Fréttablaðið - 31.01.2014, Síða 18
31. janúar 2014 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR |
Full
ástæða er að
vera vel
meðvitaður
um hugsan-
lega hættu af
PFC–mengun
sem og annarra spilliefna í
okkar nærumhverfi, ekki
síst vegna daglegra neyslu-
venja okkar.
Vilhjálmur Ari Arason,
heimilislæknir
Pappír og
umbúðir:
Hefur verið
notað í ekki síst
fyrir þurrmat,
frosna matvöru,
pitsukassa og
örbylgjupopp.
„Já, ég held að það sé alveg rétt
að Íslendingar eru líklega svipað-
ir Norðmönnum hvað þessi meng-
unarefni snertir,“ segir Krist-
ín Ólafsdóttir, verkefnisstjóri á
Rannsóknarstofu í lyfja- og eit-
urefnafræði við Háskóla Íslands,
spurð hvort nokkur ástæða sé til
að halda að niðurstöður rannsókna
um magn mengunarefna í Norð-
mönnum eigi ekki við á Íslandi.
Vísindamenn við Norsku loft-
rannsóknastofnunina (NILU) og
Tromsö-háskóla (UiT) telja að
hvergi á byggðu bóli finnist fleiri
mengandi efni í mönnum en í Nor-
egi, og geta verið á milli 200 til
400 talsins. Greint var frá rann-
sóknum þeirra í dagblaðinu Nor-
dlys í Tromsö, en þar í bæ var
haldin norðurslóðaráðstefnan
Arctic Frontiers í síðustu viku þar
sem heilbrigðismál komu mikið
við sögu.
Eitur
Rannsóknin spannar best þekktu
eiturefnin; þrávirk lífræn efni eins
og ýmis skordýraeitur og önnur
varnarefni (DDT) og PCB-efni,
mörg hver löngu bönnuð og komin
úr notkun. Enn meiri athygli fá
lífræn flúorefni (PFC) sem einn-
ig skipta hundruðum og eru mikið
notuð í iðnaði og á heimilum fólks.
Allt eru þetta efni sem hvorki
brotna niður í umhverfinu né skilj-
ast út úr lífverum og safnast því
upp í líkama fólks. Mörg þessara
efna eru talin geta truflað horm-
ónakerfi mannsins, ónæmiskerf-
ið og taugaþroska fóstra í móður-
kviði. Þau hafa líka verið tengd
ýmsum lífstílssjúkdómum, eins
og offitu og sykursýki, auknum
sýkingum og ofnæmi. Enn er lítið
af þessu þó annað en vísbending-
ar hvað manninn snertir, segir
Kristín.
Efnasúpa
Á Íslandi hefur verið fylgst með
þrávirkum lífrænum efnum í
mönnum í nokkurn tíma. Krist-
ín segir að á Rannsóknarstofu í
lyfja- og eiturefnafræði við HÍ
séu magngreind um 30 til 40 efni
í blóði. „En við sjáum miklu fleiri.
Mörg efni ráðum við hins vegar
ekki við að greina,“ segir Krist-
ín en bætir við að von sé á nýju
greiningartæki í vor sem muni
gefa miklu meiri möguleika.
„Hvort efnunum hafi fjölgað frá
1995, þegar ég fyrst greindi efnin,
get ég ekki sagt til um, en magn
sumra hefur klárlega minnkað,
enda hefur notkun margra verið
bönnuð í langan tíma og styrkur
þeirra í náttúrunni er því hægt á
undanhaldi,“ segir Kristín.
Eins og áður sagði eru mörg
þessara efna talin geta truflað
hormónakerfi mannsins, ónæm-
iskerfið og taugaþroska fóstra,
og tengd ýmsum lífstílssjúkdóm-
um. Kristín segir að flestar rann-
sóknir hafi aðeins snúist um áhrif
eins mengunarefnis í senn, en hún
tekur undir orð norsku vísinda-
mannanna sem benda á að menn
eru að gera sér ljóst að líklega eru
það frekar samanlögð áhrif efna-
súpunnar sem þarf að skoða, en
það er flókið í framkvæmd.
Fjársvelti
Kristín hefur lengi tekið þátt í
starfi AMAP-Human Health hóps-
ins [einn af sex undirhópum Norð-
urskautsráðsins], en rannsóknir
NILU og UiT tengjast að miklu
leyti því samstarfi, auk annarra
sértækari rannsókna í Norður-
Noregi. Upphaflega var AMAP-
samstarfið í umboði umhverfis-
ráðuneytisins, en frá árinu 2008
hefur Kristín aðeins einu sinni
getað sótt fundi hópsins á vegum
hins opinbera. Hún hefur því sótt
fundina á eigin vegum eða með
stuðningi annarra norðurslóða-
ríkja sem koma að samstarfinu.
„Kanadamenn, Danir með
grænlensk sýni, Færeyingar og
Norðmenn hafa hins vegar verið
mjög öflugir í þessu samstarfi og
lagt mikinn pening í það. Líklega
hefur hver einasti Færeyingur
lagt til blóð, jafnvel oftar en einu
sinni í þessar rannsóknir,“ segir
Kristín.
665 færeysk börn
Birting greinar í tímariti Banda-
rísku læknasamtakanna (JAMA)
í ársbyrjun 2012 vakti töluverða
athygli hér á landi en þar var sýnt
fram á fylgni á milli PFC-efna í
blóði færeyskra verðandi mæðra
og svörunar barna þeirra síðar við
ungbarnabólusetningum. Hjá um
40% verðandi mæðra og nýfæddra
barna þeirra komu fram há gildi
PFC-efna, og var síðar mælt með
að börn þeirra mæðra með hæstu
gildin fengju auka bólusetningu
þar sem þau svöruðu verr hefð-
bundnum fjölda bólusetninga með
eðlilegri mótefnasvörun (eitt af
hverjum tíu þeirra 665 barna sem
rannsóknin náði til).
Rannsóknin hefði kannski ekki
vakið mikla athygli ef ekki hefði
verið fyrir skrif Vilhjálms Ara
Arasonar heimilislæknis. Málið er
alvarlegt að mati Vilhjálms og ógn
við lýðheilsu Íslendinga í framtíð-
inni. Hann skoraði á heilbrigðisyf-
irvöld að vera á varðbergi og fjöl-
miðla að kynna málið betur fyrir
almenningi.
„Full ástæða er að vera vel
meðvitaður um hugsanlega hættu
af PFC-mengun sem og annarra
spilliefna í okkar nærumhverfi,
ekki síst vegna daglegra neyslu-
venja okkar. Viðkvæmust eru
áhrif á frjósemina og þroska fóst-
urs, sem og áhrif á ungbörn sem
eru að vaxa. Megintilgangur rann-
sóknarinnar í JAMA var einmitt
að benda á þessa hættu og vekja
umræðu. Allra síst ættu verðandi
mæður að borða hvalkjöt á með-
göngunni (sérstaklega grindhveli)
og mikið feitan fisk. Vonandi
verða gerðar fleiri rannsóknir til
að sanna betur þessi hættulegu
tengsl við PFC, sem og tengsl við
önnur þrávirk lífræn efni og þung-
málma (t.d. kvikasilfur), sem safn-
ast fyrir í náttúrunni, mest efst í
fæðukeðjunni,“ skrifar Vilhjálm-
ur.
Hann segir jafnframt í skrifum
sínum að ósýnileg lífræn mengun
tengist því miður oft hreinustu
ímynd okkar af daglegum neyslu-
venjum. Hlutum sem við erum í
mikilli snertingu við alla daga,
t.d. með ýmsum hreinlætisvörum,
blautklútum og snyrtivörum, sem
og úr neytendapakkningum og
plastvörum sem við viljum hafa
sem mýkstar og meðfærilegast-
ar. Þetta á ekki síst við um nær-
umhverfi barna, ungbarnavörur
hverskonar, leikföng og jafnvel
fatnað. Mikil vitundarvakning
hefur engu að síður orðið síðast-
liðin ár um óhollustu þessara efna
í okkar umhverfi og sem við áður
töldum svo örugg.
Iðnaðurinn langt á undan
Fyrir hálfri öld fundust aðeins
fimm til sex spilliefni af þessum
toga í mönnum. Hröð þróun í iðn-
aði og framleiðsla mörg hundruð
ólíkra lífrænna flúorefna (PFC)
síðustu 50 árin hefur hins vegar
gjörbylt þessari mynd.
Í viðtali norska dagblaðsins
Nord lys við Eldbjörgu Heimstad,
verkefnisstjóra hjá NILU, segir
hún að iðnaðurinn sé langt á undan
vísindamönnum og eftirlitsaðilar
Eiturefnasúpa án innihaldslýsingar
Norskir vísindamenn telja að hvergi finnist fleiri eiturefni í mönnum en þar í landi. Íslenskur sérfræðingur telur stöðuna áþekka hér á
landi. Kokteill eiturefna er alls staðar í kringum okkur. Efnin eru talin trufla hormónakerfið, ónæmiskerfið og þroska fóstra í móðurkviði.
HVALREKI Tugir grindhvala syntu á land á Rifi á Snæfellsnesi í haust. Fjölmargir nýttu tækifærið og náðu sér í bita en Mat-
vælastofnun og landlæknir vöruðu fólk við að leggja sér kjötið til munns. Kjöt grindhvala inniheldur mikið magn kvikasilfurs og
mjög mikið af díoxíni, PCB-efnum og öðrum þrávirkum lífrænum efnum. Meira að segja Færeyingar hafa varað við neyslu kjöts
og spiks frá árinu 2008 vegna þessa. MYND/ÞRÖSTUR ALBERTSSON
■ Lífræn flúorefni (PFC) samanstanda m.a. af PFOS (perfluorooctanesulf-
onic acid) og PFOA (Perfluorooctanoic acid). Þessi efni eru manngerð og
eru notuð til að gefa ýmsum vörum þá eiginleika að hrinda frá sér bæði
vatni og fitu. PFC-efni eru mjög stór og flókinn hópur af lífrænum efnum
sem hafa fjölbreytta virkni.
■ Efnin eru víða notuð í iðnaði og á heimilum. Notkun þeirra hefur hingað til
verið talin örugg og því verið töluverð. Hins vegar fóru áhyggjur vísindamanna
að vakna þegar víðtæk útbreiðsla efnanna uppgötvaðist í umhverfinu.
■ Athygli ESB hefur nú beinst að því að skoða notkun þessara efna og
flokkun. OECD hefur til þessa skráð samtals 853 mismunandi flúorefna-
sambönd (PFC). Á sama tíma er lítið vitað um uppsprettu efnanna og enn
minna um dreifingu þeirra og umhverfisáhrif.
■ Þegar eituráhrifa gætir vegna PFC-efna er sjaldnast einu efni um að
kenna, heldur er yfirleitt um blöndu af ýmsum PFC-efnum að ræða í bland
við aðra umhverfisþætti. Í framtíðarrannsóknum á PFC-efnum þarf því að
leggja áherslu á áhrif blöndunar PFC-efna og afleiður þeirra. Auk þess sem
þörf er á viðmiðunarefni til greiningar, gögn um eiturefnafræði og upp-
lýsingar um tilvist þeirra í mönnum og umhverfi.
Heimild: Matís/ Per and polyfluorinated
substances in the Nordic Countries.
853 óvinir sem lítið er vitað um
Raftæki: PFC
er notað við
framleiðslu
á ýmsum
raftækjum.
Eiturefnin leynast alls staðar í kringum okkur
Barnavörur: Margar tegundir leikfanga
hafa verið meðhöndlaðar með PFC-
efnum. Einnig hreingerningarvörur
Fatnaður: Vatns-
heldur hlífðarfatn-
aður og skór hafa
nær örugglega verið
meðhöndlaðir með
PFC-efnum.
hafi ekki nokkur tök á því að fylgja
hraðri þróun eftir. Þetta á ekki síst
við um eftirlit með efnainnihaldi
varnings sem kemur frá Asíu.
Eins segja vísindamennirnir að
með ríkidæmi fylgi flóð neytenda-
vöru hvers konar, þar sem eitur-
efnin leynast. Því ættu fyrirtæki
að bera ríkari ábyrgð á því að til-
greina hvað vörur þeirra inni-
halda, en Evrópusambandið hefur
reynt að taka á þessu í sérstakri
löggjöf (REACH). Allir þurfa því
að vera meðvitaðir um uppruna
og efnasamsetningu þeirrar vöru
sem þeir nota, og uppruna matar-
ins sem þeir neyta. „Ef ekki fyrir
okkur sjálf, þá fyrir börnin okkar,“
segir Eldbjörg.
Vanþekking og leyndarmál
Yfirlitsskýrsla um PFC-efni og
notkun þeirra á norrænum mark-
aði sem birt var um mitt ár í fyrra
má kalla nýjustu heildstæðu upp-
lýsingarnar um þessi eiturefni í
náttúrunni sem eru aðgengilegar
hér á Íslandi. Skýrslan var unnin
af Matís í samstarfi við hóp sér-
fræðinga og stofnana á Norður-
löndunum.
Meginniðurstaðan er einföld.
Gögn vantar um stóran hluta PFC-
efna á sama tíma og vísbendingar
eru um að þau geti valdið alvarleg-
um eituráhrifum og skaðað heilsu
manna og dýra. Í fáum tilfellum
liggja fyrir nákvæmar markaðs-
upplýsingar um efnasamsetningu,
magn, framleiðslu og notkun efn-
anna. Á sama tíma er ekki skylt að
birta upplýsingar um tiltekin PFC-
efni, samkvæmt gildandi lögum
og reglum. Þessar eyður allar eru
tilkomnar vegna vanþekkingar og
viðskiptaleyndarmála, segir í nið-
urstöðukafla.
Snyrtivörur:
PFC finnst í
fjölmörgum
snyrtivörum eins
og svitalyktareyði
Málning og lakk.
Hreingerningarvörur.
ASKÝRING | 18
RANNSÓKNIR Á EITUREFNUM Í UMHVERFINU
Svavar
Hávarðsson
svavar@frettabladid.is