Fréttablaðið - 31.01.2014, Side 4
31. janúar 2014 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 4
HEILBRIGÐISMÁL Íslenskir sjúkra-
þjálfarar nota sumir hverjir óhefð-
bundnar lækningaaðferðir á skjól-
stæðinga sína.
„Læknisfræðilega nauðsynlegar“
meðferðir sjúkraþjálfara eru sam-
kvæmt reglugerð um sjúkratrygg-
ingar niðurgreiddar af Sjúkratrygg-
ingum Íslands um allt að 80% af
heildarkostnaði meðferðanna.
Í rammasamn-
ingi Sjúkratrygg-
inga Íslands og
sjúkraþjálfara er
tilgreint hvaða
aðferðir sjúkra-
þjálfara séu við-
urkenndar og
þannig heimilt að
fá niðurgreiddar.
Dæmi eru um
að sjúkraþjálfarar noti höfuðbeina-
og spjaldhryggsmeðferð, sem er
ekki viðurkennd aðferð í hefðbundn-
um læknisfræðilegum skilningi og
ekki samþykkt í rammasamningi SÍ.
Heiðar Örn Arnarson, kynn-
ingarfulltrúi SÍ, segir stofnunina
áður hafa fengið ábendingar um að
sjúkraþjálfarar beiti aðferðinni og
að óheimilt sé að innheimta fyrir
slíka þjónustu í skjóli rammasamn-
ingsins.
„Í mínum höndum nýtist þetta
betur en margt annað sem ég hef
reynt,“ segir sjúkraþjálfari sem
notar höfuðbeina- og spjaldhryggs-
meðferð í starfi sínu. Viðkomandi
vildi ekki láta nafns síns getið vegna
þess hversu umdeild aðferðin er
innan heilbrigðisstéttarinnar.
„Ég get hjálpað fleirum en ég
hefði annars gert með þessu. Þegar
maður er orðinn fær í sínu fagi veit
maður hvað virkar og hvað virkar
ekki,“ segir sjúkraþjálfarinn.
Viðkomandi viðurkennir að vand-
aðar rannsóknir sem sýni fram á
virkni meðferðarinnar séu ekki
fyrir hendi, en segir árangurinn
engu að síður ótvíræðan.
„Þetta eru ekki raunveruleg vís-
indi, læknisfræði, né meðferð,“
segir Björn Geir Leifsson, skurð-
læknir um höfuðbeina- og spjald-
hryggsmeðferðir sem sumir sjúkra-
þjálfarar nota.
„Ég vil meina að fólk sem notar
þessar meðferðir hafi góðan ásetn-
ing, en því miður þá eru vísindin
þarna að baki bara hugarburður,“
segir Björn.
Hann segir áhyggjuefni að heil-
brigðisstarfsmenn eyði tíma í slíkar
meðferðir, enda verði almenningur
að geta gert þær lágmarkskröfur að
þeir beiti viðurkenndum aðferðum.
Þá segir hann ámælisvert að
verið sé að nota opinbert fé til að
greiða fyrir meðferðirnar.
Björn hefur þó orð á því að óhefð-
bundnar meðferðir geti gert gagn,
en ekki vegna þess að þær geri það
sem þær segjast gera.
„Það sem er gott í mörgum af
þessum meðferðum er slökun og
snerting og annað sem veitir vel-
líðan. Það getur haft mjög jákvæð
áhrif, en þá þarf bara að koma
hreint fram og kalla meðferð-
ina slökun eða nudd en ekki eitt-
hvað annað sem byggir á einhverri
ímyndun,“ segir Björn Geir Leifs-
son. johanness@frettabladid.is
Niðurgreiða óvísindalegar
meðferðir sjúkraþjálfara
Dæmi eru um að sjúkraþjálfarar beiti óhefðbundnum lækningaaðferðum á sjúklinga í niðurgreiddum með-
ferðum. Sjúkratryggingar Íslands segja slíkt óheimilt, enda verði sjúkraþjálfarar að beita viðurkenndum læknis-
fræðilegum aðferðum. Læknir segir óheiðarlegt gagnvart sjúklingum að nota óvísindalegar aðferðir.
SJÚKRAÞJÁLFUN
Sjúkraþjálfarar eru
skilgreindir sem
heilbrigðisstarfs-
menn í lögum.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
BJÖRN GEIR
LEIFSSON
FÓLK Til greina kemur að Hvalfjarð-
arsveit komi að því að kosta áfram-
haldandi starf djákna við Dvalar-
heimilið Höfða á Akranesi.
Til stóð að staða djáknans, sem
hafði hingað til numið 20% af fullri
stöðu, legðist af frá og með 1. apríl,
en það vildi vistfólk ekki sætta sig
við. Þess vegna rituðu fjórar konur
úr Hvalfjarðarsveit sveitarstjórn-
inni bréf þar sem þess var farið á
leit að hreppurinn kæmi að kostnað-
inum við að halda þjónustu djákn-
ans.
„Við teljum starfsemi djákn-
ans mjög mikils virði fyrir okkur
íbúana á Höfða,“ segir í bréfi
kvennanna, „og okkur þætti miður
ef hún legðist af. Því er það ein-
læg ósk okkar að þið í sveitarstjórn
Hvalfjarðarsveitar sæjuð ykkur
fært að styrkja þessa starfsemi út
árið.“
Laufeyju Jóhannesdóttur, sveit-
arstjóra Hvalfjarðarsveitar, var í
framhaldinu falið að taka erindið
upp við bæjarstjóra Akraness og
framkvæmdastjóra Höfða. - þj
Bréf íbúa á Dvalarheimilinu Höfða á Akranesi til Hvalfjarðarsveitar:
Biðla til sveitar að kosta djákna
DVALARHEIMILIÐ HÖFÐI Fjórar konur
sem búa á dvalarheimilinu hafa biðlað
til Hvalfjarðarsveitar að kosta stöðu
djákna sem annars verður lögð niður.
MYND/DVALARHEIMILIÐ HÖFÐI
4.920 báru eiginnafnið Guðrún
þann 1. janúar en 5.324 heita Jón
og eru þetta algengustu eigin-
nöfnin hér á landi.
Heimild: Hagstofa Íslands
3% Íslendinga bera eigin-nafnið Jón eða Guðrún
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundur@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is,
Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
Löður er með
á allan bílinn
Við erum á sex stöðum á höfuðborgarsvæðinu
www.lodur.is - Sími 544 4540
Rain-X býður upp á fullkomna yfirborðsvörn
Rain-X verndar bílinn, eykur útsýni og öryggi
Hreinn bíll eyðir allt að 7% minna eldsneyti
KÍNA, AP Kínverjar vísuðu í gær
bandaríska blaðamanninum Austin
Ramzy úr landi. Bandaríkjastjórn
gagnrýnir ákvörðunina og aðrar
hömlur sem settar hafa verið á
störf bandarískra blaðamanna í
Kína.
„Þessar hömlur og þessi með-
ferð fara ekki heim og saman við
fjölmiðlafrelsi – og stangast illi-
lega á við meðferð Bandaríkjanna
á kínverskum og öðrum erlendum
fréttamönnum,“ segir Jay Carney,
talsmaður Hvíta hússins. - gb
Kínverjar ritskoða:
Blaðamanni
vísað úr landi
Ingibjörg Karlsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
Sunnudagur
Minnkandi vindur en strekkingur allra
austast og vestast.
VAXANDI VINDUR verður á landinu í dag og má gera ráð fyrir strekkingsvindi allvíða
fram á sunnudag en hvassviðri eða stormi allra syðst og með SA-ströndinni. Það snjóar
líklega um tíma vestan til í dag en verður að mestu úrkomulaust þar um helgina.
0°
7
m/s
0°
7
m/s
1°
7
m/s
6°
15
m/s
Á morgun
Strekkingur en hvassviðri eða stormur
með suðausturströndinni.
Gildistími korta er um hádegi
0°
-1°
1°
-1°
-2°
Alicante
Aþena
Basel
16°
13°
4°
Berlín
Billund
Frankfurt
2°
0°
5°
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
6°
0°
0°
Las Palmas
London
Mallorca
20°
9°
XX°
New York
Orlando
Ósló
3°
22°
-3°
París
San Francisco
Stokkhólmur
9°
13°
-2°
4°
14
m/s
5°
16
m/s
3°
9
m/s
3°
15
m/s
1°
7
m/s
3°
9
m/s
-1°
10
m/s
6°
1°
4°
3°
2°
REYKJAVÍKURBORG „Eðlilegt er að
krefjast þess að borginni verði
bættar útsvarstekjur sem falla
endanlega niður og útgjöld sem
falla til vegna þessara aðgerða,“
segir í samþykkt borgarráðs um
áhrif ráðstöfunar á séreignar-
sparnaði.
Vísað er til minnisblaðs fjár-
málaskrifstofu borgarinnar þar
sem rakin eru neikvæð áhrif
fyrirliggjandi tillagna og tengdra
laga um ráðstöfun séreignar-
sparnaðar til lækkunar höfuð-
stóls fasteignalána, annars vegar
á útsvarstekjum og hins vegar
á launatengdum útgjöldum.
Heildaráhrif til tekjulækkunar
og útgjaldaauka geti orðið um
sjö milljarðar króna. Þar af geti
tekjur lækkað um 450 milljónir
króna á þessu ári. - gar
Verða af sjö milljörðum:
Bæti borginni
tapaðar tekjur
RÁÐHÚSIÐ Tapa útsvari vegna sér-
eignarsparnaðar sem lækkar lán.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
ÁRBORG
Afsláttur vegna íþrótta
Börn sem eiga lögheimili í Árborg og
nota strætó til að stunda íþróttir utan
sveitarfélagsins fá eftirleiðis 15 prósent
afslátt af farmiðaspjaldi. Fjöldi farmiða
sem hver og einn getur keypt með
afslætti tekur mið af fjölda æfinga.