Fréttablaðið - 28.11.2013, Side 56

Fréttablaðið - 28.11.2013, Side 56
28. nóvember 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING BÍÓ | 44 Sæði og svindl Northwest, spennumynd Hér er á ferð dönsk mynd sem fjallar um átján ára strákinn Casper sem býr með móður sinni og tveimur systkinum í Nordvest-hverfinu í Kaupmannahöfn en það þykir ekki fínt hverfi. Til að hafa í sig og á og hjálpa móður sinni hefur Casper leiðst út í innbrot þar sem hann sérhæfir sig í að komast yfir alls kyns eftirsótt rafmagnstæki sem hann selur smáglæpakónginum Jamal. Jamal er svindlari og þegar Casper kynnist öðrum glæpakóngi sem borgar betur fyrir vörurnar ákveður hann að hætta að vinna fyrir Jamal. Þá fýkur í Jamal og hann ákveður að hefna sín. Delivery Man, gamanmynd David, sem leikinn er af Vince Vaughn, starfar sem sendill hjá kjöt- verslun föður síns. Faðir hans vildi óska þess að David færi nú að koma sér eitthvað áfram í lífinu í stað þess að hjakka stöðugt í sama farinu. Dag einn breytist allt þegar lög- fræðingur sæðisbanka kemur til Davids og segir honum að sæði sem hann seldi bankanum fyrir tuttugu árum hafi fyrir mistök verið notað til að geta 533 börn og að 142 þeirra hafi nú ákveðið að höfða mál fyrir dómstólum þar sem þau krefjast þess að fá að vita hver faðir þeirra er. - lkg FRUMSÝNINGAR Nóg að gerast í bíó Á morgun verður kvikmyndin Prince Avalanche frumsýnd í Smárabíói og á VOD-leigum lands- ins. Kvikmyndin er endurgerð af íslensku kvikmyndinni Á annan veg sem kom út árið 2011, eftir Hafstein Gunnar Sigurðsson. Það er enginn annar en David Gordon Green, sem er best þekktur fyrir kvikmyndina Pineapple Express, sem leikstýrir endurgerðinni. Gagnrýnendur hafa borið lof á myndina og margir segja að hún sé ein besta mynd leikstjórans um árabil. Hún hefur keppt á nokkrum virtustu kvikmyndahátíðum heims og hlaut leikstjórinn Silfurbjörn- inn á Berlínarhátíðinni fyrir leik- stjórn í ár. Fréttablaðið náði tali af David Gordon Green, sem segist hafa heillast af sögunni af þessum tveimur aðalsöguhetjum, sem lifa í mikilli einangrun. „Ég elska Paul og Emile, við höfum verið vinir í langan tíma og það var frábært að að vinna loksins með þeim,“ segir Green um aðal- leikara myndarinnar, þá Paul Rudd og Emile Hirsch. Hann segir það hafa verið lítið mál að fá Paul Rudd til þess að leika í myndinni. „Ég sýndi honum íslensku myndina og hann var strax til í þetta,“ segir Green. Einungis tók sextán daga að taka myndina. Aðspurðir um muninn á íslensku og bandarísku útgáfunni, segist Green hafa reynt að halda í upprunalega útgáfuna. „Auðvitað er þetta allt önnur mynd og ég bland- aði nokkrum atriðum úr mínu lífi og reynslu í myndina.“ Leikstjórinn hreppti Silfurbjarn- arverðlaunin í Berlín sem besti leik- stjórinn fyrir myndina. „Maður veit aldrei hvað dómnefndum á svona kvikmyndahátíðum þykir um verk manns. Það er alltaf ánægjulegt þegar verkum manns er vel tekið.“ Aðspurður um vitneskju sína um Ísland segist hann lítið vita um Ísland en segist þó stórhrifinn af íslenska hestinum smávaxna. „Ég fékk þó mun meiri áhuga á Íslandi eftir að ég vann myndina, mig lang- ar gjarnan að koma til Íslands og mig langar að taka upp bíómynd á Íslandi,“ útskýrir Green. Þessa dagana vinnur Green að nýrri kvikmynd þar sem enginn annar en stórleikarinn Al Pacino leikur aðalhlutverkið. gunnarleo@frettabladid.is David Gordon Green langar að taka upp bíómynd á Íslandi David Gordon Green leikstýrir endurgerð á íslensku myndinni Á annan veg. Hann segir Paul Rudd strax hafa verið til í verkefnið þegar hann sá íslensku myndina en tökur stóðu yfi r í aðeins sextán daga. ÞRÍR TÖFFARAR Emile Hirsch, David Gordon Green og Paul Rudd á frumsýningu Prince Avalanche í Berlín á árinu. ÚR MYNDINNI Hér eru félagarnir í ham í Prince Avalanche. NORDICPHOTOS/GETTY Ég elska Paul og Emile, við höfum verið vinir í langan tíma og það var frábært að vinna loksins með þeim. Leikstjórinn David Gordon Green AFMÆLISBARN DAGSINS Leikarinn Ed Harris er 63 ára í dag Helstu myndir: Pollock, Apollo 13, The Truman Show og A Beautiful Mind. BÍÓ ★★★★★ Hunger Games 2: Catching Fire. Leikstjóri: Francis Lawrence Leikarar: Jennifer Lawrence, Josh Hutcherson, Liam Hemsworth, Donald Sutherland, Woody Harrelson. Fyrsta myndin í þríleiknum um Hungurleikana sló rækilega í gegn og gerði Jennifer Lawrence að stórstjörnu. Nú er framhaldið komið í bíó og veldur svo sannar- lega ekki vonbrigðum. Hungurleik- arnir 2 er dökk og ágeng og snertir við áhorfendum. Myndin hefst um ári eftir að þeirri fyrri lýkur. Það er ólga í umdæmunum tólf þar sem almenn- ingur lifir í fátækt ólíkt hinum ofurríku í höfuðborginni Kapítól. Vísanirnar í Rómaveldi eru marg- ar, gestir í veislu forsetans drekka kokteila sem fá þá til að kasta upp til að þeir geti borðað meira meðan almenningur sveltur. Og Hungur- leikarnir eru ópíum fólksins – brauð og leikar þar sem aðeins einn stendur eftir á lífi. Katniss Everdeen og Peeta Mellark þurfa aftur að berjast fyrir lífi sínu á leikvelli Hungurleikanna, nú á sérstökum hátíðarleikum, en það er meira undir – byltingin bíður handan hornsins, hinn raunveru- legi óvinur er ríkið sjálft. Það var til marks um áhrifamátt myndarinnar að áhorfendur í full- um sal í Háskólabíói um helgina klöppuðu undir lok hennar. Þrátt fyrir að vera ævintýramynd, vís- indaskáldsaga, hefur myndin alvarlegan undirtón. Hér er eng- inn Hollywood-afsláttur. Atriði þar sem gamall maður er tekinn af lífi á torgi af stormsveitum Snows for- seta í upphafi myndarinnar slær tóninn. Jennifer Lawrence fer aftur á kostum sem Katniss. Woody Harrel son stelur senunni eins og hann er vanur. Og Donald Suther- land í hlutverki Snows er réttur maður á réttum stað. Hungurleikarnir 2 gæti komist á lista með flottustu vísindaskáld- sögum allra tíma. Myndin er stór- kostleg blanda af Star Wars, Battle Royal og American Idol. Hún er kröftug ádeila á misskiptingu, vald, kapítalismann og eftirlits- samfélagið. En fyrst og fremst frá- bær skemmtun, rússíbanareið frá upphafi til enda. Símon Birgisson NIÐURSTAÐA: Það besta sem hefur komið frá Hollywood í langan tíma. Dökk og ágeng mynd sem snertir við áhorfendum JÓLA- TILBOÐ 69.900 FULLTVERÐ KR. 89.900 JÓLA- TILBOÐ 89.990 FULLTVERÐ KR. 119.900 JÓLA- TILBOÐ 49.900 FULLTVERÐ KR. 89.900

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.