Fréttablaðið - 31.01.2014, Blaðsíða 46
FRÉTTABLAÐIÐ Tíska & Verslun. María Lovísa Árnadóttir. Uppáhaldshlutirnir. Netverslun. Helgarmaturinn & Spjörunum Úr.
6 • LÍFIÐ 31. JANÚAR 2014
Þ
að er svo mikil ró yfir öllu
og bara yndislegt að vera
hérna,“ segir Helga Ólafs-
dóttir, aðalhönnuður og
stofnandi Ígló og Indí, sem
er stödd á Akureyri þegar blaða-
maður nær tali við hana. Norð-
urlandið var valið til þess að
komast úr hversdags amstrinu og
fá innblástur til þess að teikna
upp fatalínuna fyrir sumar-
ið 2015. Með Helgu er grafíski
hönnuðurinn Karítas Pálsdótt-
ir, en hún teiknar alla grafíkina
hjá Igló og Indí. Hönnunarferl-
ið er langt og strangt og segir
Helga það vera svolítið skrítið að
byrja upp á nýtt þegar nýbúið er
að mynda vetrarlínu 2014. „Við
vorum með gott teymi í síðustu
myndatöku en þetta er fjórða
línan sem Íris Dögg Einarsdótt-
ir myndar með okkur. Við viljum
hafa fjölbreytileikann og börn-
in eiga að fá að njóta sín svo Íris
er nánast eins og fluga á vegg.
Krakkarnir eru bara eðlileg-
ir þar sem þeir leika sér að leik-
mununum og hafa gaman,“ segir
Helga og bætir við: „Guðbjörg
Huldís sá um að skreyta og farða
krakkana og Theódóra Mjöll sá
um hárið. Myndatakan tók tvo
daga en undirbúningurinn um
það bil viku,“ segir hún glöð í
bragði.
TÍSKA KRAKKARNIR
EIGA AÐ SKEMMTA SÉR
Myndir: Íris Dögg Einarsdóttir Hönnun: Helga Ólafsdóttir
Leikmunir: Karítas Pálsdóttir Förðun og andlitsskreyting:
Guðbjörg Huldís Kristinsdóttir Hár: Theodóra Mjöll Skúla-
dóttir Jack Aðstoð: Sandra Vilborg Jónsdóttir
FROSIÐ
LANDSLAG
Ímyndið ykkur eyju langt í norðri,
fjöllin þakin snjó, vötn full af ís og
svartar strendur. Í þessu fagra, frosna
landslagi dvelja glaðbeitt börn; þau dansa,
hlæja og leika sér með vinum sínum, dýrunum.
Þau herma eftir hreyfingum þeirra, spretta eins
og refurinn, hoppa eins og kanínan, fara í
árásarstöðu bjarnarins. Önnur tylla sér á
trjágrein eins og uglan eða, líkt og tign-
arlegur fálkinn, teygja handleggina
upp til flugs. Í þessari einstöku
undraveröld barnanna er ekk-
ert ómögulegt.
„Ég fékk þessa hugmynd í Englandi
því að þar kaupir maður eiginlega allt
á netinu. Ég var orðin vön því að geta
keypt í matinn á netinu og því var það
örlítið sjokk að fl ytja heim til Íslands
aftur og geta keypt lítið sem ekkert á
netinu,“ segir Eva Sæland sem nú hef-
ur opnað netverslunina Reykjavík gift
shop. Verslunin sérhæfi r sig í blóm-
vöndum og sérvöldum gjafavörum
til heimsendingar og eru blómvend-
irnir handbundnir á æskuslóðum Evu,
heima í Reykholti í Bláskógabyggð.
Eva er alin upp í blómabransanum
en fjölskylda hennar ræktar blóm og
hefur sérhæft sig í að senda tilbúna
blómvendi frá sér. „Þetta byrjar
rólega hjá mér enda er ég að vinna í
70% vinnu hjá Kron. Þetta er tilvalin
verslun fyrir fyrirtæki sem vilja vera
í blóma áskrift, fyrir Íslendinga sem
búa erlendis eða fyrir fólk sem vill
kaupa fínar tækifærisgjafi r, íslenska
sérvöru og gefa falleg blóm og losna
við innpökkunina og allt umstangið.“
Verslunin er snjallsímavæn og það er
tveggja daga afhendingartími. Eva
hefur áhuga á að heyra í fl eiri aðilum
varðandi samstarf en hún er nú í við-
ræðum við Sif Jakobs og fl eiri íslenska
hönnuði. Vöruúrvalið má sjá á reykja-
vikgiftshop.com
VEFVERSLUN HANDBUNDNIR
BLÓMVENDIR BEINT FRÁ BÓNDA
Eva Sæland hefur nýlega opnað netverslunina Reykjavík gift shop.is
Verslunin sérhæfir sig í blómvönd-
um og sérvöldum gjafavörum til
heim sendingar og eru blómvendirn-
ir handbundnir á æskuslóðum Evu,
heima í Reykholti í Bláskógabyggð.
Eva Sæland
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SUPERBEETS Rauðrófukristall
100% lífrænt og því fullkomlega öruggt
30 daga skammtur. 1 teskeið daglega
(2 tsk. fyrir æfingar) blandað í 150 ml af vatni.
Bætt blóðflæði 30 min eftir inntöku.
Eftir fertugt framleiðir líkaminn 50% minna
Nitric Oxide. SUPERBEETS örvar
Nitric Oxide framleiðslu strax.
Betra blóðflæði, allt að 30% æðaútvíkkun,
30% meiri súrefnisupptaka, réttur blóðsykur,
aukin fitubrennsla, 20% meira þrek orka og
úthald, hraðar bata eftir æfingar.
Bætt ris hjá körlum, aukin kynörvun kvenna.
Nitric Oxide hefur áhrif á og bætir: Blóðþrýst-
ing, k ólesteról, h jarta- æða- og taugakerfi,
þvagblöðru o g ristil, lifur, nýru, ofnæmiskerfi,
heila, skapferli, þynnku, astma, lungnaþembu.
Ríkt af andoxunarefnum.
Náttúruleg kynörvun fy ir r karla og konur
Hvað gerir SILDENAFIL
The release of nitric oxide molecules
causes erection.
Fæst í apótekum, heilsubúðum og
World Class Umboð: www.vitex.is
Nitric Oxide
Nóbelsverðlaun 1998
Sameind ársins 1992
Betra blóðflæði
Betri líðan - betri heilsa
NO = 30 flöskur af
rauðrófusafa ml500
Stingur
keppinautana af.
1. Superbeets dós
= 30 flöskur af
rauðrófusafa
500 ml