Fréttablaðið - 31.01.2014, Qupperneq 42
FRÉTTABLAÐIÐ Fólk & List. Förðun & Hönnun. Tíska & Verslun. María Lovísa Árnadóttir. Uppáhaldshlutirnir. Netverslun. Helgarmaturinn & Spjörunum Úr.
2 • LÍFIÐ 31. JANÚAR 2014
HVERJIR
HVAR?
Umsjón blaðsins
Marín Manda Magnúsdóttir
marinmanda@frettabladid.is
Umsjón Lífsins á Vísir.is
Ellý Ármanns
elly@365.is
Útgáfufélag
365 miðlar ehf.
Forsíðumynd
Stefán Karlsson
Auglýsingar
Atli Bergmann
atlib@365.is
Hönnun
Silja Ástþórsdóttir
siljaa@frettabladid.is
Lífið
Skaftahlíð 24,
105 Reykjavík,
sími 512 5000
www.visir.is/lifid
Lífi ð
Hamingja, fólk og
annað frábært
Mariko Margrét Ragnarsdóttir og Unnur Ýrr Helgadóttir.
Vekjum upp líkamsvitundina og
uppskerum betri líkamsstöðu, aukinn
styrk og betra jafnvægi til að takast á
við daglegt amstur.
e st 5. ó e be
Þri. og fim. kl. 12:00-13:00
Kennari: Gyða Dís
Verð kr. 13.900.-
Jóga
H f 4. febrúar n v m H
arpa Einarsdótt-
ir hönnuður leggur
nú lokahönd á fata-
línu Zisku. Hún ætlar
sér stóra hluti í tísku-
heiminum með nýráðinn fram-
kvæmdastjóra sem á helmings-
hlut í fyrirtækinu hennar.
„Það eru búnar að vera mikl-
ar sviptingar með Zisku undan-
farið. Núna loksins eru hlutirnir
að taka á sig rétta mynd. Ég var
að ljúka við að hanna stærstu
og já, ég held að það sé óhætt
að segja langflottustu Ziska-
línuna hingað til. Hún verður
sýnd á RFF í lok mars og þá um
leið verður opnuð ný heimasíða
þar sem nýja línan verður seld
á Ziska.is. Þetta „collection“ er
innblásið af mongólskum arnar-
veiðimönnum sem ríða um slétt-
urnar á fákum sínum með risa-
stóra erni sem fljúga með þeim
og veiða fyrir þá í soðið,“ segir
Harpa sem fer á tískuvikuna í
New York 4. febrúar næstkom-
andi.
„Ég fer á tískuvikuna í New
York til að sjá og sýna mig og
vonandi landa nýjum kúnn-
um og styrkja tengsl sem þegar
hafa myndast,“ segir Harpa.
Spurð um rekstur vörumerk-
isins Zisku: „Ég hef nú slitið
samstarfi við Helgu Olafsson
og Lastashop vegna ólíkra
áherslna með Zisku en ég
er mjög þakklát fyrir þann
tíma sem við unnum saman
og ég óska henni allrar lukku
með Lastashop og markaðs-
setningu íslenskrar hönnunar í
Los Angeles. Það gleður mig að
segja frá því að það er kominn
nýr framkvæmdastjóri í Zisku
sem á nú helmingshlut í fyrir-
tækinu. Hún heitir Nana Alf-
reds og er að koma inn með fít-
onskraft og saman ætlum við að
sigra tískuheiminn. Við erum
samstíga alla leið og Ziska-æv-
intýrið er bara rétt að byrja,“
segir Harpa.
Margar öflugar konur mættu til að vera við-
staddar viðurkenningarhátíð FKA sem
fram fór í tónlistar- og ráðstefnuhús-
inu Hörpu í gærkvöldi. Í framhaldinu
var farið upp á veitingahúsið Kolabraut
þar sem Liv Bergþórsdóttir, forstjóri
Nova, sem fékk FKA-viðurkenninguna,
fagnaði. Þá fagnaði Rakel Sölva-
dóttir hvatningarverðlauna-
hafi með SKEMA teyminu
sínu. Einnig mættu Guð-
rún Ragna Garðarsdóttir,
forstjóri Atlantsolíu, Ingi-
björg Steinunn Ingjaldsdóttir,
eigandi Prentmets, Katrín S. Óla-
dóttir, frá Hagvangi, Þórdís Lóa
Þórhallsdóttir, hjá Pizza Hut,
Margrét Kristmannsdóttir, for-
stjóri Pfaff og Hulda Bjarna-
dóttir, framkvæmdastjóri FKA
og útvarpskona á Bylgjunni.
H
ugmyndin var að
skapa list sem um
leið nýtist á heim-
ilinu,“ segir Unnur
Ýrr Helgadóttir um
bakkann sem ber heitið „Sveit-
in mín“. „Mariko Margrét Ragn-
arsdóttir leitaði til mín með hug-
mynd að bakka með íslensku
þema þar sem hún hafði séð verk
eftir mig sem var einmitt mynd
af íslenskri kind í lopapeysu. Það
ríkir mikil bakkastemning í Sví-
þjóð þar sem við erum báðar bú-
settar og Svíar nota bakka mikið
til að bera fram ýmislegt sem og
til skrauts. Unnur Ýrr, sem er
menntuð sem grafískur hönnuð-
ur, segir að það hafi hjálpað til
við listsköpunina að vera með ör-
litla heimþrá því minningar um
sveitina kveiktu eitthvað í henni.
Bakkinn er úr birki og á bak-
hlið hans má finna ljóðið „Sveit-
in mín“ eftir Sigurð Jónsson
sem Unnur notaði sem innblást-
ur fyrir myndefni bakkans. Ætl-
unin er að fá fleiri íslenska lista-
menn í samstarf í nánustu fram-
tíð. „Bakkinn er ekki einungis
flott tækifærisgjöf og nytsamleg-
ur hlutur heldur mun hann verða
eins konar safngripur þar sem
hann er fyrsti bakkinn í seríunni
„Íslandsbakkinn“, svo ef þú miss-
ir af bakka númer eitt þá get-
urðu nálgast bakka númer tvö.
Öll heimili verða að eiga bakka
og ekki skemmir fyrir að bakk-
inn sé einnig list inn á heimilið.“
Íslandsbakkinn – Sveitin mín
fæst í Epal.
LIST HEIMÞRÁIN HJÁLPAÐI TIL VIÐ
LISTSKÖPUN ÍSLANDSBAKKANS
TÍSKA NÝR FRAMKVÆMDA-
STJÓRI RÁÐINN TIL ZISKU
Unnur Ýrr Helgadóttir og Marikó Margrét Ragnarsdóttir hönnuðu Íslandsbakkann í Stokkhólmi.