Fréttablaðið


Fréttablaðið - 31.01.2014, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 31.01.2014, Qupperneq 6
31. janúar 2014 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 6 B irt m eð fy rir va ra u m p re nt vi llu r. H ei m sf er ð ir ás ki lja s ér ré tt t il le ið ré tt in g a á sl ík u. A th . a ð v er ð g et ur b re ys t án fy rir va ra . Skógarhlí› 18 • Sími 595 1000 Akureyri • Sími 461 1099 www.heimsferdir.is E N N E M M / S IA • N M 61 23 2 Kanarí & Tenerife STÖKKTU Þú bókar STÖKKTU tilboð, tryggir þér flug og gistingu, og við sendum þér svo upplýsingar um gististað 3 dögum fyrir brottför. KANARÍ Frá kr. 89.900 5. febrúar Netverð á mann frá kr. 89.900 m.v. 2 fullorðna í íbúð í 7 nætur. Netverð á mann frá kr. 136.900 m.v. 2 fullorðna í íbúð í 14 nætur. TENERIFE Frá kr.109.900 18. febrúar m/allt innifalið Netverð á mann frá kr. 109.900 m.v. 2 fullorðna og 2 börn með gistingu og allt innifalið í 14 nætur. Netverð á mann frá kr. 139.900 m.v. 2 fullorðna með gistingu og allt innifalið í 14 nætur. 10.000 kr. afsláttur á mann til 10. febrúar á eftirtöldum brottförum KANARÍ Frá kr. 120.600 5./12./19./26. mars & 2. apríl Netverð á mann frá kr. 120.600 m.v. 2 fullorðna og 1 barn á Beverly Park*** í herbergi með hálfu fæði. Netverð á mann frá kr. 135.900 m.v. 2 fullorðna á Beverly Park*** í herbergi með hálfu fæði. 12. mars í 7 nætur með bókunarafslætti. TENERIFE Frá kr. 108.200 18./20. feb. & 4./6./13./18./20./27. mars 2./3. apríl Netverð á mann frá kr. 108.200 m.v. 2 fullorðna og 2 börn á Villa Adeje Beach*** í íbúð m/1 svefnherbergi með allt innifalið. Netverð á mann frá kr. 142.200 m.v. 2 fullorðna á Villa Adeje Beach*** í íbúð m/1 svefnherbergi með allt innifalið. 18. mars í 10 nætur með bókunarafslætti. PÁSKAFERÐ TIL TENERIFE Frá kr. 142.300 m/allt innifalið 14.-23. apríl Netverð á mann frá kr. 142.300 m.v. 2 fullorðna og 2 börn á Isla Bonita**** í herbergi í 9 nætur. Netverð á mann frá kr. 175.900 m.v. 2 fullorðna á Isla Bonita**** í herbergi með allt innifalið í 9 nætur. DANMÖRK Tveir flokkar sitja nú í dönsku minnihlutastjórninni eftir skyndilegt brotthvarf Sósíalíska þjóðarflokksins í gærmorgun. Sósíaldemókratar og frjálslynd- ir hafa samtals aðeins 31 þing- mann á 179 manna þjóðþingi Dan- merkur, en stjórnin nýtur áfram stuðnings bæði Sósíalíska þjóðar- flokksins (SF) og Einingarlistans, sem hefur varið stjórnina falli frá upphafi. Ástæða þess að SF sagði sig úr stjórnarsamstarfinu er gríðar- leg óánægja innan flokksins um sölu á danska olíufélaginu Dong til bandaríska bankans Goldman Sachs og fleiri fjárfesta. Danska þingið samþykkti söluna í gær. „Þetta hefur verið dramatískur sólarhringur. Ég verð að viður- kenna að það var mikill ágrein- ingur í landsforystunni og þing- flokknum. Mér tókst ekki að ná flokknum saman,“ sagði Anette Vilhelmsen, leiðtogi SF, þegar hún tilkynnti um brotthvarfið. Jafnframt tilkynnti hún um afsögn sína sem formaður. Vil- helmsen hafði samþykkt söluna á Dong þrátt fyrir að hafa vitað af mikilli andstöðu meðal flokks- manna sinna. Vilhelmsen segist þó ekki sjá eftir því hvernig hún tók á Dong- málinu: „Það hefur lítinn tilgang að sjá eftir nokkru í pólitík. Það geri ég heldur ekki nú.“ Boðað verður til aukalands- fundar á næstunni til að kjósa formann, en um helgina mun for- ystusveit flokksins hittast til að ræða framtíðina. Pia Olsen Dyhr hefur verið nefnd sem líklegur arftaki Vil- helmsen til formennsku í flokkn- um. „Ég er virkilega ergileg út af því að SF hafi yfirgefið stjórn- ina,“ sagði Helle Thorning- Schmidt forsætisráðherra eftir að Vilhelmsen hafði tilkynnt um brotthvarf flokksins úr stjórn. „SF er miklu betri flokkur en orðsporið, sem af honum fer,“ bætti Thorning-Schmidt við. Auk þess fór hún fögrum orðum um Vilhelmsen: „Hún er ótrúlega hugrakkur stjórnmálamaður.“ Thorning-Schmidt sagði þó skammt í að fyllt yrði upp í þær sex ráðherrastöður, sem losna við brotthvarf samstarfsflokksins. Dong er stærsta orkufyrir- tæki Danmerkur. Goldman Sachs greiðir átta milljónir danskra króna fyrir 19 prósenta hlut í fyrir tækinu. gudsteinn@frettabladid.is Minnihlutastjórnin minnkaði um einn Einn flokkur af þremur sagði sig úr dönsku stjórninni í gær vegna ágreinings um sölu á dönsku olíufyrirtæki til bandarísks banka. Anette Vilhelmsen, leiðtogi Sósíalíska þjóðarflokksins, sagði jafnframt af sér vegna óánægju innan flokksins. ANETTE VILHELMSEN Leiðtogi SF segir gríðarlega óánægju innan flokks síns hafa orðið til þess að henni var ekki sætt lengur í ríkisstjórn. FRÉTTABLAÐIÐ/AP EVRÓPUMÁL Fylgjendur allra stjórnmálaflokka vilja að haldin verði þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald á aðildarviðræðunum við Evrópu- sambandið, samkvæmt könnun sem Maskína gerði fyrir samtökin Já Ísland. Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu á netinu og svöruðu 1.078. Samkvæmt henni vilja 67,5 prósent lands- manna að haldin verði þjóðaratkvæðagreiðsla. Stuðningur við atkvæðagreiðslu er yfirgnæfandi í öllum aldurshópum, en mestur hjá fólki yngra en 25 ára, eða 80,4 prósent. Sé tekið mið af stjórnmálaskoðunum er hlut- fallið hæst meðal þeirra sem segjast myndu kjósa Pírata í næstu kosningum, rúm 77 prósent, en lægsta hlutfallið er í hópi sjálfstæðisfólks þar sem rúm 60 prósent vilja þjóðaratkvæðagreiðslu. Hlutfallið er eilítið hærra hjá framsóknarfólki, tveir af hverjum þremur fylgjendum VG vilja þjóðaratkvæðagreiðslu, 68,3 prósent samfylking- arfólks og 72 prósent þeirra sem segjast myndu kjósa Bjarta framtíð. Þá vekur athygli að meiri- hluti þeirra sem segjast vilja hætta aðildarvið- ræðum alfarið, alls 51,5 prósent, vill fá þjóðar- atkvæðagreiðslu um framhaldið og 60 prósent þeirra sem eru andvígir aðild Íslands að Evrópu- sambandinu. Könnunin fór fram 10. til 20. janúar. - þj Ný skoðanakönnun Maskínu fyrir samtökin Já Ísland varðandi áframhald aðildarviðræðna við ESB: Fylgjendur allra flokka vilja þjóðaratkvæði ÞJÓÐARATKVÆÐAGREIÐSLA Frá kosningunni um Icesave-samninginn árið 2010. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR 1. Hvaða fugl hefur verið alfriðaður á Íslandi frá árinu 1914? 2. Hvað heitir bjórinn sem atvinnu- og nýsköpunarráðherra heimilaði sölu á í síðustu viku? 3. Hvaða þjóð á heimsmet í rauðvíns- drykkju? SVÖR: SVÍÞJÓÐ Hermálanefnd sænska þingsins krefst skýr- inga eftir að sænskur herforingi tjáði sig í fjölmiðl- um um fjölda Afgana, sem fallið hafa fyrir hendi sænskra sérsveitarmanna. Í sunnudagsútgáfu sænska dagblaðsins Dagens Nyheter var haft eftir Urban Mohlin, herforingja í sænska hernum, að tugir andstæðinga hafi fallið í átökum við sænska sérsveitarmenn í Afganistan. Þetta hefur valdið nokkru uppnámi í Svíþjóð, ekki síst vegna þess að árum saman hafa sænskir ráða- menn og sænski herinn forðast að nefna nokkrar tölur um það hve mörgum mönnum sænskir her- menn hafi orðið að bana í Afganistan. Hermálanefndin hefur því ákveðið að kalla Sverk- er Göranson, æðsta yfirmann sænska hersins, á sinn fund. Svenska Dagbladet skýrir síðan frá því í dag að talibanar í Afganistan hafi birt opinber- lega staðfestingar á því að að minnsta kosti tveir liðsmenn úr þeirra röðum hafi fallið í átökum við sænska hermenn. - gb Uppljóstranir sænsks herforingja valda uppnámi í Svíþjóð: Svíar hafa drepið tugi talibana SÆNSKIR HERMENN Í AFGANISTAN Svíar eru enn með 270 manna herlið í Afganistan. FRÉTTABLAÐIÐ/GUÐSTEINN 1. Haförninn 2. Hvalur 3. Kínverjar Ég er virkilega ergileg út af því að SF hafi yfir- gefið stjórnina […] SF er miklu betri flokkur en orð- sporið, sem af honum fer. Helle Thorning-Schmidt, forsætisráðherra Danmerkur. VEISTU SVARIÐ?
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.