Fréttablaðið - 31.01.2014, Page 30

Fréttablaðið - 31.01.2014, Page 30
31. janúar 2014 FÖSTUDAGUR| SKOÐUN | 30 Í Fréttablaðinu 24. janúar sl. er sagt frá því að Mjólk- ursamsalan hafi uppi áætl- anir um að framleiða skyr í Bandaríkjum Norður- Ameríku og nota til þess íslenskt undanrennuduft. Útflutningsverð Á fundi Félags kúa- bænda á Suðurlandi 3/10/2012 upplýsti for- stjóri MS félagsmenn um að útflutt undanrennuduft væri selt á heimsmarkaðsverði en undanrenna flutt út í formi skyrs til Norðurlanda skilaði allt að 50% hærra verði (http://www. naut.is/fundargerdir/nr/16405/). Við fyrstu sýn virðist því skyn- samlegt frá sjónarhóli MS að auka skyrútflutning og draga úr útflutningi undanrennudufts. Heimsmarkaðsverð á undan- rennudufti er nú óvenju hátt eða um 3.400 til 3.500 evrur á tonnið. Meðalverð á árinu 2013 var um 3.000 evrur tonnið eða um 530 krónur á kílóið. Verð í USA virð- ist heldur lægra en Evrópuverð. Af undanrennudufti sem flutt er til USA þarf að borga 10-15% toll. Skilaverð á undanrennudufti sem MS flytti út til USA og seldi á búvörumarkaði þar væri því um 420 krónur á kílóið. Aðstæður á markaði fyrir skyr á Bandaríkjamarkaði eru talsvert aðrar en á Norðurlöndum. Á Norð- urlöndum situr MS og samstarfs- aðilar ein að markaðnum og geta hagað verðlagningu skyrs í sam- ræmi við þá staðreynd. Í Banda- ríkjunum er fyrir framleiðandi sem framleiðir skyr úr banda- rísku hráefni og dreifir til smá- söluaðila. Vegna þessarar sam- keppni getur MS ekki reiknað með að verð á undanrennu í formi skyrs á Bandaríkjamarkaði verði hærra en verð á undanrennu í duftformi, þ.e.a.s. að skilaverð til Íslands verði ríflega 400 krónur á kílóið af undanrennudufti. Innanlandsverð Verðlagsnefnd búvöru ákvarðar heildsöluverð á undanrennudufti. Mjólk- urvöruframleiðendur (hugsanlegir samkeppnisaðil- ar MS) fá undanrennuduft á 758 krónur á kíló, aðrir matvæla- framleiðendur fá undanrennu- duftið á 645 krónur á kíló. Í þeim tilvikum að MS kaupi undan- rennuduft af sér sjálfri er hærri talan lögð til grundvallar (http:// www.samkeppni.is/media/sam- keppniseftirlit/akvardanir/2006/ akvordun39_2006_erindi_mjolku_ ehf_vegna_osta-_og_smjorsol- unnar.pdf). Leiða má að því líkur að framleiðslukostnaður undan- rennudufts sé nálægt 700 krón- um á kíló. Skyrinu slett í USA Fyrirsjáanlegt tap MS af því að flytja hvert kíló undanrennu- dufts til Bandaríkjanna er um 300 krónur á kíló. Þá á eftir að fjármagna tæki og markaðssetn- ingu sem hleypur á milljónum dollara. Yfirgnæfandi líkur eru á að MS þyrfti að leggja fé til skyr- framleiðslunnar í USA í stað þess að hafa tekjur af þeirri fram- leiðslu. Þegar til lengri tíma er litið eru aðeins tvær leiðir fyrir MS til að fjármagna slíkan tap- rekstur: annaðhvort með því að lækka verð til bænda eða með því að hækka verð á mjólkurvör- um til neytenda. Lauslega áætlað tap hleypur á tugum til hundraða milljóna króna á ári. Ætli reynsl- an kenni ekki að neytendur muni sitja uppi með reikninginn fyrir skyraustur MS í USA ef af verð- ur? Skyrinu slett á annarra kostnað? Á sunnudaginn lá leið mín í Gálgahraunið til að berja augum hraunflákana sem fjaðrafokið hefur staðið um. Mig langaði að skoða þetta svæði sem öldungar höfuðborgarinnar hafa lagt sig í líma við að vernda. Eftir að hafa horft á frétt- ir af lögreglu að bera silf- urhært fólki af vettvangi mótmæla og hlustað á frétt- ir af lögsóknum á hendur hinum öldruðu langaði mig til að vita um hvað þessi styr stæði. Eiga Íslendingar ekki nóg af hrauni? Skilti sem á stend- ur Óviðkomandi bannaður aðgang- ur vísar leiðina, ég ákvað að þetta svæði væri mér viðkomandi og steig yfir það. Breiður vegur ligg- ur í gegn um hraunið í Garðabæ en rétt áður en komið er að hraunklasa sem minnir á ævintýrahöll úr álfa- sögum hefur hann ekki enn verið breikkaður. Stutt frá er reisulegur, stórbrotinn þríhyrningslaga klett- ur, þetta er augljóslega álfakirkjan. Sorglegir fánar blakta í vindinum, minnismerki burt bornu öldung- anna. Ég stend á gulri þúfu framan við álfakirkjuna og halla aftur aug- unum. Töfrar liggja í loftinu, helgi álfakirkjunnar gagntekur mig, á svipaðan hátt og ég verð bergnum- in í Skálholtskirkju. Í loftinu liggur blessun. Ég arka hugfangin áfram á milli tveggja stórra hraunstapa sem standa tryggir eins og vernd- arvættir. Skyndilega breytist umhverfið, ég er aftur stödd í Garðabæ, heyri umferðarniðinn og sé ömurlegan skurð á landinu. Uppbrot er á þeim stað sem Kjarval dáði og opin- beraði fegurð hraunsins í málverk- um sínum. Til að geta myndað sér skoð- un um þennan stað þarf að fara á hann. Ég skora á þig að gera það. Ekki til að upplifa sorg yfir for- gengileika náttúrunnar í höndum ráðandi stjórnenda heldur til að vita hvað við enn eigum. Enn stend- ur álfakirkjan, enn er möguleiki á breytingum áætlana, enn er hægt að hliðra veginum fram hjá þess- um náttúruminjum og útbúa göngu- stíga þar sem skörðin eru um þessa hraunþyrpingu. Ef það yrði gert kæmist þá Garðabær á kort ferða- manna? Myndi sérhver erlendur ferðamaður vilja skoða það fyrir- brigði sem Íslendingar meta að verðleikum, hina stórbrotnu nátt- úru á borgarsvæðinu? Eigum við að valta yfir hraunið, eigum við að láta það í friði, eigum við að láta minnisvarða um breytt hugarfar verða að eftirsóknarverðum segli? Hvers virði er helgi náttúrunnar? Enn stendur álfakirkjan Ég set niður þessi orð að gefnu tilefni. Í fámenninu hér á landi telur fólk sig vita stjórn- málaskoðanir annarra og jafnvel afstöðu til ein- stakra mála, án þess að hafa nokkurn tíma hitt viðkomandi. Við erum öll dregin í dilka, jafnvel þó að við höfum ekkert ákveðið mark í eyra. Ég er óflokks- bundin og hef aldrei komið nálægt starfi stjórnmálaflokks, en ég neyti að sjálfsögðu kosningar- réttar míns. Þetta er mitt val, en þar með er ekki sagt að ég sé skoð- analaus eða áhugalaus um þjóð- félagsmál eða að ég geri lítið úr hæfni þeirra sem helga sig stjórn- málum. Þvert á móti. Ég hef alltaf haft brennandi skoðanir á málefn- um líðandi stundar, á stjórnmálum og ekki síður þeim flóknu áskor- unum sem blasa við samfélagi okkar í dag. En ég hef einfaldlega hvorki skaplyndi né falla skoðanir mínar í svo einhlítan farveg að ég geti bundið trúss mitt við stefnu eins stjórnmálaflokks fremur en annars. Síðustu ár hafa aukinheld- ur sýnt að það eru fleiri og jafn- vel áhrifaríkari leiðir til að hafa áhrif á samfélag sitt en að vera í flokkspólitík, og því hef ég fagnað því þegar mér hefur verið treyst fyrir stefnumótandi verkefnum í samfélaginu. Lykilatriði Ég gegni tveimur trúnað- arstörfum nú um stundir, annars vegar er ég for- maður vísindanefndar Vísinda- og tækniráðs, skipuð af Katrínu Jak- obsdóttur, og hins vegar er ég í stjórn Ríkisútvarpsins, tilnefnd af Illuga Gunnarssyni. Ég hef verið beðin að taka að mér þessi mikilvægu störf af ráðherrum í tveimur ólíkum flokkum vegna starfsreynslu minnar og mennt- unar, og ég hef gengið til þeirra af trúnaði gagnvart þeim sem ég starfa fyrir, sem eru vitaskuld skattgreiðendur. Umræðan á Alþingi um skipun í stjórn Ríkisútvarpsins fælir fólk eins og mig frá því að gefa kost á sér í störf þar sem flokksleg- ur stimpill virðist skipta megin- máli, þó að verkefnin snúist fyrst og fremst um faglega vinnu og breitt samstarf. Það er lykilatriði að Alþingi og stjórnvöld almennt hugi ekki aðeins að nákvæmum prósentureikningi svokallaðs minni- og meirihluta heldur leit- ist markvisst við að laða breiðan hóp fagmanna að trúnaðarstörf- um í samfélaginu. Það var sannarlega mikil gæfa að allir flokkar áttu fulltrúa í stjórn Ríkisútvarpsins á síðustu mánuðum, þegar miklir erfiðleik- ar blöstu við stofnuninni. Stjórn- armenn stóðu þá þétt saman og störfuðu ekki á forsendum stjórn- armeirihluta eða minnihluta, heldur með hag Ríkisútvarpsins að leiðarljósi. Sú eindrægni og fagmennska kom vel í ljós þegar stjórnin tók samhljóða ákvörðun um ráðningu nýs útvarpsstjóra. Meðal annars af þeirri ástæðu er það dapurlegt að Pétur Gunnars- son rithöfundur skuli ekki lengur eiga sæti í stjórn Ríkisútvarpsins. Að gefnu tilefni Alþingi hefur nú tekið til umfjöllunar flutning á raforku og flutnings- kerfi sérstaklega með tilliti til notkunar jarð- strengja. Rétt er því að halda til haga hversu hratt hefur molnað undan málflutningi Landsnets í umræðunni um flutnings- kerfi raforku á undanförn- um mánuðum. Það verður að horfa á staðhæf- ingar og síendurteknar upphróp- anir forsvarsmanna Landsnets, einkafyrirtækis með einokun á flutningi raforku á Íslandi, í ljósi þeirrar staðreyndar að þeir hafa hver um annan orðið uppvísir að því að stórýkja mun á kostnaði við lagningu raflína í jörð eða í lofti. Staðfest hefur verið að munurinn er ekki fimm- til nífaldur eins og talsmenn Landsnets héldu fram síðast í janúar 2013 heldur er hann óverulegur. Þetta hefur ítrekað komið fram og síðast nú í lok síðasta árs þegar kynnt var athugun verkfræðinga sem að beiðni Landsnets skoðuðu mun á kostnaði við jarðstrengi og loftlínur. Komust þeir að þeirri niðurstöðu að beinn kostnaðar- munur væri svona álíka og munur á kostnaði við að reisa 220 kV loft- línu samanborið við að reisa 132 kV línu sem bæði Landsnet og Orkustofnun hafa talið óveruleg- an. Forsvarsmenn Landsnets geta því varla haldið þessum málflutningi til streitu. Það stendur enda heima að strax er farið að halda á lofti þeirri stefnu fyrir- tækisins að byggja fáar og öflugar línur af því að stjórn Landsnets telji það svo gott fyrir umhverf- ið og stefnu fyrirtækis- ins varðandi notkun jarð- strengja sem hefur verið óbreytt frá stofnun þess. Öll nema Landsnet Sú mantra er einnig tuggin ítrekað að horfa þurfi langt fram í tímann og gera ráð fyrir alls kyns hugs- anlegri og óhugsanlegri stóriðju á víð og dreif um landið. Mikil er spádómsgáfa forsvarsmanna fyr- irtækisins sem telja sig geta sagt til um hvernig umhorfs verður á Íslandi, jafnvel í heiminum öllum eftir hundrað ár. Í umræðu um jarðstrengi er rétt að hafa í huga að jarðstrengja- nefndin sem svo hefur verið köll- uð hafnaði alfarið stefnu Lands- nets í jarðstrengjamálum svo sem fram kemur í gögnum hennar, en forstjórinn gerði stefnu Landsnets að sinni tillögu að lokaniðurstöðu nefndarinnar. Ekkert af tillögum hans rataði í sameiginlega niður- stöðu nefndarinnar. Til eru alþjóðleg samtök sem fjalla um flutningskerfi raforku og jarðkapla. Þessi samtök, Jicable, halda reglulega ráðstefnur þar sem farið er yfir þróun og áherslur í flutningskerfum og þróun í jarð- strengjum. Þessar ráðstefnur sækja öll helstu flutningsfyrir- tæki í heiminum, þar á meðal hið norska, danska og önnur evrópsk – nema Landsnet. Margt merkilegt kemur sam- kvæmt skýrslum fram á þessum ráðstefnum og má nefna umræðu um gagnsemi þess að að rýna í óendanleikann og þörfina á nýrri nálgun í hugsun við hönnun og útfærslu flutingnsneta, þar sem spurningar eru settar við hvort sé endilega hagstæðast að hafa fáar og stórar línur og hitt að telja sig geta spáð fyrir um umhverfið og afstöðu almennings eftir 70 ár eða meir. Þessar spurningar hafa greinilega ekki náð eyrum tals- manna Landsnets. Þeim er kannski nokkur vor- kunn. Erfitt er að fóta sig þegar veröldin hrynur og hvert hald- reipið eftir annað hefur brostið. Því er hangið á afdankaðri hug- myndafræði síðustu aldar – eins og hundur á roði. Eins og hundur á roði Hörmuleg dauðaslys í umferðinni undanfarnar vikur vekja til umhugsun- ar um ástand þjóðvega á Íslandi. Fjögur ungmenni hafa látið lífið þegar bílar úr gagnstæðri átt skullu saman. Ef bílunum hefði verið ekið á svokölluðum 2+1 vegi með vegriði á milli akbrauta í gagnstæða átt er líklegt að afleiðing- ar slysanna hefðu orðið allt aðrar. Ég minnist þess að árið 2006 voru uppi áætlanir um svokall- aða 2+1 vegi á helstu þjóðbraut- um út frá Reykjavík. Þrýstingur hagsmunaaðila og kjördæmapot- ara varð til þess að ákveðið var að leggja áherslu í staðinn á tvöföldun vega – illu heilli. Svo varð hrun og engir peningar til að leggja slíka lúxusvegi. 2+1 vegir í útlöndum hafa sannað gildi sitt sem fyrirbyggjandi mannvirki til að fækka dauðaslysum í umferðinni. Í sænska tímaritinu Motor kemur fram það mat sérfræð- inga að á árunum 2000 til 2012 hafi 2+1 vegir með milliveg riði bjargað 600 mannslífum og um það bil 10.000 manns frá annars konar alvarlegum slysum. Talið er að það kosti einn tutt- ugasta af verði tvöfaldrar hrað- brautar að breyta 13 metra breið- um vegi í 2+1 veg. Þannig er þetta tiltölulega ódýr aðferð til að fækka banaslysum á vegum landsins. 2+1 vegir eru ekki gallalaus- ir. Snjóruðningstæki geta tafið umferð. Í þungri færð að vetri til geta sjúkrabílar og löregla átt í erfiðleikum með að komast á slys- stað. Mótorhjólamenn verða að gæta sín og draga úr hraða. Þeir sem eru að flýta sér geta þurft að draga úr hraða tímabundið. Fyrir mér er það nú bara kostur. Þess má geta að á góðum 2+1 vegum í Sví- þjóð er hámarkshraði sums staðar 120 km á klukkustund. Íslensk stjórnvöld eru hvött til að fjölga 2+1 vegum á Íslandi til að fækka alvarlegum umferðar- slysum. 2+1 = fjöldi mannslífa LANDBÚNAÐUR Þórólfur Matthíasson hagfræðiprófessor ➜ Fyrirsjáanlegt tap MS af að fl ytja hvert kíló undanrennudufts til Bandaríkjanna er um 300 krónur á kíló. NÁTTÚRU- VERND Steinunn Anna Gunnlaugsdóttir sjálfstæður atvinnu- rekandi ➜ Skyndilega breytist umhverfi ð, ég er aftur stödd í Garðabæ, heyri umferðarniðinn og sé ömurlegan skurð á landinu. Upp- brot er á þeim stað sem Kjarval dáði og opinberaði fegurð hraunsins í mál- verkum sínum. UMFERÐ Ingimundur Gíslason augnlæknir ➜ Ég minnist þess að árið 2006 voru uppi áætlanir um svokallaða 2+1 vegi á helstu þjóðbrautum út frá Reykja- vík. Þrýstingur hagsmuna- aðila og kjördæmapotara varð til þess að ákveðið var að leggja áherslu í staðinn á tvöföldun vega – illu heilli. ORKUMÁL Ólafur Valsson ráðgjafi ➜ Sú mantra er einnig tuggin ítrekað að horfa þurfi langt fram í tímann og gera ráð fyrir alls kyns hugsan- legri og óhugsanlegri stóriðju á víð og dreif um landið. RÍKISÚTVARPIÐ Guðrún Nordal situr í stjórn Ríkis- útvarpsins ➜ Umræðan á Alþingi um skipun í stjórn Ríkisútvarps- ins fælir fólk eins og mig frá því að gefa kost á sér í störf þar sem fl okkslegur stimpill virðist skipta meginmáli, þó að verkefnin snúist fyrst og fremst um faglega vinnu og breitt samstarf.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.