Fréttablaðið - 31.01.2014, Qupperneq 44
FRÉTTABLAÐIÐ Förðun & Hönnun. Tíska & Verslun. María Lovísa Árnadóttir. Uppáhaldshlutirnir. Netverslun. Helgarmaturinn & Spjörunum Úr.
4 • LÍFIÐ 31. JANÚAR 2014
„Ég hafði samband við verslanir þegar
ég var að safna fyrir framleiðslukostn-
aðinum og Halla í Kraum tók vel í að
styrkja en verslunin Kraum og norður-
ljósasetrið Aurora Reykjavík ákváðu að
taka þátt í fjármögnuninni á fatalínunni
minni og áttu stóran þátt í því hversu
vel tókst,“ segir Heiðrún Ósk Sigfúsdótt-
ir, sem safnaði fyrir framleiðslukostnað-
inum á sinni fyrstu fatalínu, Dimmblá, á
Karolina fund í desembermánuði. „Síð-
ustu dagarnir á Karolina Fund voru gíf-
urlega spennandi. Fjársöfnunin gekk ein-
staklega vel og voru verslanir jafnt sem
einstaklingar hérlendis og erlendis að
heita á verkefnið.“ Heiðrún Ósk, hönn-
uður Norðurljósalínunnar, seg-
ist vera himinlifandi yfir við-
brögðunum en hún hefur
fengið umfjöllun á bloggum
erlendis og fjölmarga tölvu-
pósta þar sem að fólk lofar
nýju fatalínuna. Hún segist
jafnframt hafa stigið stórt skref
þegar hún ákvað að hanna
sína eigin línu. „Það er mikil-
vægt að fara hægt af stað, taka eitt
skref í einu og vera hagsýn. Það skiptir
öllu máli að hafa óbilandi trú á sjálfum
sér og verkefninu, fara reglulega út fyrir
þægindarammann og að vera lausnar-
miðuð,“ segir hún.
HÖNNUNARVERSLUNIN KRAUM
ÞÁTTTAKENDUR Í FRAMLEIÐSLU
FATALÍNUNNAR DIMMBLÁ
Heiðrún Ósk Sigfús-
dóttir hönnuður og
Halla í Kraum.
Það skiptir öllu
máli að hafa
óbilandi trú
á sjálfum sér
og verkefninu,
fara reglulega
út fyrir þæg-
indarammann
S
ara Dögg Johansen er annar eig-
andi förðunarskólans, Reykja-
vík Makeup School sem verð-
ur opnaður á Lynghálsi 4 um
helgina. Hún hefur haft í nógu
að snúast undanfarin ár en hún hefur
farðað fyrir tískusýningar, leikrit, sjón-
varp, stuttmyndir, tónleika og forsíð-
ur tímarita. Lífið fékk Söru Dögg til að
útskýra og farða hina almenna andlits-
skyggingu sem hefur verið svo vinsæl
hjá stjörnum á borð við Kim Kardashi-
an. Fyrirsætan er fegurðardrottning
Íslands, Tanja Ýr Ástþórsdóttir.
Almenna skyggingin sem á að henta
flestum:
Hin almenna highlight & contour
skygging er það vinsælasta hjá stjörn-
unum í dag en það felst í því að leiðrétta
hlutföll andlitsins, hækka kinnbein og
minnka undirhökuna. Hægt er að nota
ljóst og dökkt meik til að skyggja en
vinsælast er að skyggja með sólarpúðri
og ljósum hyljara.
Ljósi liturinn (highlight) er notaður
til að til að skerpa, draga fram og lýsa
svæðin á andlitinu.
Kinnbein og kjálki
Dökkir tónar (contour) draga saman og
minnka svæðin. Dökki liturinn er settur
undir kinnbeinin til að draga þau fram
og undir kjálkann til að draga kjálka-
beinin fram.
Hársrót
Gott er að skyggja við hárrótina til að
minnka hátt enni og einnig er skyggt til
hliðanna ef enni er breitt. Það er mjög
gott að þekkja sitt andlitsfall en þetta
er almenna skyggingin. Það geta allir
gert þetta.
Nefið
Til að minnka nefið skal setja high light
í miðjuna og dekkri línu báðum megin
við. Aðalgaldurinn til að fá sem falleg-
ustu og náttúrulegustu skygginguna
er að blanda nógu vel með bursta eða
hreinum fingrum og nudda inn svo það
séu engar línur og engin skil.
FÖRÐUN HÆKKAÐU KINNBEIN
OG MINNKAÐU UNDIRHÖKUNA
Sara Dögg Johansen, förðunar-og airbrush fræðingur, sýnir hina almennu skyggingu á fegurðardrottningu Íslands , Tönju Ýri Ástþórsdóttur. Sara Dögg
notaði Inglot-vörur til að skyggja og draga fram ákveðin svæði á andlitinu en hin almenna skygging hentar fl estu andlitsfalli.
Andlitsföllin. Bleiki liturinn er skyggingin
(contour) og fjólublái liturinn er lýsingin(hig-
hlight).
Sara Dögg
Johansen,
annar eig-
enda Reykja-
vík Make-
up School,
hefur mikla
reynslu í
förðunargeir-
anum.
Tanja Ýr, fegurðardrottning Íslands