Fréttablaðið - 04.12.2013, Page 13

Fréttablaðið - 04.12.2013, Page 13
MIÐVIKUDAGUR 4. desember 2013 | SKOÐUN | 13 engu líkara en það væri andsetið, bannsett tækið. Rödd Helga Pé á götu, eins og Sigurborg kallaði hann jafnan, barst úr viðtækinu og Sigur- borgu varð um að heyra rödd hans. Hvaða ár var? Hvaða rás var þetta? Hvernig stóð á þessu? Síðan hvenær sinnti Helgi Pé þularstörfum hjá RÚV? Þetta hlaut að vera RÚV því Sigurborg hlustaði aldrei á aðra útvarps- stöð eftir að nágranni hennar, Páll Magnússon, hafði verið gerður að yfirmanni stofnunar- innar. Það var ekki laust við að hún væri ofurlítið hrifin af Páli þótt í fjarska væri. Karlmannlegt höfuð lag útvarpsstjóra minnti hana á spennumyndaleikarann Bruce Willis og hún sá hann gjarnan fyrir sér í átakasenum í æsimyndastíl. Páll á brennandi húsþaki. Páll að synda yfir straumharðar ár. Páll á hlaupum undan uppvakn- ingum. Aðförin að Páli vegna uppsagna örfárra starfsmanna hafði að mati Sigurborgar gengið allt of langt og hún hafði óbeðin stolið örfáum róandi töflum úr lyfjabúri Landspítalans og vafið þeim í grisju, pakkað þeim ofan í blómum skreytt umslag úr bréfsefnasafni sínu og laumað inn um lúguna á húsi Páls. Á umslagið hafði hún skrifað: „Erf- iðar ákvarðanir eru bara á færi mikilmenna, en þeir þurfa eins og óbreyttir, að gæta þess að hvílast.“ Hlekkur í hryðjuverkaárás Sími Sigurborgar pípti án afláts einhverstaðar í íbúðinni svo Sigurborg stóð á fætur og lagði frá sér útsaumsjavann. Mynd- in sem hún var að sauma út var flennistór mynd af forsætisráð- herra í forgrunni með makríl- torfu í bakgrunni. Hún tók eftir því að annað auga ráðherra virt- ist stærra en hitt sem gaf honum ámátlegan svip. Þessu mætti bjarga með því að sauma flat- saum í svörtu þétt við augnkrók- inn. Síminn linnti ekki látunum en eftir svolitla leit fann Sigur- borg hann undir kleinupoka í sóf- anum. Hennar biðu fern smáskilaboð, en frá hverjum? Fyrstu skila- boðin voru illskiljanleg en svo fóru að renna á Sigurborgu tvær grímur því þetta voru einka- skilaboð frá fólki sem hún þekkti alls ekki neitt. Sigurborg vissi vart hvaðan á sig stóð veðrið. Örfáum dögum áður hafði sími hennar fyllst af skilaboðum rit- stjóra til menntamálaráðherra og það hafði komið henni á óvart hvað skilaboðin voru beinskeytt og laus við gamansemi þótt rit- stjórinn væri annálaður húmor- isti. Hvers vegna var hún, Sigur- borg Guðmarsdóttir hjúkrunar- fræðingur, orðin mikilvægur hlekkur í stórfelldri hryðju- verka árás símfyrirtækja á sjálfa ríkisstjórnina? Sigurborg lét gríðarstóran útsaumsjavann síga í kjöltu sér, hallaði sér aftur í purpuralitaða hægindastólinn og lagði aftur augun. Hún var þreytt enda búin að veita fjórtán eldri borgurum rúmbað fyrr um morguninn án aðstoðar. Það hefði mátt heyra saum- nál detta enda heyrði Sigurborg samstundis þegar nálin rann fram af garnendanum og ofan á plastparketið. Plastparketið var gjöf frá frænda hennar sem lengi var deildarstjóri hjá Húsa- smiðjunni eða allt þar til upp komst að hann hafði parketlagt níu sumarbústaði og pípulagt annað eins á kostnað fyrirtæk- isins. Sigurborg hafði velt því fyrir sér þegar Guðfinnur frændi hafði verið settur bak við lás og slá hvort hún ætti að rífa park- etið upp og skila því í Húsasmiðj- una en hafði fallið jafnharð- an frá þeirri hugmynd sökum hræðslu um að hún yrði jafnvel talin meðsek. En henni fannst alltaf heldur ónotalegt að ganga berfætt um íbúðina og klæddist því jafnan vel þæfðum lopainni- skóm eins til að halda sig í ofur- lítilli fjarlægð frá þýfinu. Á litla innskotsborðinu lá Dag- blaðið opið og við blasti mynd af manninum sem lýst hafði á hendur sér hatursglæp á bygg- ingarlóð væntanlegrar mosku. Hvaða siðblindi slátrari hafði selt þessum villimönnum svíns- höfuð í stykkjavís? Eins og ekk- ert væri eðlilegra? Skjótið ekki sendiboðann, hugsaði Sigurborg með sér og gat aðeins gert sér í hugarlund að slátrari þessi væri ógreindur sósíópati af erfiðustu gerð og handstýrði hópi veik- geðja manna sem væru eins og leikbrúður í höndum hans. Andsetið tæki Sigurborg hrökk við því útvarpið fór í gang eins og það átti vanda til alveg upp úr þurru. Það var 5. kafli úr bók eftir óþekktan ástarsöguhöfund Í DAG Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir leikkona Það var ekki laust við að hún væri ofurlítið hrifin af Páli þótt í fjarska væri. Karlmannlegt höfuð- lag útvarpsstjóra minnti hana á spennumyndaleikar- ann Bruce Willis. Um fátt hefur meira verið fjallað í þjóðmála- umræðunni í meira en heila öld en skatta og gjöld. Sögu skattkerfis- breytinga hefur þó ekki verið gerð fræðileg skil fyrr en núna með ritinu Í þágu þjóðar eftir Friðrik G. Olgeirsson sagnfræðing. Tíundarkerfið forna var orðið úrelt á 19. öld og þjóðina vantaði tilfinnan- lega sameiginlegan sjóð, ríkissjóð, til að geta byggt upp nútímasamfélag. Það var gert m.a. með því að taka upp tekjuskattskerfi árið 1877. Allar ríkisstjórnir hafa síðan breytt skattalögum og því er ritið hvort tveggja í senn mikilvægt framlag til stjórnmálasögu þjóðarinnar og grundvallarrit um sögu skatta og skattkerfisbreytinga á árunum 1877–2012. Sagan er sögð á ljósan og skilmerkilegan hátt og margt kemur fram sem áhugafólki um þjóðarsöguna mun þykja fengur að. Bækurnar fást í bókaverslunum Pennans/Eymundsson og hjá Bóksölu stúdenta Saga skatta og skattkerfisbreytinga á Íslandi 1877−2012 Friðrik G. Olgeirsson Í þágu þjóðar Sértækar aðgerðir Aðgerðirnar í skuldamálum eru sértækar, en ekki almennar. Þær eru ekki verri fyrir það, en rétt skal vera rétt. Fjórðungur þjóðarinnar býr í leiguhúsnæði og fær ekkert. Fjórð- ungur skuldar ekki og fær því ekkert. Alls er þetta hálf þjóðin. Helmingur aðgerðanna felst svo í skattaafslætti af séreignarsparnaði. Nýtist ekki þeim, sem höfðu lítið ráð á slíkum sparnaði. Nýtist bezt þeim, sem hafa mestar tekjur og hafa mesta getu til að borga húsnæðisskuldir. Þeir fá mestan afslátt Þessi þáttur aðgerðanna er því afar sértækur. http://www.jonas.is/ Jónas Kristjánsson Hvílíkt fi mbulfamb Nú sér maður það á blogginu að sumir þeir sömu og vilja að Ríkisútvarpið verði lagt niður eða fjársvelt sem mest kenna RUV um það að vitneskja um ástandið í Hraunbæ í fyrrinótt varð ekki öllum fjölmiðlum kunnugt fyrr en alllöngu eftir að það hefði getað orðið. Þessir bloggarar, sem vilja fjársvelta RUV sem mest, segja að lögreglunni beri ekki að segja fjölmiðlum frá því ef hættuástand myndast vegna óðs byssumanns, heldur eigi RUV að hafa fréttamann á vakt allan sólar- hringinn við öll íbúðarhús landsins. Annars bregðist það skyldum sínum. http://omarragnarsson.blog.is Ómar Ragnarsson AF NETINU

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.