Fréttablaðið - 31.01.2014, Qupperneq 48
FRÉTTABLAÐIÐ María Lovísa Árnadóttir. Uppáhaldshlutirnir. Netverslun. Helgarmaturinn & Spjörunum Úr.
8 • LÍFIÐ 31. JANÚAR 2014
Uppáhalds
H
ún var með plön um að
hefja nám í Danmörku
þegar hún varð ástfang-
in af eiginmanninum og
örlögin gripu í taumana.
Bæði þráðu að fara í nám erlend-
is og eftir að hafa skoðað ýmsa
möguleika fluttu þau til Arizona
í Bandaríkjunum þar sem hún
lærði innanhússarkitektúr í Ari-
zona State University. Áhuginn á
fyrirtækjasköpun og viðskipta-
hugsun jókst í sífellu og ákvað hún
að fara í MBA-nám í stjórnun og
stefnumótun. Með skýra framtíð-
arsýn og draum um að verða sinn
eigin herra flutti hún til Íslands
eftir tólf ára erlenda búsetu og í
dag leyfir hún sköpunargáfunni að
njóta sín. Hún starfar með stjórn-
endum og stjórnendateymum,
bæði hér á landi og í Bandaríkjun-
um sem markþjálfi.
Íslenskir minjagripir
Þú ert menntuð sem innanhúss-
arkitekt frá bandarískum skóla en
starfar aðallega sem markþjálfi í
dag. Hefurðu þá lagt hönnunina á
hilluna?
„Alls ekki. Mér finnst hönnun,
viðskiptahugsun, stefnumótunar-
vinna og markþjálfun vera nátengt
hvert öðru og eru þetta allt mis-
munandi vinklar á sama kjarna;
að skapa betri veruleika. Við erum
því alltaf að hanna og skapa eitt-
hvað hvort sem við erum meðvit-
uð um það eður ei. Eftir að hafa
saknað þess að leika mér í hönn-
un tók ég þátt í Hönnunarmars í
fyrra hjá Epal og sýndi línu sem
heitir Inspira. Þetta byrjaði sem
áhugaverkefni sem ég fór að vinna
með pabba mínum en hann og
bróðir minn vinna allt viðarverk
fyrir mig. Inspira-vörurnar byggj-
ast að öllu leyti á íslenskum inn-
blæstri og sá ég fyrir mér vörur
sem ég sjálf myndi vilja eign-
ast ef ég væri að kaupa mér eitt-
hvað íslenskt eða myndi vilja gefa
öðrum sem minjagripi frá Íslandi.
Eins og kannski gefur að skilja er
ég mjög hrifin af alls konar inn-
anhúsmunum og vel fremur slíka
muni frá öðrum löndum í stað týp-
ískra minjagripa. Allar vörurn-
ar eru einstaklega „íslenskar“ og
tengjast okkar menningu, sögu og
náttúru og eru framleiddar hér á
landi. Sem stendur er hægt að fá
Inspira-veggplatta og segla byggða
á galdrastöfum þar sem saga tákn-
anna er í forgrunni og einnig eru
Stuðla-stjakarnir komnir í Epal en
þeir eru úr gegnheilli steypu og
fást með eikarplöttum og eru að
öllu leyti byggðir á innblæstri frá
stuðlaberginu. Fleiri vörur eru svo
væntanlegar í verslanir á þessu
ári, púðar, klukkur og fleira.“
Telur þú að það sé mikilvægt
fyrir hönnuði að huga meir að um-
hverfisþenkjandi hönnun?
„Ég tel það lykilatriði fyrir
framtíðina sem og siðferðislega
skyldu hönnuða að gera það sem
í þeirra valdi stendur til þess að
huga að umhverfinu. Hönnuðir
hafa tækifæri til þess að gera svo
margt á þessu sviði enda hanna
þeir borgir, húsnæði og hluti. Með
hugmyndaauðgi og þekkingu má
draga verulega úr sóun og um-
hverfisspillandi áhrifum. Það
skiptir allt máli þegar það kemur
að hönnun, allt frá uppsetningu,
vali á efnivið og framleiðsluferli
yfir í val á tæknibúnaði. Auðlind-
ir heimsins eru ekki óendanlegar
og í framtíðinni gæti það vel orðið
þannig að ruslahaugar nútímans
verði álitnir fjársjóðir. Hönnuð-
ir geta ýtt undir framsýna hugs-
un og boðið upp á umhverfisvæna
valkosti og lausnir og endurnýtt
enn betur það sem hægt er að end-
urnýta. En auðvitað er það þann-
ig að við þurfum alltaf að sann-
færa þann sem er að borga brús-
ann og efla okkur í því að sýna
fram á hag þess að velja umhverf-
isvæna kosti.“
Eftir MBA-námið í stjórnun og
stefnumótun opnaði María Lovísa
hönnunarstofu í Phoenix, Arizona
ásamt skólafélögum sínum með
áherslu á umhverfisvæna hönn-
un fyrirtækjarýma. „Það mætti
segja að við höfum verið aðeins
á undan samtímanum með þenn-
MARÍA LOVÍSA
LÆRDÓMUR
LÍFS MÍNS ER AÐ
„MINNA ER MEIRA”
María Lovísa Árnadóttir hefur ætíð haft áhuga á hönnun en
varð hugfangin af markþjálfun þegar hún réð til sín þjálf-
ara hjá fyrirtæki sínu í Bandaríkjunum. Í dag starfar hún
sem markþjálfi stjórnenda og hannar fyrir íslenska fyrir-
tækið sitt Inspira. Lífi ð ræddi við hana um námið í Banda-
ríkjunum, umhverfi svæna hönnun og hvernig maður metur
litlu hlutina sem lífi ð hefur upp á að bjóða.
NAFN:
María Lovísa Árnadóttir
ALDUR:
39 ára
STARF:
Markþjálfi stjórnenda og
stjórnunarteyma, hönnuður.
HJÚSKAPARSTAÐA:
Gift Stefáni Sigurðssyni
BÖRN:
Tara Guðrún, 10 ára og
Sigurður Leó 7 ára.
MATUR? Hráfæði, sushi og gott lambakjötssalat.
DRYKKUR? Vatn og sítrónukristall.
VEITINGAHÚS? Gló, Happ, Rub 23 eru vinsælastir.
VEFSÍÐA? Inspira.is, FastCompany.com, Psychology-
Today.com, TreeHugger.com og Pinterest.com
VERSLUN? Epal
HÖNNUÐUR? Of margir til að nefna en Philippe
Starck er alltaf áhugaverður brautryðjandi.
HREYFING? Dansa með börnunum, hot yoga og
göngutúrar.
DEKUR? Mjög heit böð og pottar og einstaka
nuddtími.