Fréttablaðið - 28.11.2013, Page 52
28. nóvember 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 40
FIMMTUDAGURHVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Tónleikar
21.00 Kiva Simova heldur tónleika í Nor-
ræna húsinu. Hún spilar tilraunatónlist,
blöndu af djassi og poppi. Hún hefur
skemmt víða um heim, t.d. með Crash
Test Dummies. Tónleikarnir hefjast kl. 21,
aðgangseyrir er 1.000 kr.
21.00 Emmsjé Gauti heldur útgáfu-
tónleika á Harlem klukkan 21.00 í kvöld.
Úlfur Úlfur og Steinar sjá um upphitun.
Aðgangseyrir er 1.000, en 2.000 krónur
fyrir aðgangsmiða og nýjasta disk Gauta.
22.00 Ingi Gunnar heldur útgáfutónleika
á Café Rosenberg 28. nóv. kl. 22.
Fundir
10.00 Morgunfundur Seðlabanka Íslands
verður haldinn í Norðurljósasal Hörpu
næstkomandi fimmtudag, 28. nóvember,
og hefst stundvíslega klukkan 10.00.
Fundarefnið er: Fjármálakreppa á Írlandi
og Íslandi: Hverjir eru lærdómarnir
fimm árum seinna?
Félagsvist
20.00 Rangæingar í Reykjavík athugið!
Félagsvist í samvinnu við Skaftfellinga í
Skaftfellingabúð í Reykjavík í kvöld.
Sýningar
17.00 Sibba ( Sigurbjörg Einisdóttir)
opnar málverkasýninguna Mitt líf, mínir
litir, á Portinu í Kringlunni fimmtudag-
inn 28. nóv. kl. 17.00. Allir velkomnir.
17.00 Ljósmyndasýning Jóhanns Ágústs
Hansen lýkur fimmtudaginn 28. nóvem-
ber á Mokka kaffi. Á sýningunni gefur
að líta seríu af myndum sem teknar
voru á tónleikum Sykurmolanna á Hótel
Íslandi í mars 1988.
Fyrirlestrar
20.00 Þráinn Hauksson landslagsarki-
tekt flytur erindi í Hafnarborg fimmtu-
daginn 28. nóvember kl. 20 þar sem
hann segir frá ýmsum þeirra verkefna
sem hann hefur komið að og tengjast
umhverfisskipulagi í Hafnarfirði.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
ÚTGÁFU-
TÓNLEIKAR
Emmsjé
Gauti treður
upp á Harlem
í kvöld.
„Yfir þúsund manns hafa skráð sig
á námskeið hjá okkur á þessari önn
og þetta er metár hjá okkur,“ segir
Sigvaldi Fannar Jónsson. Hann
er einn af stjórnendum Nóbel
námsbúðanna ásamt Davíð Inga
Magnússyni og Atla Bjarnasyni
sem stofnaði Nóbel námsbúðirnar
haustið 2010.
„Það skrá sig sífellt fleiri á
námskeið hjá okkur og við höfum
aukið starfsemina mikið.“ Fyrir-
tækið býður nú upp á námskeið
fyrir bæði framhaldsskóla- og
háskólanema í hinum ýmsu grein-
um. Upprifjunarnámskeið eru nú
haldin fyrir áfanga sem kennd-
ir eru í Verzlunarskóla Íslands,
Kvennaskólanum, Menntaskólan-
um í Reykjavík, Menntaskólanum
við Sund, Menntaskólanum á Akur-
eyri, Háskóla Íslands og í Háskól-
anum í Reykjavík. Í upphafi voru
einungis kennd upprifjunarnám-
skeið í stærðfræði og bókhaldi
fyrir viðskiptafræðinemendur
Háskóla Íslands.
„Þetta eru yfirleitt tíu tíma nám-
skeið sem kennd eru um helgar,
þau geta þó verið lengri. Þau eru
prófmiðuð þannig að einstakling-
arnir þurfa að vita eitthvað um
efnið,“ útskýrir Sigvaldi Fannar.
Gjaldið fyrir tíu tíma námskeið er
um 12.500 krónur. Aðstandendur
Nóbel námsbúðanna hvetja fólk til
þess að stunda sitt nám samvisku-
samlega. „Við hvetjum fólk til þess
að sinna sínu námi. Það gengur
ekki að mæta á upprifjunarnám-
skeið og vita nákvæmlega ekki
neitt um námsefnið.“
Námskeiðin eru ekki háð fjölda.
„Ef við auglýsum námskeið þá
eru þau kennd, við erum ekki með
neinn kvóta sem þarf að fylla,“
segir Sigvaldi Fannar en dæmi
eru um að yfir hundrað manns
sæki námskeið á borð við almenna
sálfræði og lögfræði, en einungis
þrír til fjórir stærðfræðiáfanga á
lokastigi í framhaldsskóla. Meðal-
fjöldi nemenda á hverju námskeiði
hjá Nóbel undanfarin ár er fimm-
tán til tuttugu.
„Kennslan hjá okkur bygg-
ist mest á umræðum, við erum
ekki upp við töflu að gjamma.
Nemendur í dag kalla eftir meiri
umræðum, þá þurfa einstakling-
arnir líka að vera virkir.“
Kennararnir á námskeiðunum
eru allir vel kunnugir áföngun-
um. „Þetta er eins konar jafningja-
fræðsla, þeir sem kenna þurfa að
hafa verið í viðkomandi fagi, þeim
þarf að hafa gengið vel og svo
þurfa þeir að vera góðir í mann-
legum samskiptum, það er lykilat-
riði,“ segir Sigvaldi Fannar spurð-
ur um kennarakröfurnar en fjöldi
kennara fer eftir fjölda nemenda.
gunnarleo@frettabladid.is
Yfi r 1.000 nemendur
þurfa hjálp fyrir próf
Nóbel námsbúðirnar hafa stækkað mikið undanfarin ár, yfi r eitt þúsund skráningar
hafa borist á þessari önn og yfi r sextíu manns starfa hjá fyrirtækinu.
Gerðar eru kennslukannanir þar sem frammistaða kennslustjórans er
metin og hafa þær ávallt gengið vel. Ef nemandi nær ekki að klára efni
sitt á námskeiðinu getur hann sent fyrirspurnir í gegnum Facebook eða
tölvupóst.
„Við höfum fengið mjög jákvæð viðbrögð frá kennurum og skólastjórum
og margir spyrja: Af hverju var þetta ekki gert fyrr?
Einkakennarar geta rukkað allt að fimm til sex þúsund krónur á tímann
á meðan við bjóðum okkar þjónustu á hóflegu verði. Fólk getur greitt eftir
að það fær námslán og einnig er gefinn afsláttur ef nemandinn tekur
fleiri námskeið, þetta er gert í krafti fjöldans,“ segir Sigvaldi Fannar.
VIÐBRÖGÐ VIÐ NÓBEL NÁMSBÚÐUNUM
PRÓFMIÐUÐ NÁMSKEIÐ Sigvaldi Fannar Jónsson og Davíð Ingi Magnússon hjá Nóbel námsbúðum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
BÆJARLIND 16 - KÓPAVOGUR - SÍMI 553 7100 - WWW.LINAN.IS
OPIÐ MÁNUDAGA TIL FÖSTUDAGA 12 - 18 LAUGARDAGA 11 - 16
Svefnbreidd 140x200 / Tilboðsverð 149.900
Svefnbreidd 140x200 / Tilboðsverð 129.900
Svefnbreidd 140x200 / kr. 179.900
Svefnbreidd 130x200 / kr. 135.800
Svefnbreidd 120x200 / kr. 119.900
Recast
Supreme Deluxe
Unfurl
Debonair
Upend
Ragnheiður Braga Geirsdóttir
24 ára
Lærir félagsráðgjöf í Háskóla Íslands
„Hefði ég ekki farið á þetta námskeið þá hefði ég líklega
ekki náð prófinu. Ég skildi ekki um hvað námsefnið snerist
fyrr en eftir námskeiðið hjá Nóbel. Þetta var prófið sem ég
var mest stressuð fyrir en mér gekk langbest í því, þökk sé
Nóbel námskeiðinu og þessu frábæra fólki sem vinnur hjá
námsbúðunum. Nóbel er algjör snilld og ég mun hiklaust
mæla með þessum námskeiðum við alla.“
Daníel Þór Irvine
25 ára
Á þriðja ári í viðskiptafræði í Háskóla Íslands
„Ég fór í prófbúðir hjá Nóbel fyrstu önnina mína í við-
skiptafræði í HÍ. Námskeiðið sem ég skráði mig á var
Inngangur að fjárhagsbókhaldi en fjárhagsbókhaldið hafði
verið minn Akkilesarhæll þessa fyrstu önn. Ég hafði lítinn
áhuga og hafði ekki gefið mér neinn tíma til að sinna
þessu samviskulega. Tveimur vikum fyrir prófatörnina sá ég
auglýsingu frá Nóbel þar sem hægt var að fara í prófbúðir. Laugardag og
sunnudag lærði ég meira en ég hafði gert alla önnina. Ég fékk allt í einu
áhuga á fjárhagsbókhaldinu og skildi hversu mikilvægur hluti það var af
viðskiptafræðinni. Ég fór síðan í prófið og skellti í 8 og var mjög sáttur við
allt saman.“
➜ Tveir nemendur deila reynslu sinni