nýbreytni hefur verið tekin upp að ókeypis rafb ók fylgir hverri prentaðri bók.
BÓKABEITAN Birgitta Elín Hassell og Marta Hlín Magnadóttir eru báðar miklir lestrarhestar og hafa brennandi ástríðu fyrir
lesefni barna og unglinga. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Inni í hverri bók er
miði með leiðbeiningum
um hvernig farið er inn á
bokabeitan.is og síðan
fylgir kóði sem sleginn
er inn til að sækja raf-
bókina frítt.
VERK EFTIR
MICHAEL MØRK Á
mörkum þess að vera
málverk og húsgögn.
Karamella:
175 g Ljóma
2 dl sykur
3 dl rjómi
0,5 dl síróp
Botn:
125 g mjúkt Ljóma
4 dl hveiti
0,5 dl sykur
Yfir:
200 g rjómasúkkulaði
Hnoðið hráefnunum í botninn á formi
sem er ca. 20 x 30 cm. Bakið við
175°C í 20 mínútur.
Setjið öll hráefnin í karamelluna í pott
og látið suðuna koma upp. Sjóðið við
vægan hita í 45–50 mínútur. Til að
sjá hvort karamellan er tilbúin er gott
að setja smá af henni í glas með
ísköldu vatni. Ef það gengur að hnoða
karamelluna í kúlu er hún tilbúin.
Karamellan á að vera mjúk en hægt
að rúlla henni saman. Hellið
karamellunni yfir botninn og setjið í
ísskáp í ca. 15 mínútur.
Bræðið súkkulaðið og hellið því yfir
karamelluna. Látið kólna í ísskáp og
skerið síðan í bita.
Skuggasund eftir Arnald Indriðason heldur
fyrsta sætinu á metsölulista Eymundsson
fyrir síðustu viku en á í harðri baráttu við
Lygi eftir Yrsu Sigurðardóttur sem kemur
ný inn og fer beint í annað sætið. Yrsa og
Arnaldur hafa oft átt í harðri baráttu um
toppsætið á metsölulista Eymundsson og
virðist árið í ár ekki vera nein undantekn-
ing.
Ljóðabókin Árleysi alda eftir Bjarka
Karlsson er á listanum yfir tíu mest
seldu bækurnar sjöundu vikuna í röð
og sérstaka athygli vekur að á list-
anum eru þrjár barnabækur; Rang-
stæður í Reykjavík, Vísindabók Villa
og Tímakistan.
Þessi listi er byggður á sölu í 17
verslunum Pennans og Eymundsson
dagana 20. til 26. nóvember.
Hefðbundið stríð á metsölulista Eymundsson:
Yrsa sækir að Arnaldi
Í Elska – einleikur dregur Jenný Lára Arnórs-
dóttir sannar ástarsögur okkar tíma fram í dags-
ljósið. Hún rekur hugmyndina að verkinu til nám-
skeiðs í sagnalist hjá Benna Erlings og Charlottu
Böving sem báðu hana að finna sögur af forfeðr-
um og -mæðrum. „Ég fór til ömmu fyrir norðan
og hún sagði mér hvernig langamma og langafi
kynntust,“ rifjar hún upp. Hún kveðst líka oft
hafa heyrt ömmu sína tala um afa. „Þá var allt svo
rosalega rómantískt. Ég fór að pæla í hvort fólk í
gamla daga hefði ekki gengið í gegnum einhverja
erfiðleika í samböndum til að komast á þann stað
að muna bara það góða og hvort viðhorf okkar til
ástar hefði eitthvað breyst í gegnum tíðina.“
Hver skyldi niðurstaðan vera? „Hugmyndir
okkar um ástina hafa breyst, þar koma bíómynd-
ir og samfélagsbreytingar til en það virðist alltaf
vera sama formúlan sem virkar,“ lýsir Jenný og til
að halda spennunni vill hún ekki gefa þá formúlu
upp í þessu litla viðtali. „Það sem ég vil miðla með
sýningunni er að fólk velti fyrir sér hugmyndum
sínum um ástina,“ segir hún. „Og hvernig það sjálft
tekst á við hana.“
Sex sýningar eru fyrirhugaðar í Þingeyjarsýslu
á tímabilinu frá 6. til 14. desember, sú fyrsta í
Safnahúsinu á Húsavík. - gun
Þá var allt svo rosalega rómantískt
Hefur skilgreining okkar á ást breyst síðustu áratugi? Um það fj allar Elska– ein-
leikur sem Jenný Lára Arnórsdóttir sýnir norðan heiða á næstunni.
HÖFUNDUR OG LEIKARI „Það sem ég vil miðla með
sýningunni er að fólk velti fyrir sér hugmyndum sínum um
ástina,“ segir Jenný Lára.
MENNING