Fréttablaðið - 31.01.2014, Page 18

Fréttablaðið - 31.01.2014, Page 18
31. janúar 2014 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | Full ástæða er að vera vel meðvitaður um hugsan- lega hættu af PFC–mengun sem og annarra spilliefna í okkar nærumhverfi, ekki síst vegna daglegra neyslu- venja okkar. Vilhjálmur Ari Arason, heimilislæknir Pappír og umbúðir: Hefur verið notað í ekki síst fyrir þurrmat, frosna matvöru, pitsukassa og örbylgjupopp. „Já, ég held að það sé alveg rétt að Íslendingar eru líklega svipað- ir Norðmönnum hvað þessi meng- unarefni snertir,“ segir Krist- ín Ólafsdóttir, verkefnisstjóri á Rannsóknarstofu í lyfja- og eit- urefnafræði við Háskóla Íslands, spurð hvort nokkur ástæða sé til að halda að niðurstöður rannsókna um magn mengunarefna í Norð- mönnum eigi ekki við á Íslandi. Vísindamenn við Norsku loft- rannsóknastofnunina (NILU) og Tromsö-háskóla (UiT) telja að hvergi á byggðu bóli finnist fleiri mengandi efni í mönnum en í Nor- egi, og geta verið á milli 200 til 400 talsins. Greint var frá rann- sóknum þeirra í dagblaðinu Nor- dlys í Tromsö, en þar í bæ var haldin norðurslóðaráðstefnan Arctic Frontiers í síðustu viku þar sem heilbrigðismál komu mikið við sögu. Eitur Rannsóknin spannar best þekktu eiturefnin; þrávirk lífræn efni eins og ýmis skordýraeitur og önnur varnarefni (DDT) og PCB-efni, mörg hver löngu bönnuð og komin úr notkun. Enn meiri athygli fá lífræn flúorefni (PFC) sem einn- ig skipta hundruðum og eru mikið notuð í iðnaði og á heimilum fólks. Allt eru þetta efni sem hvorki brotna niður í umhverfinu né skilj- ast út úr lífverum og safnast því upp í líkama fólks. Mörg þessara efna eru talin geta truflað horm- ónakerfi mannsins, ónæmiskerf- ið og taugaþroska fóstra í móður- kviði. Þau hafa líka verið tengd ýmsum lífstílssjúkdómum, eins og offitu og sykursýki, auknum sýkingum og ofnæmi. Enn er lítið af þessu þó annað en vísbending- ar hvað manninn snertir, segir Kristín. Efnasúpa Á Íslandi hefur verið fylgst með þrávirkum lífrænum efnum í mönnum í nokkurn tíma. Krist- ín segir að á Rannsóknarstofu í lyfja- og eiturefnafræði við HÍ séu magngreind um 30 til 40 efni í blóði. „En við sjáum miklu fleiri. Mörg efni ráðum við hins vegar ekki við að greina,“ segir Krist- ín en bætir við að von sé á nýju greiningartæki í vor sem muni gefa miklu meiri möguleika. „Hvort efnunum hafi fjölgað frá 1995, þegar ég fyrst greindi efnin, get ég ekki sagt til um, en magn sumra hefur klárlega minnkað, enda hefur notkun margra verið bönnuð í langan tíma og styrkur þeirra í náttúrunni er því hægt á undanhaldi,“ segir Kristín. Eins og áður sagði eru mörg þessara efna talin geta truflað hormónakerfi mannsins, ónæm- iskerfið og taugaþroska fóstra, og tengd ýmsum lífstílssjúkdóm- um. Kristín segir að flestar rann- sóknir hafi aðeins snúist um áhrif eins mengunarefnis í senn, en hún tekur undir orð norsku vísinda- mannanna sem benda á að menn eru að gera sér ljóst að líklega eru það frekar samanlögð áhrif efna- súpunnar sem þarf að skoða, en það er flókið í framkvæmd. Fjársvelti Kristín hefur lengi tekið þátt í starfi AMAP-Human Health hóps- ins [einn af sex undirhópum Norð- urskautsráðsins], en rannsóknir NILU og UiT tengjast að miklu leyti því samstarfi, auk annarra sértækari rannsókna í Norður- Noregi. Upphaflega var AMAP- samstarfið í umboði umhverfis- ráðuneytisins, en frá árinu 2008 hefur Kristín aðeins einu sinni getað sótt fundi hópsins á vegum hins opinbera. Hún hefur því sótt fundina á eigin vegum eða með stuðningi annarra norðurslóða- ríkja sem koma að samstarfinu. „Kanadamenn, Danir með grænlensk sýni, Færeyingar og Norðmenn hafa hins vegar verið mjög öflugir í þessu samstarfi og lagt mikinn pening í það. Líklega hefur hver einasti Færeyingur lagt til blóð, jafnvel oftar en einu sinni í þessar rannsóknir,“ segir Kristín. 665 færeysk börn Birting greinar í tímariti Banda- rísku læknasamtakanna (JAMA) í ársbyrjun 2012 vakti töluverða athygli hér á landi en þar var sýnt fram á fylgni á milli PFC-efna í blóði færeyskra verðandi mæðra og svörunar barna þeirra síðar við ungbarnabólusetningum. Hjá um 40% verðandi mæðra og nýfæddra barna þeirra komu fram há gildi PFC-efna, og var síðar mælt með að börn þeirra mæðra með hæstu gildin fengju auka bólusetningu þar sem þau svöruðu verr hefð- bundnum fjölda bólusetninga með eðlilegri mótefnasvörun (eitt af hverjum tíu þeirra 665 barna sem rannsóknin náði til). Rannsóknin hefði kannski ekki vakið mikla athygli ef ekki hefði verið fyrir skrif Vilhjálms Ara Arasonar heimilislæknis. Málið er alvarlegt að mati Vilhjálms og ógn við lýðheilsu Íslendinga í framtíð- inni. Hann skoraði á heilbrigðisyf- irvöld að vera á varðbergi og fjöl- miðla að kynna málið betur fyrir almenningi. „Full ástæða er að vera vel meðvitaður um hugsanlega hættu af PFC-mengun sem og annarra spilliefna í okkar nærumhverfi, ekki síst vegna daglegra neyslu- venja okkar. Viðkvæmust eru áhrif á frjósemina og þroska fóst- urs, sem og áhrif á ungbörn sem eru að vaxa. Megintilgangur rann- sóknarinnar í JAMA var einmitt að benda á þessa hættu og vekja umræðu. Allra síst ættu verðandi mæður að borða hvalkjöt á með- göngunni (sérstaklega grindhveli) og mikið feitan fisk. Vonandi verða gerðar fleiri rannsóknir til að sanna betur þessi hættulegu tengsl við PFC, sem og tengsl við önnur þrávirk lífræn efni og þung- málma (t.d. kvikasilfur), sem safn- ast fyrir í náttúrunni, mest efst í fæðukeðjunni,“ skrifar Vilhjálm- ur. Hann segir jafnframt í skrifum sínum að ósýnileg lífræn mengun tengist því miður oft hreinustu ímynd okkar af daglegum neyslu- venjum. Hlutum sem við erum í mikilli snertingu við alla daga, t.d. með ýmsum hreinlætisvörum, blautklútum og snyrtivörum, sem og úr neytendapakkningum og plastvörum sem við viljum hafa sem mýkstar og meðfærilegast- ar. Þetta á ekki síst við um nær- umhverfi barna, ungbarnavörur hverskonar, leikföng og jafnvel fatnað. Mikil vitundarvakning hefur engu að síður orðið síðast- liðin ár um óhollustu þessara efna í okkar umhverfi og sem við áður töldum svo örugg. Iðnaðurinn langt á undan Fyrir hálfri öld fundust aðeins fimm til sex spilliefni af þessum toga í mönnum. Hröð þróun í iðn- aði og framleiðsla mörg hundruð ólíkra lífrænna flúorefna (PFC) síðustu 50 árin hefur hins vegar gjörbylt þessari mynd. Í viðtali norska dagblaðsins Nord lys við Eldbjörgu Heimstad, verkefnisstjóra hjá NILU, segir hún að iðnaðurinn sé langt á undan vísindamönnum og eftirlitsaðilar Eiturefnasúpa án innihaldslýsingar Norskir vísindamenn telja að hvergi finnist fleiri eiturefni í mönnum en þar í landi. Íslenskur sérfræðingur telur stöðuna áþekka hér á landi. Kokteill eiturefna er alls staðar í kringum okkur. Efnin eru talin trufla hormónakerfið, ónæmiskerfið og þroska fóstra í móðurkviði. HVALREKI Tugir grindhvala syntu á land á Rifi á Snæfellsnesi í haust. Fjölmargir nýttu tækifærið og náðu sér í bita en Mat- vælastofnun og landlæknir vöruðu fólk við að leggja sér kjötið til munns. Kjöt grindhvala inniheldur mikið magn kvikasilfurs og mjög mikið af díoxíni, PCB-efnum og öðrum þrávirkum lífrænum efnum. Meira að segja Færeyingar hafa varað við neyslu kjöts og spiks frá árinu 2008 vegna þessa. MYND/ÞRÖSTUR ALBERTSSON ■ Lífræn flúorefni (PFC) samanstanda m.a. af PFOS (perfluorooctanesulf- onic acid) og PFOA (Perfluorooctanoic acid). Þessi efni eru manngerð og eru notuð til að gefa ýmsum vörum þá eiginleika að hrinda frá sér bæði vatni og fitu. PFC-efni eru mjög stór og flókinn hópur af lífrænum efnum sem hafa fjölbreytta virkni. ■ Efnin eru víða notuð í iðnaði og á heimilum. Notkun þeirra hefur hingað til verið talin örugg og því verið töluverð. Hins vegar fóru áhyggjur vísindamanna að vakna þegar víðtæk útbreiðsla efnanna uppgötvaðist í umhverfinu. ■ Athygli ESB hefur nú beinst að því að skoða notkun þessara efna og flokkun. OECD hefur til þessa skráð samtals 853 mismunandi flúorefna- sambönd (PFC). Á sama tíma er lítið vitað um uppsprettu efnanna og enn minna um dreifingu þeirra og umhverfisáhrif. ■ Þegar eituráhrifa gætir vegna PFC-efna er sjaldnast einu efni um að kenna, heldur er yfirleitt um blöndu af ýmsum PFC-efnum að ræða í bland við aðra umhverfisþætti. Í framtíðarrannsóknum á PFC-efnum þarf því að leggja áherslu á áhrif blöndunar PFC-efna og afleiður þeirra. Auk þess sem þörf er á viðmiðunarefni til greiningar, gögn um eiturefnafræði og upp- lýsingar um tilvist þeirra í mönnum og umhverfi. Heimild: Matís/ Per and polyfluorinated substances in the Nordic Countries. 853 óvinir sem lítið er vitað um Raftæki: PFC er notað við framleiðslu á ýmsum raftækjum. Eiturefnin leynast alls staðar í kringum okkur Barnavörur: Margar tegundir leikfanga hafa verið meðhöndlaðar með PFC- efnum. Einnig hreingerningarvörur Fatnaður: Vatns- heldur hlífðarfatn- aður og skór hafa nær örugglega verið meðhöndlaðir með PFC-efnum. hafi ekki nokkur tök á því að fylgja hraðri þróun eftir. Þetta á ekki síst við um eftirlit með efnainnihaldi varnings sem kemur frá Asíu. Eins segja vísindamennirnir að með ríkidæmi fylgi flóð neytenda- vöru hvers konar, þar sem eitur- efnin leynast. Því ættu fyrirtæki að bera ríkari ábyrgð á því að til- greina hvað vörur þeirra inni- halda, en Evrópusambandið hefur reynt að taka á þessu í sérstakri löggjöf (REACH). Allir þurfa því að vera meðvitaðir um uppruna og efnasamsetningu þeirrar vöru sem þeir nota, og uppruna matar- ins sem þeir neyta. „Ef ekki fyrir okkur sjálf, þá fyrir börnin okkar,“ segir Eldbjörg. Vanþekking og leyndarmál Yfirlitsskýrsla um PFC-efni og notkun þeirra á norrænum mark- aði sem birt var um mitt ár í fyrra má kalla nýjustu heildstæðu upp- lýsingarnar um þessi eiturefni í náttúrunni sem eru aðgengilegar hér á Íslandi. Skýrslan var unnin af Matís í samstarfi við hóp sér- fræðinga og stofnana á Norður- löndunum. Meginniðurstaðan er einföld. Gögn vantar um stóran hluta PFC- efna á sama tíma og vísbendingar eru um að þau geti valdið alvarleg- um eituráhrifum og skaðað heilsu manna og dýra. Í fáum tilfellum liggja fyrir nákvæmar markaðs- upplýsingar um efnasamsetningu, magn, framleiðslu og notkun efn- anna. Á sama tíma er ekki skylt að birta upplýsingar um tiltekin PFC- efni, samkvæmt gildandi lögum og reglum. Þessar eyður allar eru tilkomnar vegna vanþekkingar og viðskiptaleyndarmála, segir í nið- urstöðukafla. Snyrtivörur: PFC finnst í fjölmörgum snyrtivörum eins og svitalyktareyði Málning og lakk. Hreingerningarvörur. ASKÝRING | 18 RANNSÓKNIR Á EITUREFNUM Í UMHVERFINU Svavar Hávarðsson svavar@frettabladid.is
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.