Fréttablaðið - 28.11.2013, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 28.11.2013, Blaðsíða 54
28. nóvember 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 42 Það eru afskaplega fáir í þessum heimi sem geta gert mig reiða. Vissulega verð ég oft pirruð en ofsareiði, hatur og fyrirlitning eru tilfinningar sem ég finn örsjaldan fyrir. Hins vegar finn ég þessar tilfinningar fylla allar æðar mínar er ég sé tiltekna poppstjörnu– sjálfa Miley Cyrus. Mér finnst leiðinlegt að hata fólk þannig að ég gaf henni séns. Reyndi að sjá í gegnum allt „twerkið“, magabolina og skríls- lætin. Þarna væri bara lítil stúlka sem væri að öskra á athygli. Ég skildi líka ekki almennilega hvaðan þetta hatur mitt kom. Fyrr en ég horfði á heimildarmyndina Miley: The Movement, þar sem söngkonan hleypti kvikmyndagerðarmönnum inn í líf sitt og dró ekkert undan. Þar birtist mér allt önnur Miley. Mikilmennskubrjálæðis-Miley. Pía sem varla er byrjuð á blæðingum en heldur samt að hún stjórni heiminum. Pía sem mætir fárveik á hljómsveitaræfingu í magabol. Hóstar úr sér lungunum en tekur ekki í mál að splæsa í rúllukraga. Guð hjálpi okkur frá því hylja líkama okkar! Pía sem kastar sér í gólfið eins og lítill krakki ef hún fær ekki það sem hún vill. Samt fattaði ég ekki þetta stjórn- lausa hatur mitt alveg strax. Fannst hún vissulega vera fáviti en hver er það ekki á vondum degi? Svo kom að því. Ég sá ljósið. Í myndinni tók Miley lagið Jolene, sem Dolly Parton gerði frægt, órafmagnað í bakgarðinum heima hjá sér. Þvílík rödd! Þá rann upp fyrir mér að ég hafði aldrei hlustað almennilega á Miley. Öll dólgslætin og sleggjusleikingarnar byrgðu mér sýn. Þess vegna er ég reið út í hana. Ég þoli ekki að hún geti ekki bara treyst á hæfileika sína því hún er í raun undrabarn. Ég fyllist reiði þegar ég sé hana í enn eitt skiptið troða upp í níðþröngum undirfötum. Ég hata að hún þurfi að reka út úr sér tunguna í hvert einasta sinn sem hún sér myndavélarflass. Þannig að, kæra Miley, nennirðu að fara að haga þér eins og mann- eskja? Annars verðurðu mikilmennskubrjálæðinu að bráð og heimurinn fær ekki að njóta þess sem þú átt inni– því það er nefnilega helvítis hell- ingur! Kæra Miley HÆTTU NÚ ALVEG Ég er engin tepra en þessi tunga drepur mig! TÓNNINN GEFINN Lilja Katrín Gunnarsdóttir Skýringar Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is. Þátttakendur í Lagalistanum Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, K100,5, tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum Skífan, Hagkaup, Penninn/ Eymundsson, 12 tónar, Harpa, Smekkleysa plötubúð, Elko, tonlist.is. LAGALISTINN TÓNLISTINN 14.11.2013 ➜ 20.11.2013 1 Steinar Up 2 Baggalútur og Jóhanna Guðrún Mamma þarf að djamma 3 Jón Jónsson Feel For You 4 One Republic Counting Stars 5 Avicii Hey Brother 6 Miley Cyrus Wrecking Ball 7 Drangar Bál 8 Of Monsters And Men Silhouettes 9 Kaleo Automobile 10 Katy Perry Roar Í spilaranum 1 Baggalútur Mamma þarf að djamma 2 Kaleo Kaleo 3 Helgi Björnsson Helgi syngur Hauk 4 Sigríður Thorlacius Jólakveðja 5 Páll Óskar Rauða boxið 6 Pálmi Gunnarsson Þorparinn 7 Björgvin Halldórsson Duet III 8 Páll Óskar Bláa boxið 9 Drangar Drangar 10 Bubbi Æsku minnar jól „Það kom alltaf eitthvað upp á þegar platan átti að koma út og líka við vinnslu plötunnar. Nú er hún loks- ins komin út og ég er mjög stoltur og sáttur,“ segir tónlistarmaðurinn Eyþór Ingi Gunnlaugsson. Hann hefur nú gefið út sína fyrstu sóló- plötu ásamt hljómsveitinni sinni, Atómskáldunum. „Við vinnslu plöt- unnar varð til virkilega góður og þéttur hópur sem varð að Atóm- skáldunum,“ útskýrir Eyþór Ingi. Grunnarnir á plötunni eru teknir upp „live“ og fóru tökur fram í upp- tökuverinu Geim- steini í Keflavík en um upptökustjórn sá Stefán Örn Gunn- laugsson sem er einn sá vinsælasti í tónlist- arheiminum hér á landi í dag. „Við byrjuðum að vinna að plötunni árið 2008, þegar ég og Gunni trommari tókum upp flest lögin og markmiðið var að gera plötuna sjálfir en þá hrundi flakkarinn í gólfið og allt efnið eyði- lagðist,“ útskýrir Eyþór Ingi. Fleiri áföll dundu yfir eftir þetta því reynt var að kýla á að klára upptökurnar árið 2012. „Þegar ég byrjaði í Vesa- lingunum ætlaði ég líka að klára plötuna og var þá Þórður Gunnar Þorvaldsson upptökustjóri kom- inn inn í myndina. Hins vegar var ég mjög upptekinn í leikhúsinu þá og þegar það hægðist um hjá mér flutti Þórður Gunnar utan og verk- efnið var aftur sett á ís.“ Árið 2013 var hins vegar ákveðið kýla á plötuna. „Við lentum þó í áföllum þegar hún átti að fara í hljóðblöndun því Aron Þór Arnarson sem hljóðbland- ar plötuna fór á tónleikaferðalag með John Grant og var hún því að hluta til mixuð í lestum og á hótel- herberginu,“ útskýrir Eyþór Ingi. Hins vegar varð Aron Þór veikur á lokasprett- inum og því varð enn ein töfin. „Þegar plat- an fór svo í masteringu hélt ég að hún væri í höfn en þá kom annað áfall.“ Þegar platan fór í masteringu hjá einum reyndasta upp- tökumanni landsins, Bjarna Braga Kjart- anssyni, ákvað tölv- an hans að gefa upp öndina. „Þá leið mér eins og platan ætti hrein- lega bara ekki að koma út,“ segir Eyþór léttur í lundu. Þá kom ný tölva til sögunnar og Bjarni Bragi náði að klára verkið með miklum sóma. Tónlistin á plötunni er fjölbreytt og hafa áhrifavaldar Eyórs Inga líkt og Jeff Buckley, Radiohead, David Bowie, The Smiths og Queens of the Stone Age sett sinn brag á tónlist- ina. Þetta eru í raun tónlistarstefnur frá indí/popptónlist til prog/rokks en þó er einnig að finna rólegar ball- öður á plötunni. Flest lögin eru samin af Eyþóri Inga og Baldri Hjörleifssyni en þeir eru einnig æskuvinir. „Við unnum svo allir efnið í sameiningu þegar við æfðum fyrir upptökurnar,“ bætir Eyþór Ingi við. Þá eru einn- ig flestir textarnir ortir af Eyþóri Inga en fleiri eiga þó texta á plöt- unni. Allir eru þeir á íslensku nema einn, sem er á ensku. Atómskáldin skipa Eyþór Ingi Gunnlaugsson, Baldur Hjörleifsson gítarleikari, Helgi Reynir Jónsson gítar- og píanóleikari, Baldur Krist- jánsson bassaleikari og Gunnar Leó Pálsson trommuleikari. liljakatrin@frettabladid.is Platan sem ætlaði aldrei að koma út Fyrsta sólóplata Eyþórs Inga er komin út en vinnsla plötunnar var ekki eingöngu dans á rósum. Hljómsveitin Atómskáldin varð einnig til við vinnslu plötunnar. ÁNÆGÐUR MEÐ ÚTGÁFUNA Eyþór Ingi Gunnlaugsson er sáttur við sólóplötuna. MYND/ Leikur Berger í Hárinu í uppfærslu Silfurtungls- ins árið 2011 2000 2002 2004 2006 2008 2010 2012 2014 Byrjar með Ladda- eftirhermur og leikur á harmon- íkur fyrir hópa með óvissuferðir árið 1998 Leikur í unglinga- leikritinu Kverkatak á Dalvík árið 2002 Leikur í Oliver Twist fyrir Leikfélag Akureyr- ar árið 2005 Leikur í Óvitum fyrir Leikfélag Akureyrar árið 2006 Leikur Jesú í uppfærslu VMA og MA á Jesus Christ Superstar árið 2007 Sigrar í söngva- keppni framhalds- skólanna árið 2007 Gerist með- limur í Todmo- bile árið 2010 Leikur Maríus í Vesaling- unum í Þjóðleik- húsinu árið 2012 Fer fyrir hönd Íslands með lagið Ég á líf í Eurovision árið 2013 ➜ Ferill Eyþórs í hnotskurn Leikur Riff Raff í Rocky Horror í uppfærslu Leikfélags Akureyrar árið 2010 Rúnar Þórisson– Sérhver Vá Hera Björk – Ilmur af jólum Björgvin Halldórsson – Duet 3 Vinnur Bandið hans Bubba árið 2008 Platan Eyþór Ingi og Atómskáldin kemur út í nóvember árið 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.