Fréttablaðið - 28.11.2013, Side 64
visir.is
Meira um leiki
gærkvöldsins
HANDBOLTI Einn af stærri íþrótta-
viðburðum hvers árs á Íslandi er
viðureign FH og Hauka í handbolta.
Þá er ávallt gríðarlega vel mætt og
mikil stemning.
Það skemmir ekki fyrir slag þess-
ara liða í Olís-deildinni í kvöld að
þarna mætast tvö efstu lið deildar-
innar. Þau eru bæði með þrettán stig
og toppsætið er því í húfi ásamt
montréttinum að sjálfsögðu.
Haukar unnu fyrri leik liðanna á
Ásvöllum með fimm marka mun,
25-20, þannig að FH-ingar hyggja
eðlilega á hefndir á heimavelli
sínum.
FH vann tvo af þremur leikjum
þessara félaga í fyrra. Báðir sigrarnir
komu á Ásvöllum.
Fimleikafélagið steinlá aftur
á móti í heimaleik sínum, 18-31,
og það tap situr enn í stuðnings-
mönnum félagsins.
Tveir aðrir leikir fara fram í kvöld.
Klukkan 19.00 tekur ÍR á móti HK.
Hálftíma síðar hefst leikur Fram
og Vals og klukkan 20.00 hefst svo
Hafnarfjarðarslagurinn. - hbg
Toppsætið í húfi í Hafnarfj arðarslagnum
LYKILMAÐUR Sigurbergur
Sveinsson, leikmaður Hauka.
KÖRFUBOLTI Tapleikur KR í
Ljónagryfjunni í Powerade-
bikarnum markaði viss tímamót
innan KR-liðsins. Þetta er eina
tap liðsins í deild eða bikar í
vetur og eftir þennan leik fékk
Martin Hermannsson að klæðast
treyjunni „sinni“ á ný.
Pavel Ermolinskij kvaddi
KR fyrir tveimur árum, þá
sem tvöfaldur meistari og
besti leikmaður ársins. Martin
Hermannsson fékk mun stærra
hlutverk í liðinu og treyju númer
fimmtán þegar Pavel fór út í
atvinnumennsku. Þegar Pavel
snéri aftur í KR í haust vandaðist
hins vegar málið. Bæði Pavel og
Martin vildu vera í treyju númer
fimmtán.
„Það var komin upp smá
pattstaða þarna en í staðinn
fyrir að fara í eitthvað hart þá
ákváðum við bara að komast að
þessari niðurstöðu,“ segir Pavel
Ermolinskij. Niðurstaðan var að
Pavel, sá eldri og reyndari, byrjaði
leiktíðina í fimmtán en þeir þyrftu
síðan að skipta um treyjur við
hvern tapleik.
Báðir hjátrúarfullir
„Pavel var mjög sanngjarn. Ég
var ánægður með það. Hann tók
enga stjörnustæla á þetta og nýtti
sér aldur eða landsleiki. Við erum
báðir nett hjátrúarfullir og vilj-
um báðir vera númer fimmtán.
Ég held að þetta sé besta lausnin,“
segir Martin.
Martin hefur verið frábær síðan
hann komst í sitt númer og KR-ing-
ar hafa unnið síðustu fjóra leiki
sína. „Ég hef alltaf verið númer
fimmtán, upp alla yngri flokka og
í flestum landsleikjum. Pabbi var
alltaf númer fimmtán og það er
aðalástæðan fyrir því að ég spila
í fimmtán. Fimmtán er einhvern
veginn bara partur af manni,“
segir Martin. Hann er með 22,3
stig og 4,3 stoðsendingar að með-
altali í leik síðan hann komst
í „réttu“ treyjuna.
Alexander Ermolinskij,
faðir Pavels, spilaði lengst-
um í númer níu, treyjunni
sem Pavel spilar í eftir tap-
leikinn í Njarðvík.
Búinn að vinna fyrir
henni
„Ef strákurinn væri
ekki að standa sig þá
væri ég löngu búinn
að kippa honum úr
treyjunni. Hann er
búinn að vinna
fyrir henni og
meira en
það,“
segir Pavel en það er samt morg-
unljóst að Pavel vill vera númer
fimmtán frekar en í treyju númer
níu.
Pavel hrósar Martin fyrir
frammistöðuna. „Hann er orðinn
hörkugóður körfuboltamaður og
er búinn að vera frábær fyrir
okkur í vetur. Vonandi held-
ur hann svona áfram,“ segir
Pavel og það er einkenni á
KR-liðinu hversu margir
skila til liðsins.
„Við þurfum ekki ein-
hverja 30 stiga menn þótt það sé
meiri líkur en minni á því að leik-
menn í KR-liðinu eigi eftir að eiga
súperdag. Við pössum upp á það
að vera ekki að setja þá pressu á
einn eða tvo leikmenn heldur leyfa
þessu að ráðast. Ég gæti spilað
eigingjarnari bolta en það liggur
í augum uppi að það myndi bara
gera þetta lið verra,“ segir Pavel.
„Það verður aldrei sami mað-
urinn stigahæstur í þessu liði leik
eftir leik. Við getum allir átt stór-
leiki og allir hitt á vondan dag.
Einhver annar þarf þá að stíga
fram,“ segir Martin.
KR-ingar eru stoltir af því
hversu margir uppaldir KR-ingar
eru í liðinu í dag. „Ég finn rosalega
mikinn mun á því frá því í fyrra
þegar við vorum með tvo Kana í
byrjunarliðinu. Maður finnur KR-
hjartað og KR-egóið í leikmönnum.
Ég fer líka inn í hvern einasta leik
stoltur af því að vera í KR-treyj-
unni,“ segir Martin.
Pavel er efstur í KR-liðinu í
fráköstum og stoðsendingum en
Martin er stigahæsti leikmaður
liðsins og annar í stoðsendingum.
„Ég reyni bara að gefa liðinu
það sem það þarf hverju sinni.
Ég er ekki að setja einhverja
pressu á sjálfan mig að vera með
einhverja fáránlega leiki eða
fáránlegar tölur. Ég veit að ég á
þátt í velgengni liðsins en reyni að
laga mig að því sem þarf í hverjum
leik,“ segir Pavel.
Maður sem kann allt
Martin er ánægður með Pavel.
„Pavel er náttúrulega gríðarlegur
liðsstyrkur. Maður sem kann allt
í þessum bransa og gerir menn í
kringum sig betri. Virkilega þægi-
legt og gott að spila með honum.
Hann opnar mikið fyrir aðra og er
með hrikalega góðar sendingar,“
segir Martin.
Martin hefur tekist að vinna sér
sæti í byrjunarliðinu og landsliðs-
maðurinn Brynjar Þór Björnsson
þarf að sætta sig við það að byrja
á bekknum. „Það er hrikalega
sterkt fyrir okkur að eiga Brynj-
ar á bekknum. Það heldur manni á
tánum vitandi að hann er á bekkn-
um. Maður þarf að gefa sig allan
í þetta,“ segir Martin og það eru
fleiri ungir leikmenn að banka á
dyrnar í KR-liðinu.
„Ef þú ert nógu góður eins og
Martin og fleiri strákar í KR þá
áttu eftir að fá að spila,“ sagði
Pavel og hann og reyndari leikenn
liðsins vita vel að þeir mega ekkert
slaka á. „Þeir eru
nú þegar búnir
að taka treyj-
urnar af okkur,“
segir Pavel í
léttum tón.
ooj@frettabladid.is
Engir stjörnustælar í
slagnum um treyju fi mmtán
Pavel Ermolinskij og Martin Hermannsson vilja báðir vera númer fi mmtán hjá karlaliði KR í Dominos-
deildinni en sættust á skemmtilega lausn. Þeir þurfa að skipta um treyju eft ir hvern tapleik.
TREYJAN SEM ALLT ÞETTA SNÝST UM Martin Hermannsson og Pavel Ermolinskij
sjást hér saman með KR-treyjuna sem þeir vilja báðir spila í. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
TREYJUTÖLFRÆÐI MARTINS
Í treyju 9 Í treyju 15
(3 leikir) (4 leikir)
14,3 Stig í leik 22,3
2,7 Fráköst í leik 3,8
4,0 Stoðsendingar í leik 4,3
15,3 Framlag í leik 24,3
TREYJUTÖLFRÆÐI PAVELS
Í treyju 9 Í treyju 15
(4 leikir) (4 leikir)
11,3 Stig í leik 10,8
11,5 Fráköst í leik 13,3
5,0 Stoðsendingar í leik 8,3
19,3 Framlag í leik 23,3
SPORT
ÚRSLIT
MEISTARADEILD EVRÓPU
A-RIÐILL
LEVERKUSEN - MAN. UNITED 0-5
0-1 Antonio Valencia (22.), 0-2 Emir Spahic,
sjálfsmark (30.), 0-3 Jonny Evans (65.), 0-4 Chris
Smalling (77.), 0-5 Nani (88.).
SHAKHTAR D. - REAL SOCIEDAD 4-0
1-0 Luiz Adriano (37.), 2-0 Alex Teixeira (48.), 3-0
Douglas Costa (68.), 4-0 Douglas Costa (87.).
STAÐAN
Manhester United 5 3 2 0 11-3 11
Shakhtar Donetsk 5 2 2 1 7-5 8
Leverkusen 5 2 1 2 8-10 7
Real Sociedad 5 0 1 4 1-9 1
B-RIÐILL
REAL MADRID - GALATASARAY 4-1
1-0 Gareth Bale (37.), 1-1 Umut Bulut (38.), 2-1
Alvaro Arbeloa (51.), 3-1 Angel Di Maria (63.), 4-1
Isco (80.).
Rautt spjald: Sergio Ramos, Real Madrid (26.).
JUVENTUS - FC KAUPMANNAHÖFN 3-1
1-0 Arturo Vidal, víti (29.), 1-1 Olof Mellberg (56.),
2-1 Arturo Vidal, víti (61.), 3-1 Arturo Vidal (63.).
STAÐAN
Real Madrid 5 4 1 0 18-5 13
Juventus 5 1 3 1 9-8 6
Galatasaray 5 1 1 3 7-14 4
FCK 5 1 1 3 4-11 4
C-RIÐILL
ANDERLECHT - BENFICA 2-3
1-0 Chancel Mbemba (18.), 1-1 Nemanja Matic
(34.), 1-2 Chancel Mbemba, sjálfsmark (52.), 2-2
Massimo Bruno (77.), 2-3 Rodrigo (90.)
PSG - OLYMPIAKOS 2-1
1-0 Zlatan Ibrahimovic (7.), 1-1 Konstantinos
Manolas (80.), 2-1 Edinson Cavani (90.).
Rautt spjald: Marco Verratti, PSG (46.)
STAÐAN
Paris Saint-Germain 5 4 1 0 15-3 13
Olympiakos 5 2 1 2 7-7 7
Benfica 5 2 1 2 6-7 7
Anderlecht 5 0 1 4 3-14 1
D-RIÐILL
CSKA MOSKVA - BAYERN MÜNCHEN 1-3
0-1 Arjen Robben (17.), 0-2 Mario Götze (56.),
1-2 Keisuke Honda, víti (61.), 1-3 Thomas Müller,
víti (65.).
MAN. CITY - VIKTORIA PLZEN 4-2
1-0 Sergio Agüero, víti (33.), 1-1 Tomas Horava
(43.), 2-1 Samir Nasri (65.), 2-2 Stanislav Tecl (69.),
3-2 Alvaro Negredo (78.), 4-2 Edin Dzeko (89.).
STAÐAN
Bayern München 5 5 0 0 15-2 15
Manchester City 5 4 0 1 15-8 12
CSKA Moskva 5 1 0 4 7-15 3
Viktoria Plzen 5 0 0 5 4-16 0
DOMINO‘S-DEILD KVENNA
SNÆFELL - KR 60-64
KEFLAVÍK - KR 70-48
Keflavík: Sara Rún Hinriksdóttir 14/5 stolnir,
Bryndís Guðmundsdóttir 14/11 fráköst.
Njarðvík: Jasmine Beverly 21/11 fráköst, Sara
Dögg Margeirsdóttir 9.
GRINDAVÍK - HAMAR 57-73
Grindavík: Lauren Oosdyke 25/21 fráköst,
Jóhanna Rún Styrmisdóttir 10, Ingibjörg Jakobs-
dóttir 9/5 stoðsendingar, María Ben Erlingsdóttir
9/15 fráköst.
Hamar: Marín Laufey Davíðsdóttir 20/18 fráköst,
Di‘Amber Johnson 20 Fanney Guðmundsdóttir 17.
HAUKAR - VALUR 63-51
Haukar: Lele Hardy 18/22 fráköst/9 stoðsend-
ingar, Gunnhildur Gunnarsdóttir 15/5 fráköst.
Valur: Kristrún Sigurjónsdóttir 17, Jaleesa Butler
10/14 fráköst.
STAÐAN
Keflavík 12 10 2 920-843 20
Snæfell 12 9 3 931-788 18
Haukar 12 8 4 936-853 16
Hamar 12 5 7 850-877 10
Grindavík 12 5 7 839-901 10
Valur 12 5 7 854-875 10
KR 12 4 8 817-863 8
Njarðvík 12 2 10 802-949 4
FÓTBOLTI Ragnar Sigurðsson og Rúrik Gíslason voru báðir í byrjunar-
liði FC Kaupmannahafnar sem tapaði fyrir Juventus, 3-1, í B-riðli
Meistaradeildar Evrópu í gær. Arturo Vidal skoraði
öll mörk Juventus sem vann þar með sinn fyrsta
sigur í riðlinum.
Möguleikar FCK eru þó ekki úr sögunni en til
þess að eiga möguleika á sæti í 16-liða úrslitum
keppninnar þarf liðið að vinna Real Madrid
á heimavelli í lokaumferðinni og treysta á að
Juventus tapi fyrir Galatasaray á sama tíma.
Manchester United er öruggt áfram í 16-liða
úrslitin eftir frábæran 5-0 sigur á Bayer Leverkusen í
Þýskalandi. Wayne Rooney fór á kostum og lagði upp
fyrstu fjögur mörk leiksins.
PSG komst svo áfram eftir nauman sigur á Olympia-
kos á heimavelli, 2-1. - esá
Vidal skaut Íslendingaliðið í kaf
28. nóvember 2013 FIMMTUDAGUR