Fréttablaðið - 31.01.2014, Page 20
31. janúar 2014 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 20
UMHVERFISMÁL „Ef ekki er grip-
ið inn í með fækkunaraðgerðum
af einhverju tagi þá er allmik-
il hætta á að fjölgun kanína nái
því stigi að tjón af þeirra völdum
verði mikið og útbreitt,“ segja
fulltrúar umhverfissviða allra
sveitarfélaganna sex á höfuð-
borgarsvæðinu í sameiginlegri
ályktun.
Fulltrúarnir segja villtar kan-
ínur á allmörgum stöðum á höfuð-
borgarsvæðinu og í öllum sveitar-
félögunum nema Seltjarnarnesi.
Útbreiðslan hafi aukist verulega
á síðustu árum, einkum á gróður-
sælum stöðum þar sem garðyrkja
og skógrækt fari fram. Með hlýn-
andi loftslagi aukist líkur á að
viðvarandi stofn styrkist mjög á
næstu árum. Kanínur valda tölu-
verðu tjóni á gróðri eins og garð-
eigendur verðir varir við í vax-
andi mæli. Eins skapist töluverð
slysahætta þegar kanínur hlaupa
yfir götu.
„Þá eru vistfræðileg rök fyrir
því að kanínur eigi ekki heima í
íslenskri náttúru enda eru þær
skráðar hérlendis sem mögulega
ágeng framandi tegund sem gæti
raskað jafnvægi íslenskra vist-
kerfa og að mati Náttúrufræði-
stofnunar Íslands ber að útrýma
þeim eða að minnsta kosti hafa
mjög stranga stjórn á stofnstærð
þeirra,“ segja fulltrúarnir.
Fram kemur að þótt vanda-
mál og tjón sem fylgi kanínunum
sé oftast staðbundið sé ljóst að
útbreiðsla þeirra sé að aukast. „Ef
ekki er gripið inn í með fækkun-
araðgerðum af einhverju tagi þá
er allmikil hætta á að fjölgun kan-
ína nái því stigi að tjón af þeirra
völdum verði mikið og útbreitt.
Því mun fylgja töluverður kostn-
aður fyrir sveitarfélögin,“ segja
fulltrúarnir sem telja skynsam-
legt að íhuga af alvöru hvort ráð-
ast eigi í umtalsverðar fækkunar-
aðgerðir á höfuðborgarsvæðinu
öllu. „Og þá fyrr en seinna áður
en vandamálið stigmagnast.“
Fulltrúarnir leggja til að kan-
ínur sé fjarlægðar af stórum hluta
útbreiðslusvæðis þeirra, sérstak-
lega þar sem þéttleiki þeirra sé
mjög mikill, mikil hætta á tjóni og
þar sem mest hætta er á að þær
dreifi sér til nálægra svæða. Þeir
benda þó á að kanínur eru friðað-
ar samkvæmt lögum um veiðar
og vernd villtra dýra. Því þurfi
að sækja um leyfi til umhverfis-
ráðuneytisins fyrir fækkunarað-
gerðum.
„Jafnframt álykta undirrit-
aðir að nauðsynlegt er að upp-
lýsa almenning um að ekki skuli
sleppa gælukanínum út í náttúr-
una.
Það sé kanínunum ekki til fram-
dráttar því margar þeirra lifa
ekki af veturna. Því varðar þetta
mál einnig velferð þessara gælu-
dýra,“ segja fulltrúarnir og vísa
til þess að lög um velferð dýra
sem tóku gildi um áramótin segi
að með öllu sé óheimilt að sleppa
dýrum sem hafa alist upp hjá
mönnum út í náttúruna í þeim til-
gangi að þau verði þar til fram-
búðar.
„Með því að leggja áherslu á að
um lögbrot sé að ræða gæti það
aðstoðað við að draga úr því að
kanínueigendur sleppi þeim laus-
um,“ segir í ályktun sexmenning-
anna sem kveða málið viðkvæmt
því mörgum líki vel við þá hug-
mynd að hafa kanínur villtar eða
hálfvilltar á útivistarsvæðum í
þéttbýlinu.
„Engu að síður er það fag-
leg ályktun undirritaðra að ekki
sé hægt að horfa fram hjá þeim
rökum sem hér hafa verið nefnd
sem styðja fækkunaraðgerðir.“
gar@frettabladid.is
Stórtjón í uppsiglingu
nema kanínum fækki
Fulltrúar umhverfissviða á höfuðborgarsvæðinu vara við miklu og útbreiddu tjóni
vegna fjölgunar villtra kanína. Ráðast þurfi í umtalsverðar fækkunaraðgerðir.
Kanínur séu friðaðar en Náttúrufræðistofnun Íslands vilji að þeim sér útrýmt.
KANÍNUR Í ELLIÐAÁRDAL Í öllum sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins nema Seltjarnarnesi eru nú villtar kanínur. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
HEILBRIGÐISMÁL Rúmlega hundrað
nýjum og rafvæddum sjúkrarúmum
hefur verið dreift á allar legudeild-
ir Landspítalans. Minningargjafa-
sjóður Landspítalans gaf 55 milljón-
ir í endurnýjun rúma, sem sum hver
voru orðin hátt í fjörutíu ára gömul.
Auk almennra sjúkrarúma, voru
keypt tvö rúm fyrir of þunga sjúk-
linga og tvö gjörgæslurúm af full-
komnustu gerð.
„Á spítalanum var ansi mikið af
fótstignum sjúkrarúmum, sem við
gátum nú skipt út af legudeildun-
um,“ segir Vigdís Hallgrímsdótt-
ir, verkefnastjóri. Hún segir raf-
vædd rúm minnka líkamlegt álag á
starfsfólk sem hingað til hefur þurft
að beita líkamsafli til þess að stilla
elstu rúmin. Þá geri rúmin sjúkling-
um auðveldara fyrir þar sem hægt
er að breyta þeim í stól og lækka
þau mikið ef erfitt reynist að kom-
ast fram úr.
Vigdís segir að hægt hafi geng-
ið að skipta út rúmum á sjúkrahús-
inu og að svo mikil endurnýjun hafi
ekki orðið síðan árið 2001. - eb
Minningarsjóður Landspítalans styrkti kaup á rafvæddum sjúkrarúmum:
Hundrað ný rúm á legudeildir Landspítala
SJÚKRARÚM Nýju rúmin eru rafdrifin. MYND/JÓN BALDVIN HALLDÓRSSON
REYKJAVÍK Leiksvæði í Hljómskála-
garðinum hefur verið betrumbætt
og endurnýjað með nýjum leiktækj-
um. Verkefnið var valið í kosning-
unni Betri hverfi í fyrra, en leik-
svæðið hefur verið vinsælt meðal
hópa og fjölskyldufólks. Fyrir utan
ný leiktæki hefur verið sett nýtt
gervigras og undir því eru mjúkar
mottur sem fallundirlag.
Umgjörð og frágangur er miðað-
ur að því að svæðið sé aðgengilegt
og öruggt í anda leiksvæðastefnu
og með þarfir yngra barna að leið-
arljósi. - ebg
Breytingar á leiksvæði í Hljómskálagarðinum:
Ný leiktæki sett upp
í miðbæ Reykjavíkur
LEIKTÆKI Fjölskyldur og hópar nýta sér
oft leiksvæðið í Hljómskálagarðinum.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
SVEITARSTJÓRN-
ARMÁL Fimm
oddvitar í sveit-
arstjórnum á
Suðurlandi hafa
tilkynnt að þeir
muni ekki bjóða
sig fram aftur
fyrir sinn flokk
í sveitarstjórn-
arkosningunum
sem fram fara í vor, 31. maí.
Ekki hefur verið gengið frá list-
um alls staðar og því ekki loku
fyrir það skotið að fleiri eigi eftir
að bætast í hópinn í umdæminu.
Forsvarsmenn flokkanna sem
um ræðir eru Drífa Kristjánsdóttir,
oddviti Bláskógabyggðar, Ragnar
Magnússon, oddviti Hrunamanna-
hrepps, Aðalsteinn Sveinsson, odd-
viti Flóahrepps, Haukur Kristjáns-
son, oddviti í Rangárþingi eystra og
Guðmundur Ingi Ingason, oddviti
Skaftárhrepps. - óká
GUÐMUNDUR
INGI INGASON
HAUKUR
KRISTJÁNSSON
AÐALSTEINN
SVEINSSON
RAGNAR
MAGNÚSSON
DRÍFA KRIST-
JÁNSDÓTTIR
Bjóða sig ekki aftur fram í kosningum í vor:
Fimm oddvitar
hætta á Suðurlandi
SVEITARSTJÓRNARMÁL Íbúar
Grímsnes- og Grafningshrepps
hafa fengið viðbótarhvatningu til
að taka á því og koma sér í gott
form á nýju ári.
Sveitarstjórn hefur samþykkt
að öllum íbúum með lögheimili
í sveitarfélaginu verði boðið að
kaupa árskort í sund, þreksal og
íþróttasalinn á Borg fyrir átta
þúsund krónur. Þá greiða börn
frá sjö og upp í sautján ára bara
3.500 krónur fyrir sömu þjón-
ustu. - óká
Bætt heilsufar í Grímsnesi:
Íbúar fá líkams-
ræktarstyrki
STJÓRNSÝSLA Kærunefnd útboðsmála hefur stöðvað um stundarsakir
kaup Akureyrarbæjar á 99 milljóna króna vatnsrennibraut. Fram kemur
í umfjöllun kærunefndarinnar að þrjú fyrirtæki hafi sent bænum verð á
rennibraut í könnun sem bærinn hafi gert hjá átta fyrirtækjum.
Eitt félagið sem ekki fékk samninginn, Spennandi ehf., kærði ferlið á
þeim grundvelli að fara hefði átt með innkaupin samkvæmt reglum um
opinber útboð. Kærunefndin tekur undir það sjónarmið. - gar
Akureyrarbær kærður til kærunefndar útboðsmála:
Stöðva kaup á vatnsrennibraut
SUNDLAUG AKUREYRAR Bæta á við vatnsrennibraut. FRÉTTABLAÐIÐ/TEITUR
Með því að leggja
áherslu á að um lögbrot
sé að ræða gæti það að-
stoðað við að draga úr því
að kanínueigendur sleppi
þeim lausum.
Fulltrúar umhverfissviða
sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.