Fréttablaðið - 28.11.2013, Síða 66
28. nóvember 2013 FIMMTUDAGUR| SPORT | 54
➜ Óvæntasta útspilið
Ari Freyr Skúlason er sá leikmaður
íslenska liðsins sem að okkar
mati bætti sig mest í keppninni
en Ari Freyr eignaði sér vinstri
bakvarðarstöðuna þegar leið
á undankeppnina. Ari
Freyr var þekktari sem
miðjumaður með
félagsliðum sínum en
Lars Lagerbäck veðjaði
á að skella honum í
vinstri bakvörðinn
með góðum árangri.
Ari Freyr sýndi það
í umspilsleikjunum
við Króata hversu
mikið hann hefur
þroskast í þess-
ari stöðu.
Gylfi Þór Sigurðsson átti frábæra undankeppni
með íslenska landsliðinu. Hann var markahæsti
maður liðsins (ásamt Kolbeini), hann var
einnig sá sem gaf flestar stoðsendingar,
enginn var með hærri meðaleinkunn í
Fréttablaðinu og enginn
leikmaður liðsins skoraði
fleiri sigurmörk liðsins í
keppninni (tvö í útileikjum á
móti bæði Albaníu og Slóveníu).
Gylfi kom með beinum hætti að átta mörkum
íslenska liðsins í undankeppninni, skoraði fjögur
og lagði upp fjögur. Hann fékk níu í einkunn hjá
Fréttablaðinu í þremur leikjum, á móti Slóveníu
(úti), á móti Sviss (úti) og Albaníu (heima).
FÓTBOLTI Íslenska karlalandsliðið
rétt missti af heimsmetinu þegar
liðið tapað seinni umspilsleiknum
á móti Króatíu á dögunum. Strák-
arnir héldu út í ellefu lotur af tólf
ef við notum hnefaleikalíkingamál
landsliðsþjálfaranna Lars Lager-
bäck og Heimis Hallgrímssonar og
undankeppni HM 2014 í Brasilíu er
nú orðin sú sem aðrar undankeppn-
ir verða hér eftir miðaðar við.
Íslenska landsliðið er að stærst-
um hluta skipað ungum og hungr-
uðum leikmönnum sem mættu
fullir sjálfstraust til leiks að þessu
sinni og ætla sér ekki minni afrek
í næstu framtíð. Það verður þó
örugglega ekki auðvelt verk að
gera betur en undanfarna fimm-
tán mánuði.
Þrír leikmenn íslenska liðs-
ins voru inná allan tímann, það
er spiluðu allar 90 mínúturnar í
öllum tólf leikjunum. Þetta voru
markvörðurinn Hannes Þór Hall-
dórsson, miðvörðurinn Ragnar
Sigurðsson og miðjumaðurinn
Birkir Bjarnason. Aðrir leikmenn
spiluðu minna þar sem leikbönn
eða meiðsli áttu mikinn þátt í því
að þeir gátu ekki verið með í öllum
leikjunum.
Fréttablaðið gerir upp undan-
keppnina á þessari síðu og þar má
finna nokkrar útnefningar blaða-
manna íþróttadeildarinnar fyrir þá
leikmenn sem stóðu upp úr í þess-
ari einstöku undankeppni.
ooj@frettabladid.is
Þrír voru inná alla undankeppnina
Fréttablaðið gerir í dag upp frammistöðu karlalandsliðsins í fótbolta í undankeppni HM 2014 sem lauk á dögunum. Síðustu fi mmtán
mánuði endurskrifuðu íslensku strákarnir og Lars Lagerbäck sögu íslenska landsliðsins í undankeppni heimsmeistarakeppninnar.
SAUTJÁN MÖRK Gylfi Þór Sigurðsson
fagnar marki Kolbeins Sigþórssonar
með Kolbeini, Jóhanni Berg Guð-
mundssyni og Eiði Smára Guðjohnsen.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
➜ Fallegasta markið
Gylfi Þór Sigurðsson skoraði magnað mark
beint úr aukaspyrnu í útileiknum á móti
Slóveníu í mars. Mörkin hans Jóhanns Berg í
Sviss eða sigurmark Gylfa beint úr aukaspyrnu
í dembunni í Albaníu gerðu öll tilkall til þess
að vera fallegasta markið. Staðreyndin er hins
vegar sú að það er ekki hægt að skora öllu
flottara mark en það sem Gylfi skoraði beint úr
aukaspyrnu af 30 metra færi á Stozice-leikvang-
inum í Ljubljana. Gylfi hitti boltann frábærlega og
hann small af slánni og inn efst
í markhorninu, algjörlega
óverjandi fyrir markvörð
Slóvena.
➜ Besta frammistaðan
Mikilvægi þriggja leikmanna íslenska landsliðsins leynir sér ekki í tölfræði
liðsins í undankeppni HM 2014. Þegar leiðtoginn Aron Einar Gunnarsson,
leikstjórinn Gylfi Þór Sigurðsson og markamaskínan Kolbeinn Sigþórsson
voru inni á vellinum var sóknarleikur íslenska liðsins í túrbó-gírnum. Þeir
félagar voru allir inná í 535 mínútur í leikjunum tólf í undankeppninni
og þann kafla vann íslenska liðið 13-9. Þær 545 mínútur sem vantaði ein-
hvern þeirra fóru hins vegar 4-8 fyrir mótherjanna. Íslenska liðið skoraði
þannig á 41,2 mínútna fresti með Aron, Gylfa og Kolbein alla á vellinum
en það liðu 136,3 mínútur á milli marka þann hluta undankeppninnar
þegar einhvern vantaði í hina heilögu þrenningu íslenska liðsins.
Metin sem féllu í undankeppninni
Besti árangur í undankeppni 2. sæti og sæti í umspili
Flestir sigrar í einni undankeppni 5 sigrar í 10 leikjum
Flest stig í einni undankeppni 17 stig í 10 leikjum
Flest mörk í einni undankeppni 17 mörk í 10 leikjum
Flestir leikir í röð í undankeppni HM án taps 5 leikir í röð án taps
(2 sigrar, 3 jafntefli)
Skorað í flestum leikjum í röð í undankeppni HM 4 leikir
Kolbeinn Sigþórsson
Flest mörk í einum leik í undankeppni 3 - Jóhann Berg
Guðmundsson á móti Sviss
HEILAGA ÞRENNINGIN Í ÍSLENSKA LIÐINU
ÞEIR TÍU LEIKMENN ÍSLANDS SEM LÉKU FLESTAR MÍNÚTUR Í UNDANKEPPNI HM 2014
➜ Ísland spilaði 12 leiki í undankeppni HM í Brasilíu, 10 í riðlakeppni og 2 í umspili, alls 1.080 mínútur
Ragnar
Sigurðsson
1.080 mínútur
Birkir
Bjarnason
636 mínútur
Jóhann Berg
Guðmundsson
982 mínútur
Gylfi Þór
Sigurðsson
927 mínútur
Ari Freyr
Skúlason
924 mínútur
Aron Einar
Gunnarsson
727 mínútur
Birkir Már
Sævarsson
Hannes Þór
Halldórsson
860 mínútur
Kári
Árnason
629 mínútur
Kolbeinn
Sigþórsson
➜ Besti leikmaðurinn
Jóhann Berg Guðmundsson
skoraði stórkostlega þrennu í
4-4 jafnteflinu á móti Sviss
í Bern í september. Hvaða
knattspyrnumaður sem er
hefði getað sprungið úr
stolti yfir hverju þeirra
marka hvað þá að skora
þau öll í sama leiknum.
Jóhann Berg innsiglaði
þrennuna og tryggði
íslenska liðinu endur-
komujafntefli með
því að skora með
glæsi legu langskoti í
uppbótartíma leiksins.
Jóhann Berg er fyrsti og
eini íslenski landsliðs-
maðurinn sem nær að
skora þrjú mörk í sama
leik í undankeppni
stórmóts.
Það vissu örugglega
ekki margir hver Birkir
Bjarnason var í upphafi
undankeppninnar en hann
endaði hana sem einn af
markahæstu leikmönnum
liðsins og eini miðju- og
sóknarmaðurinn sem var inni
á vellinum alla keppnina. Birkir
átti reyndar ekki góða leiki í um-
spilinu við Króata en var fram
að því búinn að sanna sig sem
lykilmaður liðsins. Vinnusemin
og dugnaðurinn voru engu lík en
jafnframt var hann einn af þeim
leikmönnum liðsins sem reyndu
alltaf að koma boltanum í spil.
➜ Spútnikstjarnan
Íslenska landsliðið tapaði aðeins einum leik í undan-
keppninni með Kolbein Sigþórsson innanborðs og það
var heimaleikur á móti Slóveníu þar sem liðið var án
Gylfa Þórs Sigurðssonar (í leikbanni) og missti fyrir-
liðann Aron Einar Gunnarsson af velli í upphafi
seinni hálfleiks í stöðunni 2-2. Kolbeinn missti
af upphafi keppninnar sem og síðasta einum
og hálfa leiknum vegna ökklameiðslanna sem
hann varð fyrir rétt fyrir hálfleik í fyrri umspils-
leiknum við Króata. Ísland vann þrjá og gerði
þrjú jafntefli í þessum sjö leikjum hans og
Kolbeinn skoraði í fjórum síðustu leikjunum
þar sem hann tók þátt í seinni hálfleik.
➜ Mikilvægasti leikmaðurinn