Fréttablaðið - 04.12.2013, Síða 39
MIÐVIKUDAGUR 4. desember 2013 | MENNING |
TÓNLIST ★★★★ ★
Mark Lanegan
Tónleikar
FRÍKIRKJAN Í REYKJAVÍK 30. OKTÓBER
Mark Lanegan, fyrrum liðsmað-
ur Screaming Trees og núverandi
samstarfsmaður Queens of the
Stone Age, hefur á ferli sínum gefið
út átta sólóplötur. Sú nýjasta heitir
Imit ations þar sem hann syngur hin
ýmsu lög eftir aðra.
Þessir fyrri tónleikar hins 49 ára
Lanegans í Fríkirkjunni voru þeir
fyrstu sem hann hélt á Íslandi. Með
rámri rödd sinni sagði hann það
hafa verið draum sinn í mörg ár að
spila í Reykjavík. Hann var að ljúka
tónleikaferðalagi sínu um Evrópu til
að kynna Imitations og spilaði fyrir
vikið mörg lög af henni.
Lanegan steig á svið rétt fyrir
klukkan 22 eftir að þeir Duke
Garwood og Lyenn höfðu hitað
Rokkgoðsögn á rólegu nótunum
MARK
LANEGAN
Tónleikar
rokkarans í
Fríkirkjunni
voru mjög
vel heppn-
aðir.
MYND/ALÍSA
KALYANOVA
upp hvor í sínu lagi í um klukku-
stund. Eftirvæntingin eftir Laneg-
an var svo mikil að um helming-
ur áhorfendanna í Fríkirkjunni
reis úr sætum sínum og klappaði
er hann steig á sviðið. Með honum
voru fimm hljóðfæraleikarar, þar
af tveir strengjaspilarar, einn blás-
ari og þeir Garwood og Lyenn, sem
spiluðu á gítar og bassa.
Eins og tónleikastaðurinn gefur
til kynna voru lögin sem Lanegan
flutti í rólegri kantinum en bestur
var hann þegar hann spreytti sig á
blúsnum, þar á meðal í Cold Molly.
Önnur eftirminnileg lög voru til
dæmis The Gravedigger‘s Song af
síðustu plötu hans og lokalagið Soli-
taire af nýju plötunni.
Einnig heppnaðist vel útgáfa
Lanegan af Satellite of Love sem
hann tileinkaði höfundinum sáluga,
Lou Reed. Freyr Bjarnason
NIÐURSTAÐA: Rólegir en flottir
tónleikar hjá mikilli rokkgoðsögn.
2 300W 32 bita magnari 1 hátalari og þráðlaust bassabox
Bluetooth tengimöguleiki
VERÐ 79.990.-
Full HD 1920 x1080 punktar
200 Hz X-Reality myndvinnslukerfi
Nettengjanlegt og innbyggt WiFi
VERÐ 259.990.-
Sony Center
Verslun Nýherja Borgartúni / 569 7700
Verslun Nýherja Kaupangi Akureyri / 569 7645
SMÍÐUÐ FYRIR ÆVINTÝRIN
Sony ActionCam WIFI HDRAS30
Full HD vatnsheld upptökuvél
1/2.3 baklýst Exmor myndflaga
Carl Zeiss Tessar linsa f 2.8
VERÐ 59.990.-
GÓÐ KAUP Á ANDROID SNJALLSÍMA
Sony Xperia E
3,5” TFT snertiskjár með HD upplausn
3.2 pixla myndavél
Videoupptaka
VERÐ 25.990.-
FULLKOMNAR MYNDIR BEINT Í SÍMANN ÞINN
DSCQX10
Myndavél sem smellur á snjallsíma
18,2 pixla 1/2.3 Exmor myndflaga
Full HD Video
VERÐ 39.990.-
Frábært
verð!
STÓRT OG GOTT Á FRÁBÆRU VERÐI
50” LED SJÓNVARP KDL50W656
HEIMABÍÓ M. ÞRÁÐLAUSUM BASSAHÁTALARA
HTCT260H
50”
risi á frábæru verði
259.990.-
5 ÁRA ÁBYRGÐ FYLGIR ÖLLUM SJÓNVÖRPUM
www.sonycenter.is