Fréttablaðið - 04.12.2013, Qupperneq 22
Samband íslenskra
samvinnufélaga
(SÍS) er ekki dautt
úr öllum æðum.
Félagið hélt aðal-
fund í nóvember og
stjórn þess fundar
reglulega. Hannes
Karlsson, stjórnar-
formaður SÍS, segir
að félagsmenn séu
nú að meta stöðuna
upp á nýtt og mögu-
leg framtíðarverk-
efni félagsins.
| 6 4. desember 2013 | miðvikudagur
Þjóðskjalasafn Íslands fékk á síðasta ári skjalasafn SÍS til varðveislu.
Skjalasafnið, sem geymir ýmsar frumheimildir um sögu Sambandsins,
kom með flutningabíl með tengivagni frá Húsavík á sextíu vöru-
brettum. Safnið er í um átta þúsund skjalaöskjum
og vegur um tuttugu tonn.
„Þetta er stærsta einkaskjalasafn sem við
höfum tekið við. Það hefur því tekið nokkurn tíma
að ganga frá safninu og skjalaskrá þess. Við erum
á síðustu metrunum og vonumst til að klára þetta
á næstu vikum,“ segir Njörður Sigurðsson, sviðs-
stjóri skjalasviðs Þjóðskjalasafns Íslands.
„Við teljum stærð skjalasafna í hillumetrum,
þar sem ein skjalaaskja er sett upp á rönd, og
þetta skjalasafn telur um fimm til sex hundruð
hillumetra. Í skjalaskránni sjálfri skráum við upplýsingar um það sem
finna má í safninu og það eru um fjörutíu þúsund færslur í skránni.“
Njörður segir að elstu skjölin í skjalasafni SÍS séu frá síðari hluta
19. aldar og þau yngstu frá síðustu aldamótum.
Ætlið þið að gera efnið aðgengilegt á netinu?
„Það er ekkert búið að ákveða hvort þetta verði sett á netið en við
hefðum áhuga á að gera það. Það væri verkefni sem við þyrftum að
fara í með SÍS,“ segir Njörður.
SKJALASAFN SÍS VEGUR TUTTUGU TONN
Í FLUTNINGABÍL FRÁ HÚSAVÍK Skjalasafni SÍS var staflað á sextíu vöru-
bretti. MYND/ÞJÓÐSKJALASAFN ÍSLANDS.
NJÖRÐUR
SIGURÐSSON
Samvinnufélög eru stofnuð á samvinnugrundvelli með því mark-
miði að efla hag félagsmanna eftir viðskiptalegri þátttöku þeirra í
félagsstarfinu. Í samvinnufélögum er félagatala óbundin, stofnfé ekki
fastákveðin fjárhæð og félagsmenn og aðrir félagsaðilar bera ekki
persónulega ábyrgð á heildarskuldbindingum félagsins.
HVAÐ ERU SAMVINNUFÉLÖG?
„Við héldum aðalfund á Húsa-
vík í nóvember og það eru heil-
miklar pælingar í gangi,“ segir
Hannes Karlsson, stjórnarfor-
maður Sambands íslenskra sam-
vinnufélaga (SÍS).
SÍS, eða Sambandið eins og
það var kallað í daglegu tali,
fagnaði 111 ára afmæli í febrú-
ar á þessu ári. Þá var liðið 21
ár frá endalokum SÍS-veldisins
þegar Landsbankinn skipti fyr-
irtækinu upp eftir erfið ár sem
einkenndust af breyttum rekstr-
araðstæðum og aukinni skulda-
söfnun. Sambandið hafði þá um
áratugaskeið verið stærsta fyr-
irtæki landsins og mikill áhrifa-
valdur í íslensku atvinnulífi.
Um 35 samvinnufélög eru
skráð á landinu í dag og um
tuttugu þeirra eru virk. Má þar
nefna Kaupfélag Suðurnesja,
KEA, Sláturfélag Suðurlands,
leigubílastöðina Hreyfil, Kaup-
félag Skagfirðinga og húsnæð-
issamvinnufélagið Búseta.
Félögin að ná vopnum sínum
„Sambandið hefur haldið aðal-
fund á hverju
ári og stjórn
þ e s s f u nd a r
reglulega. Að-
alfundurinn í
ár var fínn og
þar mættu um
þrjátíu til fjör-
tíu aðilar sem
hafa rétt til setu
á aðalfundi. Þar stilltum við upp
vangaveltum varðandi mögulega
framtíð SÍS og það er ljóst að
menn vilja halda þessu áfram,“
segir Hannes. Hann segir að SÍS
hafi að loknum aðalfundi haldið
málþing um samvinnumál.
„Þar urðu miklar umræður
um samvinnufélög í heiminum.
Nokkrir samvinnumenn fóru á
síðasta ári til Manchester á al-
þjóðaráðstefnu samvinnufélaga.
Þar var alveg ljóst að samvinnu-
félögin, ekki síst þau í Evrópu,
eru að fyllast sjálfstrausti og
að ná vopnum sínum aftur eftir
frekar mögur ár,“ segir Hannes.
Hann segir að rekstur evr-
ópsku samvinnufélaganna sé
ólíkur rekstri SÍS á árunum
fyrir 1992.
„Þessum félögum er nú oftast
skipt í neytendafélög og fram-
leiðendafélög, en þessum tveim-
ur þáttum var blandað saman
innan íslensku samvinnufélag-
anna. Ég held að þetta sé mjög
eðlileg þróun sem hefði að öllum
líkindum orðið hér á landi ef
Sambandið hefði haldið áfram,“
segir Hannes.
Eignarhaldsfélagið SÍS
SÍS er í dag eignarhaldsfélag
sem á eignarhluti í líftrygginga-
félaginu Andvöku og fyrirtæk-
inu GS1, sem sér meðal annars
um útgáfu strikamerkja.
„Það eru ekki miklir fjár-
munir í félaginu en það eru ein-
hverjar eignir. Síðustu ár hefur
SÍS sett heilmikla fjármuni inn
í Háskólann á Bifröst og á þar
Vilja fjölga verkefnum SÍS
JANÚAR 1966 Starfsmenn SÍS í Hafnarfirði pakka fiskafurðum í umbúðir Sambandsins.
HANNES KARLSSON
VIÐTAL
Haraldur Guðmundsson | haraldur@frettabladid.is
SÍS Höfuðstöðvar
Sambandsins
voru lengi við
Sölvhólsgötu þar sem
menntamálaráðuneytið
er í dag.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA.
KJÖTFJALLIÐ Sambandið réð yfir miklum frystigeymslum
sem geymdu frystar kjötafurðir við öll sláturhús landsins.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA.