Fréttablaðið - 04.12.2013, Síða 8
4. desember 2013 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 8
LAGERSALA
GJAFAVÖRUR
Tilvalið að kaupa
fallegar jólagjafir
á ótrúlegu verði
VILLAGE
OPIÐ:
13-18 virka daga
og 12-16 á laugardag
Erum í
SÍÐUMÚLA 3
í næsta húsi við
SAMSUNG Setrið
í sama húsi og
PÓSTHÚSIÐ
FJARSKIPTI Vefsíður margra
íslenskra fyrirtækja geyma lyk-
ilorð viðskiptavina sinna án þess
að dulkóða þau. Það þýðir að sé
brotist inn á vefsíðuna er hægt að
hlaða niður lista yfir notendanöfn
og lykilorð á síðunum.
Á þetta er bent á Facebook-síðu
Pírata. Þar eru tiltekin fimm dæmi
yfir vefsíður sem eru með þennan
öryggisgalla. Það eru vefsíðurnar
tonlist.is, nyherji.is, n1.is, orkan.
is og mbl.is. Eftir umfjöllun á vef
Pírata hefur Nýherji tilkynnt að
unnið sé að því að lagfæra þennan
öryggisgalla á vefsíðu fyrirtækis-
ins.
„Ef vefsíður bjóða fólki upp á að
fá lykilorðið sent er það augljós-
lega ódulkóðað,“ segir Helgi Hrafn
Gunnarsson, þingmaður Pírata.
Hann segir vandamálið merki-
lega útbreitt. Þessar fimm síður
séu síður en svo einu dæmin um
íslenskar síður sem hafi þennan
öryggisgalla. Þetta sé því miður
ótrúlega algengur galli á íslensk-
um vefsíðum þar sem fólk þurfi að
skrá sig inn á síðurnar.
Vefsíður sem nota dulkóðun til
að verja notendur sína geta ekki
sent notendum sem gleyma lykil-
orðum sínum lykilorðið í pósti.
Þær bjóða þess í stað upp á aðrar
leiðir til að setja inn nýtt lykilorð.
„Þeir geta ekki sent lykilorðin
af því þeir vita þau ekki. Þannig
á þetta að virka. En af einhverjum
ástæðum, sem eru mér hulin ráð-
gáta, trassa sumir tæknimenn að
gera þetta með þeim hætti, sem er
einkennilegt því þetta er afskap-
lega einfalt,“ segir Helgi.
Margir nota sömu notendanöfn
og lykilorð á mörgum vefsíðum, og
því getur það verið mikið vanda-
mál takist tölvuþrjótum að stela
aðgangsorðum og lykilorðum að
vefsíðu, þó strax sé lokað fyrir
misnotkun á stolnu lykilorðunum
á þeirri vefsíðu. Þetta kom skýrt
í ljós í kjölfar innbrotsins á vef-
síðu Vodafone aðfaranótt síðasta
laugar dags. brjann@frettabladid.is
Mörg fyrirtæki með
ódulkóðuð lykilorð
Á síðu Pírata er bent á fimm íslenskar vefsíður sem ekki verja notendur sína með
því að dulkóða lykilorð þeirra. Útbreitt vandamál, segir þingmaður Pírata. Rann-
sókn lögreglu á innbroti á vef Vodafone aðfaranótt laugardags á frumstigi.
Rannsókn
lögreglu á
innbrotinu á
vef Vodafone
er á frum-
stigi, segir
Friðrik Smári
Björgvinsson,
yfirlögreglu-
þjónn rann-
sóknardeildar
lögreglu höfuðborgarsvæðisins.
Stjórnendur Vodafone kærðu
innbrotið á sunnudag, en fram
kom í fréttum RÚV í gær að
hakkarar frá Alsír hafi í tvígang
áður komist inn á vef Vodafone, í
mars 2012 og í maí í ár.
„Almennt getur rannsókn
mála af þessu tagi verið erfið,“
segir Friðrik Smári. Hann segir
að rekja þurfi svokallaðar IP-
tölur þeirra sem fremji brot sín
á netinu.
Miðað við þær upplýsingar
sem hakkarinn gefur sjálfur upp,
er hann frá Tyrklandi. Friðrik
segir vissulega erfitt að upplýsa
mál þar sem gerandinn sé ekki
hér á landi, en lögreglan geti
leitað atbeina lögreglu í öðrum
löndum við rannsóknir.
➜ Erfitt að rekja
slóð glæpamanna
á netinu
Sami hakkari og braust inn á vef Vodafone kom inn á
vef Símans á svipuðum tíma og árásin á Vodafone var
gerð. Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir, upplýsingafulltrúi
Símans, segir að ekki liggi fyrir vitneskja um neina árás
á kerfi Símans. Ekkert bendi til þess að utanaðkomandi
aðili hafi komist í gögn hjá Símanum. Hún segir að
Síminn hafi upplýst PFS um þetta um helgina. „Það er í
sjálfu sér ekki fréttnæmt að gerðar séu árásir á vefsíður
fyrirtækja, svo algengar eru þær orðnar. Við sjáum
svona tilraunir í hverri viku og varnir taka mið af því.“
Reynt var að brjótast inn hjá hýsingarfyrirtæki sem
meðal annars hýsir vef Mílu á svipuðum tíma og brotist
var inn á vef Vodafone. Sigurrós Jónsdóttir, deildarstjóri
samskipta hjá Mílu, segir að vefir fjölmargra fyrirtækja
séu hýstir á sama stað, og því ekki víst að vefur Mílu
hafi verið skotmarkið. Starfsmenn hýsingarfyrirtækisins
hafi varist netárásum fyrir og um síðustu helgi.
➜ Skoðaði vef Símans
Tæplega 300 hafa sagt upp GSM-áskrift hjá Vodafone
eftir að upplýst var um innbrot á vef fyrirtækisins
um helgina. „Frá því á laugardag hafa 297 viðskipta-
vinir hætt í GSM-áskrift,“ segir Hrannar Pétursson,
framkvæmdastjóri samskiptasviðs Vodafone. Hann
segir fjölda GSM-viðskiptavina hjá fyrirtækinu á annað
hundrað þúsund.
„Það er góð sala, en það er erfitt að segja hverju
það er að þakka,“ segir Liv Bergþórsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Nova. Fyrirtækið hafi haldið upp á sex
ára afmæli um helgina og verið með tilboð í gangi
bæði vegna þess og jólanna. Ekki hafi orðið vart við
áberandi aukningu sem augljóslega megi rekja til inn-
brotsins hjá Vodafone um helgina.
„Mánudagurinn var mjög annasamur og töluverður
hópur kaus að koma í viðskipti,“ segir Gunnhildur
Arna Gunnarsdóttir, upplýsingafulltrúi Símans.
➜ Um 300 sagt upp GSM áskrift
STAÐFEST DÆMI Píratar tiltaka fimm dæmi um vefsíður sem ekki dulkóða lykilorð notenda sinna.
FRIÐRIK SMÁRI
BJÖRGVINSSON
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
Miele ryksugur
FRÓÐLEIKUR Á FIMMTUDEGI
Frumvarp til laga um
breytingar á lögum
um tekjuskatt
Í þessu frumvarpi er m.a. fjallað um afleiðuviðskipti,
arðsúthlutun til eigenda félaga, millilandasamruna,
milliverðlagningu og sérstakan fjársýsluskatt
5. des. | kl. 8:30 | Borgartúni 27
Skráning á kpmg.is
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is