Fréttablaðið - 04.12.2013, Blaðsíða 46
4. desember 2013 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 30
Þorlákur Morthens, eða listamaður-
inn Tolli eins og hann er oft kallaður,
ætlar að afhenda formönnum þing-
flokka Kærleikshandbókina í dag.
Tolli segir að textinn fjalli um kær-
leikann á fræðilegan hátt en ekki á
þennan venjubundna trúarlega hátt.
„Það er auðveldara að tengja sig kær-
leikanum ef maður hefur vitneskju
um að hann sé til sem eiginleiki en
ekki einungis trúarlegt hugtak.“
Hann álítur það einfalda og áhrifa-
ríka leið til að koma skilaboðunum
áleiðis að gefa þingmönnum bókina.
„Þeir eru á þessum vettvangi þar sem
verið er að taka ákvarðanir um það
sem ber að gera.“ Hann telur einnig að
lestur bókarinnar sé þingmönnum hollur undirbúningur fyrir framtíðina.
„Pólitík framtíðarinnar mun meira og meira beinast inn á við og menn
leita lausna í því hvernig við erum frekar en hvernig umhverfi okkar er.“
Það þykir honum vera heillaþróun. „Tilvist án kærleika er ekki góður
staður til að vera á.“ - ue
„Við erum nýkomin frá Moskvu
þar sem við vorum að heimsækja
samstarfsmenn okkar og tala við
pressuna,“ segir Andrea Maack,
myndlistarkona og ilmhönnuður,
en vörur Andreu hafa slegið ræki-
lega í gegn þar í landi. „Við héld-
um móttökur í þremur risastórum
verslunum, meðal annars verslun-
inni Tsum í Moskvu sem er einn
voldugasti verslunarrisinn þar í
borg,“ segir Andrea, en Tsum er
stærsta deildaskipta sérvöruversl-
unin í Austur-Evrópu, með yfir
þúsund þekkt tískumerki á sínum
snærum, meðal annars merki á
borð við Harry Winston, Rolex,
Dior, Chanel og svo mætti lengi
telja. Auk þess er að finna í versl-
uninni veitingastaði, vindlastofu
og Veuve Clicquot-kampavínsbar,
svo eitthvað sé nefnt.
„Það er rosalega gaman að sjá
hvað við erum að fá góðar viðtök-
ur í Rússlandi. Sannarlega óvænt
ánægja,“ segir Andrea jafnframt.
Andrea var einnig með kynn-
ingar í verslununum Gum og
Vesna. „Þetta eru allt æðislegar
verslanir og heiður fyrir mig að
komast að þarna. Það er svo ótrú-
lega gaman að upplifa Moskvu –
það er rosa kraftur í öllum og öllu.
Rússar eru svo miklir fagurker-
ar. Borgin er rosalega falleg og
svo fundum við fyrir svo miklum
áhuga og velvilja í garð Íslands,“
bætir Andrea við.
Andrea er nú komin aftur til
Ítalíu þar sem hún starfar um
þessar mundir. „Ég ætla bara að
halda áfram á meðan það gengur
svona vel,“ segir Andrea hógvær,
en ilmvötn hennar eru nú fáan-
leg í yfir tuttugu löndum, allt frá
Það er rosalega
gaman að sjá hvað við
erum að fá góðar
viðtökur í Rússlandi.
Sannarlega óvænt ánægja.
Andrea Maack
„Uppáhaldið í augnablikinu er
Jólakaldi vegna þess að happy hour
er ómissandi hluti af jólafríinu.“
Inga Dóra Pétursdóttir, framkvæmdastýra UN
Women á Íslandi.
DRYKKURINN
Rússar spenntir fyrir
íslenskum ilmvötnum
Andrea Maack ilmhönnuður var í Moskvu þar sem hún kynnti vörur sínar hjá
einum voldugasta verslunarrisa þar í borg. Hún segir Rússa kraft mikla fagurkera.
Andrea Maack er fædd árið 1977. Hún útskrifaðist úr myndlistadeild
Listaháskóla Íslands árið 2005. Andrea stofnaði fyrirtækið ANDREA
MAACK PARFUMS formlega árið 2010, en fyrirtækið er íslenskt ilmvatns-
hús sem á uppruna sinn að rekja til myndlistarsýninga hennar.
Árið 2010 voru þrjú ilmvötn sett á markaðinn á Íslandi. Í framhaldinu
hófst öflug markaðssetning erlendis og hefur fjórum ilmvötnum verið
bætt við flóruna. Varan er nú seld í yfir hundrað verslunum í Evrópu og
Bandaríkjunum og þótt víðar væri leitað.
Samstarf Andreu við ilmvatnsgerðarmennina (perfumera) er óvenjulegt
að því leytinu til að þau vinna saman í að blanda ilmvötn út frá hugar-
heimi og myndlistarverkum hennar, en hver ilmur frá Andreu kominn er
byggður á einhverju verka hennar.
➜ Ilmhönnuðurinn Andrea Maack
Á FJÖLMIÐLAFUNDI Andrea sést hér tala við pressuna í Rússlandi. MYND/ÚR EINKASAFNI
ÓVÆNT ÁNÆGJA Andrea segir það hafa komið henni ánægjulega á óvart hversu vel hefur gengið með ilmvötnin í Rússlandi.
MYND/ÚR EINKASAFNI
Tilvist án kærleika
ekki góður staður
Tolli gefur þingmönnum Kærleikshandbókina.
GJAFMILDUR Tolli segir kærleikann
ekki aðeins trúarlegt hugtak.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Evrópu, til Bandaríkjanna til Mið-
Austurlanda. Erlend pressa hefur
einnig sýnt Andreu mikinn áhuga
og fjallað hefur verið um Andreu
í þekktum glanstímaritum á borð
við Marie Claire, Costume, Elle og
Vogue svo einhver séu nefnd.
olof@frettabladid.is
ÞAÐ ER REIMT
... Í REYKJAVÍK
BÓK SEM FYLGIR ÞÉR ALLA ÆVI
EINNIG
FÁANLEG
Á ENSKU
RÍKULEGA MYNDSKREYTTAR
MUNNMÆLASÖGUR ÚR
SAMTÍMANUM
LESTU HANA
EF ÞÚ ÞORIR
!
„Þetta er frábært, við hlökkum mikið til og það er
mikill heiður fyrir okkur að fá að koma fram þarna,“
segir Elísabet Eyþórsdóttir tónlistarkona og meðlim-
ur í hljómsveitinni Sísý Ey, sem spila á Sónar-hátíð-
inni í Stokkhólmi dagana fjórtánda og fimmtánda
febrúar á næsta ári. Hljómsveitina skipa þrjár systur,
þær Elísabet, Sigríður og Elín Eyþórsdætur, ásamt
Friðfinni Oculus. Áður hafa listamenn á borð við Jon
Hopkins, Paul Kalkbrenner og James Holden staðfest
komu sína á hátíðina.
Red Bull fjármagnar að mestu Sónar í Stokkhólmi
en hluti af því samkomulagi er að íslenskir tónlistar-
menn komi fram á hátíðinni í Stokkhólmi. „Sísý Ey
kom fram á Sónar í Barselóna og fékk frábærar við-
tökur og ekki voru viðtökurnar síðri á Sónar í Reykja-
vík. Það er líka frábært að Sónar Reykjavík geti stutt
íslenskar hljómsveitir við það að koma fram erlend-
is,“ segir Björn Steinbekk, framkvæmdastjóri Sónar
Reykjavík.
Aðspurð um móralinn í hljómsveitinni segir Elísa-
bet hann með eindæmum góðan. „Það er enginn rígur
á milli okkar systra og það gengur allt rosalega vel,“
segir Elísabet, sem hefur þá komið fram á þremur
Sónar-hátíðum á einu ári.
Sveitin vinnur nú að nýju efni en stefnt er á plötuút-
gáfu á nýju ári. Þá mun sveitin meðal annars koma
fram á tónlistarhátíðunum Eurosonic í Hollandi og
Bylarm í Noregi á næsti ári. - glp
Sísý Ey á Sónar í Stokkhólmi
Hljómsveitin fetar í fótspor Jons Hopkins, Pauls Kalbrenner og James Holden.
SÍSÝ EY Á SÓNAR Í BARSELÓNA Systra-
bandið Sísý Ey kom meðal annars fram á
Sónar í Barselóna í sumar. MYND/EINKASAFN